Morgunblaðið - 17.09.2011, Síða 37
DAGBÓK 37
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 17. SEPTEMBER 2011
Sudoku
Frumstig
5 2 8
4
6 7 9
5 2 3
7 2 8
8 9 6 3 5
9 3 2
7 3
9 6
7 3 4 8
1 2
1 3 9 4
8 7
2 9 6
6 3
4
7 2 4
9
3 4 5 9
7 5 2
9 5 1
4
2
7 3 1
4 7 6 1
1 2 3 6
2 4
9 5 1 7 3 4 8 2 6
6 2 7 5 8 9 4 1 3
4 8 3 2 6 1 5 9 7
2 3 9 6 7 5 1 4 8
8 4 6 1 9 2 7 3 5
1 7 5 3 4 8 2 6 9
3 9 2 4 5 7 6 8 1
7 6 4 8 1 3 9 5 2
5 1 8 9 2 6 3 7 4
3 8 5 1 9 4 2 7 6
1 9 7 5 2 6 8 4 3
2 4 6 8 7 3 1 9 5
8 5 3 4 6 9 7 1 2
6 7 4 3 1 2 5 8 9
9 2 1 7 8 5 6 3 4
7 3 9 6 5 1 4 2 8
5 1 2 9 4 8 3 6 7
4 6 8 2 3 7 9 5 1
5 4 9 7 1 3 8 6 2
1 6 2 8 9 4 7 5 3
3 8 7 6 5 2 1 4 9
2 9 6 5 4 8 3 1 7
4 5 3 9 7 1 6 2 8
8 7 1 3 2 6 4 9 5
7 2 4 1 3 5 9 8 6
6 3 5 4 8 9 2 7 1
9 1 8 2 6 7 5 3 4
Efsta stigMiðstig Lausn síðustu sudoku
Þrautin felst í því að fylla
út í reitina þannig að í
hverjum 3x3-reit birtist
tölurnar 1-9. Það verður að
gerast þannig að hver níu
reita lína bæði lárétt og
lóðrétt birti einnig tölurnar
1-9 og aldrei má tvítaka
neina tölu í röðinni.
Í dag er laugardagur 17. september,
260. dagur ársins 2011
Orð dagsins: Fagnið því, þótt þér nú
um skamma stund hafið orðið að
hryggjast í margs konar raunum. (1
Pt. 1, 6.)
Í gær var dagur íslenskrar nátt-úru haldinn hátíðlegur í fyrsta
skiptið. Ljósmyndari Morgunblaðs-
ins, Ragnar Axelsson (RAX) vann
verðlaunin og er Víkverji mjög
stoltur af þessum kollega sínum á
blaðinu. En Víkverji hefur lengi velt
því fyrir sér hvað sú náttúrudýrkun
sem er ráðandi á Vesturlöndum
segi um samfélögin.
x x x
Umhverfisverndarverðlaun eruorðin mjög víða og það fólk
sem tengir sig umhverfisvernd fær
gjarnan guðlega upphafningu af
samtímamönnum sínum.
Ef reynt er að horfa til hennar
jákvæðum augum má segja að um-
hverfisverndin sé viðbrögð við því
eyðandi afli sem býr í okkur. Mað-
urinn hafi gengið illa um náttúruna
og nú sé verið að reyna að breyta
því, þannig að afkomendur okkar
fái líka notið hennar.
Það er svosem gott og blessað en
Víkverja hefur alltaf grunað að
þessi bylgja umhverfisverndar eigi
sér önnur upptök. Sé slungin ein-
hverri fyrirlitningu á framförum og
andúð á vinnandi fólki.
Virkjanir voru mikið framfara-
skref fyrir samfélag manna. Það er
eitthvað undarlegt við það að það sé
búið að gera störf þessa fólks sem
stendur að slíkri uppbyggingu
grunsamleg. Og að fólk sem vill
standa í vegi fyrir þeim sé upphafið.
x x x
Verst er Víkverja við orðið sjón-mengun. Á meðan allir vilja
forðast að spillandi efni fari útí um-
hverfið að þá á Víkverji voðalega
erfitt með að samþykkja sjón-
mengun sem rök fyrir því að ekki
skuli ráðist í framkvæmdir. Það er
einhver hroki sem býr í slíkri orða-
notkun. Einhver fullyrðing um að
fagurfræðiviðhorf einhvers hóps
manna séu algild. Mörgum finnst
kannski fallegra að sjá grösugan
dal, ósnertan af mannahöndum en
persónulega finnst Víkverja alltaf
fallegra ef eitthvað fólk hefur nennt
að stoppa við í dalnum, byggja þar
upp hús, virkjanir og leggja vegi.
víkverji@mbl.is
Víkverjiskrifar
Krossgáta
Lárétt | 1 blámaður, 4 rit-
um, 7 stoppa í, 8 heitir, 9
nugga, 11 sigaði, 13 falleg,
14 bor, 15 bráðum, 17 finn
að, 20 hljóma, 22 þrautir, 23
hármikil, 24 sér eftir, 25 sár.
Lóðrétt | 1 naglaskapur, 2
spónamat, 3 svelgurinn, 4
farartækja, 5 hattkollur, 6
lofið, 10 rándýrum, 12
greinir, 13 skjót, 15 raki, 16
brúkar, 18 oft, 19 litlir læk-
ir, 20 eirðarlaus, 21 grískur
bókstafur.
Lausn síðustu krossgátu
Lárétt 1 löðrungur, 8 brunn, 9 flimt, 10 iðn, 11 illur, 13 asnar, 15
slórs, 18 eðjan, 21 púl, 22 kytra, 23 firar, 24 hrakyrðir.
Lóðrétt 2 ötull, 3 rúnir, 4 nefna, 5 uxinn, 6 obbi, 7 ætur, 12 urr,
14 sáð, 15 sekk, 16 Óttar, 17 spark, 18 elfur, 19 járni, 20 norn.
1
7
11
15
22
24
12
14
3
9
20
10
4
8
21
23
25
13
17
5
18
6
19
2
16
Brids
Guðmundur Páll Arnarson | ritstjorn@mbl.is
Tvær leiðir.
Norður
♠KD863
♥ÁD9
♦975
♣G9
Vestur Austur
♠10942 ♠G5
♥G105 ♥76
♦DG103 ♦864
♣K6 ♣D85432
Suður
♠Á7
♥K8432
♦ÁK2
♣Á107
Suður spilar 6♥.
„Ég spilaði þetta sennilega vitlaust.“
Kristján Blöndal teiknaði upp stöðu-
mynd frá undanúrslitum bikarkeppn-
innar. Hann varð sagnhafi í hjarta-
slemmu og fékk út ♦D.
Kristján drap, spilaði hjarta á ás og
lét ♣G rúlla yfir á kóng vesturs.
Hjartagosi kom til baka, drottning upp
og … ja, hvað?
Til greina kemur að taka síðasta
trompið og treysta á að spaðinn falli,
með svíningu í laufi til vara. Sú leið
gengur upp, en Kristján tók annan pól
í hæðina. Hann lagði niður ♣Á og
reyndi að stinga þriðja laufið í borði.
Það gekk ekki. Vestur var orðinn lauf-
laus og gat trompað með tíunni.
Kristjáni er vorkunn, því leiðirnar
tvær eru svipaðar að gæðum. Hins
vegar er vörn vesturs grunsamleg – að
spila ♥G.
17. september 1844
Kosið var til Alþingis í fyrsta
sinn í Reykjavík. Sveinbjörn
Egilsson rektor hlaut flest at-
kvæði, 15, en neitaði þingsetu.
Fulltrúi Reykvíkinga varð því
Árni Helgason stiftsprófastur
sem hafði hlotið 11 atkvæði.
17. september 1998
Ný brú á Gígjukvísl var form-
lega tekin í notkun. Hún er
336 metra löng. Eldri brú
hvarf í Skeiðarárhlaupinu
tveimur árum áður.
17. september 2001
José Carreras var vel fagnað í
Laugardalshöll þar sem stór-
tenórinn söng fyrir fullu húsi
ásamt Diddú, kór Íslensku óp-
erunnar og Sinfóníuhljómsveit
Íslands. Carreras tók fjölda
aukalaga en alls stóðu tónleik-
arnir í tæpa þrjá tíma.
17. september 2009
Íslenska kvennalandsliðið í
knattspyrnu sigraði Eista á
Laugardalsvelli með tólf
mörkum gegn engu. „Fá-
heyrðir yfirburðir,“ sagði
Morgunblaðið.
Dagar Íslands | Jónas Ragnarsson.
Þetta gerðist…
Ragnhildur Pála Ófeigsdóttir fagnar í dag sex-
tugsafmæli ásamt vinum og ættingjum. Ragnhild-
ur hefur undanfarin ár starfað sem kennari, en í
vetur er hún ekki í hlutverki kennara heldur nem-
anda. „Ég ákvað gera tilraun til að klára meistara-
nám sem ég byrjaði á fyrir nokkrum árum í sér-
kennslu og núna vinn ég að meistaraprófsritgerð.“
„Það hefur gefið mér mikið að hafa farið út í
sérkennslu. Það er dálítið sérstakt að hafa farið út
í þetta svona seint á ævinni. Maður uppgötvar ný
áhugamál. Það má kannski segja að það hafi tekið
mig langan tíma að finna mig. Svo þegar það tekst
er maður ægilega ánægður.“
Ragnhildur sagðist aðhyllast skóla án aðgreiningar. Hún sagði að
aðstoð sérkennara við nemendur gengi út á að koma þeim yfir hindr-
anir. Oft þyrfti ekki mikið til að ná árangri. Stundum snerist þetta
bara um viðhorf. „Ég held að í raun og veru þörfum við öll sérkennslu.
Sérkennsla byggist á því að við erum öll einstaklingar og kannski á
kennslan að laga sig að nemandanum en ekki nemandinn að skól-
anum,“ sagði Ragnhildur og bætti við að það væri mjög gefandi að sjá
þegar kennslan skilaði árangri.
Ragnhildur Pála Ófeigsdóttir er sextug
Komin í hlutverk nemanda
Söfnun
Heiðrún Nanna Ólafs-
dóttir og Margrét Jóna
Stefánsdóttir stóðu fyrir
söfnun vegna hung-
ursneyðarinnar í Sómal-
íu. Þær söfnuðu 8.460
krónum sem þær af-
hentu Rauða krossinum.
Flóðogfjara
17. september Fjara m Flóð m Fjara m Flóð m Fjara m Sólaruppr. Sólsetur
Reykjavík 2.40 0,7 8.47 3,7 14.58 0,9 21.02 3,4 6.56 19.49
Ísafjörður 4.46 0,4 10.43 2,0 17.05 0,6 22.55 1,8 6.59 19.57
Siglufjörður 1.14 1,2 7.01 0,4 13.20 1,3 19.26 0,4 6.42 19.40
Djúpivogur 5.59 2,0 12.16 0,6 18.08 1,8 6.25 19.19
Sjávarhæð miðast við meðalstórstraumsfjöru Sjómælingar Íslands/Morgunblaðið
(21. mars - 19. apríl)
Hrútur Ný ást mun að líkindum kvikna í lífi
þínu á næstu dögum. Það er alveg nauðsyn-
legt að búa yfir sem flestum upplýsingum
þegar þarf að taka ákvörðun í veigamiklu
máli.
(20. apríl - 20. maí)
Naut Jafnvel þeir sem sleikja þig vanalega
ekki upp, gera það nú. Þú ert ekki hrifin/n af
fyrirhuguðum framkvæmdum á heimilinu.
(21. maí - 20. júní)
Tvíburar Þér hættir til að vera eitthvað ann-
ars hugar þessa dagana en verður að taka
þér tak og einbeita þér að því sem fyrir liggur.
(21. júní - 22. júlí)
Krabbi Þig langar svo mikið til að kaupa eitt-
hvað að það er hætt við að þú fáir það á heil-
ann. Ekki snúa út úr einföldum spurningum.
(23. júlí - 22. ágúst)
Ljón Trúðu nánum vini fyrir innstu draumum
þínum og þrám, viðbrögðin gætu komið þér á
óvart. Þú gætir fengið óvæntar gjafir eða
góss í dag, sennilega fyrir milligöngu vinar.
(23. ágúst - 22. sept.)
Meyja Sýndu þolinmæði á meðan óvissan
varir og minntu þig á að fljótt skipast veður í
lofti. Stilltu þig um að henda þér í sófann.
(23. sept. - 22. okt.)
Vog Aðdráttarafl þitt er sterkt í dag. Farðu
þér hægt og vertu ekki með neinar kúnstir.
Haltu vel utan um alla hluti, bæði í starfi sem
heima og haltu ró þinni, hvað sem á dynur
(23. okt. - 21. nóv.)
Sporðdreki Þér líður best þegar þú ert í hlut-
verki forystusauðs. Nú væri upplagt að gera
sér glaðan dag í góðra vina hópi.
(22. nóv. - 21. des.)
Bogmaður Nú skaltu setjast niður og semja
áætlanir um framkvæmd hluta, sem þú hefur
hingað til aðeins látið þig dreyma um.
(22. des. - 19. janúar)
Steingeit Láttu ekki velgengni annarra vekja
öfund þína. Komdu jafnvægi á huga þinn, þér
líður betur þannig. Vertu á varðbergi gegn
orkusugum og hlauptu í burtu ef einhver
þeirra verður á vegi þínum.
(20. jan. - 18. febr.)
Vatnsberi Nú er lag að koma skikki á fjár-
málin. Bjartsýni og eldmóður fylla þig þessar
vikurnar. Vertu sjálfum þér samkvæmur og
þá muntu uppskera laun erfiðis þíns.
(19. feb. - 20. mars)
Fiskar Láttu engan þvinga þig til sam-
komulags heldur láttu í þér heyra. Mundu að
þú ert stjórnandinn í þínu lífi.
Stjörnuspá
Mikael Kumar
Bonifacius seldi
krækiber og
safnaði 800 krón-
um sem hann gaf
Rauða krossi Ís-
lands.
Söfnun
1. c4 Rf6 2. Rc3 g6 3. g3 Bg7 4. Bg2 O-O
5. d4 d6 6. Rf3 Rbd7 7. O-O e5 8. e4 c6 9.
Hb1 exd4 10. Rxd4 He8 11. h3 Rc5 12.
He1 a5 13. b3 Rfd7 14. Be3 Re5 15. He2
f5 16. exf5 Bxf5 17. Rxf5 gxf5 18. Hc2
Rg6 19. Dd2 Df6 20. f4 Rh8 21. He1 Rf7
22. He2 He7 23. Bf2 Hae8 24. Hxe7
Dxe7 25. Kh2 Ha8 26. Hc1 Df6 27. Re2
Db2 28. Hc2 Db1 29. Rd4 Bxd4 30. Bxd4
He8 31. Bb2 Kf8 32. Dc3 He6 33. Bc1
Re4 34. Dd3 Da1 35. Bb2 Db1 36. De2
Rc5 37. Dd2 Re4 38. Bxe4 fxe4 39. De2
e3 40. Bd4 c5 41. Bc3 He4 42. Hb2 Dc1
43. Dd3 He6 44. Hb1 Da3 45. f5 He8 46.
f6 Kg8 47. Df5 Kh8 48. Dd7 Hf8
Staðan kom upp á heimsbikarmóti
FIDE sem fer senn að ljúka í Khanty-
Mansiysk í Rússlandi. Vassily Ivansjúk
(2768) hafði hvítt gegn Robert Henry
Steel (2362) frá Suður-Afríku. 49. Dxd6!
Rxd6 50. f7 mát.
SKÁK
Helgi Áss Grétarsson | ritstjorn@mbl.is
Hvítur á leik.