Morgunblaðið - 30.09.2011, Síða 10
10 DAGLEGT LÍF
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 30. SEPTEMBER 2011
Kynntu þér lán og aðra
þjónustu Íbúðalánasjóðs
Borgartúni 21 | 105 Reykjavík | Sími : 569 6900, 800 6969
www.ils.is
Lán til íbúðakaupa
Lán til endurbóta og viðbygginga
Aukalán vegna sérþarfa (skert starfsorka)
Úrræði í greiðsluvanda
Kristín Heiða Kristinsdóttir
khk@mbl.is
Mér finnst frábært að fáað kenna aftur í svonalangan samfelldantíma, því ég hef verið
svo mikið á ferðinni við danssýn-
ingar. Og það er líka svo gaman að
kenna í öðru landi en Bandaríkj-
unum. Krakkarnir sem ég er að
kenna hér á Íslandi sækja tíma
fyrst og fremst til að skemmta sér.
Þau eru fljót að tileinka sér það
sem ég er að kenna þeim því þau
vilja læra sem mest á meðan ég er
hér,“ segir hinn bandaríski Kame-
ron Bink, ungur gestakennari sem
staddur er á Íslandi til að kenna
dans hjá DanceCenter í heila önn,
eða þrjá mánuði.
Sýnir dans um allan heim
Kameron varð stjarna í dans-
heiminum árið 2007 þegar hann
náði að komast í „topp tíu“ úrslit í
sjónvarpsþáttunum og danskeppn-
inni So you think you can dance?
„Þá var ég aðeins 21 árs en svona
keppni er frábært tækifæri fyrir
hæfileikafólk til að koma sér á
framfæri. Áður en ég tók þátt í
þessari keppni hvarflaði ekki að
mér að aðalstarf mitt ætti eftir að
vera dans. Ég var á leið í háskóla
og stefndi á nám í sjúkraþjálfun.
En vegna velgengninnar í keppn-
inni hefur dans orðið að mínu lifi-
brauði. Núna starfa ég með dans-
flokknum Rock the Ballet og við
erum með danssýningar um allan
heim. Þessi keppni hefur gjörbreytt
lífi mínu. Þetta hefur verið einstakt
tækifæri fyrir mig, ég hef fengið að
vinna með ótrúlega hæfileikaríku
fólki og þetta hefur opnað margar
dyr. Það sem er svo frábært við
keppnina er hversu margar þjóðir
sjá þáttinn, ég fæ meðal annars
tölvupósta frá aðdáendum í Suður-
Ameríku, Asíu og Mið-Aust-
urlöndum.“
Kameron segir að honum finn-
ist frábært að kenna og deila
ástríðunni, boða gleði dansins. „Ég
sagði strax já þegar Nanna Ósk
hringdi í mig og bauð mér að kenna
hér heila önn við skólann sinn. Ég
hafði komið til hennar fyrr í sumar
með Lil C, dómara og danshöfundi
So you think you can dance? og við
tókum þátt í danshátíð hjá Dance-
Center, en þá hljóp ég í skarðið á
síðustu stundu þegar einn dans-
arinn forfallaðist. Það var frábært
að koma hingað, allir voru svo
ánægðir sem komu í tíma til mín.“
Engin leið að
hemja dansþörfina
Hann er stjarna í dansheiminum enda komst hann í „topp tíu“ í danskeppninni
So you think you can dance? Bandaríski dansarinn Kameron Bink dvelur á Ís-
landi um þessar mundir og kennir dans hjá DanceCenter. Þegar hann hlustar á
tónlist verður hann að dansa og ef hann er að keyra dansar hann í huganum.
Morgunblaðið/Golli
Á réttum stað Kameron er sannarlega á réttri hillu í lífinu í dansinum.
Það er alltaf dálítið gaman að spá
svolítið í stjörnuspá og annað sem
segir til um hvað framtíðin beri í
skauti sér. Eins og t.d. að lesa í bolla
eða spil. Við þurfum ekki endilega að
leggja alla okkar trú á niðurstöðunar
en það má í það minnsta hafa gaman
af þeim. Ef þú ert forvitin/n um
svona nokkuð þá er vefsíðan find-
yourfate.com sú rétta fyrir þig. Þar
getur þú t.d. lesið stjörnuspána þína
fyrir daginn í dag en líka fyrir alla vik-
una.
Á síðunni má líka kynna sér bæði
indverska og kínverska stjörnuspeki
og sjá hvernig maður passar við
strákinn eða stelpuna sem maður er
skotin/n í. Já maður slær bara inn
nafnið sitt og nafn hans/hennar og
þá kemur upp hlutfallið á því að þið
gætuð náð saman. Það er nú samt
kannski best að treysta þessu ekki
algjörlega og bera bónorðið ekki
fram alveg strax. Skemmtileg vefsíða
fyrir alla sem eru forvitnir og vilja
líka kynna sér sögu stjörnumerkja-
fræði og spádóma.
Vefsíðan www.findyourfate.com
Morgunblaðið/RAX
Tarot Sumir lesa í spil til að kynna sér framtíðina og það sem framundan er.
Gægst inn í framtíðina
Það hefur verið mjög vinsælt síð-
astliðin ár að halda fatamarkaði og
hafa slíkir sprottið upp víða um
bæinn. Jafnt í heimahúsum sem á
ýmiss konar mörkuðum í hverfum
og bæjum. Á morgun verður hald-
inn spennandi fatamarkaður í
gömlu Prentsmiðju Hafnarfjarðar á
Suðurgötu 18. Þar mun Andrea
Magnúsdóttir fatahönnuður halda
markað ásamt tveimur öðrum og
verður opnað klukkan 13. Þá má
ætla að fjöldi tískuglaðra kvenna
verði tilbúinn að ganga í bæinn og
skoða dót og glingur en á Face-
book, sem auglýsir viðburðinn und-
ir Fatamarkaður, segir að á mark-
aðinum verði að finna fullt af
fallegum fatnaði, þar á meðal
merkjavöru, skart, skó, töskur,
barnaföt, herraföt og fleira. Það
verði líka heitt á könnunni til að
hressa sig við.
Endilega …
… kíkið í gömlu
prentsmiðjuna
Morgunblaðið/Frikki
Fjársjóður Oft má finna ýmiss konar
fallegt glingur á fatamörkuðum.
Skannaðu kóðann
til að fara inn á
vefsíðuna.