Morgunblaðið - 17.09.2011, Side 38

Morgunblaðið - 17.09.2011, Side 38
38 DAGBÓK MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 17. SEPTEMBER 2011 Grettir Smáfólk Hrólfur hræðilegi Gæsamamma og Grímur Úthverfið Kóngulóarmaðurinn Ferdinand *AND- VARP* EIGUM VIÐ AÐ PANTA PIZZU Í KVÖLD? ÞETTA VAR KJÁNALEG SPURNING NEI, NEI, ÞAÐ ERU EKKI TIL NEINAR HEIMSKU- LEGAR SPURNINGAR KONAN MÍN SKILUR MIG EKKI HÚN SKILUR ÞIG ALVEG... ...HÚN ER BARA ORÐIN ÞREYTT Á ÞVÍ AÐ HLUSTA Á ÞIG ÉG ÞEKKI SKO LÉLEGAR EFTIR- LÍKINGAR ÞEGAR ÉG SÉ ÞÆR EF ÞÚ HEFÐIR EKKI... ...ÞÁ VÆRIRÐU DAUÐUR NÚNA ÞARNA ER FANTURINN! FARA Í PRUFU FYRIR RAUN- VERULEIKAÞÁTT? HVAÐ ÆTLUM VIÐ AÐ GERA Í ALVÖRUNNI? MÉR ER ALVARA ÞAÐ ER VERIÐ AÐ HALDA PRUFUR FYRIR ÞÁTT SEM HEITIR „AFAKEPPNIN” EIGUM VIÐ EKKI AÐ PRÓFA, VIÐ GÆTUM ENDAÐ Í SJÓNVARPINU VÁ! HELDURÐU AÐ VIÐ GÆTUM ORÐIÐ FRÆG OG RÍK? ÉG SÆTTI MIG VIÐ AÐ VERÐA BARA RÍKUR Hugleiðingar Eitt heimskulegasta mál síðari tíma er sú meðferð sem á sér stað varðandi Geir Haarde. Að menn skuli trúa því að hann eigi að fara fyrir Landsdóm og vera hengdur fyrir margra manna sök er fáránlegt. Það vita allir að það eru miklu fleiri aðilar sem standa að því að hafa brugðist ís- lensku þjóðinni heldur en hann. Ef hann á að fara fyrir Landsdóm þá ættu fleiri að gera það líka. Eitt það furðulegasta sem hefur verið framkvæmt í langan tíma er flutningur landlæknisembættis í heilsuverndarstöðina, úr húsi þar sem ekki er hægt að segja upp leigusamn- ingi og þarf að borga milljónir á næstu árum í leigu fyrir, þótt enginn kæri sig um það. Á meðan fólk á ekki ofan í sig og á og missir húsnæðið sitt í stórum stíl auk annarra þátta sem kreppa að, þá er þetta náttúrlega ófyrirgefanlegt. Eins og menn vita þá stendur til að byggja hátæknisjúkra- hús. Hvernig dettur fólki slíkt í hug þegar allt er í kalda kolum fjárhags- lega? Þar að auki mun þetta sjúkra- hús tryggja gjörbreytingu á öllum miðbæ Reykjavíkur. Ekki bara hvað varðar útsýni heldur bílastæði og ótal margt fleira. Það vita allir að það er hægt að leysa sjúkra- húsvandann á Land- spítalanum með öðrum og einfaldari hætti sem kostar minna fjármagn og veldur ekki miklum óþægindum fyrir þá sem tengjast málinu. Varðandi allar skað- ræðislegar náttúru- hamfarir undanfarna mánuði eins og eldgos, jarðskjálfta, uppskeru- brest og flóð, þá er kannski full ástæða fyrir menn, þó að forsagan segi að slíkt hafi alltaf verið til, að íhuga hvort þetta geti tengst hækkuðu yfirborði sjávar, geim- skotum og alls kyns öðrum nátt- úrubreytingum af mannavöldum. Nú er haustið að koma og á sama tíma og við getum notið mikilla breytinga árs- tíðarinnar þá fer ekki hjá því að flest okkar munu sakna sólarinnar og ekk- ert verra að hún hafi yljað okkur og umvafið á síðustu dögum að minnsta kosti í Reykjavík. Jóna Rúna Kvaran. Ást er… … þegar hann sleikir kandíflossið af nefinu á þér. Velvakandi Svarað í síma 5691100 frá 10–12 velvakandi@mbl.is Tuttugasta þing kommúnista-flokks Ráðstjórnarríkjanna var sett í Moskvu 14. febrúar 1956. Kristinn E. Andrésson, fram- kvæmdastjóri Máls og menningar, var annar fulltrúi Sósíalistaflokksins á þinginu. Fyrstu dagana fluttu nokkrir foringjar kommúnista ræð- ur, sem skilja mátti sem ádeilur á Stalín, hinn gamla einræðisherra, sem látist hafði þremur árum áður. Þetta vakti mikla athygli á Vest- urlöndum. Vikublaðið Frjáls þjóð, sem deilt hafði árum saman á sósíal- ista fyrir þjónkun við Kremlverja, gaf sigri hrósandi út sérstakt auka- blað 20. febrúar um þessar ádeilur á Stalín. Íslenskir sósíalistar ókyrrð- ust. Eiginkona Kristins skrifaði hon- um 24. febrúar: „Annars er mér sama, hvað þeir segja í Moskvu um Stalín minn, hann verður alltaf stór- menni í mínum augum, og ég held, að hann hafi mátt vera dálítið ein- ráður.“ Rakst ég á þetta fróðlega bréf í skjalasafni Kristins á Þjóð- arbókhlöðunni. Lúðvík Jósepsson birti sama dag, 24. febrúar 1956, langa grein í Þjóð- viljanum undir heitinu „Flóttinn til Volgu“, þar sem hann varaði ís- lenska sósíalista við að taka mark á æsifréttum vestrænna blaða af flokksþinginu í Moskvu. Þær breyttu engu um það, að sósíalism- inn hlyti að sigra í heiminum. Lúðvík gat ekki verið óheppnari í tímasetningu. Að kvöldi sama dags og hann birti grein sína, flutti Níkíta Khrústsjov, aðalritari komm- únistaflokksins, leynilega ræðu yfir innlendum þingfulltrúum, þar sem hann gerði upp við Stalín. Hinn látni einræðisherra hefði verið valdasjúk- ur, ofsótt flokksbræður sína og logið sökum upp á herforingja Rauða hersins. Enginn hefði verið óhultur fyrir honum. Þótt ræðan væri leynileg, leyfðu Kremlverjar vestrænum fréttarit- urum að birta hana í erlendum blöð- um. Þeir tóku hins vegar ekkert tillit til hinna íslensku fylgismanna sinna, sem stóðu eins og þvörur. Kristinn E. Andrésson frétti fyrst af ræð- unni, þegar hann kom við í Kaup- mannahöfn á heimleið og las dönsku dagblöðin. Og líklega hefur Lúðvík Jósepssyni ekki verið skemmt, þeg- ar hann heyrði um ræðuna og minnt- ist greinar sinnar sama dag um „Flóttann til Volgu“. Athugasemdir og leiðréttingar vel þegnar Hannes H. Gissurarson hannesgi@hi.is Fróðleiksmolar úr sögu og samtíð 24. febrúar 1956 Karlinn á Laugaveginum varskrítilegur á svipinn þegar ég hitti hann og spurði frétta. „Ég hef verið að (g)narrast við kerlinguna,“ sagði hann, „og hún tók því vel en tautaði þó fyrir munni sér „skyldi hann yrkja þetta af góðum eða ill- um (sig)hvötum?““ Ég aulafyndni fyrirlít, finnst hann þunnur húmorinn. Allur rennur í hans hít öskutunnuskatturinn. Einar K. Guðfinnsson alþing- ismaður hefur síðustu ár farið í göngur í Austurdal í Skagafirði og lagði af stað úr byggð í gær. Hann sagði mér að þegar hann fór í fyrsta sinn hefði hann spurt, hvernig best væri að bera sig að. Þórólfur Pét- ursson á Hjaltastöðum í Blönduhlíð svaraði honum með alkunnri vísu: Þú skalt æða yfir storð og ekki mæla hlýlegt orð; svipurinn á að minna á morð ef menn eru að smala á annað borð. Í Göngum og réttum segir frá göngum Skagfirðinga á Eyvind- arstaðaheiði haustið 1985, en leit- arforysta var í höndum Grétars Símonarsonar í Goðdölum. Um há- degi 8. september koma allir saman við Eyfirðingahóla og fá mat og kaffi hjá ráðskonu en hestar hey, því að lítið er um hrossahaga eins og Kristján Stefánsson í Gilhaga lýsir: Eyðisandur, órafirrð ótal myndir geyma. Gulli brydd í grafarkyrrð glitra fjöllin heima. Auðnarfegurð, undraland. Íss í veldi og sólar upp sig hefja yfir sand Eyfirðingahólar. halldorblondal@simnet.is Vísnahorn ...og ekki mæla hlýlegt orð

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.