Morgunblaðið - 17.09.2011, Síða 41

Morgunblaðið - 17.09.2011, Síða 41
MENNING 41 MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 17. SEPTEMBER 2011 Bókin Adam og Evelyn er ábókarkápu sögð skemmti-saga og sjálfsagt er húnþað, þó undirritaður hafi nú ekki skemmt sér mikið við lest- urinn. Vissulega eru skondnir kaflar í henni og skrautlegar persónur, það skal ekki af Schulze tekið, en bókin er heldur þreytandi aflestrar sökum óg- urlega langra samtalskafla sem oft á tíðum snúast um lítið. Sagan segir af fatahönnuðinum Adam og sambýliskonu hans Evelyn sem búa í Þýska alþýðulýðveldinu. Árið er 1989 og stutt í að múrinn falli en það hafa þau að sjálfsögðu enga hugmynd um. Evelyn stendur Adam að framhjáhaldi, segir skilið við hann og heldur í frí til Ungverjalands með vinkonu sinni Monu og frænda henn- ar, Michael sem er að vestan. Adam getur ekki sætt sig við skilnaðinn og heldur á eftir Evelyn í gömlum Wart- burg með skjaldböku í kassa, gælu- dýr sem kemur nokkuð við sögu í bókinni. Evelyn gerir sér grein fyrir því að Adam er að elta hana og skipar honum að hætta því en Adam gefst ekki upp. Öll halda þau til Ung- verjalands og dvelja í sum- arsælu við Bala- tonvatn þar sem mikill mannfjöldi er saman kominn og tjaldbúðum hefur verið slegið upp víða. Það er ólga í loftinu, breytingar í vændum. Þegar á líður tekur Evelyn Adam í sátt og hefur þá átt vingott við Mich- ael hinn vestur-þýska. Adam og Eve- lyn gefst tækifæri til að setjast að í Vestur-Þýskalandi en Adam líst illa á það, vill heldur snúa aftur til austurs- ins. Hann verður hins vegar að láta að vilja Evelyn, vilji hann á annað borð halda áfram sambandi við hana. Þá fellur múrinn og líf þeirra breyt- ist. Schulze veltir í bókinni fram spurningum um hvar Paradís sé eða hvað og tengir við söguna af Adam og Evu. Adam les hana meira að segja upp fyrir Evelyn, svo tengingin fari ekki framhjá neinum. Er Paradís að finna fyrir vestan, líkt og Evelyn tel- ur? Adam er sáttur við sitt líf í austr- inu sem virðist vera hans Paradís. Hann hefur í sig og á, ann starfi sínu og sambýliskonu og þarfnast einskis meir. Konan er örlagavaldurinn í sögunni, líkt og Eva í Biblíunni sem lét höggorminn blekkja sig sem varð til þess að þeim var vísað úr Paradís. Adam og Evelyn stendur hins vegar til boða að búa í Paradís, það er Vestur-Þýskalandi, sem er þó engin Paradís í huga Adams. Hann saknar austursins en Evelyn aðlagast auð- veldlega breyttu samfélagi. Adam er á endanum fórnarlambið í sögunni, refsað fyrir syndir sínar. Schulze á góða spretti á köflum í lýsingum sínum á ólíku fólki sem verður á vegi Adams og Evelyn og að mörgu leyti er þetta skemmtileg stúdía um hvað geti talist hinn full- komni heimur, Paradís. Sjálfsagt virkar bókin öðruvísi á Þjóðverja sem upplifðu þennan merkilega tíma, sumarið 1989, ólíkt hugarfar og lífs- sýn þeirra sem bjuggu austan við múrinn annars vegar og vestan hins vegar. En því miður er stíllinn þreyt- andi, alltof löng samtöl og þá m.a. þras Adams og Evelyn um hvers- dagslega hluti sem virðist engan enda ætla að taka. Adam var ekki lengi í Paradís Skáldsaga Adam og Evelyn bbmnn Eftir Ingo Schulze. Mál og menning gefur út. 305 bls. HELGI SNÆR SIGURÐSSON BÆKUR Ljósmynd/Jim Rakete Þreytandi Í Adam og Evelyn veltir Ingo Schulze fram spurningum um hvar Paradís sé eða hvað. Galdrakarlinn í Oz – frumsýning í kvöld! Uppselt Örfá sæti laus FarandsýningU Ö F Íslenski dansflokkurinn 568 8000 | midasala@borgarleikhus.is Fullkominn dagur til drauma Fös 30/9 kl. 20:00 Fös 7/10 kl. 20:00 Sun 9/10 kl. 20:00 Sun 23/10 kl. 20:00 Sun 30/10 kl. 20:00 Sun 6/11 kl. 20:00 Svanurinn (Tjarnarbíó) Sun 6/11 kl. 14:00 Sun 13/11 kl. 14:00 Sun 20/11 kl. 14:00 Sun 27/11 kl. 14:00 Leikhúsin í landinu www.mbl.is/leikhus Tjarnarbíó 5272100 | tjarnarbio@leikhopar.is Gróska 2011 Lau 17/9 kl. 14:30 Höfundahátíð Félags leikrita og handritshöfunda Eftir Lokin Lau 29/10 kl. 20:00 Fim 3/11 kl. 20:00 Lau 5/11 kl. 20:00 Lau 12/11 kl. 20:00 Fim 17/11 kl. 20:00 Fös 18/11 kl. 20:00 Fös 25/11 kl. 20:00 Lau 26/11 kl. 20:00 Fös 2/12 kl. 20:00 Lau 3/12 kl. 20:00 Svanurinn Sun 6/11 kl. 14:00 Sun 13/11 kl. 14:00 Sun 20/11 kl. 14:00 Sun 27/11 kl. 14:00 23 sept fös frums.uppselt 24 sept lau kl 20 25 sept sun kl 21 07 okt fös kl 20 08 okt lau kl 20 uppselt 09 okt sun kl 2 Hjónabandssæla Á morgun, sunnudaginn 18. sept- ember, verða haldnir jazztónleikar á Café Rosenberg að Klapparstíg 25. Þar koma saman tenórsaxófónleik- ararnir Ólafur Jónsson og Stefán S. Stefánsson. Ólafur og Stefán hafa leikið saman til fjölda ára og lengst af með Stór- sveit Reykjavíkur. Þeir hyggjast flytja tónlist sem á rætur að rekja til Sonny Stitt, Sonny Rollins, Dave O’Higgins, Eric Alexander og fleiri tenór-jöfra. Lofa þeir félagar góðri sveiflu enda séu meðleikarar ekki af verri endanum en meðleikarar Ólafs og Stefáns eru píanóleikarinn Agnar Már Magnússon, bassaleikarinn Þorgrímur Jónsson og trommuleik- arinn Einar Scheving. Tónleikarnir hefjast kl. 21 og er aðgangseyrir kr. 1.000. Tenórsaxófónn Ólafur Jónsson og Stefán S. Stefánsson. Tenórsaxófónleikarar með tónleika á Rosenberg - nýr auglýsingamiðill  569-1100finnur@mbl.is

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.