Morgunblaðið - 20.09.2011, Síða 25

Morgunblaðið - 20.09.2011, Síða 25
MINNINGAR 25 MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 20. SEPTEMBER 2011 ✝ Helga KristínHelgadóttir fæddist á Siglufirði 21. mars 1933. Hún lést á líknardeild Landspítalans í Kópavogi að kvöldi 5. september sl. Foreldrar henn- ar voru þau Helgi Kristinn Sigfússon skipstjóri f. 28. júlí 1904, d. 4. nóv- ember 1933 og Klara Valdís Jónsdóttir, verkakona f. 14. júní 1906, d.12. júní 1969. Systir Helgu er Inga f. 1. apríl 1931. Eiginmaður Helgu var Eirík- ur Jónsson, rafvirkjameistari, f. 28. maí 1931. Þau skildu. Börn þeirra eru:1) Helgi Kristinn, lýs- ingahönnuður f. 11. janúar 1956, maki, Katrín Gunn- arsdóttir, f. 15. apríl 1956. Börn þeirra: a) Ingi Már, f. 16. desem- ber 1972, maki Thelma Harð- ardóttir, f. 11. febrúar 1972. Þeirra börn eru: Elín Helga f. 2000 og Kristín Helga f. 2007. b) Eiríkur Gunnar f. 8. júlí 1981, maki Sara Hillers, f. 23. sept- isson, f. 28. maí 1972. Börn þeirra: a) Emilía Eir f. 22. októ- ber 1996, b) Martin Örn Leví, f. 11. ágúst 1998, c) Ellen Ynja, f. 15. janúar 2005. Helga ólst upp á Siglufirði, gekk í Gagnfræða- skóla Siglufjarðar og lauk það- an gagnfræðaprófi. Að því loknu vann hún á sjómanna- heimili, í greiðasölum og í raf- tækjaverslun á Siglufirði. Flutti síðan suður og var fyrst í vist hjá sr. Kristni Stefánssyni og frú í Reykjavík áður en hún gerðist verslunarstjóri í Innri- Njarðvík. Frá 1955 til 1975 sinnti Helga barnauppeldi og heimilisstörfum, fyrst í Garði og síðan í Reykjavík. Lengst af var heimili hennar að Sæviðarsundi 4 í Reykjavík. Í um tuttugu og fimm ára skeið vann Helga hjá Hagkaupum bæði sem inn- kaupastjóri og verslunarstjóri. Þar átti hún farsælan starfsferil og bar alla tíð hlýjan hug til þess fyrirtækis og starfsmanna þess. Frá eftirlaunaaldri annaðist hún mörg barnabarna sinna um lengri eða skemmri tíma. Þá stundaði hún einnig hannyrðir af miklum myndarbrag og hekl- aði mikinn fjölda teppa sem hún gaf til öldrunarstofnana. Helga verður jarðsunginn frá Áskirkju í dag, þriðjudaginn 20. september 2011 og hefst athöfn- in kl. 15. ember 1982. Þeirra börn eru: Veigar Helgi f. 2008 og Dagur Úlfar f. 2011. c) Jón Krist- inn, f. 8. desember 1993. Dóttir Helga Kristins er d) Sól- veig Lind f. 27. ágúst 1985, maki Oddur Þór Rún- arsson, f. 21. sept- ember 1983. Þeirra barn er Rúnar Óli, f. 2007. 2) Martha, framkvæmdastjóri f. 25. desember 1957, maki Andrés Magnússon, f. 6. janúar 1956. Börn þeirra: a) drengur, and- vana fæddur 27. nóvember 1986, b) Davíð Helgi f. 19. janúar 1989, c) Þórunn f. 16. apríl 1993. Sonur Andrésar er Þorkell f. 22. janúar 1979. 3) Diðrik, fram- kvæmdastjóri, f. 29. apríl 1961, maki Viktoría Valdimarsdóttir, f. 9. nóvember 1957. Börn þeirra: a) Karítas, f. 15. nóv- ember 1985, b) Kristinn, f. 10. nóvember 1990. 4) Inga Rós, skrúðgarðyrkjumeistari, f. 5. ágúst 1970, maki Halldór Sverr- Elsku mamma mín og tengda- mamma, nú ertu farin frá okkur. Við söknum þín, minningarnar um þig streyma um hugann, bar- næskan, unglingsárin og lífið með þér, þú varst alltaf til staðar þegar við þurftum á að halda. Þú ert okkar fyrirmynd í lífinu, kenndir okkur allt sem skiptir máli til að takast á við framtíð- ina. Heimili fjölskyldunnar á Hof- teigi og í Sæviðarsundi var í raun stórt félagsheimili, þar var ávallt fullt út úr dyrum, ættingjar og vinir frá Siglufirði og úr Garð- inum sem ýmist komu við eða áttu þar samastað um lengri eða skemmri tíma. Þetta var skemmtilegur tími, okkur leidd- ist aldrei, það var ekki tími til þess. Það var mikil gæfa að vera al- inn upp af þér, mamma mín, þú með þínar gáfur og hæfileika átt- ir sérstaklega auðvelt með að vera fyrirmyndar mamma, síðar amma og langamma, þú gerðir hlutina á þinn hátt, hafðir mikinn metnað fyrir framtíð fjölskyld- unnar, fjölskyldan var þér allt og veislur voru haldnar við hvert tækifæri, þú elskaðir að hafa fyr- ir fólki, tala, borða og hlæja. Börnin okkar fengu að njóta þess að eiga þig sem hina full- komnu ömmu, sem gaf þeim tíma og alla þá umhyggju sem hægt er að hugsa sér. Takk, Helga amma. Eftir að þú greindist með MND sjúkdóminn tók við nýr kafli í okkar lífi, við þurftum að takast á við breyttar aðstæður, þú hafðir aldrei áður orðið veik. MND sjúkdómurinn var hjá þér verkefni sem þú tókst strax föst- um tökum og ákvaðst að nota þinn einstaka húmor sem vopn gegn veikindunum. Þér tókst með sérstöku lagi og eljusemi að stjórna öllum í kringum þig og um leið vera fyrirmyndarsjúk- lingur. Hjúkrunarfólkið sem annaðist þig var einstakt, þú gladdist í hvert skipti sem það kom til þín og talaðir oft um góða fólkið í heimahlynningunni og á Land- spítalanum, hversu heppin þú værir í lífinu að fá svona góða að- hlynningu. Þú hefðir aldrei getað farið svona auðveldlega í gegn- um þessi erfiðu veikindi án þess. Kærar þakkir frá fjölskyldunni, góða fólk. Við Kata og fjölskylda kveðj- um þig með auðmýkt og þakk- læti í hjarta. Blessuð sé minning þín. Helgi Kr. Eiríksson, Katrín Gunnarsdóttir, börn og barnabörn. Tengdamóðir mín, Helga Kristín Helgadóttir, er fallin frá eftir snarpa baráttu við mikinn vágest. Sá hræðilegi sjúkdómur MND, hefur lagt hana að velli á rúmu ári. Helga tókst á við hinn ólæknandi sjúkdóm af yfirvegun og stillingu, en í stað þess að fyll- ast bölmóði notaði hún síðustu mánuði ævinnar til að eiga dýr- mætar samverustundir með ætt- ingjum og vinum þar sem liðinna tíma var minnst, öllum til mik- illar ánægju. Það var síðla sumars árið 1982 sem ég fór að gera hosur mínar grænar fyrir henni Mörthu minni sem þá bjó í kjallaraíbúð í húsi foreldra sinna. Lengi vel tókst mér að komast þangað óséður, enda oft á ferli þegar allt venjulegt fólk var gengið til náða. Það kom þó að því að felu- leiknum hlaut að ljúka og þegar síst skyldi gekk ég beint í flasið á verðandi tengdamömmu. Það fór með mig eins og margan vonbi- ðilinn við slíkar kringumstæður, að hugmyndaflug skorti til að brydda upp á umræðuefni. Helga leysti þann vanda fyrir mig, spurði mig um ætt og upp- runa, hvað ég hefði fyrir stafni og svo framvegis. Þar með var ísinn brotinn. Mér var það ljóst allt frá okk- ar fyrstu kynnum hversu mikil dugnaðar- og myndarkona Helga var. Hún gekk til allra verka af ákveðni og festu. Hún vílaði hlutina ekki fyrir sér. Við- fangsefnin áttu hug hennar allan og gilti þar einu hvort um var að ræða hin reglulegu heimilisstörf eða vinnuna hjá Hagkaupum þar sem hún átti gifturíkan starfs- feril í um tuttugu og fimm ára skeið. Má svo sem segja að dugn- aður hennar og ákafi hafi á stundum orðið til þess að hún fékk ekki notið lífsins til fulls. Veislur hennar voru orðlagð- ar, ekki síst um jól og áramót þar sem borðin svignuðu undan veisluföngum. Hún hafði yndi af því að vera innan um fólk, veita og gera vel við vini sína og fjöl- skyldu. Þar hef ég og mitt fólk oftast verið í hlutverki þiggjand- ans. Myndarskap Helgu var við brugðið en eftir að störfum lauk tók hún til við hannyrðir af miklu kappi, heklaði teppi í tuga og hundraða tali sem hún gaf á öldr- unarstofnanir. Bera þessi teppi öll myndarskap hennar fagurt vitni. Fyrir mér er það þó umhyggj- an fyrir barnabörnunum sem mun halda minningu Helgu lengst á lofti. Hún var amma í mestu og bestu merkingu þess orðs. Hafði einstakt lag á að ná til barna, enda elskuðu þau hana og dáðu og milli þeirra og ömmu myndaðist einstaklega falleg vin- átta. Við þessi tímamót minnast þau allra góðu stundanna með henni og sakna nú vinar í stað. Það sama á við um mig og það er með miklum söknuði í hjarta sem ég kveð Helgu hinstu kveðju og þakka henni allt sem hún gerði fyrir mig og mína. Andrés Magnússon. Elsku amma. Nú ertu farin frá okkur og ég kveð þig með mikl- um söknuði og sorg í hjarta. En svona er lífið og þetta er víst sá áfangastaður sem við getum öll verið viss um að enda á. Mig langar að þakka þér fyrir allt það sem þú hefur gert fyrir mig og lagt á þig til að gera mig glaðan og ánægðan. Þegar ég var yngri varstu allt- af tilbúin með mat og góðgæti eftir skóla þegar maður kom sár- svangur heim. Þú sast svo yfir mér eftir matinn til að tryggja að öllu heimanámi yrði lokið. Fólk var alltaf að segja mér hvað ég væri góður við ömmu að hugsa svona vel um hana. Satt að segja hafði ég svo rosalega gam- an af þessum stundum sem við áttum saman yfir mjólkurglasi á föstudagskvöldi eða kaffibolla um miðjan dag þar sem þú sast við að hekla og sagðir mér sögur frá síldarævintýrinu mikla á Siglufirði eða ferðunum til Kan- aríeyja með ellismellunum miklu. Ég mun sakna þess að fara yfir til þín í heimsókn og spjalla við þig um lífið og til- veruna. Þetta voru mér ómetan- legar stundir sem ég mun geyma alla ævi. En nú ertu komin á annan stað og í mínum huga er það þar sem lindin er silfurtær og Lilla vinkona þín situr þér við hlið. Ég vildi að ég væri eins og þú og vakað gæti bæði daga og nætur, þá skyldi öllu kveða óð um unað, ást og trú sem aldrei bregst en hugga lætur. Já, ef ég mætti lifa eins og lindin silfurtær sem lög á sína undrastrengi slær. (Bjarni Árnason.) Takk fyrir allt, elsku amma mín. Þinn, Davíð Helgi. Elsku amma. Nú sitjum við hér saman frændsystkinin og rifjum upp allar þær minningar sem við þrjú eigum saman. Eftir góða umhugsun höfum við kom- ist að því að við eigum ekki bara eina uppáhaldsminningu heldur eru allar minningar í uppáhaldi. Við höfðum alltaf þau forrétt- indi að fá að fara heim til þín eft- ir skóla og eyða eftirmiðdeginum með þér. Eftir langan og erfiðan dag í skólanum var alltaf góð til- hugsun að vita af heitum og góð- um mat hjá þér. Það var alltaf jafn magnað hvernig þú gast töfrað fram dýrindis rétti úr hvaða hráefni sem var. Hvort sem það var matur, kökur eða drykkir. Þú leyfðir okkur að láta ímyndunaraflið fara á flug og fengum við að nýta alla þá hluti sem þú áttir til að leika okkur með, hvort sem það voru niður- suðudósir, gömul mynt eða skartgripir. Það var ómetanlegt að fá að koma til þín og eyða góð- um stundum með þér. Við munum vel eftir lyklinum að himnaríki sem þú sýndir okk- ur þegar við vorum ung. Við urð- um bæði furðu lostin og rosalega montin yfir því að amma okkar ætti lykilinn að himnaríki. Þó að það sé erfitt að kveðja þig, elsku amma, þá huggum við okkur við það að lykillinn góði veiti þér að- gang að besta stað. Um leið og við kveðjum þig, elsku amma okkar, viljum við segja þér að þrátt fyrir allt er þó besta minningin sem við eigum þegar við sátum þrjú inni í eld- húsi og vorum að spjalla um allt milli himins og jarðar. Guð geymi þig, elsku amma. Þín, Þórunn og Jón. Mig langar að rifja upp nokkr- ar minningar um Helgu systur mína sem lést 5. september úr MND sjúkdómnum. Það var gott fyrir okkur að alast upp á Siglu- firði þar sem allir þekktu alla. Fjaran, síldarplönin og fjöllin voru okkar leiksvæði og aldrei skorti okkur viðfangsefni og allt- af gátum við skemmt okkur sam- an. Ég minnist ýmissa bernsku- breka okkar með sælusvip á meðan móðir okkar saltaði í síld- artunnurnar því faðir okkar drukknaði þegar við vorum mjög ungar. Við vorum mjög sam- rýndar alla tíð. Blessuð sé minning systur minnar og mágkonu. Við andlátsfregn þína, allt stöðvast í tímans ranni. Og sorgin mig grípur, en segja ég vil með sanni, að ósk mín um bata þinn, tjáð var í bænunum mínum, en Guð vildi fá þig, og hafa með englunum sínum. Við getum ei breytt því sem frelsarinn hefur að segja. Um hver fær að lifa, og hver á svo næstur að deyja. Þau örlög sem við höfum hlotið, það verður að skilja. Svo auðmjúk og hljóð, við lútum að frelsarans vilja. (Bryndís Halldóra Jónsdóttir) Inga og Þórhallur. Mér fannst hún frænka mín alltaf koma með sumarið til Siglufjarðar Það fylgdi henni ferskur andblær og ég leit alltaf á hana eins og stóru systur sem ég aldrei átti. Hún var sannköll- uð Reykjavíkurmær og þegar Raggi Bjarna hljómaði úr hátöl- urum síldarplananna á Sigló: Vertu ekki að horfa svona alltaf á mig og Vorkvöld í Reykjavík þá varð mér hugsað til Helgu frænku. Þær Inga systir hennar ólust upp í gamla húsinu á Suðurgötu 26 á Sigló hjá Klöru móður sinni og ömmu og afa Guðlaugu og Jóni. Faðir þeirra hafði drukkn- að þegar Helga var nýfædd og Inga aðeins tveggja ára. Þær voru að kveðja heimhag- ana um það leyti að ég fæðist og bréfin bárust reglulega í gamla húsið þar sem tíminn stóð kyrr nema þegar að síldin hleypti Sigló í bál og brand. Í einu bréfanna segir hún frá því þegar þau búa á Suðurnesj- um hjá foreldrum Eiríks að hún sé að sauma upp úr gömlum föt- um af mér á Helga son sinn sem þá var nýfæddur. Við hlógum að þessu núna í sumar þegar ég færði henni þetta bréf. Alltaf var hátíð í bæ þegar fjölskylda Helgu kom norður og alltaf var Eiki á nýjum bíl sem ilmaði af vindlareyk. Krökkun- um Helga, Mörtu og Didda var fagnað af sömu gleði og þegar við mæðginin komum í heim- sóknir að norðan hvort sem var á Hofteig, Kleppsveg eða Sævið- arsundið þar sem þau hjón byggðu stærðarhús af þeim dugnaði og krafti sem einkenndi þau. Þarna fermdust krakkarnir og Inga Rós fæddist og í kjall- aranum leit Ingi Már fyrst dags- ins ljós. Heimili Helgu við Sæviðar- sund var stundum eins og um- ferðarmiðstöð þessarar stóru fjölskyldu. Og þegar deilur eða ósætti komu upp gátu allir treyst á Helgu. Hún var mála- miðlarinn og mannasættarinn og allir sóttu í félagsskap hennar sem einkenndist af glaðværð og heilindum. Það var ættinni því mikið áfall þegar þau Eiríkur slitu samvist- um. Og við Erlingur frændur hennar sem áttum henni stóra skuld að gjalda stóðum á bak við hana sem mest við máttum í flutningum, hjá lögfræðingum og fasteignasölum. En við sökn- uðum líka Eiríks og urðu fagn- aðarfundir þegar við hittum hann aftur í veislu hjá Mörtu alltof mörgum árum síðar. Síðustu árin átti hún athvarf í skjóli barna sinna sem studdu hana með ráð og dáð í þeim veik- indum sem drógu hana til dauða. Það var aðdáunarvert að heimsækja hana þetta síðasta harðdræga ár. Hún var glöð, fékk að vera heima og með hverri vikunni sem leið varð ljós- ara að hverju dró. Við rifjuðum upp gamla tíma og sögðum henni frá bardúsinu okkar og hún sem gat ekki tjáð sig nema með skrift gladdist og tók þátt með gleði og jákvæðni sem ein- kenndi hana. Þetta síðasta ár með elskulegri frænku okkar var ekki síður lærdómsríkt fyrir mig Dóru, Erling og Helgu sem reyndum að fara til hennar viku- lega. Þvílíkt æðruleysi og kjark- ur. Ekkert væl eða skæl – bara gleði, hamingja og sátt og ég trúi því að nú sé kátt í himna- ranni þegar þær systur Bogga, Binna og Klara hella upp á og hlæja saman kátar í eilífðinni. Og kannski verður skellt í pönnsur með rabbabarasultu úr garðinum gamla heima. Gunnar Trausti. Móðursystir mín er látin, kona sem var með stórt hjarta og breiðan faðm. Helga bjó í Reykjavík en syst- ir hennar, móðir mín, á Akra- nesi. Var því af og til farið til Reykjavíkur í heimsókn eða Helga og fjölskylda komu á Skagann því ætíð voru þær syst- ur í góðu sambandi. Helga og Eiríkur eignuðust fjögur börn og því líf og fjör á heimilinu. Helga var heimavinn- andi á meðan börnin voru lítil og því var þó nokkur gestagangur hjá henni. Vinkonur og frænd- fólk að koma í heimsókn eða að biðja hana að passa börnin sín á meðan foreldrarnir sinntu erind- um sínum. Ætíð tók hún fagn- andi á móti þeim sem komu. Kynntist ég því vel á meðan ég dvaldi á heimili hennar í Sæ- viðarsundinu í þrjá vetur á með- an ég stundaði nám í Reykjavík. Nánustu ættingjarnir bjuggu úti á landi og þegar farið var í bæj- arferð var komið við í Sæviðar- sundinu, annaðhvort til að heilsa upp á heimilisfólkið eða að fá gistingu, því alltaf var nóg pláss. Þegar eldgos hófst í Heimaey hýsti hún frænda okkar sem bjó þar með fjölskyldu sinni, en á sama tíma dvaldi ég þar ásamt frænda okkar frá Siglufirði. Helga var mikil handavinnu- kona. Man ég eftir framleiðslu hennar á lopapeysum og einnig átti hún prjónavél sem peysur, sokkabuxur, ullarbolir, dúkkuföt o.fl. runnu út úr. Saumaði hún einnig mikið út og nú síðustu ár- in sín framleiddi hún hekluð teppi sem hún gaf á hjúkrunar- heimili. Þegar ég hugsa um Helgu þá birtist í huga mér brosmild og kærleiksrík kona sem ætíð tók vel á móti manni. Blessuð sé minning hennar. Klara Valdís. Helga Kristín Helgadóttir  Fleiri minningargreinar um Helgu Kristínu Helga- dóttur bíða birtingar og munu birtast í blaðinu næstu daga. ✝ Ástkær eiginkona, móðir, tengdamóðir, amma, langamma og langalangamma, GUÐMUNDA ERLENDSDÓTTIR, Dídí, hattagerðarkona, Skógarbæ, áður til heimilis á Kleppsvegi 118, Reykjavík, andaðist á deild B-6, Landspítala Fossvogi, sunnudaginn 11. september. Útför hennar fer fram frá Áskirkju miðvikudaginn 21. september kl. 13.00. Gunnar Valur Þorgeirsson, Hrefna Guðrún Gunnarsdóttir, Jónas S. Ástráðsson, Louisa Gunnarsdóttir, Birgir Þór Jónsson, Erna Gunnarsdóttir, Haukur Ólafsson, Auður Björk Gunnarsdóttir, Þórhallur K. Jónsson, barnabörn, barnabarnabörn og langalangömmubarn. ✝ Okkar ástkæri GUÐJÓN BJARNASON, Snælandi 6, Reykjavík, lést á Landspítalanum við Hringbraut mánudaginn 12. september. Útförin fer fram frá Fella- og Hólakirkju föstudaginn 23. september kl. 13.00. Gunnur Jónasdóttir, Þuríður Guðjónsdóttir, Þórhallur Vigfússon, Daníel Þórhallsson, Elísabet Þórhallsdóttir.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.