Morgunblaðið - 20.09.2011, Blaðsíða 2

Morgunblaðið - 20.09.2011, Blaðsíða 2
2 FRÉTTIRInnlent MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 20. SEPTEMBER 2011 Morgunblaðið Hádegismóum 2, 110 Reykjavík. Sími 5691100 Fréttir ritstjorn@mbl.is Fréttastjórar Sunna Ósk Logadóttir, sunna@mbl.is Sigtryggur Sigtryggsson, sisi@mbl.is Viðskipti vidsk@mbl.is Ívar Páll Jónsson, fréttastjóri, ivarpall@mbl.is Menning menning@mbl.is Umræðan | Bréf til blaðsins | Minningar mbl.is/sendagrein, Arnór Ragnarsson Íþróttir sport@mbl.is Víðir Sigurðsson, vs@mbl.is mbl.is netfrett@mbl.is Guðmundur Sv. Hermannsson fréttastjóri gummi@mbl.is Marta María Jónasdóttir fréttastjóri dægurmála martamaria@mbl.is Prentun Landsprent ehf. Dómur féll í Hæstarétti í gær í máli slitanefndar Landsbanka Íslands hf. gegn Vigni Rafni Gíslasyni, endurskoðanda og stjórnarfor- manni PricewaterhouseCooper (PwC). Kærður var úrskurður hér- aðsdóms þar sem fallist var á beiðni slitastjórnar Landsbankans um að Vignir yrði kvaddur fyrir héraðsdóm til skýrslugjafar vegna slitameðferðar bankans og honum gert að afhenda tiltekin vinnugögn. Vignir annaðist ásamt öðrum end- urskoðendum og starfsmönnum PwC endurskoðun ársreikninga Landsbankans vegna rekstrar- áranna 2006 og 2007 og könnun á árshlutareikningi fyrstu sex mán- uði ársins 2008. Hæstiréttur taldi að Vigni væri skylt að gefa skýrslu fyrir héraðsdómi vegna slita- meðferðar Landsbankans á grund- velli gjaldþrotalaga. Krafa slitanefndarinnar um af- hendingu vinnuskjala er að mati Hæstaréttar of víðtæk, eins og hún er orðuð, enda vann Vignir ekki einn að þeim verkum sem krafa bankans lýtur að. Hann geti ekki einn uppfyllt kröfuna þó svo að á hon- um hvíli laga- skylda um afhendingu. Skilanefnd Landsbankans hafði óskað eftir því að öll gögn er PwC hefði undir höndum í tengslum við vinnu sína fyrir bankann við gerð ársreikn- inga fyrir árin 2005, 2006 og 2007, auk allra gagna er vörðuðu könn- unaráritun PwC fyrir árið 2008, yrðu afhent. Í dómi Hæstaréttar er Vigni Rafni gert að afhenda vinnu- gögn sín vegna starfa við endur- skoðun á ársreikningum 2007 og 2008 vegna rekstraráranna 2006 og 2007 og vegna könnunar á árs- hlutareikningum rekstrarárið 2008. Dæmdur til að bera vitni og af- henda gögn  Vinnuskjöl ekki undanþegin Guðni Einarsson gudni@mbl.is Anatoly Karpov frá Rússlandi, fyrrverandi heimsmeistari í skák, og Judit Polgar frá Ungverjalandi, stigahæsta skákkona heims frá upphafi, eru gengin í Taflfélag Reykjavíkur (TR). Þau Karpov og Polgar eru í hópi tíu erlendra stórmeistara og tveggja alþjóðlegra meistara sem gengið hafa til liðs við félagið. Auk þeirra tveggja eru það stórmeist- ararnir Vugar Gashimov frá Azerbaídjan, stigahæsti skákmað- ur heimalands síns og 11. stiga- hæsti skákmaður heims, og Gata Kamsky frá Bandaríkjunum, 11. stigahæsti skákmaður heims ásamt Gashimov og stigahæsti skákmaður Bandaríkjanna. Einnig þeir Vasily Papin frá Rússlandi, Emil Sutovsky frá Ísrael, Jan Smeets frá Hol- landi og Úkra- ínumennirnir Júri Kryvor- uchko, Martyn Kravtsiv og Mik- hailo Oleksienko. Þá hafa al- þjóðlegu meist- ararnir Jakob Vang Glud frá Danmörku og Helgi Dam Ziska frá Færeyjum gengið til liðs við TR. „Með þessu erum við að styrkja A-liðið okkar auk þess sem þetta er mikil lyftistöng fyrir starfsemi félagsins í heild,“ sagði Sigurlaug Regína Friðþjófsdóttir, formaður TR. Hún sagði félagið njóta mik- illar virðingar í skákheiminum eins og sýndi sig þegar þessum sterku skákmeisturum var boðið að ganga í TR. „Þeir voru fljótir að þekkjast boðið um að ganga í félagið. Þetta eru sterkustu skákmenn í sínum löndum og flestir á lista yfir 100 bestu skákmenn í heiminum. Það er mikill ávinningur fyrir okkur að fá þetta fólk í okkar raðir,“ sagði Sigurlaug. Samkvæmt reglum mega útlend- ingar vera helmingur skáksveitar TR í 1. deild, eða fjórir af átta liðsmönnum. Sigurlaug sagði að nýju félagsmennirnir væru margir atvinnumenn og því bókaðir langt fram í tímann. Það færi eftir dag- skrá þeirra og öðru hverjir tefldu með sveit TR hverju sinni. Sig- urlaug sagði ekki enn tímabært að greina frá því hverjir þessara nýju liðsmanna mundu tefla fyrir félag- ið í Íslandsmótinu 7.-9. október næstkomandi. Alþjóðlegi meistarinn Karl Þor- steins hefur nú snúið aftur til síns gamla félags TR. Sigurlaug sagði hann vera boðinn hjartanlega vel- kominn í félagið. „Hann er mikill fengur fyrir okkur og gaman að fá gamlan TR- ing til baka,“ sagði Sigurlaug. Heimsfrægir skákmeistarar í TR  Anatoly Karpov, fyrrverandi heimsmeistari í skák, Judit Polgar, sterkasta skákkona heims, og stór- meistararnir Vugar Gashimov og Gata Kamsky eru í hópi nýrra liðsmanna Taflfélags Reykjavíkur Morgunblaðið/Golli Skák Hinir nýju erlendu liðsmenn Taflfélags Reykjavíkur munu vænt- anlega láta að sér kveða á taflmótum hér á landi á næstunni. Gata Kamsky HÓLMAVÍK Kristín Sigurrós Einarsdóttir Íbúar Austur-Barðastrandarsýslu og aðrir áhuga- og hagsmunaaðilar um vegabætur á vegi nr 60, Vestfjarða- vegi, fjölmenntu í Bjarkarlund í gær á fund með Ögmundi Jónassyni inn- anríkisráðherra. Talsverðra von- brigða gætti í málflutningi heima- manna er þeir tjáðu sig um svokallaða leið Ö, sem er málamiðl- unartillaga ráðherra eftir að hafa haldið allmarga fundi á samráðsvett- vangi um málið. Gengur tillagan út á vegabætur á Ódrjúgshálsi og Hjallahálsi og seinna meir göng gegnum Hjallaháls. Koma inn til lendingar Ögmundur lagði þunga áherslu á að hann teldi að hlutfallslega meira fé ætti að renna til vegabóta á Vest- fjörðum en annars staðar á landinu. „Nú förum við að koma inn til lend- ingar í Gufudalssveit,“ sagði hann í upphafi máls síns á fundinum. Ráð- herra gat þó engin loforð um það gef- ið hvenær hægt yrði að fara í ganga- gerð gegnum Hjallaháls. Þrátt fyrir vonbrigðin var þeim ummælum ráðherra að ekki væri úti- lokað að fara í þverun Þorskafjarðar samhliða göngum gegnum Hjallaháls fagnað með lófataki. Þeir sem tjáðu sig á fundinum voru annars vegar meðmæltir svokallaðri A-leið, sem fyrir rúmum áratug var samþykkt af sveitarfélögunum á sunnanverðum Vestfjörðum og í Döl- um og lægi milli Reykjaness og Skálaness, en í þeirri tillögu kæmist þéttbýlið á Reykhólum í þjóðbraut. Vilja menn að það verði skoðað af al- vöru að fara umrædda leið og sam- hliða koma upp sjávarfallavirkjun sem um nokkurt skeið hefur verið í umræðunni og margir telja að gæti haft heilmikil margfeldisáhrif fyrir samfélagið. Hins vegar vildu fundarmenn að leið B yrði farin með tilheyrandi laga- setningum þar sem Skipulagsstofnun hefur hafnað þeirri leið þrátt fyrir að hún sé á gildandi aðalskipulagi sveit- arfélagsins. Gagnrýndu fundarmenn mjög að sveitarfélögum bæri að fara eftir gildandi skipulagi sem Skipu- lagsstofnun síðan hafnaði. Líkti tillögu innanríkisráðherra um leið Ö við kjaftshögg Mótrök ráðherra eru einkum þau að sú leið gæti tekið of langan tíma, þar sem líkur eru á málaferlum land- eigenda. Þó kom fram í máli Þórólfs Halldórssonar, sýslumanns á Pat- reksfirði, að raunar væru ekki allir eigendur Teigsskógar á móti vegi um hann. Heimamenn voru sammála um að láglendisvegur væri skýlaus krafa á 21. öldinni og einn þeirra sem til máls tóku líkti tillögu ráðherra um leið Ö við kjaftshögg. Útilokar ekki þver- un Þorskafjarðar  Heimamenn lýstu vonbrigðum sínum á fundi með ráðherra Morgunblaðið/Kristín Sigurrós Einarsdóttir Viðbrögð Miklar umræður urðu á fjölmennum fundi með innanríkisráðherra um samgöngumál í Bjarkarlundi. Deilt um leiðir » Heimamenn settu fram málamiðlunartillögu sem felst í því að gerð verði göng undir Hjallaháls og vegurinn lagður út með Djúpafirði að vest- anverðu og yfir Gufufjörð. » Vegagerðin lagði til að farin yrði ný leið út með Þorskafirði og Djúpifjörður og Gufufjörður þveraðir.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.