Morgunblaðið - 13.10.2011, Side 12

Morgunblaðið - 13.10.2011, Side 12
SVIÐSLJÓS Hjörtur J. Guðmundsson hjorturjg@mbl.is Ríkið verður að ákveða hvaða þjónustu heilbrigð- isstofnanir eiga að veita enda ljóst að ekki verður lengur skorið niður í rekstri þeirra án þess að leggja af einhverja þjónustu. Þetta kom meðal ann- ars fram í erindi sem Björn Zoëga, forstjóri Land- spítala - háskólasjúkrahúss, flutti á fjölmennri ráð- stefnu sem fram fór á Grand Hóteli í gær um niðurskurð í velferðarkerfinu á vegum Samtaka fyrirtækja í heilbrigðisþjónustu, Landssambands helbrigðisstofnana og Félags forstöðumanna sjúkrahúsa. Ræðumenn á fundinum voru auk Björns Guð- bjartur Hannesson velferðarráðherra, Margrét Guðjónsdóttir, framkvæmdastjóri Heilsugæsl- unnar á Akureyri, Magnús Skúlason, forstjóri Heilbrigðisstofnunar Suðurlands, Pétur Magn- ússon, forstjóri Hrafnistuheimilanna, og Jóna Val- gerður Kristjánsdóttir, formaður Landssambands eldri borgara. Samningur til þriggja ára Björn lagði áherslu á að öllum hefði verið ljóst að breyta þyrfti miklu í rekstri Landspítalans þeg- ar kreppti að í efnahagslífinu. Niðurskurðurinn frá hruni hafi verið um 9,6 milljarðar króna. Það hafi tekist til þessa og þá ekki síst vegna mikils samráðs við starfsfólk spítalans um leiðir í þeim efnum. Hagræðingin í rekstri hans hafi þó meðal annars haft í för með sér að um sex hundruð manns hafi verið sagt upp. Flestir hafi þó verið lausráðnir eða í hlutastörfum. Fram kom ennfremur í erindi Björns að rekst- ur Landspítalans væri nú innan fjárheimilda og að framleiðni starfsfólks hans hefði aukist mikið. Hann sagðist vilja að gert yrði samkomulag fram í tímann við ríkisvaldið, til að mynda til næstu þriggja ára, um rekstur spítalans. Ekki væri nóg að vita einungis í byrjun október á hverju ári hvaða fjárhagslega ramma honum væri ætlað að starfa innan. Bæta kerfið en ekki umbylta Margrét lagði áherslu á að þrátt fyrir niður- skurð væru kröfurnar um þjónustu eftir sem áður þær sömu sem þýddi einfaldlega meira álag á starfsfólk sem aftur leiddi meðal annars til auk- innar vanlíðunar í starfi, aukinna veikinda og auk þess erfiðleika við að manna stöður sem losnuðu. Sagði hún starfsfólk Heilsugæslunnar á Akureyri hafa staðið sig gríðarlega vel við þessar aðstæður. Benti Margrét ennfremur á að ef fólk fengi ekki þá þjónustu sem það þyrfti hjá heilsugæslunni nógu hratt leitaði það ein- faldlega í dýrari úrræði eins og á bráða- vaktir eða til sérfræðinga. Ríkið yrði að ákveða hvað væru forgangsverkefni og niðurskurði yrði að fylgja að dregið væri úr kröfum. Þá yrði að skoða möguleika á hag- ræðingu í heilbrigðiskerfinu. Velti hún í því sambandi upp þeirri spurningu hvort nauðsynlegt væri að læknar gæfu vottorð í öllum þeim tilfellum sem það væri gert og benti á að á síðustu níu mánuðum hefði annar hver Akur- eyringur fengið vottorð frá lækni. Hún lagði þó áherslu á að kerfið væri í grunninn gott. Þörf væri á að bæta það en ekki umbylta því. Ekkert hjúkrunarheimili uppfyllir kröfur Pétur gagnrýndi það fyrirkomulag að ríkið ákvæði í raun hvað það vildi greiða fyrir heilbrigð- isþjónustuna. Hann tók undir það að ríkið yrði að ákveða hvaða þjónustu það vildi greiða fyrir og ennfremur greiða eðlilegt verð fyrir hana. Pétur sagði ljóst að miðað við þau fjárframlög sem ríkið hefði lagt til hjúkrunarheimila þá uppfyllti ekkert þeirra allar þær kröfur sem gerðar væru til þeirra. Að öðrum kosti væri framúrkeyrsla hjá þeim öll- um. Þá gagnrýndi Jóna Valgerður stjórnvöld harðlega fyrir niðurskurð í velferðarmálum og ekki síst í málefnum sem snúa að eldri borgurum. Taldi hún verk stjórnarinnar í þeim efnum til þessa ekki koma heim og saman við það að um ríkisstjórn væri að ræða sem kallaði sjálfa sig norræna vel- ferðarstjórn. Eldri borgarar hefðu ekki fundið fyr- ir því á eigin skinni. Ríkið verður að ákveða hvaða þjónustu á að veita  Frekari niðurskurður í heilbrigðiskerfinu sagður þýða að þjónusta leggist af Morgunblaðið/Ómar Velferð Fjölmenni var á ráðstefnu um niðurskurð í velferðarmálum sem haldin var á Grand Hóteli í gær en þar kom m.a. fram að ríkið yrði að ákveða hvaða heilbrigðisþjónustu ætti að veita. 12 FRÉTTIRInnlent MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 13. OKTÓBER 2011 Hjörtur J. Guðmundsson hjorturjg@mbl.is Ekki liggur fyrir með hvaða hætti húsnæði St. Jósefsspítala í Hafn- arfirði verður nýtt í framtíðinni að sögn Snævars Guðmundssonar, framkvæmdastjóra Fasteigna rík- issjóðs. Landspítalinn tilkynnti síð- astliðinn þriðjudag að allri starf- semi í húsinu á hans vegum yrði hætt frá og með næstu áramótum. Snævar segir að þessi vinna sé öll á byrjunarstigi enda hafi ákvörðun Landspítalans aðeins legið fyrir í vikunni. Þó hafi legið fyrir fyrir um þremur vikum að til slíkrar ákvörð- unar kynni að koma ef ástæða væri talin til þess þegar fyrir lægi hvaða kröfur yrðu gerðar um niðurskurð í fjárlagafrumvarpi ríkisstjórn- arinnar. „Það er hafin smá umræða um það hvert verður næsta skref. En málið er þó ekki komið lengra en þetta. Ég sé kannski ekki í fljótu bragði hvaða starfsemi á vegum ríkisins gæti farið þarna inn þegar spítalastarfsemin er hætt og þá er raunverulega bara tvennt í stöð- unni ef ríkið hefur ekki not fyrir þetta húsnæði, að reyna ann- aðhvort að selja það eða til skemmri tíma að leigja það,“ segir Snævar. Aðspurður segir hann meðal ann- ars koma til greina að nýta hús- næðið sem öldrunarheimili en það eigi þó allt eftir að koma í ljós. 85 ára sögu að ljúka Byggingu St. Jósefsspítala í Hafnarfirði lauk árið 1926 og var húsið vígt 5. september það ár. Það voru St. Jósefssystur sem stóðu að því að reisa húsið en sú framkvæmd þótti mikið afrek á þeim tíma. Sjúkrahússtarfsemi hefur allar göt- ur síðan verið rekin í húsinu. Undir það síðasta var ein deild starfrækt, lyflækningadeild, og hafa starfað þar 29 manns í 19 stöðugildum. Húsnæðið annaðhvort leigt eða selt Morgunblaðið/Árni Sæberg Lokun Allri starfsemi Landspítalans verður hætt í húsinu um áramótin.  Sjúkrahússtarfsemi verður hætt í húsnæði St. Jósefsspítala um næstu áramót  Ekki liggur fyrir hvernig það verður nýtt en líklegast verður það leigt eða selt Guðbjartur lagði í sínu erindi á ráðstefnunni áherslu á að stjórnvöld hefðu í niðurskurð- inum í heilbrigðisþjónustunni þrátt fyrir allt reynt eins og kostur hefði verið að verja hana með því að skera eins lítið niður og mögulegt hefði verið. Hann ræddi ennfremur um að rík- ið þyrfti að vita hvaða þjónustu það væri að kaupa. Það færi ekki endilega saman í þeim efnum kostnaður og gæði auk þess sem hugsanlegt væri að oft á tíðum væri verið að nota of dýr úrræði. Þannig kynni að vera um að ræða ofnotkun á bráðamóttöku og sérfræðingum. Þá væru í ein- hverjum tilfellum sérfræðingar að sinna störfum sem aðstoð- arfólk gæti hugsanlega séð um með minni tilkostnaði. Nefndi hann tannlækna sem dæmi. Ofnotkun á dýrari úrræðum? VELFERÐARRÁÐHERRA Guðbjartur Hannesson „Hljóðið í mér er mjög þungt, það er bara mjög þungt og ég er reiður. Þetta kemur mér í opna skjöldu og ég lít þannig á að þetta sé þvert á þann sameiginlega skilning sem var kynntur þegar dregið var úr starfseminni á spítalanum. Og þó að þetta sé ríkisstofnun sem þarna er um að ræða þá snertir þetta líf íbúa í Hafnarfirði og við höfðum enga hugmynd um að þetta stæði til,“ segir Guð- mundur Rúnar Árnason, bæjar- stjóri Hafnarfjarðar. Reiður yfir lokuninni BÆJARSTJÓRI HAFNARFJARÐAR Guðmundur Rúnar Árnason „Enn á ný sjá stjórnvöld ástæðu til að ráðast að grunnstoðum atvinnu- lífsins í Þingeyjarsýslum með ruddaskap.“ Þetta segir í upphafi ályktunar sem fundur stéttarfélaganna í Þing- eyjarsýslum samþykkti í fyrrakvöld um boðaðar tillögur um niðurskurð á fjárveitingum til Heilbrigðisstofn- unar Þingeyinga. Mikil reiði var á fundum félaganna með tillögurnar, segir í frétt sem þau sendu frá sér að loknum fundinum. Boðaðar tillögur fjárlaganefndar Alþingis gera ráð fyrir skerðingum á fjárframlögum til Heilbrigðis- stofnunar Þingeyinga um 71,6 millj- ónir króna eða um 8,5% á árinu 2012. „Þessi viðbótarskerðing er boðuð þrátt fyrir að mjög fast hafi verið sótt að rekstri þessarar mikilvægu stofnunar á undanförnum árum. Forsvarsmenn og starfsmenn hafa gert allt til að bregðast við lækkandi framlögum til rekstrar með hagræð- ingu og aðhaldi í rekstri. Að mati stéttarfélaganna verður ekki lengra komist í sparnaði nema það sé mark- mið núverandi stjórnvalda að ganga endanlega frá starfsemi Heilbrigð- isstofnunar Þingeyinga með lokun. Stéttarfélögin í Þingeyjarsýslum krefjast þess að stjórnvöld leggi til- lögurnar þegar í stað til hliðar, þar sem þær ógna mjög alvarlega heil- brigðisöryggi og þar með búsetu- skilyrðum í Þingeyjarsýslum,“ segir í ályktuninni. Krefja stjórnvöld skýringar á orðalagi í viljayfirlýsingu Að gefnu tilefni vilja stéttarfélög- in minna á viljayfirlýsingu ríkis- stjórnar Íslands og sveitarfélaganna í Þingeyjarsýslum um uppbyggingu atvinnulífs í sýslunum, sem undirrit- uð var 25. maí 2011. Þar stendur orðrétt: „Aðilar eru sammála um mikilvægi þess að staðinn verði vörður um opinbera þjónustu á svæðinu, sem nauðsynleg er þegar til uppbyggingar kemur.“ Stéttarfélögin krefja stjórnvöld um skýringar á orðalaginu í vilja- yfirlýsingunni í ljósi tillögu fjárlaga- nefndar sem gangi út á að lama starfsemi Heilbrigðisstofnunar Þingeyinga. Öflug heilbrigðisþjón- usta á svæðinu sé ein af meginfor- sendum þess að öflugt atvinnulíf þrífist í Þingeyjarsýslum og því komi ekki til greina að veikja þjón- ustuna frá því sem nú er. Saka stjórn- völd um ruddaskap Þingeyingar reiðir vegna niðurskurðar

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.