Morgunblaðið - 30.09.2011, Blaðsíða 29
Björn Thomas, eða Bjössi
frændi eins og við systkinin köll-
uðum hann alltaf, er nú fallinn
frá. Hann var föðurbróðir minn
og bjó á Laufásvegi 67, þaðan
sem ég á margar góðar minn-
ingar. Afi Valgeir og amma Eva
byggðu þetta hús og bjuggu þar
í mörg ár.
Ég man vel þegar Bjössi flutti
heim frá Þrándheimi eftir nám í
arkitektúr, ásamt Diddu og
dætrunum tveimur, Hildi og
Dagnýju. Þá átti hann flottan
Volvo PV-bíl, með „kryppu“ og
öllu tilheyrandi.
Nokkrum árum seinna bætt-
ist svo yngsta dóttirin í hópinn,
hún Valgerður Helga. Nú hafa
mörg barnabörn og barnabarna-
barn bæst í hópinn.
Bjössi hafði alltaf mikinn
áhuga á ljósmyndun og var mjög
duglegur að taka myndir og
einnig kvikmyndir við hin ýmsu
tækifæri. Hann var mjög góður
píanóleikari og var oft glatt á
hjalla þegar hann sat við píanó-
ið. Hann fylgdist vel með heims-
málum, hafði t.d. gaman af ýms-
um fréttaskýringaþáttum.
Við Bjössi fórum í skemmti-
lega ferð austur fyrir fjall í júlí
sl. Þá sagði hann mér frá dvöl
sinni á sveitabæjum þar í ná-
grenninu þegar hann var ung-
lingur. Meðal annars að hann og
félagi hans hefðu eitt sinn geng-
ið til baka af sveitaballi og lá leið
þeirra einmitt yfir Lyngdals-
heiðina, eina sumarnótt.
Við vorum að sækja gamlan
bíl og var Bjössi afar hjálpsam-
ur, þótt heilsan væri orðin léleg.
Honum þótti fyndið að þessi bíll
væri eldri en hann sjálfur og
ennþá gangfær að auki!
Það er ekki langt síðan Bjössi
greindist með þann erfiða sjúk-
dóm sem dró hann til dauða, en
aldrei heyrði ég hann kvarta yfir
sínu hlutskipti, þótt hann vissi
vel hvert stefndi.
Ég votta Diddu og fjölskyldu
hans allri mína dýpstu samúð.
Valgeir Hallvarðsson.
Nú er svo komið, að hinn
þróttmikli árgangur MR-1955 er
farinn að eldast enda flestir
nemenda fæddir um 1935.
Brotthvörf stúdenta úr þess-
um árgangi eru því orðin nokk-
uð tíð síðustu misserin og ekki
sársaukalaust að missa góða fé-
laga skyndilega, þótt búast megi
við því.
Kynni mín af Birni hófust ein-
mitt í MR enda sátum við oft við
hlið hvor annars í hinum fjórum
bekkjum, sem nemendur urðu
að þola og þrauka til þess að ná
stúdentsprófi.
Fljótlega komu í ljós sameig-
inleg áhugamál eins og ljós-
myndun, framköllun og stækkun
ljósmynda.
Einnig var áhuginn talsverður
á tónlist, ekki síst á djassi, enda
Björn músíkelskur mjög og
ágætur píanóleikari. Oft skipt-
umst við á plötum og nýjar
sendingar voru kannaðar hjá
Fálkanum.
Björn var ákaflega rólyndur
maður og andsnúinn öllum
klíkuskap, en samt hollur vinur.
Við ræddum mikið saman og
heimsóttum hvor annan á
menntaskólaárunum, en eftir
stúdentspróf skildi leiðir okkar
eðlilega vegna ólíkra námsferla
og langveru minnar í útlöndum
við störf þar.
Ég kveð með hlýhug þennan
gamla vin, sem nýlega sat hress
við hlið mér í vorferð árgangsins
til Vestmannaeyja. Ekki hvarfl-
aði að mér, að þetta væri í síð-
asta sinn sem við myndum hitt-
ast.
Björn átti því láni að fagna að
kynnast lífsförunaut sínum
snemma á ævinni og reyndist
það samband afar traust og
happadrjúgt.
Ég vil votta eiginkonunni,
Stefaníu Stefánsdóttur, og fjöl-
skyldunni allri samúð mína við
þetta fráfall.
Steinar.
MINNINGAR 29
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 30. SEPTEMBER 2011
✝ Kolbrún Þór-isdóttir fæddist
á Akureyri 15. júní
1929 og lést á
Landspítalanum
við Hringbraut 20.
september síðast-
liðinn.
Foreldrar henn-
ar voru Þórey Júl-
íana Steinþórs-
dóttir, f. 6. júlí
1892, d. 7. febrúar
1981, og Þórir Jónsson, f. 14.
september 1898, d. 24. ágúst
1964. Kolbrún átti fjóra bræð-
ur; Steinþór, Vilhelm, Baldur
og Magnús, sem allir eru látnir.
Eftirlifandi eiginmaður Kol-
brúnar er Aðalsteinn Gunn-
arsson, f. 12. nóvember 1930.
Börn þeirra eru Þórey Elísabet,
f. 16. desember 1959, d. 10. apr-
íl 1960, Þorsteinn Gunnar, f. 20.
maí 1961, og Þórdís Tinna, f.
10. desember 1968, d. 21. jan-
úar 2008. Kolbrún á tvö barna-
börn; Sunnu Þor-
steinsdóttur og
Kolbrúnu Ragn-
heiði Kristjáns-
dóttur.
Kolbrún ólst upp
á Akureyri og
gekk þar í grunn-
skóla þess tíma.
Síðan lá leiðin í
Húsmæðraskólann
þaðan sem hún
lauk námi. Fluttist
hún síðan fljótlega til Reykja-
víkur þar sem hún kynntist eft-
irlifandi eiginmanni sínum.
Starfaði hún síðan við hin ýmsu
framreiðslustörf, síðast sem
rekstraraðili á kaffihúsinu
Prikinu í Bankastræti ásamt
dóttur sinni. Lengst af bjó Kol-
brún í Grænukinn 1 í Hafn-
arfirði.
Kolbrún verður jarðsungin
frá Víðistaðakirkju í Hafn-
arfirði í dag, 30. september
2011, og hefst athöfnin kl. 15.
Ég sendi þér kæra kveðju
nú komin er lífsins nótt,
þig umvefji blessun og bænir
ég bið að þú sofir rótt.
Þó svíði sorg mitt hjarta
þá sælt er að vita af því,
þú laus ert úr veikinda viðjum
þín veröld er björt á ný.
Ég þakka þau ár sem ég átti
þá auðnu að hafa þig hér,
og það er svo margs að minnast
svo margt sem um hug minn fer,
þó þú sért horfin úr heimi
ég hitti þig ekki um hríð,
þín minning er ljós sem lifir
og lýsir um ókomna tíð.
(Þórunn Sigurðardóttir)
Elsku mamma. Þetta er svo
óendanlega sárt. Að kveðja
mömmu sem alltaf var til staðar
og alltaf var hægt að treysta á.
Að kveðja mömmu sem var gull-
falleg hvernig sem á hana var
litið. Að kveðja mömmu sem var
jákvæð, brosmild og bjartsýn.
Að kveðja mömmu sem var hóg-
vær og lítillát. Að kveðja
mömmu sem kom fram við alla á
sama hátt. Að kveðja mömmu
sem gaf, hvatti, huggaði og elsk-
aði. Að kveðja mömmu sem var
svo góð fyrirmynd. Að kveðja
mömmu sem var sannur vinur.
Sorgin er yfirgengileg. En til-
hugsunin um að nú sértu komin
til Diddu systur, ömmu og afa og
bræðra þinna gerir hana svo
miklu bærilegri.
Ég bið algóðan Guð um að
vaka öllum stundum yfir pabba,
Sunnu og Kolbrúnu Ragnheiði.
Þetta er svo óendanlega
sárt … en það er víst kominn
tími til að kveðja.
Elsku mamma. Guð blessi þig
og minningu þína um alla tíð. Ég
elska þig og sakna þín meira en
nokkur orð fá lýst.
Þinn
Þorsteinn Gunnar.
Elsku amma Kolla. Ég trúi
því varla að ég sé að skrifa þetta.
Það er svo ótrúlega sárt að þurfa
að kveðja þig í síðasta sinn.
Ég man þegar ég kom til að
gista hjá ykkur afa í Grænukinn-
inni. Það var sko lúxus. Þú leyfð-
ir mér að ráða hvað væri í mat-
inn og svo áður en ég fór að sofa
sagðirðu mér sögur af músafjöl-
skyldu sem mér fundust svo
skemmtilegar. Ég sofnaði yfir-
leitt í fanginu hjá þér og þegar
ég vaknaði varstu búin að útbúa
morgunmat og heitt kakó. Besta
amma í heimi, ég er viss um það.
Þú varst ótrúleg kona. Alltaf
svo jákvæð og létt yfir þér. Allt-
af hlæjandi. Hláturinn þinn
smitaði út frá sér þannig að
maður gat ekki annað en hlegið
með þér þegar þú skelltir upp
úr.
Elsku amma. Núna ertu kom-
in til Diddu þinnar og ég veit að
þér líður vel. Ég mun alltaf
brosa þegar ég hugsa til þín.
Guð geymi þig.
Þín
Sunna.
Elsku Kolla frænka, eins og
við kölluðum hana alltaf, er lát-
in. Á tímum sem þessum ríkir
bæði gleði og sorg í hjörtum
okkar. Sorg yfir því að fá ekki að
njóta samvista við hana lengur,
en jafnframt gleði yfir því að
hún þurfi ekki að þjást.
Kolla frænka var okkur öllum
mjög kær og það var alltaf fast-
ur liður að koma við hjá henni og
Alla í Grænukinninni og nú síð-
ustu árin á Hrafnistu þegar við
fjölskyldan áttum leið suður, en
hjá þeim leið manni alltaf vel.
Kolla var sannkölluð Pollýanna,
hún sagði alltaf allt gott, alveg
sama hvenær þú spurðir hana.
Hún var alveg einstök kona, allt-
af með bros á vör og sagði svo
skemmtilega frá. Einnig tókst
henni að snúa öllu upp í grín, sjá
spaugilegu hliðarnar á hlutun-
um, rétt eins og bróðir hennar,
hann afi Bangsi.
Kolla kenndi manni að vera
þakklátur fyrir það sem maður á
og að morgundagurinn yrði
betri en dagurinn í dag ef svo
bar undir. Við fjölskyldan eigum
margar góðar minningar um
Kollu frænku sem við munum
geyma í hjörtum okkar um
ókomna tíð.
Elsku Alli, Kolbrún Ragn-
heiður, Steini og fjölskylda, inni-
legar samúðarkveðjur til ykkar.
Með söknuði kveðjum við þig
elsku frænka.
Vertu ekki grátinn við gröfina mína
góði, ég sef ekki þar.
Ég er í leikandi ljúfum vindum,
ég leiftra sem snjórinn á tindum.
Ég er haustsins regn sem fellur á fold
og fræið í hlýrri mold.
Í morgunsins kyrrð er vakna þú vilt,
ég er vængjatak fuglanna hljótt og
stillt.
Ég er árblik dags um óttubil
og alstirndur himinn að nóttu til.
Gráttu ekki við gröfina hér –
gáðu – ég dó ei – ég lifi í þér.
(Þýð. Ásgerður Ingimarsdóttir)
(Höf. ókunnur)
Guð blessi minningu Kollu
frænku.
Þórir, Svava, Magnús,
Anna Karen og Þórey Sif.
Kolbrún
Þórisdóttir
✝
Elskuleg móðir okkar, tengdamóðir, amma,
langamma og langalangamma,
GUÐRÚN JÓNSDÓTTIR
frá Hofi,
Freyjugötu 26,
Sauðárkróki,
lést á Heilbrigðisstofnun Sauðárkróks
fimmtudaginn 22. september.
Jarðsungið verður frá Sauðárkrókskirkju laugardaginn 1. október
kl. 14.00.
Bára Pétursdóttir,
Margrét Pétursdóttir, Baldur Sigurðsson,
Jón S. Pétursson, Erna Jóhannsdóttir,
Gunnar S. Pétursson, Sólveig Þorvaldsdóttir,
Pétur Axel Pétursson, Steinunn Kristinsdóttir,
Svanhildur Pétursdóttir,
Skarphéðinn R. Pétursson, Steinunn Guðmundsdóttir,
Hrafnhildur Pétursdóttir, Birgir R. Rafnsson,
barnabörn, barnabarnabörn og barnabarnabarnabörn.
✝
Innilegar þakkir til allra þeirra sem sýndu
okkur hlýhug og samúð vegna fráfalls og
útfarar ástkærs föður, tengdaföður, afa og
langafa,
RAGNARS BENEDIKTSSONAR,
Stekkjargötu 7,
Hnífsdal.
Sérstakar þakkir til vinkvenna sem hjálpuðu við erfidrykkjuna.
Guðrún, Einar, Jón, Sigurður, Júlíus, Ragnar, Íris, Fannar,
Ólafur, Aníta, Birna, Auður, Jóhann og Haukur.
✝
Bróðir okkar, mágur og frændi,
ÞÓRIR ÁGÚST SIGURÐSSON
frá Brúarhrauni,
Kópavogsbraut 1b,
sem andaðist á líknardeild Landspítala
Landakoti sunnudaginn 18. september,
verður jarðsunginn frá Kolbeinsstaðakirkju
Kolbeinsstaðahreppi laugardaginn 1. október kl. 14.00.
Hörður Sigurðsson,
Guðrún Sigurðardóttir, Sigvaldi Fjeldsted,
Sigurveig Sigurðardóttir, Björn Ingvarsson,
Auður Sigurðardóttir, Bergmann Þorleifsson,
Kristján Sigurðsson, María Einarsdóttir,
Trausti Sigurðsson, Guðrún Björnsdóttir,
Kristín Björnsdóttir,
Soffía Sveinsdóttir
og frændsystkini.
✝
Ástkær móðir okkar, tengdamóðir, amma og
langamma,
ÞÓRHILDUR STEFÁNSDÓTTIR
frá Vestmannaeyjum,
sem lést þriðjudaginn 20. september, var
jarðsungin mánudaginn 26. september í
kyrrþey.
Fyrir hönd ástvina,
Ólafur og Stefán Tryggvasynir.
✝
Ástkær sonur okkar og bróðir,
DAGBJARTUR HEIÐAR ARNARSSON,
andaðist á heimili sínu að kvöldi föstudags-
ins 23. september.
Útför hans mun fara fram frá Safnaðar-
heimilinu í Sandgerði miðvikudaginn
5. október kl. 14.00.
Erla Kaja Emilsdóttir, Arnar Helgason,
Sandra Dís Arnarsdóttir,
Helgi Þorsteinn Arnarsson,
Þórdís Thelma Arnarsdóttir,
Tinna Eydís Arnarsdóttir.
✝
Innilegar þakkir fyrir auðsýnda samúð og
hlýju vegna andláts og útfarar elskulegs
eiginmanns míns, föður, tengdaföður og afa,
BJÖRNS HAFSTEINS JÓHANNSSONAR.
Þökkum heimaþjónustu fyrir ljúfa og góða
umönnun, einnig starfsfólki taugalækninga-
deildar B2 og líknardeildar Landspítala í
Kópavogi.
Þrúður Guðrún Sigurðardóttir,
Svana Helen Björnsdóttir, Sæmundur E. Þorsteinsson,
Brynja Dís Björnsdóttir, Örvar Aðalsteinsson,
Hildur Inga Björnsdóttir, Jóhann Kristjánsson,
Þórdís Björnsdóttir,
Björn Orri, Sigurður Finnbogi og Þorsteinn
Sæmundssynir,
Birkir, Drífa og Kári Örvarsbörn,
Æsa Jóhannsdóttir og Alda Ægisdóttir.
✝
Innilegar þakkir sendum við öllum þeim er
sýndu okkur hlýhug og samúð vegna andláts
og útfarar elskulegs föður, tengdaföður, afa
og langafa,
ÁRNA KR. ÞORSTEINSSONAR,
Smyrilsvegi 29,
Reykjavík.
Sérstakar þakkir færum við heimahjúkrun Reykjavíkur
og starfsfólki á deildum 11A og 13G Landspítala.
Anna Árnadóttir,
Ásta Kvaran Árnadóttir, Böðvar B. Kvaran,
Þorsteinn Árnason, Hrefna E. Leifsdóttir,
Sveinn Árnason, Sigurlína Vilhjálmsdóttir,
Erna Þórunn Árnadóttir, Benedikt Sigmundsson,
Ingibjörg Hólmfríður Árnadóttir,
barnabörn og barnabarnabörn.
✝
Elskulegur eiginmaður minn, faðir okkar,
tengdafaðir og afi,
BERGUR JÓNSSON
rafmagnsverkfræðingur,
Löngulínu 27,
Garðabæ,
lést á líknardeild Landspítala Landakoti að
morgni miðvikudagsins 28. september.
Jarðsungið verður frá Bústaðakirkju þriðjudaginn 11. október
kl. 13.00.
Blóm og kransar vinsamlegast afþakkaðir en þeim sem vilja
minnast Bergs er bent á Hjálparsveit skáta, MS-félagið,
s. 568 8620, eða aðrar líknarstofnanir.
Ingunn Guðmundsdóttir,
Magnús Bergsson, Guðrún Elín Guðnadóttir,
Bergþóra Bergsdóttir, Reynir Þór Sigurðsson,
Jón Örn Bergsson,
Ásgerður Bergsdóttir, Högni Sigurþórsson
og barnabörn.