Morgunblaðið - 20.09.2011, Page 20

Morgunblaðið - 20.09.2011, Page 20
20 UMRÆÐAN MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 20. SEPTEMBER 2011 Ólafur Ragnar Grímsson hefur sýnt meira hugrekki en hægt er að krefjast af honum sem forseta lýðveldisins. Á erlend- um vettvangi jafnt sem innlendum hefur hann skipað sér afdrátt- arlaust í sveit með al- menningi landsins gegn nýlenduveldum Evrópu. Þetta eru tíð- indi og umbreyting frá fyrri for- setum Íslands, sem alla jafna sýndu hugleysi gagnvart erlendu valdi og tóku hagsmuni valda-aðalsins fram yfir hagsmuni þjóðarinnar. Í viðtali við RÚV 4. september 2011 sagði forsetinn: »Menn (ríkisstjórnin) beygðu sig fyrir þessu ofbeldi (Icesave- kröfunum) af hálfu Evrópuþjóðanna og samþykktu fyrst samning sem var svo óheyrilegur að ekki aðeins hrópaði íslenska þjóðin hann af, heldur hlupu Bretar og Hollend- ingar frá honum strax nokkrum mánuðum eftir að ákveðið var að setja þessa þjóðaratkvæðagreiðslu. Það er rannsóknarefni fyrir Evrópu- sambandið að horfast í augu við það hvernig í ósköpunum stóð á því að ríki í Evrópusambandinu sam- þykktu að styðja þessar fáránlegu kröfur Breta og Hollendinga gagn- vart Íslandi.« Flestir Íslendingar eru sammála þeirri skoðun forsetans að rík- isstjórnin er ekki að gæta hagsmuna landsmanna, heldur beygir sig í auð- mýkt fyrir ESB (Evrópusamband- inu). Það er einnig merkilegt sem forsetinn bendir á, að nýlenduveldin hlupu sjálf frá Icesave- II samningunum, þeg- ar athygli heimsins var beint að þeim. Þjóð- aratkvæðin 6. marz 2010 og 9. apríl 2011 tóku af allan vafa um að þjóðin mun ekki fallast á ólöglegar og siðlausar kröfur nýlenduveld- anna og skiptir þá engu máli hvað ESB kann að skipa EFTA- dómstólnum að sam- þykkja. Auðvitað skilja kjölt- urakkar ESB ekki þessar stað- reyndir. Þeir halda áfram að gjamma ólundarlega, til að þóknast húsbændum sínum í Brussel. Á síð- um Fréttablaðsins er dag eftir dag ausið hrakyrðum um forsetann og traðkað á stjórnarskránni. Þar gengur fremstur í flokki Jón Baldvin Hannibalsson. Rógburður hans mun lengi lifa, en er mismunandi metinn á Íslandi og innan höfuðstöðva ESB. Framganga Jóns Baldvins Hannibalssonar Rætin og fullkomlega siðlaus rit- gerð eftir Jón Baldvin Hannibalsson birtist í Fréttablaðinu 7. september 2011. Þar uppnefnir hann forseta landsins á ósmekklegri hátt en lík- lega hefur sézt áður. Forseta Ís- lands gefur Jón Baldvin heitið „Lady GaGa“ og nefnir hann „veizlu- stjóra og viðskiptasmyril óreiðu- manna útrásarinnar“. Það vex Jóni Baldvin í augum, að Ólafur Ragnar hefur brennandi áhuga á framgangi íslenzkra hagsmuna og leggur lands- mönnum það lið sem hann getur. Jón Baldvin virðist ekki skilja, að Ólafur Ragnar var að gegna stjórnarskrár- bundinni skyldu sinni með að vísa lagafrumvörpunum um Icesave í þjóðaratkvæði. Forseti Íslands hefur skyldur gagnvart almenningi í landinu, sem meðal annars eru formfestar með 26. grein stjórnarskrárinnar. Forset- anum ber siðferðileg skylda til að hafna þeim lagafrumvörpum sam- þykkis, sem stór hluti almennings er andvígur, eða sem forsetinn telur geta skaðað hagsmuni landsmanna. Engin önnur afstaða birtist í synjun forsetans, en að hann telur að við- komandi lagafrumvarp skuli borið undir úrskurð fullveldishafans. Vakin er athygli á, að laga- frumvarp verður ekki að lögum fyrr en forsetinn hefur undirritað það, eða forsetinn hefur hafnað und- irritun. Alþingi hefur því ekki heim- ild til að senda ríkisstjórninni frum- vörp „sem lög frá Alþingi“. Frumvarp er einungis frumvarp, þar til ákvörðun forsetans liggur fyrir, hvort sem það hefur verið samþykkt á Alþingi eða ekki. Því er rangt sem víða getur að lesa í gögnum Alþingis og ríkisstjórnar: „Frumvarp, sem þingið samþykkir, er sent rík- isstjórninni sem lög frá Alþingi.“ Jón Baldvin gerir aumkunarverða tilraun til að etja saman forseta og ríkisstjórn. Hann vísar þar til fyrr- nefndra orða Ólafs Ragnars, um að »ríkisstjórnin hafi beygt sig fyrir fá- ránlegum kröfum og ofbeldi Breta og Hollendinga«. Jón Baldvin vill meina að með þessum ásökunum sé forsetinn að brigsla ríkisstjórninni um landráð. Að beygja sig fyrir ofur- efli er afsakanlegt, en fæstir lands- menn eru líklega þeirrar skoðunar að um enga aðra kosti hafi verið að ræða en samþykkja Icesave- kröfurnar. Þetta viðhorf almennings kom skýrt fram í tvennum þjóð- aratkvæðum. Kjölturakkar ESB reyndu að hræða Íslendinga frá því að hafna Icesave-kröfunum í þjóðaratkvæð- unum. Jón Baldvin heldur upp- teknum hætti og leggur núna allt sitt traust á EFTA-dómstólinn. Honum hefur greinilega ekki borist til eyrna, að þrotabú Landsbankans mun eiga fyrir forgangskröfum. Ekki svo að skilja að það atriði skipti Íslendinga einhverju máli, því að kröfur á þrotabúið eru almenningi óviðkomandi. Tryggingasjóðir í Bretlandi og Hollandi, auk ríkissjóðs Bretlands, keyptu Icesave-kröfur innistæðueigenda á eigin ábyrgð. Tryggingasjóðirnir eru reknir fyrir reikning starfandi banka í þessum löndum og einungis helsjúkir Evr- ópusinnar geta fundið það út að al- menningi á Íslandi beri skylda til að hlaupa undir bagga með þessum er- lendu bönkum. Kjölturakkar ESB verða að leita annað en til almenn- ings á Íslandi til að svala valda- draumum Þýskalands og Frakk- lands. Kjölturakkar Evrópusam- bandsins gjamma ólundarlega Eftir Loft Altice Þorsteinsson » Flestir Íslendingar eru sammála þeirri skoðun forsetans að rík- isstjórnin er ekki að gæta hagsmuna lands- manna, heldur beygir sig í auðmýkt fyrir ESB. Loftur Altice Þor- steinsson Höfundur er verkfræðingur og stjórnarmaður í félaginu Samstaða þjóðar. Hinn 8. september sl. var undirritaður sam- starfssamningur milli efnahags- og við- skiptaráðuneytis, Há- skóla Íslands, Háskól- ans í Reykjavík, Háskólans á Bifröst, Samtaka starfsfólks fjármálafyrirtækja og Samtaka fjármálafyr- irtækja um að innleiða vottun fjármálaráðgjafa á Íslandi. Þessi nýbreytni á rætur að rekja til framþróunar á Norðurlöndum, ann- ars staðar í Evrópu og víðar. Þar er lögð áhersla á að samræma og staðla gæðakröfur sem gerðar eru til þeirra sem veita einstaklingum og heimilum fjármálaráðgjöf. Und- irrótin er sívaxandi kröfur neyt- enda um vandaða ráðgjöf fjármála- fyrirtækja og öfluga þjónustu. Norsk fyrirmynd Aðdragandi þessa samstarfs- samnings hófst vorið 2010 þegar settur var á laggirnar stýrihópur með fulltrúum Samtaka fjármálafyrirtækja og Samtaka starfs- manna fjármálafyr- irtækja. Stýrihóp- urinn einsetti sér að vinna markvisst að því að koma sem fyrst á laggirnar vottun fyrir starfs- fólk útibúa sem sinna fjármálaráðgjöf til einstaklinga. Mark- mið með vottuninni er að auka gæði fjármálaráðgjafar og efla þekkingu og færni starfsfólks við- skiptabanka og sparisjóða í krefj- andi störfum. Fyrirmyndin að uppbyggingu vottunar hér á landi er sótt til Nor- egs en þar er gerð sú krafa að allir starfsmenn sem annast fjár- málaráðgjöf til einstaklinga verði undantekningarlaust að hljóta slíka vottun. Námið í Noregi hefur gefið góða raun og nú eru liðin þrjú ár síðan fyrstu nemendurnir braut- skráðust þar í landi. Námið hefur nú verið klæðskerasniðið að ís- lenskum aðstæðum, meðal annars með þarfagreiningu meðal starfs- fólks í útibúum. Þriggja ára gildistími Í lok náms þreyta þátttakendur sérsniðið próf sem þeir þurfa að standast til að hljóta vottun. Vand- að er til alls þessa ferlis og er það sérfræðinganefnd á vegum háskól- anna þriggja sem hefur yfirumsjón með vottuninni. Vottunarskírteinið fylgir síðan viðkomandi starfmanni færi hann sig til á milli fjármálafyr- irtækja. Vottunin gildir í 3 ár en þá er gerð krafa um endurmenntun til að viðhalda skírteininu. Undirbúningsnámið hefur þegar verið þróað hér á landi og verður sett á laggirnar í lok þessa mán- aðar. Að framkvæmd námsins koma aðilar frá samstarfsháskól- unum þremur og er afar ánægju- legt að sjá áhuga og faglegt atfylgi háskólanna á þessu verkefni sem vonir eru bundnar við að muni leggja drjúgt af mörkum til efl- ingar fjármálaþjónustu á Íslandi. Vottun fjármálaráðgjafa innleidd á Íslandi Eftir Dröfn Guðmundsdóttur » Vottun til að auka gæði fjármálaráð- gjafar. Undirrótin er sí- vaxandi kröfur neyt- enda um vandaða ráðgjöf fjármálafyr- irtækja og öfluga þjón- ustu. Dröfn Guðmundsdóttir Höfundur er fræðslustjóri Arion banka og formaður stýrihóps um vott- un fjármálaráðgjafa. Í nokkuð stóryrtri grein (ekki óvænt) kall- ar Árni Johnsen alþing- ismaður og formaður framkvæmda við Þor- láksbúð mig ósanninda- mann í þriggja dálka fyrirsögn í Morg- unblaðinu 19. sept- ember. Hvað var það sem ég sagði ósatt? Athugum málið. Ég sagði að ekki hefði verið fengið leyfi hjá þeim sem fara með höfund- arrétt Harðar Bjarnasonar arkitekts kirkjunnar til að reisa mannvirki við kirkjuvegginn. Bæði börn Harðar, þau Áslaug Guðrún og Hörður hafa skrifað greinar í Morgunblaðið og staðfest að ég fór með rétt mál. Það var aldrei rætt við þau. Þau fara ein með höfundarrétt að verkum föður síns. Sjá Morgunblaðið 16. september og 13. september. Ég sagði að form- legt byggingarleyfi hefði ekki verið gefið út. Vafningar Árna Johnsens hnekkja því ekki. Árni Johnsen segir mig hafa kallað látinn vígslubiskup ósannindamann. Það hef ég aldrei gert. Þar fer Árni ekki með rétt mál. Ég sagði það hins vegar rangt hjá Árna og séra Kristjáni Björnssyni þegar þeir fullyrtu að öll leyfi hefðu verið veitt. Það stendur óhaggað. Árni segir mig hafa talað um að „færa rústina“. Ég talaði aldrei um að færa „rústina“. Lestu betur, Árni. Ég talaði um að færa tóftina, – tóftina sem hlaðin hefði verið við kirkjuhorn- ið og skemmir ásýnd staðarins og kirkjumyndina. Árni segir í Morg- unblaðsgrein sinni „tilgátuhúsið“ sem hann og fleiri eru að reisa í Skálholti „tengjast 800 ára sögu frá því að Þor- lákur helgi Skálholts- biskup reisti … búðina á tólftu öld“. Lítum á hvað Ormar Þór Guð- mundsson arkitekt sagði í vandaðri grein í Morgunblaðinu 17. september (Óheppileg staðsetning tilgátuhúss í Skálholti) „…Þorláks- búð getur ekki tengst kirkjunni aftur á 12. öld þar sem hún var ekki byggð fyrr en eftir bruna Árnakirkju 1527 og þá sem bráðabirgðaskýli yfir messuhald, búð eða kapella eins og húsið kallaðist í heimildum og var hún seinna nefnd Þorláksbúð“. Ormar Þór segir líka í grein sinni: „Reyndar eru fornleifa- fræðingar mjög andsnúnir því að byggt sé á rústum horfinna húsa, þar sem það getur spillt frekari forn- leifum sem þar kunna að leynast.“ Að lokum þetta: Öll rök hníga að því að færa þessa tóftarhleðslu svo langt frá kirkjunni að hún spilli ekki heildarmynd staðarins eins og hún nú gerir. Það hlýtur að verða gert. Árni Johnsen ætti samkvæmt ofangreindu að tala ákaflega varlega þegar hann kallar aðra ósann- indamenn. Hver segir ósatt, Árni Johnsen? Eftir Eið Guðnason Eiður Guðnason » Árni Johnsen ætti samkvæmt ofan- greindu að tala ákaflega varlega þegar hann kall- ar aðra ósanninda- menn. Höfundur er fyrrverandi sendiherra og í hópi velunnara Skálholts Gullsmárinn Stöðug og góð þátttaka er í Gull- smára. Spilað var á 15 borðum fimmtudaginn 15. september. Úrslit í N/S: Pétur Antonsson - Örn Einarsson 329 Stefán Friðbjarnars. - Birgir Ísleifss. 308 Björn Árnason - Auðunn R.Guðmss. 306 Katarínus Jónsson - Ari Þórðarson 298 A/V Aðalh. Torfad. - Ragnar Ásmundss. 372 Sigurður Njálss. - Ágúst Sigurðss. 324 Stefán Ólafsson - Helgi Sigurðss. 311 Þorsteinn Laufdal - Páll Ólason 310 Bridsdeild Félags eldri borgara í Reykjavík Tvímenningskeppni spiluð í Ás- garði, Stangarhyl 4, fimmtudaginn 15. september. Spilað var á 10 borð- um. Meðalskor: 216 stig. Árangur N - S: Jón Lárusson - Ragnar Björnsson 239 Gísli Viglundsson - Oddur Halldórsson 237 Oliver Kristóferss. - Magnús Oddsson 234 Siguróli Jóhannsss. - Auðunn Helgas. 230 Árangur A - V: Bergur Ingimundarson - Axel Láruss. 250 Þröstur Sveinsson - Rúnar Sveinsson 238 Óli Gíslason - Höskuldur Jónsson 233 Hólmfríður Árnad. - Stefán Finnbogass. 232 Tvímenningskeppni spiluð mánu- daginn 12. september. Spilað var á 11 borðum. Meðalskor: 216 stig. Árangur N - S: Oliver Kristófersson - Magnús Oddss. 259 Rafn Kristjánsson - Júlíus Guðmss. 252 Björn Árnason - Auðunn Guðmundss. 251 Bjarni Þórarinsson - Jón Lárusson 243 Árangur A - V: Helgi Hallgrímss. - Ægir Ferdinandss. 258 Magnús Jónsson - Gunnar Jónsson 255 Bergur Ingimundarson - Axel Láruss. 253 Friðrik Jónsson - Tómas Sigurjónss. Eldri borgarar Hafnarfirði Föstudaginn 16. september var spilað á 16 borðum hjá FEBH með eftirfarandi úr- slitum í N/S: Albert Þorsteinsson – Björn Árnason 410 Örn Einarsson – Óskar Ólafsson 361 Auðunn Guðmss. – Sigtr. Sigurðss. 353 Jón Lárusson – Bjarni Þórarinsson 349 Oliver Kristófersson – Magnús Jónsson 343 AV: Friðrik Herm. – Skarphéðinn Lýðss. 436 Anton Jónsson – Ólafur Ólafsson 367 Tómas Sigurjónss. – Björn Svavarsson 342 Friðrik Jónsson – Jóhannes Guðmanns. 335 Jón Svan Sigurðss. – Birgir Sigurðsson 333 BRIDS Umsjón Arnór G. Ragnarsson| norir@mbl.is Ársalir fasteignamiðlun og fyrirtækjasala Ef þú vilt selja, leigja eða kaupa fasteign eða selja eða kaupa fyrirtæki í rekstri, hafðu samband. Ársalir FASTEIGNAMIÐLUN Engjateigi 5, 105 Rvk 533 4200 Ársalir ehf fasteignamiðlun 533 4200 og 892 0667 arsalir@arsalir.is Engjateigi 5, 105 Rvk Björgvin Björgvinsson, löggiltur fasteignasali

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.