Morgunblaðið - 20.09.2011, Blaðsíða 23
MINNINGAR 23
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 20. SEPTEMBER 2011
✝ Guðný ÁstrúnValdimars-
dóttir fæddist á
Kjalvararstöðum í
Reykholtsdal í
Borgarfirði 11. júlí
1920. Hún lést 11.
september 2011.
Foreldrar henn-
ar voru Valdimar
Davíðsson bóndi, f.
1899, d. 1974 og
Helga Ingibjörg
Halldórsdóttir húsfreyja, f. 1895,
d. 1985.
Systkini hennar eru Guðrún, f.
1924, Þórður, f. 1925, Valdís, f.
1927, d. 1995, Halldór, f. 1928, d.
1995, Þorsteinn, f. 1929, d. 2001
og Guðbjörg, f. 1934, d. 2004.
Ástrún giftist 25. maí 1961, Að-
alsteini Sigurðssyni, fiskifræð-
ingi, f. 13. júní 1916, d. 31. desem-
ber 2006. Þeirra sonur er Magnús
Þór, f. 12.8. 1965, maki Steinunn
vetur í Héraðsskólanum í Reyk-
holti, yngri deild og næsta vetur
á eftir í Húsmæðraskólanum á
Staðarfelli. Hún lauk kenn-
araprófi frá handavinnudeild
Kennaraskólans 1947 og handa-
vinnukennaraprófi frá Hand-
íðaskólanum 1949. Hún fór til
Danmerkur, Svíþjóðar og Nor-
egs á árunum 1951, 1955 og 1957
og sótti þar fjölda námskeiða.
Eins sótti hún nám í Aberdeen
1966 og kynnti sér handavinnu-
kennslu í Aberdeen og Lowestoft
1965-1966. Hún sótti auk þess
fjölda handavinnunámskeiða í
Reykjavík. Hún kenndi í Héraðs-
skólanum og Húsmæðraskól-
anum á Laugarvatni 1950-1952, í
Námsflokkum Reykjavíkur 1952-
1958 og Gagnfræðaskóla Vest-
urbæjar 1952-1964. Hún var
kennari við Ármúlaskóla 1966-
1967 og 1968-1977 og Hagaskóla
1964-1965 og 1977-1987 er hún
lét af störfum. Hún var í stjórn
Handavinnukennarafélags Ís-
lands 1957-1962.
Ástrún verður jarðsungin frá
Hafnarfjarðarkirkju í dag, 20.
september 2011, og hefst athöfn-
in kl. 13.
Brynjarsdóttir, f.
12.7. 1967, sonur
þeirra er Brynjar
Steinn, f. 6.9. 1998.
Stjúpdóttir Ást-
rúnar er Guðný Að-
alsteinsdóttir, f.
1.9. 1949, maki
Björn Björnsson, f.
24.8. 1949, d. 11.9.
2005. Þeirra dætur
eru Bryndís f. 29.3.
1978, maki Magni
S. Sigmarsson, f. 1975, synir
þeirra eru Björn Hugi, f. 2006 og
Hjalti Örn, f. 2010 og Ásdís, f.
8.8. 1980, maki Guðni Már Harð-
arson, f. 1980, þeirra sonur er
Nói Pétur, f. 2005 og dóttir er
Dagmar Edda, f. 2008.
Ástrún ólst upp fyrstu árin á
Kjalvararstöðum í Reykholtsdal
og eitt ár á Hermundarstöðum,
en lengst af á Guðnabakka í
Stafholtstungum. Hún var einn
Það eru mikil forréttindi fyrir
okkur systur að hafa fengið að
kalla Ástrúnu ömmu. Það var hún
líka í orði og verki. Við minnumst
hennar með hlýju og þakklæti.
Ævinlega tók hún innilega á móti
okkur á Nesinu og seint verður
nóg sagt um allar kræsingarnar
sem hún reiddi fram; partar með
reyktum laxi, smákökusortirnar
og auðvitað súkkulaðið á jólun-
um. Amma lagði sig fram um að
hafa það á borðum sem hún vissi
að okkur þætti gott.
Hún var líka einstök hand-
verkskona og er okkur ofarlega í
huga þegar hún saumaði upphlut-
inn á Bryndísi fyrir ferminguna.
Ófáar stundir fóru í ráðagerðir og
vangaveltur um efnisval og snið,
en þar var amma á heimavelli.
Okkur er þó efst í huga ljúf-
mennska hennar og hjartahlýja.
Nærvera hennar einkenndist af
ástúð og friði og í orðum hennar
hljómaði aldrei annað en hvatn-
ing, huggun og væntumþykja.
Aldrei heyrðist hún hallmæla
nokkrum manni. Jafnvel þegar
sjúkdómurinn hafði rænt ömmu
flestu því sem einkenndi hana var
hún enn sama ljúfmennið. „Þú ert
yndisleg“ og „mikið eruð þið gott
fólk“ voru jafnan þau fáu orð sem
hún sagði síðustu misserin sem
hún lifði. Hennar fallega hjarta-
lag entist henni til æviloka.
Bryndís og
Ásdís Björnsdætur.
Ástrún móðursystir mín var
elst systkina sinna. Fædd var
hún 1920 að Kjalvararstöðum í
Reykholtsdal þar sem afi hennar
og amma bjuggu, þau Halldór og
Guðný. Mamma Ástrúnar, Helga,
var þá í foreldrahúsum, 24 ára að
aldri. Barnsfaðirinn var Valdimar
Davíðsson lausamaður frá Arn-
bjargarlæk. Hann var rétt orðinn
20 ára þegar barnið fæddist.
Fjórum árum árum seinna fædd-
ist annað barnið þeim Helgu og
Valdimar; það var Guðrún, alltaf
kölluð Dúna, móðir mín. Ári
seinna fæddist þriðja barnið
Þórður. Nú þegar við kveðjum
Ástrúnu lifa þau á níræðisaldri
Dúna og Þórður. 1926 fluttu
Valdimar og Helga að Guðna-
bakka í Stafholtstungum. Þar
fæddust þeim fjögur börn í við-
bót. Þau eru öll látin.
Ástrún var því elst og leit alltaf
svo á að hún hefði skyldur sam-
kvæmt því. Hún hefur áreiðan-
lega staðið þétt með mömmu
sinni í rekstri heimilsins að
Guðnabakka og ekki veitti af.
Samt fór hún í skóla, fyrst í Reyk-
holt, svo að Staðarfelli og loks
lauk hún prófi sem handavinnu-
kennari. Handavinna hennar var
stundum beinlínis listaverk.
Kvöldið sem hún dó var vegg-
teppið undrafallega yfir höfðalag-
inu hennar.
Ástrún var kennari í áratugi.
Hún vildi hafa röð og reglu á hlut-
unum og það fundum við frænd-
fólk hennar stundum. Oft mátti
hún heita furðuþolinmóð við þá
sem ekki kunnu að meta stjórn-
semi hennar. Einn þeirra var ég
sem naut hennar framan af æv-
inni fremur en margir aðrir. Það
sem breytti öllu var að hún opn-
aði faðminn fyrir mér og kallaði
mig suður í umhverfi sem for-
eldrar mínir gátu treyst. Í þrjá
vetur var ég hjá Ástrúnu á fyrstu
árunum eftir að ég fór að heiman
þrettán ára. Sú staðreynd breytti
lífi mínu. Þannig ber þessi kona
sem nú er kvödd meiri ábyrgð á
mér en margir aðrir. Fyrir það er
ég henni þakklátari en ég kann að
lýsa með orðum.
Ástrún giftist Aðalsteini Sig-
urðssyni fiskifræðingi. Með hon-
um kom dóttir hans af fyrra
hjónabandi Guðný. Koma Aðal-
steins í fjölskylduna frá Guðna-
bakka og seinna Hömrum í
Hraunhreppi var menningarauki.
Þau Ástrún og Aðalsteinn áttu
soninn Magnús Þór. Hann og
fjölskylda hans vitna um allt það
besta sem þau áttu, foreldrar
hans.
Aðalsteinn lést 2006. Áður en
hann féll frá hafði Ástrún kennt
þess sjúkdóms sem fylgdi henni
allt til endalokanna. Ástrún var í
Skógarbæ og var þar eftirlæti
starfsfólksins alls. Hún var ljúf
og hlý. Ég heimsótti hana allt of
sjaldan en þá skiptumst við á vin-
arorðum: Þau samtöl geymi ég
með mér um leið og allt það sem
hún var mér, en sérstaklega
þakka ég Ástrúnu fyrir að hafa
kallað mig suður frá fjárskipta-
lömbunum heima á Grund haust-
ið 1957.
Magnúsi og Guðnýju systur
hans, fjölskyldum þeirra og öllum
vinum Ástrúnar flytjum við Guð-
rún samúðarkveðjur. Það er stórt
skarð sem verður í fjölskyldu
okkar þegar Ástrún kveður þó
hún hafi lengi verið hálfpartinn
utan heims vegna veikinda. Það
er sagt að það komi alltaf maður í
manns stað. Það er ekki svo; Ást-
rún var einstök kona.
Svavar Gestsson.
Guðný Ástrún
Valdimarsdóttir
Kæri bróðir minn.
Ég sendi þér kveðju og þakk-
arbréf þegar þú yfirgefur þessa
jarðvist og hittir Bogga bróður
okkar og fleiri.
Skilaðu kveðju til allra.
Kannski „tjúnið“ þið Boggi til
okkar.
Við ólumst upp öll systkinin hjá
mömmu, Kristþór, Valdimar, þú
og ég. Það var oft mikill galsi í
okkur, en við áttum, þrátt fyrir
ýmsa erfiðleika, góða og skemmti-
lega æsku.
Minningarnar eru margar.
Einu sinni dastu ofan í tunnu fulla
af vatni, og þeir sem hjálpuðu þér,
héldu að það væri köttur í tunn-
unni. Við bjuggum í Vesturbæn-
um nálægt „Camp Knox“ og ösku-
haugunum. Á stríðsárunum var
mikið um að vera, og vel fylgst
með þegar setuliðið var að fleygja
vörum á haugana. Þar var margt
sem til féll, bæði matur og fleira.
Þú fórst frekar út á íþróttavöll í
Birgir Helgason
✝ Birgir Helga-son var fæddur
31. mars 1931.
Hann lést 6. sept-
ember 2011.
Foreldrar: Þor-
steina Helgadóttir,
fædd 1910, dáin
1991. Helgi Ás-
geirsson, fæddur
1908, dáinn 1980.
Systkini: Krist-
þór Borg, fæddur
1929, dáinn 2008. Valdimar Sig-
fús, fæddur 1933, Kristín Sigríð-
ur, fædd 1936.
Jarðarför Birgis Helgasonar
fer fram frá Fossvogskapellu í
dag, þriðjudaginn 20. september
2011, og hefst athöfnin klukkan
13.
nágrenninu að æfa
íþróttir, enda varstu
góður í frjálsum
íþróttum og körfu-
bolta.
Einu sinni fóruð
þið Valdi út á hauga
og funduð vél, sem
þið settuð saman,
þegar vélin var ræst
kom í ljós að það var
loftvarnarflauta sem
fór í gang, varð þá
mikil rekistefna hjá yfirmönnum
hersins og lögreglu.
Einu sinni vorum við að leika
okkur úti við Eiðsmýri, og sáum
flugvél hrapa. Það hafði djúp áhrif
á okkur og miklar umræður urðu
um stríðið. Ég minnist þess, að
þegar þú varst 13 ára byrjaðir þú
að vinna við að grafa hitaveitu-
skurði, með skóflu og haka og lést
alla peningana til heimilisins. Þú
lærðir trésmíðar og varðst húsa-
smíðameistari og frábær smiður.
Seinna á lífsleiðinni hafðir þú mik-
inn áhuga á klassískri tónlist og
skák. Þú varst glaður með öðrum,
en vildir stundum vera einn með
þínar hugsanir og tilfinningar.
Ég vil þakka þér fyrir alla
hjálpina. Sérstaklega á þeim ár-
um, þegar þú komst margar næt-
ur til að vaka yfir dóttur minni,
svo við mættum hvílast á erfiðum
tíma.
Vertu sæll, Birgir minn.
Kristín systir.
Elsku frændi minn Birgir
Helgason er allur. Söknuðurinn er
sár eins og allir sem kvatt hafa
drengskaparmenn hinstu kveðju
vita.
Birgir var glæsilegur maður á
velli, en barst lítið á. Hann þurfti
þess ekki. Allir tóku eftir þessum
manni, ekki sízt vegna framkomu
hans, og þess hve nærvera hans
var ljúf.
Lítillátur var hann, hjálpsamur,
gat verið glettinn, hafði gaman af
því að rabba um daginn og veginn á
notalegum veitingastað yfir kaffi-
bolla, og þá barst talið oft til Hafn-
arfjarðar, en móðurkyn okkar er
að mestu þaðan upprunnið.
Hann var barngóður og nutu
börn systkina hans þess, en Birgir
kvæntist ekki og átti ekki börn.
Birgir var vandaður smiður,
rómaður fyrir hagleik, ábyrgur í
starfi og reyndar í öllu sínu lífi.
Hann vandaði tal sitt, sagði ekkert
meira en til þurfti, var ákveðinn í
skoðunum, óhræddur við að láta í
sér heyra, en alltaf á háttvísan hátt.
Ég á eftir að sakna hans er fram
líða stundir, en ég mun leita til lið-
inna minninga um dreng, sem ég er
svo lánsöm að geta nefnt Birgi
frænda minn.
Ég fel síðan mína sorg og minn-
ingu Birgis í faðm hans, sem lífið
gaf og að öllu gætir.
Gyða Stefánsdóttir.
Elsku Biggi frændi hefur kvatt
og okkur systur langar að minnast
hans með nokkrum línum.
Biggi frændi var okkur afar kær
enda fylgdist hann með uppvexti
okkar systra frá fyrsta degi. Hann
gætti okkar þegar við vorum börn
og var alltaf til staðar ef við þörfn-
uðumst aðstoðar, hvort sem það
var smátt eða stórt.
Við minnumst þess vel þegar þú
kíktir í kaffi á æskuheimili okkar
systra og alltaf varstu með eitt-
hvert góðgæti með þér sem við
kunnum ákaflega vel að meta.
Stundum sátum við saman og
horfðu saman á bíómyndir,
skemmtilegustu myndirnar voru
gamlir vestrar eða karatemyndir
og við voru sammála um að Bruce
Lee væri bestur. Okkur Bigga var
nú nokkuð sama hvað öðrum
fannst um þetta áhugamál, en við
rifjuðum þetta stundum upp núna á
seinni árum og hlógum mikið að
þessu myndavali okkar.
Sú hefð skapaðist sem við systur
héldum fast í að þú og amma væru
hjá okkur um jól og áramót. Lengi
vel sáuð þið pabbi um flugeldana og
yfirleitt var skotið upp flugeldum á
klukkustundarfresti að miðnætti.
Stærsta flugeldinum var alltaf
skotið upp síðast. Þú smíðaðir skot-
pall sem var tekinn fram á hverju
ári, sást til þess að allt var til reiðu
og lítið mál var að hafa flugeldasýn-
ingu fyrir fjölskylduna. Þetta vakti
athygli í götunni og nokkrum árum
síðar mátti sjá fleiri skotpalla hér
og þar, en okkur fannst enginn
jafnflottur og skotpallurinn hans
Bigga frænda enda um frumgerð
að ræða.
Þegar við systur urðum eldri og
áhuginn fyrir flugeldum minnkaði
myndaðist ný hefð, en það var að
spila Manna og sá sem vann
hneigði sig fyrir öllum hinum og
þakkaði fyrir góða spilmennsku.
Við hlógum nú mikið að þessari
hefð en höfðum nú samt gaman af
þó svo við létum okkur nægja að
horfa á.
Biggi frændi var lærður húsa-
smiður en fyrir okkur systrum
varstu þúsundþjalasmiður og við
gátum alltaf leitað til þín.
Eftir því sem árin liðu urðu
heimsóknirnar færri og hefðirnar
hafa breyst. Elsku Biggi, við mun-
um alltaf minnast kaffihúsaferð-
anna okkar og herramannsmatar-
ins sem við snæddum saman þegar
við hittumst. Núna þegar þú ert
horfin á braut muntu hitta hana
ömmu og Bogga bróður þinn.
Stóra spurningin sem litlu
frændsystkinin þín velta fyrir sér
er: hver er núna „rassíbala“ – þú
sendir okkur kannski svarið, hver
veit!
Hvíl í friði.
Steina og Guðrún.
Vaktsími: 581 3300 & 896 8242 – www.utforin.is – Allan sólarhringinn
Komum heim til aðstandenda ef óskað er
ÚTFARARSTOFA ÍSLANDS
Sverrir Einarsson Kristín Ingólfsdóttir Jón G. BjarnasonHermann Jónasson
✝
Ástkær móðir okkar, tengdamóðir og systir,
SOFFIA ATHERTON CROUCH,
áður Soffía Hallgrímsdóttir,
lést í Louisville, Kentucky fimmtudaginn
15. september.
Útför hennar mun fara fram frá St. Theresa
kirkju, 1010 Schiller Ave., þriðjudaginn
20. september kl. 12.00, og síðan verður jarðsetning í kirkju-
garðinum á Cave Hill.
Fyrir hönd barna, barnabarna, tengdabarna og systkina,
Donna Dusel Dallenbach,
Laura Hall Gannon,
Craig Atherton,
Helgi S. Hallgrímsson,
Guðmundur Hallgrímsson.
✝
Ástkær eiginmaður minn, faðir okkar, tengda-
faðir, afi og langafi,
ÞORVALDUR BJÖRNSSON
kennari og organisti,
Efstasundi 37,
Reykjavík,
lést á hjúkrunarheimilinu Skjóli mánudaginn
19. september.
Kolbrún Steingrímsdóttir,
Steingrímur Þorvaldsson, Helga Sjöfn Guðjónsdóttir,
Guðrún Þorvaldsdóttir, Guðmundur E. Finnsson,
Hólmfríður Þorvaldsdóttir, Gunnar Sigurðsson,
Björn Þorvaldsson, Anna Gunnarsdóttir,
barnabörn og barnabarnabörn.
✝
Elskulegur faðir okkar, tengdafaðir, afi og
langafi,
ÁRNI KR. ÞORSTEINSSON,
Smyrilsvegi 29,
Reykjavík,
lést á Landspítalanum við Hringbraut laugar-
daginn 17. september.
Útförin fer fram frá Dómkirkjunni í Reykjavík föstudaginn
23. september kl. 11.00.
Anna Árnadóttir,
Ásta Kvaran Árnadóttir, Böðvar B. Kvaran,
Þorsteinn Árnason, Hrefna E. Leifsdóttir,
Sveinn Árnason, Sigurlína Vilhjálmsdóttir,
Erna Þórunn Árnadóttir, Benedikt Sigmundsson,
Ingibjörg Hólmfríður Árnadóttir,
barnabörn og barnabarnabörn.
✝
Ástkær eiginkona mín, móðir okkar, tengda-
móðir, amma og langamma,
HULDA S. ÞÓRÐARDÓTTIR,
Drápuhlíð 37,
Reykjavík,
lést á líknardeild Landspítala Landakoti
sunnudaginn 18. september.
Jarðarför verður auglýst síðar.
Jóhannes Gunnarsson,
Jón Albert Sigurbjörnsson, Lára Guðmundsdóttir,
Ómar Jóhannesson, Inga Hannesdóttir,
Guðrún Jóhannesdóttir,
Kristín Jóhannesdóttir, Magnús Rúnar Magnússon,
Gunnlaugur Jóhannesson, Elín Þ. Pétursdóttir.
✝
Elskuleg móðir okkar, tengdamóðir, amma
og langamma,
KRISTÍN ÞÓRA GUNNSTEINSDÓTTIR,
áður Holtagerði 7,
lést á Hrafnistu, Hafnarfirði, laugardaginn
17. september.
Jarðsungið verður frá Fossvogskirkju
föstudaginn 23. september kl. 11.00.
Geir Magnússon, Kristín Björnsdóttir,
Helgi Magnússon, Guðlaug Guðjónsdóttir,
Jóhannes Halldórsson,
barnabörn og barnabarnabörn.