Morgunblaðið - 30.09.2011, Side 11

Morgunblaðið - 30.09.2011, Side 11
NÝLEGIR GÆÐABÍLAR Á GÓÐU VERÐI MM Pajero 3.5 GLS 33“ Árgerð 2004, bensín, sjálfsk. Ekinn 97.000 km Ásett verð: 2.890.000,- Tilboðsverð 2.480.000,- VW Passat Comf. 1.8T Árgerð 2010, bensín, sjálfsk. Ekinn 11.500 km Ásett verð: 4.490.000,- Tilboðsverð 3.970.000,- Skoda Superb 1.8T Árgerð 2007, bensín, sjálfsk. Ekinn 75.500 km Ásett verð: 2.390.000,- Tilboðsverð 1.980.000,- VW Polo Comfort. 1,4 Árgerð 2007, bensín, beinsk. Ekinn 79.000 km Ásett verð: 1.450.000,- Tilboðsverð 1.280.000,- Audi Q7 3.0 Tdi Árgerð 2006 dísel sjálfsk. Ekinn 43.000 km Ásett verð: 7.500.000,- Tilboðsverð 6.590.000,- Morgunblaðið/Golli Kennsla Hér er hann að kenna hjá Dance Center þar sem hann miðlar af sinni danskunnáttu til ungra Íslendinga. Dansinn sem hann kennir er líkur þeim sem sést mikið í tónlistar- myndböndum, sumir kalla það hip hop en hann vill frekar kalla það „commercial jazz“ eða jazz-funk. „Þau yngstu sem sækja danstíma hjá mér eru sjö ára en þau elstu yf- ir þrítugt. Við verðum með stóra danssýningu í lokin þar sem krakk- arnir sýna það sem þau hafa lært. Það verður hápunkturinn hjá þeim og líka hjá mér, áður en ég held aftur heim.“ Dansað frá sex ára aldri Kameron er fæddur og uppalinn í Flórída en eftir velgengnina í So you think you can dance? flutti hann til New York og hefur búið þar með systur sinni síðan. Hann segist hafa vitað frá því hann var mjög ungur að hann vildi vera á sviði að sýna dans. „Systir mín var fjögurra ára þeg- ar hún byrjaði að dansa og þegar ég sá hana í fyrsta sinn á sviði í danssýningu vissi ég að þetta væri það sem ég vildi gera. Ég hef verið að dansa frá því ég var sex ára og vona svo sannarlega að ég muni dansa út allt lífið, ef líkami minn leyfir mér það,“ segir hann og bætir við að tónlist og dans séu í hans huga samtvinnað. „Tónlist hef- ur ævinlega leikið stórt hlutverk í fjölskyldunni minni, mamma spilar á píanó og henni þakka ég ást mína á tónlist. Og tónlistin kveikir dans- þörfina. Þegar ég heyri tónlist lang- ar mig að dansa, þá sé ég mig fyrir mér dansandi. Ég verð að hreyfa mig og ef ég get það ekki, til dæmis þegar ég keyri bíl og hlusta á tónlist, þá er ég samt á fullu að dansa í huganum. Ég tengi tilfinningar mínar við tón- listina með dansinum.“ Allir geta lært að dansa Kameron segir að allir geti lært að dansa, vilji sé allt sem þurfi. „Það skiptir ekki máli þó að fólk sé hreyfihamlað, fatlað, í hjólastól eða komið yfir áttrætt, allir geta dans- að. Og dans gerir öllum gott. Að sækja danstíma er gott bæði fyrir sál og líkama og það er mikil útrás. Dans er streitulosandi og hann losar líka um endorfín sem lætur fólki líða vel.“ Hann segist aldrei verða fullnuma í dansi, hann sé alltaf að læra eitthvað nýtt. „Ef ég hætti að læra og tileinka mér eitthvað nýtt hætti ég að vaxa sem dansari og staðna. Þetta er ein ástæða þess að ég elska að dansa, það er aldrei hægt að verða full- kominn, það er alltaf eitthvað til að vinna að og verða betri.“ DAGLEGT LÍF 11 MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 30. SEPTEMBER 2011 Brátt fer í hönd val á kepp-endum fyrir sjónvarps-þáttinn Dans, dans, dans.Mikið sem það myndi gleðja aðstandendur þáttanna ef ég tæki þátt. Þá væri komið hið full- komna myndbrot af keppanda sem hefði betur haldið sig heima. Kepp- endur geta valið sér allar tegundir af dansi til að sýna, eins og sam- kvæmisdansa, ballett, stepp, nú- tímadans, streetdance, og allt þar á milli. Ég myndi dansa allt þar á milli. Ég æfði djassballett í þrjú ár og gæti því borið við að ég hefði einhvern grunn. Ég myndi líkleg- ast ekki taka það fram að ég var alltaf aftast í salnum og var aldrei sú sem var valin til að sýna hinum hvernig gera ætti hlutina heldur sú sem var sýnt. Ég var í hvítum heilsamfestingi, rauðum ofurhetj- unærbuxum utan yfir og með rauð- ar legghlífar. Ég var töff. Í alvöru. En ég kunni ekki að dansa og kann ekki enn. Eftir djassballetreynslu mína þurfti ég að sína getu mína á dans- gólfinu á skólaböllum. Ég tók mig því til og æfði mig fyrir framan baðherbergisspegilinn. Ég þurfti lítið til að missa taktinn en fannst ég bara líta ágætlega út í spegl- inum. Þegar kom svo að því að sýna ágæti æfinga minna á böll- unum bugaðist ég og fór beint í hliðar saman hliðar með örlítilli mjaðmasveiflu. Það var svo þegar ég var nítján ára að ég var beðin um að leika í tónlistarmyndbandi ásamt tveimur öðrum stelpum. Við áttum að ganga kynþokka- fullar framhjá sjúkrarúmi og taka létt dansspor. Ég hélt ég gæti nú gert þetta, ekki enn búin að átta mig á þessum skerta hæfileika mínum og lifði í voninni að fullyrðingin æfingin skapar meist- arann væri sönn hvað mig varðaði. Þegar var síðan búið að taka hátt í tíu sinnum þetta eina skot með tilraunakenndu kynþokkafullu mér var ég vin- samlegast beð- in um að setj- ast við hlið- ina á sjúkra- rúminu í bak- grunni svo að hinar tvær gætu leyst verkefnið. Setningin „Eru ekkert nema amatörar hér?“ skarst inn í minni mitt. Nú ég sett- ist á stólinn og stelpurnar gengu í kynþokkafullri sveiflu framhjá mér. Það þurfti eitt skot og útkom- an var fullkomnuð. Ég mætti þegar myndbandið var frumsýnt en ég verð að viðurkenna að ég hélt mig til hlés. Ég hef í kjölfar mikilla æfinga, á barnsaldri í parketlögðum sal, á unglingsaldri fyrir framan baðher- bergisspegilinn og fyrir framan kvikmyndavélar í köldu skólahúsi komist að því að sumir fæðast án takts og ég þar á meðal. Mikið svakalega sem raftónlistin gerði okkur taktlausa fólkinu erfitt fyrir um tíma. Það er bara ekki hægt að lyfta öxlum óreglubundið upp að eyrum og reyna á sama tíma að beygja sig í hnjánum og taka hlið- arskref. Hvað þá að takast það að vera aðlaðandi á meðan á dansferl- inu stendur. Ég hef fundið ráð við þessu dansvandamáli mínu. Það er að kunna eins marga texta og hægt er og stíga aðeins út á dansgólfið komi lag sem hægt er að syngja með. Þá getur maður verið í stuðinu, staðið á miðju gólfinu í báða fætur, kannski dillað mjöðm- unum lítið eitt og sungið. Það getur verið ágætt að lyfta höndunum upp þegar áherslukaflinn er sunginn og þá ýmist einni hendi eða báðum í einu, til að sýna örlitla fjölbreytni. Komi svo lag sem ekki er hægt að syngja með afsakar maður sig pent svo ekki þurfi að koma til vandræða- legra axla- upplyftinga. Heimur Signýjar Signý Gunnarsdóttir signy@mbl.is »„Ég var í hvítum sam-festingi, rauðum ofur- hetjunærbuxum utan yfir og með rauðar legghlífar. Ég var töff. Í alvöru.“ www.dancecenter.is Facebook: DanceCenter Reykjavík

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.