Morgunblaðið - 30.09.2011, Side 37

Morgunblaðið - 30.09.2011, Side 37
MENNING 37 MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 30. SEPTEMBER 2011 Litin hornauga Rade Šerbedžija og Zhao Tao í hlutverkum sínum. Kínverjarnir eru komnirog þeir ætla að sigraheiminn. Það vitum viðÍslendingar og það veit fólkið í fásinninu í fiskibænum Chioggia á Norður-Ítalíu. Fyrir vikið fer þetta litla samfélag á hliðina þegar einn úr hópi fiski- mannanna fer að leggja lag sitt við kínverska farandverkakonu. Gildir þá einu að hún virðist ekki vera á Grímsstaðabuxunum. Skáldið og Li (ít. Io sono Li) er lítil og lágstemmd saga um vin- áttu, söknuð og fordóma. Myndin er einföld að formi og gerð, ætlar sér hvorki að vera meira né minna en hún er. Samband aðalpersón- anna, Bepi og Shun Li, er í for- grunni. Það er ekki flókið en ógæfa þeirra er að vera á röngum stað á röngum tíma. Sambandið hefur yfir sér klassískt yfirbragð sambands eldri manns og yngri konu sem hvort heyrir til sínu menningarsvæðinu. Í einsemd sinni og söknuði yfir því sem var eða því sem býr í fjarska eiga þau samleið en fljótlega fer að læðast að manni sá ljóti grunur að sagan endi ekki vel, alltént ekki að öllu leyti. Í því liggur ef til vill veik- leiki myndarinnar, hún er helst til fyrirsjáanleg. Fordómar verða ekki færðir í fjötra. Leikurinn er prýðilegur. Zhao Tao er sympatísk sem hin hóf- stillta en einbeitta Shun Li og Rade Šerbedžija fer meistaralega með hinn lúna en hjartahlýja Bepi sem félagarnir kalla skáldið, meira í gamni en alvöru. Í það minnsta gerir hann lítið úr þeirri gáfu sinni sjálfur enda þótt hann kunni lag á ríminu. Hlýja einkennir samleik Tao og Šerbedžija og hver sena hefur hlutverki að gegna. Kostu- legt atriði þegar Bepi reynir að apa kínverskuna upp eftir Shun Li. Aðrar persónur eru í bakgrunni, það er helst að fanturinn á barn- um rísi upp úr meðalmennskunni sem fulltrúi fávísinnar. Skáldið og Li er svona hvorki- né-mynd. Hún tæpir á brennandi málum frá gamalkunnu sjón- arhorni og tekur ekki nægilega skýra afstöðu til að sæta tíðindum. Samt rennur hún ljúflega í gegn. Skáldið og Shun Li er ekkert sér- staklega góð mynd – en hún er ekkert sérstaklega vond mynd heldur. Kínverjarnir eru komnir RIFF: Bíó Paradís Skáldið og Li bbmnn Leikstjóri: Andrea Segre. Aðalhlutverk: Zhao Tao og Rade Šerbedžija. Ítalía, Frakkland 2011. 69 mín. Flokkur: Vitr- anir. ORRI PÁLL ORMARSSON KVIKMYNDIR Fólkið í kjallaranum - síðustu sýningar Uppselt Örfá sæti laus FarandsýningU Ö F Íslenski dansflokkurinn 568 8000 | midasala@borgarleikhus.is Fullkominn dagur til drauma Fös 30/9 kl. 20:00 Fös 7/10 kl. 20:00 Sun 9/10 kl. 20:00 Sun 23/10 kl. 20:00 Sun 30/10 kl. 20:00 Sun 6/11 kl. 20:00 Leikhúsin í landinu www.mbl.is/leikhus Tjarnarbíó 5272100 | tjarnarbio@leikhopar.is Sirkus Íslands:Ö faktor Lau 1/10 kl. 14:00 Sun 2/10 kl. 14:00 Aðeins þessa helgi! Eftir Lokin Lau 29/10 kl. 20:00 Fim 3/11 kl. 20:00 Lau 5/11 kl. 20:00 Lau 12/11 kl. 20:00 Fim 17/11 kl. 20:00 Fös 18/11 kl. 20:00 Fös 25/11 kl. 20:00 Lau 26/11 kl. 20:00 Fös 2/12 kl. 20:00 Lau 3/12 kl. 20:00 Svanurinn Sun 6/11 kl. 14:00 U Sun 13/11 kl. 14:00 U Sun 13/11 aukas. kl. 17:00 Sun 20/11 kl. 14:00 U Sun 20/11 aukas. kl. 17:00 Sun 27/11 kl. 14:00 U Söngleikir með Margréti Eir Lau 8/10 kl. 20:00 Fös 21/10 kl. 20:00 Lau 22/10 kl. 20:00 Sun 30/10 kl. 20:00 Lau 19/11 kl. 20:00 Lau 10/12 kl. 20:00 Hjónabandssæla Fös 07 okt. kl 20 Ö Lau 08 okt. kl 20 U Sun 09 okt. kl 20 Lau 15 okt. kl 20 Ö Sun 16 okt. kl 21 Fim 20 okt. kl 20 Fös 21 okt. kl 20 Hrekkjusvín – söngleikur Fös 14 okt kl 20 frumsýning Lau 22 okt kl 20 opnunartilboð Sun 23 okt kl 20 opnunartilboð Fim 27 okt kl 20 Fös 28 okt kl 20 Forsala á alla viðburði í Eymundsson Föstudagur 30. september Hugleikur Dagsson og Anna Svava Knúts. Uppistand kl. 22:00 Græni Hatturinn Akureyri sími 461 4646 / 864 5758 Laugardagur 1. október Helgi Björns og Reiðmenn Vindanna Tónleikar kl. 20.00 og 23.00 Fimmtudagur 6. október Mugison Tónleikar kl. 21.00 Föstudagur 7. október Mugison Tónleikar kl. 20.00 Laugardagur 8. október Bloodgroup Unplugged, ásamt Yunioshi(UK) og Spaceships are Cool (UK) Tónleikar kl. 22.00 - nýr auglýsingamiðill 569-1100 finnur@mbl.is

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.