Morgunblaðið - 30.09.2011, Side 9

Morgunblaðið - 30.09.2011, Side 9
kvæmlega verði gengið frá öllum lagalegum atriðum varðandi starf- semi á svæðinu, hvort sem um sé að ræða vinnslu auðlinda í jörðu, vöru- eða fólksflutninga, eða starfsemi af öðru tagi, og vel yrði að huga að ör- yggis- og eftirlitsmálum. „Það verður að tryggja að farið verði að öllu með gát til þess að mannskepnan gangi ekki of langt gagnvart náttúrunni.“ Utanríkisráðherrann kveðst ekki bera einungis hag sinnar þjóðar fyrir brjósti hendur strandríkjanna allra, ekki síst Íslands. „Ísland lifir af auð- lindum hafsins í ríkara mæli en nokk- ur önnur þjóð á svæðinu, og þess vegna skipta umgengni við fiski- stofna og önnur umhverfismál ykkur miklu. Íslendingar geta leikið stórt hlutverk í allri þessari vinnu vegna norðurslóðanna,“ sagði norski utan- ríkisráðherrann. Töluverð umræða hefur verið um hugsanlegar umskipunarhafnir, m.a. á Ísland. Gahr Støre segir að víða verði umskipað, bæði úti á sjó og í höfnum, játar því að Kirkenæs í Nor- egi sé líklegur staður fyrir umskip- unarhöfn, einnig Ísland og Rússland en telur ráðlegt að flýta sér hægt; best sé að átta sig á umfanginu og möguleikunum og þróa síðan starf- semi með tilliti til þess. VIÐTAL Skapti Hallgrímsson skapti@mbl.is „Við sem strandríki í norðri sjáum ýmis tækifæri vegna þeirra breyt- inga sem er að vænta, en við berum líka mikla ábyrgð,“ sagði Jonas Gahr Støre, utanríkisráðherra Noregs, við Morgunblaðið eftir að hann flutti er- indi um norðurslóðamál í menningar- húsinu Hofi á Akureyri í gær. Vegna bráðnunar íshettunnar á norðurslóðum er ljóst að norðurleiðin verður fyrr en síðar opin fyrir sigl- ingar hluta ársins. Gahr Støre segir breytingarnar skipta miklu máli póli- tískt, lagalega og vísindalega og því sé mikilvægt að vel sé staðið að öllu og samvinna sé góð. Ráðherrann benti á að norð- urleiðin yrði vart opin nema tvo til þrjá mánuði á ári til flutninga en sigl- ingar um norðurslóðir myndu þó án efa aukast verulega allt árið, ekki síst með ferðamenn og eins myndi ferð- um rannsóknarskipa fjölga. Þar eru bæði tækifærin, eins og hann orðaði það; að miklu leyti fjárhagsleg, og ábyrgðin, þar sem öryggis- og um- hverfismál eru ofarlega á baugi. Gahr Støre segir mjög brýnt að ná- „Mörg tækifæri en líka mikil ábyrgð“  Jonas Gahr Støre segir samstarfið við Ísland mikilvægt Morgunblaðið/Skapti Hallgrímsson Norðurslóðasamstarf Össur Skarphéðinsson og Jonas Gahr Støre, utanríkisráðherrar Íslands og Noregs, ásamt Stefáni B. Sigurðssyni, rektor Háskólans á Akureyri. Við blasir eitt skiltið á sýningunni um Friðþjóf Nansen í Hofi. FRÉTTIR 9Innlent MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 30. SEPTEMBER 2011 Ný staða prófessors í norður- slóðafræðum við Háskólann á Akureyri var formlega stofnuð í gær. Staðan, sem er til þriggja ára, er kennd við norska heim- skautafarann, vísindamanninn og mannvininn Friðþjóf Nansen og kostuð af Norðmönnum. Í ár eru 150 ár liðin frá fæðingu Nan- sens. Utanríkisráðherra Noregs, Jonas Gahr Støre, flutti fyrir- lestur í menningarhúsinu Hofi í gær um málefni norðurslóða og var skrifað undir samninginn við það tækifæri en Össur Skarp- héðinsson utanríkisráðherra og Stefán B. Sigurðsson, rektor Há- skólans á Akureyri, ávörpuðu einnig fundinn. Prófessorsstöðunni er ætlað að efla samstarf Noregs og Ís- lands um rannsóknir og mennt- un í málefnum norðurslóða. Nansen til Akureyrar NORÐURSLÓÐAFRÆÐI Dr. Joe Allard, lektor í bókmenntum við há- skólann í Essex, lést 23. september sl., 63 ára að aldri. Hann fæddist 21. apríl árið 1948 í Connecticut í Bandaríkjunum og stundaði nám í bók- menntum, listasögu og tónlist. Hann lauk doktorsprófi frá há- skólanum í Essex á Englandi og var lektor í bókmenntum við skólann frá 1977 þar til í ágúst á þessu ári að hann fór á eftirlaun. Joe Allard fór sem gestakennari til Bandaríkj- anna, Sviss, Þýskalands, Íslands og Japans. Hann kenndi bókmenntir við Maryland-háskólann í herstöð- inni í Keflavík um skeið. Hann var mikill Íslandsvinur og kenndi auk enskra bókmennta íslenskar bók- menntir að fornu og nýju við há- skólann í Essex. Joe Allard vann ötullega að kynn- ingu og útgáfu íslenskra bókmennta á Englandi. Hann þýddi meðal ann- ars ljóð eftir Matthías Johannessen í Voices from across the Water (1997) og gaf út ljóð eftir ung ís- lensk skáld, þ.á m. Sjón og Lindu Vilhjálmsdóttur. Hann vann að út- gáfu íslenskra skáld- sagna á borð við Eftir- mála regndropanna og Engla alheimsins eftir Einar Má Guðmunds- son, Svaninn eftir Guð- berg Bergsson, Grá- mosinn glóir eftir Thor Vilhjálmsson og Með- an nóttin líður eftir Fríðu Á. Sigurðar- dóttur. Eftir hann liggja greinar um myndlist, tónlist, kvik- myndir og bókmenntir. Hann ritstýrði ýmsum sýnisbókum, s.s. Beo- wolf & Other Stories. A New Intro- duction to Old English, Old Ice- landic and Anglo-Norman Literatures (2007, endurbætt útg. 2011) og Longman Anthology of Old English, Old Icelandic and Anglo- Norman Literatures (2011). Þegar hann lést hafði hann lagt lokahönd á Icelandic Poetry (c. 870-2007) in the translations of Bernard Scudder, sem fyrirhugað er að gefa út á næstu dögum eða vikum. Eftirlifandi eiginkona Joes All- ards er Sanae Kasahara. Hann læt- ur eftir sig einn uppkominn son, Chris Allard tónlistarmann. Útför Joes Allards verður gerð frá Wivenhoe 6. október nk. Andlát Joe Allard „Rannsóknir á starfsþróun og skólaþróun sýna að skólar sem stuðla að lærdómssamfélagi skila bættum námsárangri hjá nemend- um,“ segir Jónína Ágústsdóttir, skólastjóri Akurskóla í Reykja- nesbæ, en hún mun halda erindi á Menntakviku, árlegri ráðstefnu Menntavísindasviðs Háskóla Ís- lands, sem haldin er í dag. Erindið ber heitið „Skólaþróun í skugga efnahagskreppu“ en þar verður kynnt rannsókn á upplifun fjögurra skólastjóra í grunnskólum Reykja- nesbæjar á áhrifum efnahagskreppu á skólaþróun. Jónína segir að mikill vilji sé hjá kennurum að halda áfram skólaþró- un þrátt fyrir að togstreitu hafi gætt vegna ákvæða í kjarasamningum kennara um endurmenntun og að- gengi kennara að námstækifærum. „Niðurstöður rannsóknarinnar leiddu í ljós að fjárhagslegar for- sendur og skipulagning kennara og skólastjórnenda hafa breyst í Reykjanesbæ í kjölfar efnahags- kreppu þannig að erfiðara er orðið að fylgja eftir skólastefnu sveitarfé- lagsins,“ sagði Jónína. „Áhugi kennara á skólaþróun hef- ur ekki minnkað, en greinileg tog- streita er vegna ákvæða í kjara- samningum um endurmenntun og svo aðgengi kennara að námstæki- færum og hvernig fjármögnun starfsþróunar er háttað,“ sagði Jón- ína ennfremur. robert@mbl.is Skólaþróun í skugga efnahagskreppu  Rannsókn í Reykjanesbæ meðal er- inda á Menntakviku Háskóla Íslands Morgunblaðið/Eggert Suðurnes Nemendur í Njarðvík- urskóla í útivistartíma í gær.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.