Morgunblaðið - 17.09.2011, Side 39

Morgunblaðið - 17.09.2011, Side 39
MENNING 39 MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 17. SEPTEMBER 2011 Undanfarinn áratug hefur Nýlistasafnið efnt til sýninga sem safnið nefnir Grasrót og eru ætlaðar til að gefa þver- skurð af því sem ungir listamenn fást við á hverjum tíma. Á sýningunum eru sýnd verk eftir upprennandi mynd- listarmenn og í gegnum árin hafa margir af efnilegustu myndlistarmönnum síðustu ára tekið þátt í Grasrót- arsýningum. Níunda Grasrótin hefst í Nýlistasafninu í dag kl. 19.30 og stendur til 30. október. Á sýningunni að þessu sinni eiga verk Bryndís Björnsdóttir, Helga Björg Gylfadótt- ir, Irene Ósk Bermudez, Klængur Gunnarsson, Kolbrún Ýr Einarsdóttir, Kristín Rúnarsdóttir, Sigríður Tulinius og Sigurður Atli Sigurðsson. Listamennirnir voru sér- staklega valdir af nefnd skipaðri af stjórn safnsins. Í henni voru Markús Þór Andrésson, Kristín Dagmar Jó- hannsdóttir og Kristjana Rós Oddsdóttir Guðjohnsen, sem er jafnframt sýningarstjóri Grasrótar IX. Kristjana Rós er myndlistarmenntuð en einnig með meistaragráðu frá Háskóla Íslands í hagnýtri menning- armiðlun. Hún segir að þó listamennirnir komi hver úr sinni áttinni eigi þau það sameiginlegt að vera öllu út- skrifuð úr Listaháskóla Íslands og eins megi segja að það sé ákveðin lína sem tengi þau saman, verkin séu öll mjög meðvituð um umhverfi „og þá er ég að meina menningarlegt umhverfi, samfélagið og rými, innra rými og ytra“. Hún segir að verkin séu unnin í ýmis efni. „Þetta eru þrívíð verk, vídeóinnsetningar, gjörningar, skúlptúrar og greinaskrif, sem er verk sem er beintengt inn á sýn- inguna en ekki innan safnrýmisins, og með ljósmyndir. Safnrýmið er mjög vel nýtt og verður mjög skemmtileg upplifun að skoða sýninguna.“ Níunda Grasrótin Upplifun Sigríður Tulinius, Brot úr stríðum – þríleikur, 2011. Morgunblaðið/Árni Sæberg Grasrót Kristjana Rós Guðjonsen  Átta ungir listamenn sýna í Nýlistasafninu Fríkirkjan í Hafnarfirði býður til hausthátíðar í dag með tónlistar- veislu í kirkjunni og vöfflukaffi í safnaðarheimilinu af því tilefni að vetrarstarf kirkjunnar er hafið og einnig til að kynna söfnuðinn og starfsemi hans Hátíðin verður haldin í kirkjunni og í safnaðarheimilinu á Linnets- stíg 6 milli kl. 15.00 og 17.00. Tón- listarmennirnir sem koma fram eru nær allir í söfnuðinum. Fram koma Kór Fríkirkjunnar í Hafnarfirði, Örn Arnarson, Erna Blöndal, Guð- mundur Pálsson, Fríkirkjubandið, Bjargræðistríóið, Hildigunnur Ein- arsóttir, Sönghópur Fríkirkjunnar í Hafnarfirði, Esther Jökulsdóttir, Tómas Axel Ragnarsson og bræð- urnir Jón Jónsson og Friðrik Dór. Þess má geta að sr. Sigríður Kristín Helgadóttir, annar presta kirkjunnar, er nú í ársleyfi að hluta, en í hennar stað kemur sr. Bryndís Valbjarnardóttir, prestur hjá Fríkirkjunni í Reykjavík. Hausthátíð Fríkirkjunnar Tónlistarstjóri og prestar Fríkirkjunnar Örn Arnarson, Bryndís Valbjarn- ardóttir, Sigríður Kristín Helgadóttir og Einar Eyjólfsson. Þrjár kvikmyndir verða í flokki Mið- næturmynda á Alþjóðlegri kvik- myndahátíð í Reykjavík í ár sem ku vera einn vinsælasti flokkur hátíð- arinnar. Í þessum flokki hafa verið sýndar hryllingsmyndir, költmyndir og furðumyndir. Í ár verða þrjár myndir sýndar um miðnætti: Trölla- veiðarinn (Trollhunter), 13 leigu- morðingjar (13 Assassins) og Rautt fylki (Red State). Tröllaveiðarinn er norsk spennu- og ævintýramynd eft- ir André Øvredal og segir hún af þremur háskólanemum sem elta dul- arfullan veiðþjóf sem vill ekkert með þá hafa. Áður en nemarnir vita af eru þeir komnir á slóð bráðarinnar, trölla í óbyggðum Noregs og bráðin tekur sér hlutverk veiðimanns. 13 leigumorðingjar er hasarmynd eftir Takashi Miike sem gerist undir lok lénsskipulagsins í Japan. Hópur háttsettra samúræja er fenginn til þess að steypa af stóli grimmum lénsherra og koma þannig í veg fyrir að hann ræni völdum og hrindi af stað borgarastyrjöld. Rautt fylki eft- ir bandaríska leikstjórann Kevin Smith segir af þremur tánings- piltum sem svara auglýsingu frá eldri konu sem sækist eftir því að stunda hópkynlíf með ungum mönn- um. Þeir lenda þess í stað í hönd- unum á íhaldssömum bókstafs- trúarsöfnuði, auglýsingin gerð til þess að lokka unga menn í gildru. Frekari upplýsingar um hátíðina og dagskrá hennar má finna á riff.is. 13 Úr kvikmyndinni 13 Assassins sem sýnd verður í miðnæturbíói RIFF. Tröll, leigumorðingjar og bókstafstrúarmenn ÞÓRA EINARSDÓTTIR · FINNUR BJARNASON · GARÐAR THÓR CORTES ÁGÚST ÓLAFSSON · SIGRÚN HJÁLMTÝSDÓTTIR · JÓHANN SMÁRI SÆVARSSON HULDA BJÖRK GARÐARSDÓTTIR · AUÐUR GUNNARSDÓTTIR · SIGRÍÐUR ÓSK KRISTJÁNSDÓTTIR SNORRI WIUM · VALGERÐUR GUÐNADÓTTIR · KOLBEINN JÓN KETILSSON · VIÐAR GUNNARSSON KÓR OG HLJÓMSVEIT ÍSLENSKU ÓPERUNNAR LÝSING: PÁLL RAGNARSSON · BRÚÐUGERÐ: BERND OGRODNIK BÚNINGAR: FILIPPÍA I. ELÍSDÓTTIR · LEIKMYND: AXEL HALLKELL JÓHANNESSON LEIKSTJÓRI: ÁGÚSTA SKÚLADÓTTIR · HLJÓMSVEITARSTJÓRI: DANÍEL BJARNASON FRUMSÝNT Í HÖRPU 22. OKTÓBER 2011 Laugardaginn 29. október kl. 20 Laugardaginn 19. nóvember kl. 20 Laugardaginn 5. nóvember kl. 20 Sunnudaginn 20. nóvember kl. 16 Laugardaginn 12. nóvember kl. 20 Laugardaginn 25. nóvember kl. 20 F A B R IK A N WAMozart Félagsmenn í Vinafélagi Íslensku óperunnar athugið! Frestur til að ganga frá kaupum á fráteknum miðum fyrir félagsmenn rennur út 25. september. Nánari upplýsingar í miðasölu Hörpu.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.