Morgunblaðið - 20.09.2011, Side 7

Morgunblaðið - 20.09.2011, Side 7
FRÉTTIR 7Innlent MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 20. SEPTEMBER 2011 Guðmundur Árnason, fyrrverandi kennari, til heimilis að Holtagerði 14 í Kópavogi, lést á Landspítalanum í Fossvogi aðfaranótt mánudagsins 19. september sl., 88 ára að aldri. Guðmundur fæddist 21. mars 1923 í Grindavík. Foreldrar hans voru Petrúnella Pétursdóttir húsmóðir og Árni Helgason organisti og versl- unarmaður. Guðmundur kenndi m.a. við Gagn- fræðaskólana á Ísafirði og í Kópa- vogi. Hann var starfsmaður og í stjórn Landssambands framhalds- skóla og Kennarasambands Íslands um árabil. Ennfremur sat hann lengi í stjórn og starfaði fyrir Lífeyrissjóð ríkisstarfsmanna. Eftirlifandi eiginkona Guðmundar er Salóme Gunnlaugsdóttir, fædd í Súðavík 1930. Dætur þeirra eru Sig- rún, Selma, Ásdís og Hildur. Sonur Guðmundar af fyrra hjónabandi er Einar. Andlát Guðmundur Árnason PI PA R\ TB W A • SÍ A • 11 22 15 Vakin er athygli á fyrirlestri Kofi Annan, fyrrverandi aðalritara Sameinuðu þjóðanna og Nóbelsverðlaunahafa. DAGSKRÁ 13.00 Kristín Ingólfsdóttir, rektor Háskóla Íslands, setur málþingið 13.10 Kofi Annan, fyrrverandi aðalritari Sameinuðu þjóðanna og Nóbelsverðlaunahafi 14.00 Carol Carmichael, Linde Center for Global Environmental Science við California Institute of Technology (Caltech) Sustainability: Civics Education for the 21st Century 14.35 Freysteinn Sigmundsson, Jarðvísindastofnun Háskóla Íslands Restless Earth: Increasing Effects of Natural Catastrophes 15.00 Kaffihlé 15.30 Ole Petter Ottersen, rektor Óslóarháskóla The Universities of Tomorrow: Taking on the Global Challenges 16.05 Ólafur Ragnar Grímsson, forseti Íslands, tekur saman helstu niðurstöður og horfir til framtíðar 16.30 Málþingi slitið Fundarstjóri: Guðrún Nordal, prófessor og forstöðumaður Stofnunar Árna Magnússonar í íslenskum fræðum Málþingið fer fram á ensku. Skráning hefst þriðjudaginn 20. september kl. 9 á vefslóðinni: www.hi.is/hatidarmalthing ÁSKORANIR 21. ALDAR HÁTÍÐARMÁLÞING HÁSKÓLA ÍSLANDS Í TILEFNI ALDARAFMÆLIS SKÓLANS Föstudaginn 7. október 2011, kl.13.00–16.30 í stóra sal Háskólabíós Nýr göngu- og hjólastígur var formlega opnaður í Laugardal í gær. Hópur fólks hjólaði í skipulagðri ferð um Reykjavík í gær. Hjóla- túrinn var liður í Samgönguviku sem nú stendur yfir en um er að ræða evrópskt átak um bættar sam- göngur í borgum og bæjum. Meðal annars var hjólað um Eskihlíð, Hamrahlíð og Skipholt, þar sem hjólavísar hafa verið málaðir á göt- ur til þess að auðvelda hjólreiða- fólki að fara um á fákum sínum. Hjólatúrnum lauk í Laugardal þar sem nýi stígurinn var formlega opnaður. Morgunblaðið/Eggert Nýr göngu- og hjóla- stígur í Laugardal Hjólreiðar Hallur Ingi og Hundurinn Búri héldu sig í Álafosskvos í gær. Mikil óánægja er með störf stjórn- málamanna á Alþingi samkvæmt könnun markaðsfyrirtækisins Maskínu. Tæp 15 prósent eru ánægð með störf ríkisstjórnarinn- ar og ekki nema rétt sjö prósent eru ánægð með störf stjórnarand- stöðunnar. Um 63 prósent eru óánægð með störf hvorra fyrir sig. Fram kemur í könnuninni að karlmenn eru óánægðari með störf ríkisstjórnarinnar en konur. 66 prósent karlmanna eru óánægð en 62 prósent kvenna. Sama gildir um afstöðu karl- manna til stjórnarandstöðunnar en tæp 68 prósent karlmanna eru óánægð með störf hennar en ein- ungis 58 prósent kvenna. Þá er fólk á landsbyggðinni óánægðara með störf ríkisstjórnarinnar en fólk á höfuðborgarsvæðinu er óánægðara með störf stjórnarand- stöðunnar en landsbyggðin. Könnunin, sem var bæði síma- og netkönnun, var gerð 22. ágúst til 11. september á slembiúrtaki úr þjóðskrá meðal Íslendinga á aldrinum 18 til 75 ára af öllu land- inu. Stjórnmálamenn fá fall- einkunn í nýrri könnun Ánægja með störf Könnun á ánægju með störf ríkisstjórnar og stjórnarandstöðu Heimild. maskína Ríkisstjórnin Stjórnarandstaðan Mjög óánægð(ur) Fremur óánægð(ur) í meðallagi ánægð(ur) / óánægð (ur) frekar ánægð(ur) mjög ánægð(ur) 38,8% 25,3% 21,4% 13% 1,6% 25,7% 37,4% 29,6% 6,5% 0,8% Spurt var: Hversu ánægð(ur) eða óánægð(ur) ert þú með störf ríkisstjórnarinnar annars vegar og stjórnarandstöðunnar hins vegar

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.