Morgunblaðið - 30.09.2011, Síða 1
F Ö S T U D A G U R 3 0. S E P T E M B E R 2 0 1 1
Stofnað 1913 229. tölublað 99. árgangur
MORÐKVENDI
EÐA SAKLAUST
FÓRNARLAMB?
AÐ PRJÓNA
ER GOTT
FYRIR SÁLINA
LÍFIÐ ER SVO
SKEMMTILEGA
SKRÝTIÐ
LIFUN 24 SÍÐUR CHARLIE MURPHY 40AMANDA KNOX 21
Hjörtur J. Guðmundsson
hjorturjg@mbl.is
Fulltrúar stjórnarflokkanna í sjávar-
útvegs- og landbúnaðarnefnd Alþingis
skiptast a.m.k. í þrennt í afstöðu sinni
til þess hvert framhaldið eigi að verða
varðandi stóra frumvarpið svokallaða
um breytingar á stjórn fiskveiða.
Formaður og varaformaður nefnd-
arinnar, Lilja Rafney Magnúsdóttir
og Ólína Þorvarðardóttir, sendu sjáv-
arútvegsráðuneytinu bréf og greinar-
gerð í gær þar sem þær gerðu grein
fyrir afstöðu sinni til frumvarpsins.
Hins vegar var það aðeins í þeirra
nafni samkvæmt heimildum Morgun-
blaðsins og hvorki fyrir hönd stjórn-
arflokkanna, Samfylkingarinnar og
Vinstrihreyfingarinnar - græns fram-
boðs, né annarra fulltrúa þeirra í
nefndinni.
Sammála minnihlutanum
Björn Valur Gíslason, þingflokks-
formaður VG og fulltrúi flokksins í
sjávarútvegs- og landbúnaðarnefnd,
sendi sjávarútvegsráðherra eigið bréf
þar sem hann segir að ekki eigi að
leggja frumvarpið fram að nýju held-
ur þurfi að smíða nýtt frumvarp um
stjórn fiskveiða sem meðal annars
eigi að byggjast á niðurstöðu svo-
nefndrar sáttanefndar. Þar á Björn
Valur samleið með fulltrúum Sjálf-
stæðisflokksins og Framsóknar-
flokksins í nefndinni sem nálgast hafa
málið með sama hætti.
Þá gagnrýnir Björn Valur harðlega
að ekki hafi verið fundað í sjávarút-
vegs- og landbúnaðarnefnd um um-
sagnir um frumvarpið, né hafi hún
fengið umsagnaraðila á sinn fund. Atli
Gíslason, alþingismaður, sem á sæti í
nefndinni gagnrýnir þessi vinnubrögð
einnig harðlega
Bullandi ágreiningur
Engin samstaða er á meðal fulltrúa stjórnarflokkanna í sjávarútvegs- og land-
búnaðarnefnd Alþingis um framhald stóra frumvarpsins um stjórn fiskveiða
Sjávarútvegurinn
» Stjórnarliðar í sjávarútvegs-
og landbúnaðarnefnd Alþingis
eru a.m.k. þríklofnir í afstöðu
sinni til stóra frumvarpsins um
stjórn fiskveiða.
» Þingflokksformaður VG vill
að nýtt frumvarp verði smíðað,
byggt á niðurstöðum sátta-
nefndarinnar líkt og sjálfstæðis-
og framsóknarmenn vilja.
MEngin samstaða í nefndinni »12
Mikill baráttuhugur er í lögreglumönnum um
allt land, um 300 tóku þátt í kröfugöngu þeirra í
Reykjavík þar sem þeir lögðu áherslu á óánægju
með úrskurð gerðardóms fyrir viku. „Ég er gríð-
arlega sáttur við mætinguna hér í dag og sam-
stöðu lögreglumanna, enda átti ég ekki von á
öðru,“ segir Gestur Pálmarsson lögreglumaður í
viðtali við MBL Sjónvarp. Ákveðið var á fundi
forsvarsmanna Landssambands lögreglumanna
með Steingrími J. Sigfússyni fjármálaráðherra í
gær að stofna starfshóp með fulltrúum forsætis-,
fjármála- og innanríkisráðuneytis og samn-
inganefnd lögreglumanna. Verður leitað leiða í
starfshópnum til að koma til móts við kröfur lög-
reglumanna. »4
Morgunblaðið/Júlíus
Mikil samstaða lögreglumanna í kröfugöngu
Róbert B. Róbertsson
robert@mbl.is
Hrina uppsagna hefur riðið yfir í
þessum mánuði, en vel á annað
hundrað starfsmenn hjá fimm fyrir-
tækjum hafa misst vinnuna, eða um
180 talsins, sem greint hefur verið frá
opinberlega.
Skiptasamsteypan og helstu dótt-
urfélög; Síminn, Míla og Skjárinn,
sögðu upp 45 starfsmönnum í gær-
morgun og hafa stöðugildi hjá sam-
steypunni fækkað um 68 það sem af er
þessu ári.
Fimm starfsmönnum Orkuveitu
Reykjavíkur var sagt upp störfum í
gær. Uppsagnirnar eru í tengslum við
skipulagsbreytingar hjá fyrirtækinu.
Þá tilkynntu Íslenskir aðalverktak-
ar í gær að fyrirtækið hefði sagt upp
40 starfsmönnum. Ástæðan er sögð
vera verkefnaskortur og fyrirsjáan-
legur samdráttur í framkvæmdum.
Sambíóin sögðu upp um 30 starfs-
mönnum sem starfa í Kringlubíói.
Uppsagnirnar komu til vegna þess að
leigusamningur við Eignarhaldsfélag
Kringlunnar var að renna út.
Þá var 57 starfsmönnum sagt upp
störfum hjá Arion Banka fyrr í þess-
um mánuði. Allt í allt eru þetta tæp-
lega 180 störf og segir Gissur Pét-
ursson, forstjóri Vinnumála-
stofnunar, að vænta megi frekari
uppsagna á næstu dögum. »2
Vel á annað hundrað uppsagnir
Um 180 uppsagnir hjá fimm fyrirtækjum í septembermánuði Gissur
Pétursson, forstjóri Vinnumálastofnunar, gerir ráð fyrir frekari uppsögnum
Atvinna Von er á fleiri uppsögnum.
Fimmtán prósent þolenda snjó-
flóðanna tveggja á Vestfjörðum ár-
ið 1995 hafa einkenni áfallastreitu í
dag, sextán árum síðar. Þeir eru
jafnframt líklegri til að greina frá
líkamlegum kvillum og um 40% þol-
enda sem eru með einkenni áfalla-
streitu meta andlega heilsu sína
slæma eða mjög slæma. Þetta kem-
ur fram í nýrri rannsókn Eddu
Bjarkar Þórðardóttur, doktors-
nema í lýðheilsuvísindum, um lang-
tímaáhrif snjóflóðanna á Vest-
fjörðum. »8
Þjást enn af áfalla-
streitu eftir flóðin
Flateyri Frá snjóflóðinu árið 1995.
Morgunblaðið/RAX
Sérstakur sak-
sóknari hefur í
rannsóknum sín-
um óspart beitt
símhlerunum, og
voru tilvikin
komin vel á ann-
að hundrað fyrr
á þessu ári. Sam-
kvæmt heim-
ildum Morgun-
blaðsins hefur
borið við að upptökur hafi verið
leiknar fyrir aðra en ræða saman í
viðkomandi símtölum og án þeirra
vitneskju. Þá hafi menn heyrt utan
að sér að símar þeirra séu hleraðir
vegna slíkra atvika við skýrslutök-
ur.
„Ákveðnar reglur liggja fyrir um
það hvernig viðkomandi er tilkynnt
þetta. En það er hins vegar mat
rannsóknaraðilans í hvaða röð að-
ilar sem varða efni símtalsins eru
teknir fyrir. Þar af leiðandi er
tæknilega mögulegt að ekki séu all-
ir látnir vita á sama tímamarkinu,“
segir Ólafur Þór Hauksson, sér-
stakur saksóknari, og tekur fram
að hann geti ekki tjáð sig um ein-
stök mál. »6
Heyra utan að sér
um símhleranir
Ólafur Þór
Hauksson
Tollvörðum hefur fækkað verulega
hér á landi á síðustu misserum og
ástæða þess að tollverðir hafa horf-
ið úr starfi er fyrst og fremst
óánægja með launin.
Álagið á þá tollverði sem eftir
eru hefur stóraukist af þessum sök-
um og stefnir í óefni með sama
áframhaldi, að sögn Ársæls Ársæls-
sonar, formanns Tollvarðafélags Ís-
lands.
„Það hefur lítið verið ráðið inn
eftir hrunið,“ segir Ársæll. „Okkur
fækkar stöðugt. Það er farið að
vanta tilfinnanlega fleiri tollverði.
Niðurskurður undanfarin ár er far-
inn að bíta hressilega.“ »4
Stefnir í óefni vegna
fækkunar tollvarða