Morgunblaðið - 13.10.2011, Síða 10
10 DAGLEGT LÍF
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 13. OKTÓBER 2011
María Ólafsdóttir
maria@mbl.is
N
ú á haustdögum er í
bígerð að Námsefnið
Líkaminn minn verði
notað fyrir sex ára
börn í öllum grunn-
skólum landsins, en námsefnið er nú
notað í öllum grunnskólum höf-
uðborgarsvæðisins. Því er ætlað að
styrkja börn til að setja mörk og
segja frá ef þau verða fyrir ofbeldi
af einhverju tagi. Upphaflega var
efnið þróað af Karenu Júlíu Júl-
íusdóttir hjúkrunarfræðingi og Dýr-
leifu Egilsdóttur námsráðgjafa.
Efnið er byggt á bókinni „Þetta er
líkaminn minn“ eftir Lory Freeman
með teikningum Carol Dech, en
Barnaheill, sem hefur útgáfurétt á
bókinni hérlendis, gaf góðfúslegt
leyfi til að nota efni bókarinnar líkt
og gert er.
Foreldrar hvattir til umræðu
Námsefnið hefur verið prófað
af skólahjúkrunarfræðingum og
námsráðgjöfum í Kópavogi síðast-
liðin fimm ár. Meðal þeirra er Sól-
rún Ólína Sigurðardóttir, hjúkr-
unarfræðingur í Sala- og
Lindaskóla.
„Mér fannst þetta spennandi og
tók námsefnið í fyrstu upp í Sala-
skóla. Síðastliðinn vetur fékkst síð-
an fjármagn til að klára námsefnið
og áhuginn sýndi sig strax. Þeir
hjúkrunarfræðingar sem hlutu
fræðslu um efnið eftir jól höfðu
langflestir tekið það upp um vorið.
Slíkt er alls ekki algilt en þarna sýn-
ir sig hversu mikilvægt okkur finnst
að ræða slík mál við börnin. Auðvit-
að ætlast maður til þess að foreldrar
tali líka við börnin sín um þetta en
þeir eru oft óöruggir um hvenær sé
rétti tíminn. Nú er afhentur í fjög-
urra ára skoðun bæklingurinn Þetta
er líkaminn minn frá Barnaheill og
við hvetjum foreldra til að tala við
börnin til að efla forvarnir gegn
kynferðisofbeldi gagnvart börnum,“
segir Sólrún.
Í gegnum grunnskólann
Í námsefninu er lagt upp úr því
að börnin læri hvað einkastaðir séu.
Námsefnið er kennt í litlum sex
manna hópum til að hægt sé að ná
vel til hvers og eins og eru kynin að-
skilin. Kennslan fer fram eftir ára-
mót þannig að börnunum vinnist
tími til að mynda traust við skólann
og starfsfólk hans. Sólrún segir í
raun imprað á slíkri fræðslu í gegn-
um öll grunnskólaárin. Í öðrum eða
þriðja bekk er krökkunum sýnd
myndin Leyndarmálið og í kyn-
þroskafræðslu í 6. bekk er blaðsíða í
kennsluhefti tileinkuð slíkri for-
varnakennslu.
Í námsefni 7. til 10. bekkjar er
einnig bent á mikilvægi þess að
segja frá.
„Við brýnum fyrir eldri krökk-
unum að ekki sé hægt að sjá á enni
þeirra ef verið er að misbjóða þeim
eða beita þau ofbeldi og við hvetjum
þau því til að segja einhverjum frá
sem þau treysta,“ segir Sólrún.
Óæskileg snerting
Þær Karen Júlía og Dýrleif
bjuggu einnig til sögu sem notuð er
Börnin styrkt
til að setja mörk
Markmið námsefnisins Líkaminn minn er að styrkja börn í að segja frá ef þau
verða fyrir óþægilegri reynslu. Eins er lögð áhersla á að börn fari ekki upp í bíl
með ókunnugum. Námsefnið er kennt í litlum hópum og eru meðal annars not-
aðir sérstakir tilfinningapúðar í kennslunni. Með því fá börnin að taka beinan
þátt í kennslunni. Áhugi fyrir námsefninu hefur verið mikill og það reynst vel.
Morgunblaðið/Árni Sæberg
Áhugasöm Hluti námsefnisins byggist á því að börnin séu virk í náminu
Ó já, hún fór af stað í gær tónlistar-
hátíðin stóra og skemmtilega, Airwa-
ves, og ekki seinna vænna að kynna
sér allt sem þar er í boði. Þeir sem
hafa fest kaup á armböndum eru
væntanlega margir þegar búnir að
vafra um á vefsíðunni icelandairwa-
ves.is og lesa allt um tónlistarfólkið
sem kemur fram á hátíðinni, bæði ís-
lenskt og erlent, kynna sér dag-
skrána, lesa um sögu hátíðarinnar og
ótal margt fleira. Þeir sem ekki eiga
armband (löngu uppseld) ættu að
kíkja á dagskrá svokallaðra Off-Venue
viðburða. Þar koma hljómsveitir og
tónlistarmenn fram út um allan bæ á
stöðum þar sem ekki kostar krónu
inn. Í dag koma t.d. fram í Vestubæj-
arlauginni Mugison, Lay Low og Of
Monsters and Men. Í Munnhörpunni
verður Skúli mennski, Mammút á
Kaffistofunni, Agent Fresco í Nor-
ræna húsinu, svo fátt eitt sé nefnt.
Vefsíðan www.icelandairwaves.is
Morgunblaðið/Ernir
BlazRoca Erpur Eyvindarson kemur fram á tónleikum á Gauknum í kvöld.
Dásamlega Airwaveshátíðin
Hjörleifur Sveinbjörnsson ætlar á
morgun að halda hádegisfyrirlestur í
tilefni af 40 ára afmæli stjórnmála-
sambands Íslands og Alþýðulýðveld-
isins Kína. Fyrirlesturinn ber yfir-
skriftina Huang Nubo og
kínversk-íslenski menningarsjóð-
urinn. Ljóðskáldið og fjárfestirinn
Huang Nubo er fjárhagslegur bak-
hjarl kínversk-íslensks menningar-
sjóðs, sem á að stuðla að auknum
samskiptum landanna á milli á sviði
menningar, einkum ljóðlistar. Fyrir-
lesturinn fer fram í stofu 301 í Árna-
garði kl. 12. Allir velkomnir og ókeyp-
is aðgangur.
Endilega …
… kynnið ykkur
samband Kína
og Íslands
Morgunblaðið/Kristinn
Hjörleifur Þýðir ljóð úr kínversku.
Þeir sem hafa áhuga á tónlist sem og
þeir sem hafa áhuga á kvikmyndum,
ættu ekki að láta framhjá sér fara
sýningar á kvikmyndum sem tengjast
tónlist og verða sýndar í Bíó Paradís í
tengslum við Airwaves hátíðina.
Þarna má njóta margra gullmola, til
dæmis er gamla góða Rokk í Reykja-
vík sýnd í dag kl 16. Aðrar myndir
sem standa til boða eru m.a. Garg-
andi snilld, Popp í Reykjavík og fleiri
sem gott er að njóta á breiðtjaldi.
Bíó Paradís
Tónlistartengdar kvikmyndir
Rokk í Reykjavík Mikil og góð heimild um tónlistarlíf níunda áratugarins.
Skannaðu kóðann
til að fara inn á
vefsíðuna.
Hið íslenska bókmenntafélag í sam-
vinnu við Lagadeild og Hagfræðideild
Háskóla Íslands efnir til málþings í
Hátíðasal Háskólans í dag frá klukk-
an 13.00-17.00. Málþingið er haldið í
tveggja alda minningu Jóns Sigurðs-
sonar forseta og ber heitið Jón Sig-
urðsson forseti, Hugsjónir og stefnu-
mál. Á þinginu verða flutt erindi af
ýmsu tagi en þau munu flytja meðal
annarra höfundar greina í bók Bók-
menntafélagsins sem út er gefin til
að minnast tveggja alda afmælis
Jóns Sigurðssonar.
Munu höfundarnir flytja stuttar
kynningar á greinum sínum en þeir
eru Sigurður Líndal, Birgir Her-
mannsson, Björg Thorarensen, Guð-
rún Nordal, Loftur Guttormsson,
Guðmundur Jónsson, Ásgeir Jóns-
son, Þorvaldur Gylfason og Guðrún
Kvaran. Að erindum loknum verður
opið fyrir fyrirspurnir og at-
hugasemdir en allari nánari upplýs-
ingar um erindi málþingsins má nálg-
ast á hi.is/vidburdir.
Málþing
Morgunblaðið/Sverrir
Málþing Þingið er haldið í minningu Jón Sigurðssonar forseta.
Í minningu
Jóns Sigurðs-
sonar
jafnvægi fyrir líkama og sál • heilsugjafavörur • gjafabréf
S k e i f u n n i 3 j · S í m i 5 5 3 8 2 8 2 · w w w . h e i l s u d r e k i n n . i s