Morgunblaðið - 13.10.2011, Qupperneq 1

Morgunblaðið - 13.10.2011, Qupperneq 1
Morgunblaðið/RAX Inntak Vatnið úr aðrennslisgöngunum kemur við í sveiflujöfnunarþró áður en því er veitt um inntaksmannvirki inn á vélarnar í stöðvarhúsinu. Helgi Bjarnason helgi@mbl.is Starfsmenn Ístaks eru byrjaðir að sprengja aðrennslisgöng Búðarháls- virkjunar frá báðum endum. Það er gert til að vinna upp tafir sem orðið hafa á verkinu vegna byrjunarörðug- leika. Aðrennslisgöngin eru um fjórir kílómetrar að lengd, þau liggja frá nýju Sporðöldulóni og að væntanlegu stöðvarhúsi við Sultartangalón. Gangamenn eru búnir að sprengja sig tæpan hálfan kílómetra inn í Búðar- háls, lónsmegin. Þar sem verkið hefur reynst tafsamara en áætlað var hófst sprenging ganganna hinum megin frá í vikunni. Ummál ganganna er eins og tvenn Héðinsfjarðargöng og er sprengt í tveimur lögum. Þegar efri hlutinn hefur verið opnaður í gegn verður neðri hlutinn sprengdur. Eftirlitsmenn Landsvirkjunar með byggingu Búðarhálsvirkjunar segja að tafir við gerð ganganna ógni ekki áætlunum um gangsetningu virkjun- arinnar fyrir lok ársins 2013. Rösklega 250 menn vinna við virkj- unina, flestir á vegum aðalverktakans sem er Ístak hf. Er þetta ein mesta verklega framkvæmd í landinu nú um stundir. Unnið á fullu í vetur Unnið verður af fullum krafti við gangagerðina og byggingu stöðvar- húss og tengdra mannvirkja í vetur. Vinna við að undirbúa stíflustæðið við fyrirhugað Sporðöldulón er langt komin. Stíflan verður úr jarðvegi með grjótvörn, alls liðlega tveir kílómetrar að lengd. Ekki er hægt að vinna við byggingu stíflunnar í vetrarveðrum og því verður hafist handa við það verk næsta vor og stíflan byggð upp að miklu leyti næsta sumar. Því mun starfsfólki heldur fækka á virkjana- svæðinu upp úr næstu mánaðamótum. Aftur mun fjölga á vormánuðum og er gert ráð fyrir að um 300 manns verði þá að störfum við Búðarháls- virkjun. Virkjunin verður gangsett fyrir lok ársins 2013. MUnnið á tvennum vígstöðvum »18 Sprengt frá báðum endum  Brugðist við byrjunarörðugleikum við gerð aðrennslisganga Búðarhálsvirkjunar  Gangagerðin ekki talin ógna áætlunum um gangsetningu fyrir árslok 2013 Sæferðir, sem gera út ferjuna Bald- ur, hafa áhuga á að bjóða ferjuna til siglinga til Vestmannaeyja yfir vetr- armánuðina og skoða nú ferju til flutninga yfir Breiðafjörð. Gæti hún hugsanlega verið komin til landsins eftir 4-6 vikur. Vegagerðin hefur óskað eftir til- lögum frá Eimskipi og Sæferðum um hvernig hægt verði að haga ferju- siglingum milli lands og Eyja í vetur. Samkvæmt nýjustu mælingu þarf að dýpka hafnarmynni Landeyja- hafnar um tvo metra til að Herjólfur geti siglt inn í hana. »6 Geta fengið nýja ferju Ferjan Mynni Landeyjahafnar er of grunnt fyrir Herjólf. Morgunblaðið/Ómar Anna Lilja Þórisdóttir annalilja@mbl.is Breyta þarf kennsluaðferðum og skipulagi skóladagsins á yngsta stigi grunnskóla til þess að bæta námsár- angur. Þetta er mat Hermundar Sig- mundssonar, prófessors í lífeðlislegri sálfræði við Háskólann í Þrándheimi. Hann telur affarasælast að fyrstu fjögur ár grunnskólans séu helguð grunnþekkingu í lestri, skrift og stærðfræði til að leggja grundvöll fyr- ir aðrar námsgreinar síðar á náms- ferlinum. Hann segir rangt að alhæfingar eins og að fleiri karlkennarar eða lengri kennaramenntun leysi vanda grunnskólans. „Það er þversögn að land sem er að spara peninga skuli lengja kennaramenntun án þess að vitað sé til þess að það skili ein- hverju,“ segir hann. „Við erum ekki að nota bestu mögulegu aðferðir við lestrarkennslu og svo erum við hissa á að okkur gangi ekki vel í PISA-rannsókninni,“ segir Hermundur. Aðferðin hentar síður strákum Sú aðferð sem notuð sé við lestr- arkennslu, svokölluð orðaaðferð, henti strákum síður en stúlkum þar sem þær séu ekki eins háðar aðferð- um og strákarnir. Þá segir Hermundur að orðadæmi í stærðfræði séu lögð of snemma fyrir börn. Þau sem séu illa læs fari þá líka að líta á sjálf sig sem tapara í stærð- fræði. „Við erum að byggja upp tapara frá 6-7 ára aldri,“ segir Hermundur. Líta á sig sem tapara vegna rangra aðferða  Lengra kennaranám er ekki lausnin  Breyta á aðferðum MBreyta þarf kennsluaðferðum »14 Skóli Leggja ætti meiri áherslu á grunnfög á fyrstu skólaárunum. F I M M T U D A G U R 1 3. O K T Ó B E R 2 0 1 1  Stofnað 1913  240. tölublað  99. árgangur  –– Meira fyrir lesendur FYLGIR MEÐ MORGUNBLAÐINU Í DAG NEMAR SÆKJA TÓNVÍSINDASMIÐJU BIOPHILIU BJARKAR ÓREYNDIR ÞINGMENN VIÐSKIPTABLAÐ OG FINNUR.IS METNAÐUR ÍÞRÓTTIRFERÐAST UM HEIMA 35  Margt bendir til þess að áfram dragi úr töku foreldra á fæðing- arorlofi á þessu ári, sérstaklega feðra en í fyrra fækkaði feðrum sem fengu greiðslur í fæðingar- orlofi um 5,3% milli ára. Feður taka orlofið í styttri tíma en áður. Karlar á vinnumarkaði sem nýttu sér þennan rétt voru í fæðingarorlofi að meðaltali í 97 daga á árinu 2009, í 83 daga 2010 og 76 daga að með- altali á fyrsta ársþriðjungi yf- irstandandi árs. Í fyrra lækkuðu fæðingarorlofsgreiðslur til foreldra um rúman milljarð, skv. tölum Hag- stofunnar. »22 Færri í fæðingarorlof annað árið í röð Fæðingarorlof feðra 2009 2010 (jan-apríl) 2011 97 83 76 Meðaldagafjöldi feðra (á vinnu- markaði) í fæðingarorlofi Fæðingarorlofsgreiðslur í heild í milljörðum kr. 2009 2010 2011 10,3 9,2 8,4  Ekki er gert ráð fyrir kostnaði rík- isins vegna yf- irtöku Lands- bankans á SpKef í frum- varpi fjár- málaráðherra til fjáraukalaga. Þó er ljóst að hann hleypur á tugum milljarða og fellur á ríkið á næstu mán- uðum. Þá er ekkert minnst á heimildir til þess að auka eiginfjárframlag Íbúðalánasjóðs í frumvarpinu þrátt fyrir ítrekaðar yfirlýsingar stjórnvalda þess efnis. »Viðskipti SpKef ekki inni í fjáraukalögum WILLUM ÞÓR OG LEIKNIR STEFNA Á EFSTU DEILD

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.