Morgunblaðið - 30.09.2011, Side 31

Morgunblaðið - 30.09.2011, Side 31
voru fyrir okkur svo oft að við kunnum þær utan að. Þorvaldur og Kolbrún byrj- uðu búskap í Efstasundi sem varð þeirra heimili alla tíð. Þar var alltaf opið hús í orðsins fyllstu merkingu, samheldin hjón sem eftir var tekið rækt- uðu fjölskyldu- og vinabönd. Ég fór til náms í höfuðborg- inni. Þá vann frændi minn við smíðar og spilaði í hljómsveit. Þá passaði ég oft systkinin Steina, Gunnu og Fríðu. Ég gisti hjá þeim, svo var farið í þrjúbíó á sunnudögum, að síð- ustu komið við á Bergþórugöt- unni, afi settist gjarnan við orgelið og allir sungu, amma sá um að hafa á borðum allt það sem okkur fannst gott. Þegar ég lá á Landspítalanum eftir uppskurð var mér sagt að góð- ur og fallegur maður hefði komið til mín, ég var þá sof- andi, í ljós kom að þar var frændi á ferð. Þegar ég eign- aðist son minn kom Kolbrún til mín á fæðingardeildina með falleg föt sem fjölskyldan hafði valið saman, þetta voru fyrstu sparifötin hans. Þegar við hjónin stofnuðum heimili í Reykjavík, urðu samfundir tíð- ir. Leiðir lágu saman í um- hyggju við afa og ömmu, oftar en ekki var lagt á ráðin hvað væri þeim til góðs, Þorvaldur var þá traustur og fullur af góðvild sem einkenndi hann alla tíð. Þorvaldur var gleði- gjafi, bóngóður og auðgaði all- ar stundir með ljúfmennsku og þægilegheitum. Frændi var hagur í höndum, lagði hug og hönd á margt í þeim efnum. Hann undirbjó sig fyrir árin þegar störfum á vinnumarkaði lyki, m.a. með að renna í tré og tréútskurð. Ég átti því láni að fagna að hann kom á vinnustað minn til tóm- stunda, mér fannst gott að við áttum náið samstarf á ný. Um árabil hnignaði heilsufari og kom þá að því að færni hrakaði og sjúkdómsmein náðu yfirtök- um. Ást og umhyggja hjónanna var alla tíð eins og þegar ég sá þau fyrst saman. Þau eignuð- ust samheldna fjölskyldu og ræktuðu garðinn sinn vel. Í veikindunum frænda stóð fjöl- skylda hans saman, hlý og traust til hinstu stundar. Að leiðarlokum er þökkuð öll sú hlýja og kærleikur sem móð- urbróðir minn umvafði litlu frænkuna alla tíð. Við Halldór sendum ástvin- um öllum einlægar samúðar- kveðjur. Guðrún Jónsdóttir. Frá upphafi hefur verið öfl- ugt tónlistarstarf í Breiðagerð- isskóla. Nemendum gefst kost- ur á að læra á ýmis hljóðfæri. Fyrir rúmum fimmtán árum, þegar ég var nýráðin til starfa við Breiðagerðisskóla, var ég á leið á minn fyrsta fund forvera míns í starfi og hafði aldrei komið inn í skólann og var áttavillt. Ég varð fegin þegar upp úr kjallaranum steig Þor- valdur. Það var ekki laust við að við værum feimin hvort við annað. Þorvaldur var með smí- ðasvuntuna og allur út í sagi. Þorvaldur vísaði mér veginn og við ræddum ekki meira saman þann daginn. Þetta sama sum- ar kom til starfa annar tónlist- arkennari en fyrir var hinn mikli tónlistarsnillingur, Þor- valdur Björnsson. Gömul og mannglögg vinkona mín fullyrti að ég hefði hitt Þorvald mörg- um árum áður, þegar við mætt- um á böll í Gúttó, Alþýðukjall- aranum eða Templarahöllinni. Eitt er víst að þar var gaman. Ég var ekki sérlega bjartsýn á fyrsta starfsmannateitið sem ég mætti í með samstarfs- mönnum mínum og velti því fyrir mér hvernig samkoman yrði með svo mörgum konum og fáum karlmönnum. Þegar ég mætti á svæðið voru margir mættir en aðeins þrír karl- menn. Það kom mér skemmti- lega á óvart að sjá Þorvald með harmónikkuna og fólkið byrjað að syngja og sungið var allt kvöldið. Á góðum stundum starfsmannahópsins var Þor- valdur með nikkuna og hóp- urinn söng þindarlaust. Það var augljóst að Þorvald- ur gladdist þegar fyrrverandi nemandi hans í skólanum, Sig- rún Erla tónmenntakennari, bættist í hópinn. Samstarf þeirra var ánægjulegt og fag- legt. Mörg hljóðfæri eru til í skólanum og þar á meðal má sjá gamalt fótstigið orgel. Á að- ventu skipulögðu Þorvaldur og Sigrún meðal annars dagskrá í anddyri þar sem þau spiluðu og börnin sungu. Þessi stund var upphaf mikillar jólastemningar, sem hefur verið í skólanum á aðventu. Á fimmtíu ára afmæli skól- ans gaf Þorvaldur skólanum lag. Sigrún Erla samdi texta við lagið. Síðan þá hafa nem- endur lært og sungið lagið, undir stjórn Sigrúnar Erlu. Þorvaldur var skarpgreindur og hafði mikla næmni fyrir tón- list. Hann kunni öll íslensk dægurlög og spilaði þau af mik- illi gleði og ánægju. Þorvaldur var hlýr og gaman var að eiga stund með honum. Hann vissi að ég hefði gaman af gömlum dægurlögum og leit oft inn til mín á föstudags- morgnum, ef tími gafst til. Hann vissi að þá morgna hlust- aði ég gjarnan á Óskastundina hennar Gerðar G. Bjarklind. Þá hlustuðum við og ræddum lögin og höfundana. Réttara væri að segja að hann talaði og fræddi mig um eitt og annað. Stuttu eftir að ég hóf störf í skólanum ræddum við um dans og vorum sammála um að gam- an væri að kenna dans í skól- anum, sem ekki var algengt þá. Þorvaldur sagði mér stoltur að dóttir hans væri menntaður danskennari. Síðan hefur Hólmfríður dóttir hans kennt dans og fleira við skólann. Ég kveð Þorvald með trega en fagna því að erfiðri baráttu sé lokið. Fyrir hönd starfsmanna Breiðagerðisskóla votta ég fjöl- skyldunni innilega samúð. Guðbjörg Þórisdóttir, skóla- stjóri Breiðagerðisskóla. Kveðja frá kórfélögum í (eldri) Kirkjukór Áskirkju Vináttan er dýrmæt, ekki síst þegar komið er á efri ár. Einn úr þeim vinahópi sem við kveðjum í dag er Þorvaldur Björnsson, fyrsti formaður Kirkjukórs Áskirkju. Á haustmánuðum 1964 var auglýst eftir söngfólki í Kirkju- kór Áskirkju. Þeir sem höfðu áhuga voru beðnir að mæta í Laugarneskirkju og við sung- um fyrir organistann Steingrím Sigfússon. Við starfi hans tók fljótlega Kristján Sigtryggsson. Í kórnum var fólk víðsvegar að af landinu með ólíkan bakgrunn og höfðu margir sungið í kirkjukórum í sinni heima- byggð. Við hlutum síðar radd- þjálfun hjá söngvurunum Hönnu Bjarnadóttur, Kristni Hallssyni o.fl. Þá var engin kirkja í Ásprestakalli. Hún var ekki vígð fyrr en árið 1983. Guðs- þjónusturnar fóru því aðallega fram í Laugarneskirkju, á Hrafnistu, í Laugarásbíói, á Kleppsspítala og í húsakynnum félagsstarfs aldraðra á Norð- urbrún 1. Það var mikið starf fyrir formann kórsins og kom sér vel að hann var bæði kenn- ari og lærður organisti. Hann stjórnaði okkur með ljúf- mennsku og skilningi og að- stoðaði við raddæfingar og und- irleik við messur ef á þurfti að halda. Það voru mikil forréttindi að fá tækifæri til að fylgjast með uppbyggingu Áskirkju og kynnast öllu því góða fólki sem stóð þar að verki. Fremst í flokki voru sr. Grímur Gríms- son og kona hans Guðrún Jóns- dóttir. Þau hrifu okkur með sér og hvöttu til góðra verka m.a. við fjáröflun til kirkjunnar. Í þessum verkefnum lá Þorvald- ur ekki á liði sínu. Þorvaldur var vinsæll kór- félagi með notalegt og aðlað- andi viðmót. Til hans var gott að leita, ef á þurfti að halda við kórstarfið. Hann hélt tryggð við kórinn eftir að starfi hans þar var lok- ið og var oft með okkur á hátíð- arstundum, síðast í kveðjuhófi sóknarnefndar kirkjunnar fyrir söngstjóra og kór haustið 2001. Við sendum Kolbrúnu og fjölskyldu innilegar samúðar- kveðjur. Guð blessi minningu góðs fé- laga. Bryndís Steinþórsdóttir, Petrína Steindórsdóttir. Í dag minnist ég Þorvaldar Björnssonar, fyrrverandi kenn- ara við Breiðagerðisskóla. Upp úr 1960 var Breiðagerðisskóli fjölmennasti barnaskólinn í Reykjavík, þrísetinn fyrst og síðan tvísetinn til ársins 1995. Hver almennur kennari kenndi tveimur bekkjum á dag, söng-, smíða- og handavinnukennarar voru yfirleitt tveir í hverju fagi. Upp úr 1970 fækkaði nemend- um og kennurum og um það leyti kom Þorvaldur til starfa við skólann og kenndi tón- mennt og síðar einnig hand- mennt (smíði) en hann var lærður trésmiður. Þá var Hannes Flosason, sem er nýlát- inn, enn tónmenntakennari við skólann. Þegar Hannesi, sem var mik- ill hæfileikamaður, bauðst betra starf á Seltjarnarnesi kom hann að máli við mig, sem þá var orðin yfirkennari, um að ég ýtti á skólastjórann, Gunnar Guðröðarson, að ráða Þorvald í staðinn fyrir sig, vegna þess að hann væri mjög fær á tónlist- arsviðinu. Ég varð við þeirri bón Hannesar og sá aldrei eftir því, vegna þess að Þorvaldur reyndist auk hæfni sinnar í starfi afar þægilegur starfs- félagi. Hann tók ætíð vel í það sem ég bað hann að gera þótt það væri utan hans vinnutíma og spurði aldrei um umbun fyr- ir vinnu sína og þess vegna gætti ég þess sérstaklega að hann fengi hana þó að úr litlu væri að moða. Mér er minn- isstætt hve gaman var að starfa með þeim báðum Þorvaldi og Hannesi þegar við vorum að setja upp skemmtanir á sal þar sem tónlist og leiklist voru fléttaðar saman. Þá eru mér ógleymanlegar stundir þegar ég settist við skrifborðið mitt í bítið morgn- ana eftir að búið var að velja framlög Íslands til Söngva- keppni Evrópu kvöldin áður. Þá hljómuðu lögin á píanóinu og tærar barnsraddirnar tóku undir. Þorvaldur var sannar- lega ekki lengi að koma þeim á sporið. Auk þess að vera góður vinnufélagi var Þorvaldur ómissandi þegar starfsfólkið sló á léttari strengi, þá þandi hann nikkuna og var hrókur alls fagnaðar. Ég kveð vin minn Þorvald og votta Kolbrúnu eig- inkonu hans og afkomendum samúð mína. Hrefna Sigvaldadóttir. MINNINGAR 31 MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 30. SEPTEMBER 2011 ✝ María StefaníaSteinþórdóttir fæddist 9. ágúst 1928 í Rauðseyjum á Breiðafirði. Hún lést á hjúkr- unarheimilinu Skógarbæ 17. sept- ember 2011. Foreldrar henn- ar voru Steinþór Einarsson, f. 27.9. 1895 í Ball- arárgerði á Skarðsströnd, d. 12.6. 1968, og Jóhanna Stef- ánsdóttir, f. 24.7. 1897 á Galt- ará í Gufudalssveit, d. 21.10. 1987. Systkini Maríu eru Fjóla, f. 1920, d. 1996, Jóhann Hergils, f. 1923, d. 1993, Ragnar Fjeld- sted, f. 1924, d. 1945, Einar, f. 1925, og Ólafur Ásgeir, f. 1938. Eiginmaður Maríu er Hannes Halldórsson söðlasmiður, f. 2. ágúst 1921 á Másstöðum í Vatnsdal. Foreldrar hans voru Halldór Jónsson, f. 6.5. 1894 í Galtanesi, Breiðabólstaðarsókn, Halldór Gunnar, f. 1980, og Heimir Snær, f. 1985. Sambýlis- maður Jóhönnu er Ólafur Har- aldsson, f. 1954. Börn Ólafs eru fimm. Langömmubörn Maríu eru átta. Uppvaxtarár Maríu voru í Rauðseyjum og Bjarneyjum á Breiðafirði. Foreldar hennar fluttu í Flatey og síðar í Stykk- ishólm og fór María oft vestur í Flatey og síðar Stykkishólm til að hitta fjölskyldu sína. Hún fór ung að heiman, fyrst í vist norður að Ögri við Ísafjarð- ardjúp, síðan lá leiðin til Reykjavíkur þar sem hún vann ýmis störf þar til hún stofnaði heimili með eftirlifandi eig- inmanni sínum. Hannes og María gengu í hjónaband 1956 og stofnuðu sitt fyrsta heimili við Vesturbrún í Reykjavík. Lengst af bjuggu þau á Meist- aravöllum en síðustu árin á Lindargötu 66 og 61. María vann við hreingerningar til fjölda ára samhliða húsmóður- störfum og barnauppeldi. Lengst vann hún í Iðnskólanum í Reykjavík, Miðbæjarskólanum og síðast í Vesturbæjarskóla. Útför Maríu fór fram frá Fossvogskirkju hinn 27. sept. 2011. d. 11.9. 1968, og Þorbjörg Jóns- dóttir, f. 4.1. 1900 á Hólabaki í Sveins- staðahreppi, d. 24.11. 1952. Börn Maríu eru: 1) Gylfi Sigurðs- son, f. 1953. M. Anna Rósa Traustadóttir, f. 1958, Börn þeirra: Anna Dögg, f. 1990, Axel Finnur, f. 1993, og Agnes Rún, f. 1999, fyrir átti Gylfi Gunnar Sævar, f. 1972, og Ingibjörgu Aðalheiði, f. 1975. 2) Þorbjörg Halldóra Hann- esdóttir, f. 1956. M. Guðmundur K. Magnússon, f. 1958 Synir þeirra: Magnús Már, f. 1982, og Hannes Freyr, f. 1987, fyrir átti Þorbjörg Árna Þór Ómarsson, f. 1976. 3) Jóhanna Steinunn Hannesdóttir, f. 1958. Synir hennar og Jóns Gunnars Þór- mundssonar, f. 1956, d. 2002, eru: Hannes Sigurbjörn, f. 1975, Elsku mamma mín, nú er kom- ið að leiðarlokum hjá okkur um tíma. Ég vildi að þú hefðir fengið lengri tíma með okkur, því þú varst ekki tilbúin að yfirgefa okk- ur. Þú sagðist vera það hress, að þú ættir eftir tvö til þrjú góð ár. Því miður er ekki spurt um það þegar snögg veikindi koma upp, eins og hjá þér. Ég get ekki sleppt því að þakka þér fyrir hvað það var gott að koma heim úr skólanum þegar ég var krakki. Þú varst alltaf heima og oft í hrókasamræðum. Ég kallaði: „Mamma! við hvern ertu að tala?“ Þú svaraðir: „Ég er að tala við skemmtilega konu,“ en það varst þú sjálf! Ég hef gert það sama og þú, verið í hróka- samræðum við sjálfa mig. Oft hefur fólkið mitt hrist hausinn yf- ir þessu og sagt: „Þú ert alveg gaga.“ Oftast gerðum við þetta þegar við vorum að strauja. Þú strauj- aðir allt, meira að segja borðtusk- ur og þvottapoka, sem ég geri þó ekki. Ég hef greinilega erft straugenin frá þér. Bið að heilsa þeim sem eru farnir, því ég veit að þú hittir þau. Bless elsku mamma mín, mér mun alltaf þykja vænt um þig. Að lokum langar mig að láta eftirfarandi fylgja með: Farðu í friði vinur minn kær faðirinn mun þig geyma. Um aldur og ævi þú verður mér nær aldrei ég skal þér gleyma. Svo vöknum við með sól að morgni. (Bubbi Morthens) Þín dóttir, Jóhanna. Nú þegar ég sest niður til að skrifa nokkur orð til þín elsku amma þá reikar hugurinn aftur í tímann, margar fallegar og góðar minningar koma fram í hugann. Minningar um liðna tíma eru nefnilega fjársjóður sem mikil- vægt er að hlúa að öðru hvoru frá hinu daglega amstri. Mörg minningabrotin úr æsku eru af mér og Árna Þór saman á Meistaravöllunum hjá þér og afa þar sem við frændur nutum góðs yfirlætis hjá ykkur og má segja að næstum allt hafi verið gert fyrir okkur strákana. Ég sit hér að skrifa þessar lín- ur til þín á sunnudagsmorgni og hlusta á útvarpsmessuna, sem að þessu sinni var frá Grafarvogs- kirkju, en útvarpsmessan var fastur liður hjá þér á sunnudags- morgnum. Þá sunnudagsmorgna sem ég var hjá ykkur afa hlust- uðum við saman á messuna með- an þú eldaðir sunnudagssteikina. Ekki má svo gleyma að minn- ast á spilastundirnar okkar sam- an en þið afi kennduð mér að spila manna þegar ég var sex eða sjö ára og áttum við ófáar spilast- undirnar við borðstofuborðið. Margar aðrar minningar koma upp, eins og þegar ég fékk að fara með þér í vinnuna þína í Iðnskól- anum og Miðbæjarskólanum, þegar við röltum um miðbæinn á góðum sumardegi, þegar þú til- kynntir mér að ég væri orðinn stóri bróðir þegar Dóri bróðir fæddist, þegar við fórum saman með bænirnar okkar, sögurnar frá uppvaxtarárum þínum í Breiðafirðinum en þú ljómaðir þegar þú sagðir mér þær sögur, fleiri og fleiri minningar koma upp í hugann. Þrátt fyrir að veikindi þín hafi ekki verið löng voru þau þér erfið og voru fljótt farin að hafa mikil áhrif á líkamlegt þrek þitt. Þú vissir að þú ættir ekki langt eftir og að leiðarlok nálguðust. Tveim- ur vikum áður en þú kvaddir þessa jarðvist áttum við gott spjall um lífið og tilveruna. Það spjall geymi ég vel í „fjársjóðsk- istu“ minni og verð ævinlega þakklátur fyrir það. Bergþóra minnist þín af hlýju og þakkar fyrir liðnar stundir, börnin okkar, Jón Gautur og Guðlaug Gyða, minnast lang- ömmu sinnar og þá sérstaklega minnast þau á „ávextina í dós- inni“ sem þú gafst þeim stundum þegar við komum í heimsókn og þau fengu hvergi annars staðar. Þín mun ég sakna elsku amma mín, ég veit að við munum hittast síðar en þangað til þá fylgist þú með okkur fjölskyldunni þinni frá þeim stað sem við munum öll hitt- ast þegar jarðvist okkar lýkur. Nú ertu horfinn í himnanna borg og hlýðir á englanna tal. Burtu er kvíði, sjúkdómur, sorg í sólbjörtum himnanna sal. Þeim öllum sem trúa og treysta á Krist þar tilbúið föðurland er. Þar ástvinir mætast í unaðarvist um eilífð, ó, Jesú, hjá þér. (Ingibjörg Jónsdóttir) Hvíl í friði elsku amma, við sjáumst síðar. Hannes Sigurbjörn. Með þessum fáu orðum vil ég minnast föðursystur minnar Maríu Steinþórsdóttur og kveðja hana um leið. Minningar streyma fram. Minningar um heimsóknir á Meistaravellina þar sem Mæja og Hannes tóku á móti okkur fagnandi. Minningar um dekkað kaffihlaðborð, útsaumaðar mynd- ir, bækur, ljósmyndir, kort og eldspýtustokka frá útlöndum. Minningar um fallegt heimili þar sem hverjum hlut var haganlega fyrir komið og bar vott um ein- staka smekkvísi. Minningar um skemmtilegar umræður Mæju, pabba og mömmu um gömlu dag- ana í Flatey og í Bjarneyjum. Mæja frænka var í mínum huga alltaf hefðarkona. Hún klæddist litríkum og fallegum fötum, bar höfuðið hátt og mér fannst eins og hún væri ein af Hollywoodstjörnunum í úr- klippubókinni hennar mömmu. Í þau skipti sem við tvær áttum stund saman gátum við rætt um allt á milli himins og jarðar og sýndi hún mér alltaf sérstaka hlýju og alúð. Ég votta Hannesi, Gylfa, Þor- björgu, Jóhönnu og fjölskyldum þeirra mín dýpstu samúð. Elfa Dögg Einarsdóttir. Kveðja til Maríu Stefaníu Steinþórsdóttur. Bjart er enn yfir Breiðafirði þín bernskusólin enn þar skín. Það var á þeim dýrðar dögum er ég dvaldi með þér systir mín. Áttum þar saman indæl kvöld, æskan og gleðin höfðu völd. Sigldum við um sundin bláu svalinn lék um okkar kinn. Fögur eru enn fjöllin háu er föðmuðu æskustaðinn þinn. Í Bjarneyjum lifðir þín bernskuár nú blika á vinum sorgartár. Vertu sæl Mæja, far þú í friði fagur var ætíð söngur þinn. Man ég þá tóna svo lengi ég lifi er lést þú þá flæða um Krosshólinn. Gekkst þú um Búðey með bros á vör beri þig englar í hinstu för. (Einar Steinþórsson.) Innilegar samúðarkveðjur til Hannesar, Gylfa, Þorbjargar, Jó- hönnu og annarra ástvina. Einar og Gréta. María Stefanía Steinþórsdóttir Vaktsími: 581 3300 & 896 8242 – www.utforin.is – Allan sólarhringinn Komum heim til aðstandenda ef óskað er ÚTFARARSTOFA ÍSLANDS Sverrir Einarsson Kristín Ingólfsdóttir Jón G. BjarnasonHermann Jónasson

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.