Morgunblaðið - 20.09.2011, Síða 30

Morgunblaðið - 20.09.2011, Síða 30
30 MENNING MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 20. SEPTEMBER 2011 Fyrir utan keppnina og það sem verður í fókus á Alþjóðlegu kvikmyndahátíðinni í Reykjavík (RIFF) er margt afbragðs- mynda til sýningar til hliðar. Þar má nefna spænsku mynd- ina Rigningin líka eftir Icíar Bollaín sem vakið hefur mikla athygli. Að ógleymdum meist- ara Aki Kaurismäki en nýja myndin hans var frumsýnd á Cannes í vor og vakti mikla at- hygli. Að margra mati stóð keppnin um sigurlaunin milli hans og Terrence Malick en Malick vann. Myndin verður í sýningum á RIFF og nefnist hún Le Havre. Myndin er finnskt nútíma ævintýri og er framlag Finna til Óskarsverðlaunanna í ár. Kvikmyndir Kvikmyndaveislan að byrja á RIFF Aki Kaurismäki Þrjár nýjar sýningar verða opnaðar í Hafnarhúsi fimmtu- daginn 22. september kl. 17. Á sýningunni Hraðari og hægari línur bregður sýningarstjórinn Birta Guðjónsdóttir ljósi á úr- val teikninga úr listasafni Pét- urs Arasonar og Rögnu Ró- bertsdóttur. Í A-sal Hafnarhússins hefur myndlist- armaðurinn Ósk Vilhjálms- dóttir unnið verk sem leitast við að tengja safnið almenningsrými borgarinnar og efnir til þjóðfélagslegrar umræðu innan veggja safnsins. Tuttugasta og fyrsta D-salar verkefnið verður einnig opnað á fimmtudaginn en þar sýnir Hildigunnur Birgisdóttir innsetningu sína. Myndlist Teikningar, tilraun- ir og umræða Birta Guðjóns Milli trjánna, smásagnasafn Gyrðis Elíassonar, kemur út í Svíþjóð nú í september hjá for- laginu Reverb í Gautaborg en Gyrðir er gestur á bókamess- unni Bok og Bibliotek í Gauta- borg sem hefst 22. september. Eftir messuna fer Gyrðir til Stokkhólms í boði Norrænu ráðherranefndarinnar þar sem kynning á Milli trjánna verður haldin 26. september. Þýðingin á norsku er þegar komin út og fram- undan er útgáfa í Þýskalandi og Frakklandi. Ljóst er að Gyrðir hlýtur Bókmenntaverðlaun Norðurlandaráðs fyrir Milli trjánna en verðlaunin verða afhent í Kaupmannahöfn 2. nóvember. Bókmenntir Smásagnasafnið að koma út í Svíþjóð Gyrðir Elíasson Á fimmtudaginn, 23. september, setur Vigdís Finnbogadóttir nám- stefnu á Grand Hótel Reykjavík í tengslum við Lærum og leikum með hljóðin, séríslenskt námsefni samið af Bryndísi Guðmunds- dóttur talmeinafræðingi. Nám- stefnan mun standa yfir frá klukkan 13-17. Lærum og leikum með hljóðin er fjölbreytt framburðarefni sem ætlað er öllum börnum, for- eldrum og fagfólki til að und- irbúa rétta hljóðmyndun og styrkja undirbúningsfærni fyrir lestur. Samhljóðin í íslensku eru kynnt til sögunnar í sömu röð og barnið tileinkar sér hljóðin og þyngdarstigið eykst um leið og leikið er í skemmtilegum æfing- um í bókum, spilum og mynd- bandsefni. Bryndís Guðmunds- dóttir var nýlega ein margra íslenskra kvenna sem hlutu al- þjóðlega viðurkenningu Euwiin (European Union Women Inven- tors & Innovators). Samkvæmt tilkynningu frá að- standendum námstefnunnar segir að „á henni verður lögð sérstök áhersla á að fræða um forsendur hlustunar og hljóðmyndunar og hvernig hægt er að laða fram á einfaldan, skipulagðan og skemmtilegan hátt hljóðmyndun og hljóðkerfisþætti sem undirbúa frekari lestrarfærni“. Morgunblaðið/Árni Sæberg Virðuleg Vigdís Finnbogadóttir Lærum og leikum  Á hótel með tal- meinafræðingana Börkur Gunnarsson borkur@mbl.is Fyrir nokkrum vikum var verk eft- ir hinn virta þýsk-búlgarska tón- listarmann Vladimir Ivanoff sýnt á tónlistarhátíðum í Bayreuth og Bonn í Þýskalandi. Það væri kannski ekki í frásögur færandi hérlendis, þar sem hljómsveit Iv- anoffs, Sarband, tekur þátt í 20 til 30 hátíðum á ári, ef ekki væri fyrir það að einn meðhöfunda verksins er barítónsöngvarinn Sigurður Bragason. Efniviður verksins er Tyrkjarán- ið í Vestmannaeyjum árið 1627. Sýningarnar vöktu mikla athygli og fengu mjög góða dóma í fjöl- miðlum. Sigurður söng eitt aðal- hlutverka í sýningunum. Nú er fyr- irhugað að flytja verkið víðar á tónlistarhátíðum í Þýskalandi, á Norðurlöndum og á Ítalíu, m.a. Concerti d’Altamarca við Feneyjar og Amici della Musica di Foligno í Umbríuhéraði. Þess má geta að Valery Oistrakh fiðluleikari er fastagestur á fyrrnefndu hátíðinni og Franco Zefferilli á þeirri síð- arnefndu. Að sögn Sigurðar Bragasonar er ætlunin að verkið verði eitt af að- alverkunum í flutningi Ivanoffs og Sarbandsveitarinnar næstu tvö til þrjú árin. Að tengja hina kristnu og múslímsku heima „Vladimir Ivanoff er fastagestur á tónlistarhátíð ungs fólks í Bay- reuth, þar sem hann hefur umsjón með tónleikum atvinnumanna sem eru einskonar fyrirmyndir fyrir þetta unga listafólk,“ segir Sigurður Bragason söngvari. „Hátíðin fer fram samhliða Wagner-óperuhátíð- inni. Ivanoff valdi þetta viðfangs- efni og fékk síðan mig og sænska söngkonu með sér, Miriam And- erson, til að flytja verkið með Sar- bandhljómsveitinni. Hann vill tengja vestræna heiminn og þann múslímska með tónlistarflutningi. Honum fannst tilvalið að hafa Tyrkjaránið sem viðfangsefni sýn- ingarinnar og nota tónlist frá Arabalöndunum og barokk- tónlist frá Norður-Evrópu, meðal annars sálma og lög við ljóð Hall- gríms Péturssonar. Örlög Guðríðar Símonardóttur eru meginþema verkefnisins. Hann fékk frægan bandarískan dansara til að dansa hlutverk henn- ar, Helene Eriksen. Einnig koma fram tyrkneskir söngvarar sem syngja söngva sjóræningjanna. Ég og Vladimir unnum í marga mánuði að því að finna verk sem tengdust Alsír, Íslandi og Guðríði með góðri aðstoð Steinunnar Jóhannesdóttur sem er kunnugust þessari sögu. Lofsamlegir dómar um tón- leikana birtust til dæmis í Köln- ische Rundschau og fleiri virtum blöðum Þýskalands enda mjög vel fylgst með hátíðinni,“ segir Sig- urður. Morgunblaðið/Sigurgeir S. Barítónsöngvarinn Sigurður Bragason syngur eitt aðalhlutverkanna í verki Vladimir Ivanoffs um Tyrkja-Guddu sem sýnd var í Bayreuth. Tyrkja-Gudda fær góða dóma í Þýskalandi Hátíðin » Bayreuth-hátíðirnar eru ein- ar þekktustu hátíðir í heim- inum. Wagner-hátíðin er fremri en Junger Künstler-hátíðin er einnig mjög vinsæl og virt. » Fyrir nokkrum vikum var verk Vladimir Ivanoffs og Sig- urðar Bragasonar frumsýnt þar.  Verk eftir Ivanoff og Sigurð var sýnt á Bayreuth-hátíðinni í Þýskalandi Föstudaginn og laugardaginn 23. og 24. september verður haldin þríþætt ljóðahátíð í Eyjafirði. Að hátíðinni standa Menningarsmiðjan Populus tremula, Verksmiðjan á Hjalteyri og Skógræktarfélag Eyfirðinga. Að kvöldi föstudags hefst hátíðin kl. 21.00 með ljóðakvöldi og upp- lestrum í Verksmiðjunni á Hjalt- eyri. Þar munu koma fram skáldin Guðbrandur Siglaugsson, Kristín Svava Tómasdóttir og Anton Helgi Jónsson. Á laugardaginn kl. 14.00 verður svo haldin ljóðaganga í Grundar- skógi í Eyjafirði þar sem skóginum verður haldin veisla þar sem skáld hátíðarinnar lesa upp úr verkum sínum og síðan drukkið brennivín með smá ketilkaffi út í. Um kvöldið verður ljóðaupplestur í Populus tremula í Listagilinu og Bjarni Gunnarsson, Þórunn Erlu- Valdimarsdóttir og Ísak Harðarson lesa úr verkum sínum. borkur@mbl.is Unglingar í skóginum og aldnir með ljóðaupplestur Morgunblaðið/Árni Sæberg Ljóðadans Ísak Harðarson er einn þeirra sem hvísla ljóð sín í skóginum.  Hin árlega ljóðahátíð í Eyjafirði hefst á föstudaginn Björn Thoroddsen verður eins og undanfarin ár með tónleika í Saln- um í Kópavogi í október. Upp- haflega áttu aðeins að vera tón- leikar hinn 20. október en þar sem aðeins örfá sæti eru laus á þá tón- leika hefur verið ákveðið að hafa aukatónleika daginn eftir, 21. októ- ber. Tónleikarnir hefjast báða dag- ana klukkan 20:00 og er miðaverð 3.500 kr. Meðal þeirra sem koma fram í ár eru Robin Nolan, Hákon Möller, Þórður Árnason, Halldór Braga- son, Sigurður Ólafsson og Hjörtur Stephensen. Björn ætlar að fá þess- ara gítarspilara til að glíma við mörg af meistaraverkum gítarsög- unnar. Blús, django, djass, rokk og metall munu hljóma í Salnum auk þess sem gullnöglin verður afhent í þriðja sinn. En það eru verðlaun sem eru veitt gítarmanni. borkur@mbl.is Gítarmeistarar í Salnum í október  Gullnöglin afhent í veislunni Gitaristinn Björn Thoroddsen að einbeita sér við gítarspil. Fyrirtækið hyggst gera kvikmynd eftir bókinni á ensku og taka hana á Íslandi, að því er fram kemur í tilkynningu 33 »

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.