Morgunblaðið - 17.09.2011, Blaðsíða 42

Morgunblaðið - 17.09.2011, Blaðsíða 42
42 MENNING MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 17. SEPTEMBER 2011 KVIKMYNDIR Börkur Gunnarsson borkur@mbl.is Bandaríski leikstjórinn og leik- arinn Crispin Glover er kominn til landsins á vegum Faxaflóa ehf. Glo- ver mun verða viðstaddur sýningu á tveimur mynda sinna í Bíó Para- dís, þar sem hann mun jafnframt svara spurningum gesta og flytja eigið lifandi leikverk sem byggist á bókum sem hann hefur gefið út og hann nefnir Crispin Hellion Glo- ver’s Big Slide Show. Myndum Glovers er ekki dreift í kvikmyndahús samkvæmt reglu- bundnu dreifingarkerfi og eru ekki gefnar út á DVD eða neinu hlið- stæðu formi. Þær eru eingöngu sýndar í kvikmyndasölum að við- stöddum höfundinum sem ferðast sjálfur með filmurnar. Að lokinni sýningu býður leikstjórinn því allt- af upp á spurningar úr sal og áritar bækur sínar. Glover öðlaðist ungur að árum þann költstatus sem hann býr enn yfir meðal kvikmyndaáhugamanna þegar hann fór með hlutverk McFly í fyrstu Back to the Future- myndinni. Glover neitaði þó að taka þátt í framhaldsmyndinni. Þegar myndbrot af honum voru samt not- uð í framhaldsmyndinni fór hann í mál við framleiðandann, Steven Spielberg, og vann það. Glover fór með hlutverk Andy Warhols í The Doors, mynd Olivers Stones, lék Cousin Dell í Wild at He- art og lék einnig minni hlutverk í What’s Eating Gilbert Grape, Even Cowgirls get the Blues og The People vs. Larry Flint. Á síðustu ár- um hefur hann síðan átt minnisverð hlutverk í myndum líkt og Charlie’s Angels og Alice in Wonderland. Glover hefur nýtt þær tekjur sem hann hefur fengið við að leika í stórum Hollywood-myndum til að fjármagna sínar eigin, óháðu kvik- myndir. Sú fyrsta, What is it?, kom út árið 2005 og er nánast eingöngu skipuð leikurum með Downs- heilkenni. It is Fine. Everything is Fine! kom síðan út árið 2007. Óhefðbundin aðferð Aðspurður hvað hafi orðið til þess að hann fór svona óhefð- bundna leið til að kynna myndirnar sínar segir hann aðalforsenduna vera þá að hann hafi þurft að fá eitthvað af peningunum sem hann setti í myndina aftur. „Fæstir Art- house-kvikmyndagerðarmenn fá eitthvað af peningunum sem þeir leggja í verk sín aftur,“ segir Cri- spin Glover. „En mér hefur tekist það með því að túra svona með myndirnar og selja líka bækur mín- ar í leiðinni. Ég lít á myndir mínar sem ein- hverskonar viðbragð við stefnu stórfyrirtækjanna í kvikmyndum. Hvernig allt sem getur valdið áhorfendum óþægindum er tekið úr sögunum. Þetta skaðar menn- ingu okkar. Því það er einmitt þetta augnablik sem er dýrmætt, þegar áhorfandinn fer að hugsa á meðan hann horfir: Er þetta rétt sem er verið að segja í myndinni, er þetta rangt? Þegar hann spyr sig, hvað þetta sé, þá er komið mikilvægt augnablik. Enda er það titill mynd- arinnar; What is it? Hvað er tabú í menningu okkar? Og hvað þýðir það fyrir menningu okkar að ekki sé snert á tabúum? Það er mín skoðun að það geri okkur vitlaus- ari. Steven C. Stewart er aðalleik- arinn í mynd númer tvö sem nefnist It is fine! Everything is fine. Hann fæddist með heilaskemmdir og var lokaður inni á stofnun í tíu ár. Fólk- ið sem annaðist hann sagði hann þroskaheftan. Það er ekki fallegt að segja það við nokkurn mann og alls ekki við mann einsog Steve sem var ekki þroskaheftur. Hann skrif- aði handrit að mynd sem ég las þeg- ar árið 1987 og vissi að ég yrði að framleiða. Ég fékk mikinn pening fyrir leik minn í myndinni Charlie’s Angels og setti hann allan í þessa mynd. Við náðum að klára tökur en Stewart lést mánuði eftir að þeim lauk. Ég er mjög ánægður með báð- ar myndirnar og þá sérstaklega með It is fine! Everything is fine! sem er líklega besta verk sem ég hef komið að eða mun nokkurn tím- ann koma að á ævi minni.“ Mynd sem spyr spurninga Aðspurður hvort hann fari hefð- bundnar leiðir við gerð mynda sinna eða hvort vinnuferlið sé jafn óvenjulegt og kynning myndanna og efniviðurinn segir hann vinnu- ferlið sjálft ekki vera ósvipað því sem aðrir leikstjórar fylgja. „Mér líkar best við myndir sem spyrja spurninga, þannig myndir vil ég gera. Ég vil taka það fram að ég er ekki á móti öllu sem stóru kvik- myndafyrirtækin eru að gera og kannski munu hagsmunir okkar einhverntímann fara saman. Og það má benda á að menn eins og Stanley Kubrick náðu að gera ein- hverjar merkilegustu myndir kvik- myndasögunnar innan þess kerfis. Myndir sem voru allt í senn úthugs- aðar, fallegar og fengu fólk til að hugsa. En í augnablikinu er eins og samtíminn vilji ekki slíkar myndir en það gæti breyst.“ Spurður um næstu verkefni hans segist hann vera að vinna að nýrri mynd í Tékklandi. „Ég á húseign þar og mun líklega taka upp næstu mynd mína þar. Ég er að skrifa handrit sem bæði ég og faðir minn munum leika í. Það verður í fyrsta skipti sem ég skrifa rullu fyrir sjálf- an mig.“ Aðspurður hvort hann hafi ekki óttast að missa möguleika á starfi í framtíðinni við það að fara í mál við Steven Spielberg segir hann að svo hafi ekki verið. „Sá sem stóð á bak við þessa glæpamennsku var ekki Spielberg heldur Bob Gale. Þeir fengu annan leikara en gerðu hann eins líkan mér og hægt var. Þeir notuðust síðan við myndbrot úr gömlu myndinni til að blekkja áhorfendur og reyndu að láta þá halda að ég væri líka í þessari mynd. Þetta er mikil misnotkun og ég held að þetta verði ekki endur- tekið. Þessi Bob Gale dreifði mörg- um ósönnum sögum um mig og vann gegn mér. En hann er eig- inlega sá eini og hefur ekki gengið vel að fóta sig í bransanum eftir þetta. Ég hef aftur á móti unnið með mörgum þeirra aftur og ekki átt í vandræðum með það,“ segir Glover. Hann bætir því við að hann hlakki mikið til að koma til lands- ins. Hægt er að fylgjast með ferðum Glovers á vefsíðu hans, crispin- glover.com. Hann ferðast um allan heim með myndir sínar. Bíómyndir Glovers, What is it? og It is fine. Everything is Fine!, voru sýndar í Bíó Paradís í gær og verða sýndar þar aftur í kvöld. Leikarinn Úr kvikmyndinni Willard sem Glover fór með aðalhlutverk í. Uppreisnarmaðurinn  Glover sýnir myndir sínar í Bíó Paradís í kvöld  Hann snertir á tabúum samfélagsins í myndum sínum  Fór í mál við Steven Spielberg og vann  Mætir sjálfur á allar kvikmyndasýningar sínar Leikstjóri Úr What is it?, kvikmynd sem Glover leikstýrði. McFly Glover í Back to the Future með Michael J. Fox.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.