Morgunblaðið - 20.09.2011, Side 11
Glæsilegt útsýni Fox jökullinn og Mt.Tasman í baksýn, skrifstofa Atla á Nýja-Sjálandi.
nærri niður að bænum. Atli fer
bæði með fólk í gönguferðir neðst
á jöklinum en einnig er flogið í
þyrlu í um 800-1.200 metra hæð og
farið í eins til tveggja daga göngu-
ferðir eða ísklifursferðir. Stað-
urinn er á heimsminjaskrá en það
er allsérstætt að jökullinn rennur í
gegnum regnskóg. Gangan hefst
því í regnskógi innan um litríkar
plöntur og villta páfagauka áður
en stigið er beint út á ísinn og
horft upp í hæstu tinda Nýja-
Sjálands.
Óútskýranleg baktería
Atli segir viðhorfið til fjalla-
mennskunnar breytast eftir því
sem líður á. Í byrjun hugsi fólk
einfaldlega um að klára verkefnið,
komast á áfangastað og aftur
heim. Eftir ferðina sé síðan hægt
að fara að hugsa um hvort þetta
hafi í raun verið gaman. Eftir því
sem reynslan eykst sé auðveldara
að njóta ferðarinnar meðan á
henni stendur.
„Eftirminnilegustu ferðirnar
eru þó þær sem tekur alveg viku
að hafa gaman af. Það er eitt af
því sem er svo heillandi við þetta
að maður skilur ekki alveg hvað
etur manni út í þetta því oft er
þetta bara kalt og blautt og maður
hugsar æði oft: Nei andskotinn, nú
er ég hættur. Samt fer maður allt-
af af stað aftur og það er nokkuð
sem ekki hefur verið hægt að út-
skýra almennilega af hverju menn
fara á fjöll,“ segir Atli.
Atli rekur í samstarfi við fé-
laga sinn fyrirtækið trek.is og fara
þeir meðal annars með hópa á
Hvannadalshnjúk og Hrútfell-
stinda. Sumarið segir hann hafa
farið nokkuð hægt af stað en batn-
að og sé greinilega aukning ferða-
manna hingað til lands sem vilji
fara í slíkar ferðir. Atli samsinnir
því að nokkuð annað sé að vera í
formi til að æfa í líkamsræktarstöð
eða klífa á fjöll. Mikilvægt sé að
þjálfa utandyra og eins skipti and-
lega hliðin miklu máli. Oft sé talað
um að fjallamennska sé 10% bún-
aður, 10% þrek og styrkur og 80%
andlegur styrkur. Þetta sé hverju
orði sannara og nokkuð sem hann
hafi oft reynt í starfi sínu.
Leiðsögumaðurinn Þreyttur og sólbrunninn eftir góðan dag á fjöllum
DAGLEGT LÍF 11
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 20. SEPTEMBER 2011
Nú styttist í Berlínarmaraþonið sem
fram fer um næstu helgi, sunnudag-
inn 25. september, og heyrst hefur að
um hundrað Íslendingar ætli að taka
þátt. Einn þeirra er hinn ungi og efni-
legi Kári Steinn Karlsson sem ætlar
að freista þess að slá þar Íslands-
metið í maraþonhlaupi, 2:19:46 klst.,
en metið setti Sigurður P. Sigmunds-
son í þessari sömu borg árið 1985 og
því löngu tímabært að slá það. Mark-
mið Kára Steins er að komast á Ól-
ympíuleikana á næsta ári. Þegar af-
reksmenn setja markið svona hátt er
ljóst að því fylgir mikill kostnaður,
þegar liggur fyrir að Kári Steinn mun
fara í þrjár æfingabúðir, 2-3 vikur í
senn, næsta vetur og 4-5 keppnis-
ferðir. Kostnaður við þessar ferðir er
áætlaður 2 m.kr. Þá er ótalinn ýmis
annar kostnaður sem fylgir því að
vera afreksmaður í fremstu röð í
langhlaupum. Nú stendur yfir áheita-
söfnun á hlaup.is fyrir Kára Stein til
að fjármagna undirbúning hans fyrir
maraþonhlaupið á Ólympíuleikunum í
London 2012. Á vefsíðunni Hlaup.is
getur fólk heitið á hann tiltekinni
upphæð og áheitin verða svo inn-
heimt eftir 25. september ef hann
nær metinu.
Á hlaup.is segir: Kári Steinn er 25
ára og hefur verið fremsti langhlaup-
ari Íslendinga um langt árabil. Hann á
Íslandsmetin í 5.000 m (14:01,99) og
10.000 m (29:28,05) brautar-
hlaupum auk meta innanhúss og
fjölda Íslandsmeta í yngri aldurs-
flokkum. Kári Steinn útskrifaðist sem
rekstrarverkfræðingur frá háskól-
anum í Berkeley, USA, síðastliðið vor
og er fluttur heim til Íslands. Hann
hefur ákveðið að snúa sér í auknum
mæli að keppni í götuhlaupum með
maraþonhlaup sem aðalgrein. Hann
er góð fyrirmynd og getur náð mjög
langt fái hann tækifæri til að stunda
sína íþróttagrein af fullum krafti.
Ástæða er til að hvetja alla til að
heita á þennan efnilega afreksmann.
Styttist í Berlínarmaraþon
Morgunblaðið/Eggert
Garpur Kári Steinn á framtíðina fyrir sér og stefnir hátt.
Áheitasöfnun fyrir Kára Stein
- nýr auglýsingamiðill
Gallabuxur
Bæjarlind 6, sími 554 7030
Eddufelli 2, sími 557 1730
www.rita.is
Verð 6.900 kr.
„Hollensku“ buxurnar
eru komnar aftur.
Litir: svart og blátt
Stærð 36 - 52
Sendum í póstkröfu
w
w
w
.v
is
in
da
va
ka
.i
s
Vísindamenn halda því fram að aukin
gróðurhúsaáhrif valdi því að yfirborð
jarðar sé að hlýna. Samt var síðasta
sumar kalt. Gengur þetta upp?
Dr. Halldór Björnsson frá Veðurstofu
Íslands ræðir gróðurhúsaáhrif og
loftslagsbreytingar, kal í túnum og hafís.
fKuldinn síðasta sumar a
H
N
O
T
S
K
Ó
G
U
R
g
ra
fí
s
k
h
ö
n
n
u
n
Látið sjá ykkur í Háskólabíói föstudaginn 23. september!
! "
!#! $$
Upplýsingar um innritun
kl. 16-21 alla daga. alla d g .