Morgunblaðið - 13.10.2011, Blaðsíða 13
FRÉTTIR 13Innlent
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 13. OKTÓBER 2011
BAKSVIÐ
Andri Karl
andri@mbl.is
Minniháttar áflog vegna ósættis milli
félaga eða skipulögð atlaga meðlima
glæpasamtaka að einstaklingi, frels-
issvipting í hálfan sólarhring, stór-
felldar líkamsárásir og allt í ágóða-
skyni. Himinn og haf eru á milli
ákæru í Black Pistons-málinu svo-
nefnda og þeirra skýringa sem verj-
endur sakborninga gáfu við aðalmeð-
ferð málsins fyrir Héraðsdómi
Reykjavíkur í gær. Málið hefur nú
verið dómtekið og fjölskipaðs dóms að
skera úr um hið sanna í málinu – eða
alla vega hið sannaða.
„Þetta eru félagar sem eru meira
og minna saman í þessum félagsskap.
Svo slettist upp á vinskapinn og menn
verða reiðir. Þetta eru ekki skipulögð
glæpasamtök gegn [fórnarlambinu].“
Þetta sagði Brynjar Níelsson, verj-
andi eins sakborninga í Black Pi-
stons-málinu svonefnda. Brynjar var
ósáttur við að málið væri blásið upp af
ákæruvaldinu og fjölmiðlum og látið
sem um væri að ræða uppgjör innan
vélhjólasamtaka og forsmekkinn af
því sem koma skuli hér á landi. Hann
mótmælti því harðlega kröfu ákæru-
valdsins um þriggja ára fanglelsi yfir
skjólstæðingi sínum, sagði hana út í
loftið og í ósamræmi við dómafram-
kvæmd.
Hulda María Stefánsdóttir, sak-
sóknari í málinu, fór fram á þriggja
ára fangelsi yfir bæði þeim Ríkharð
Júlíusi Ríkharðssyni, skjólstæðingi
Brynjars, og Davíð Frey Rúnarssyni.
Þeir hafa verið nefndir foringi og
meðlimur vélhjólasamtakanna Black
Pistons. Brynjar hefur hins vegar
verið óþreytandi að benda á að þessir
menn eigi ekki einu sinni bifhjól og
hefur hann því efasemdir um stóryrði
í garð umræddra samtaka.
Neitaði sök en staðfesti ýmislegt
Eins og komið hefur fram var gefin
út framhaldsákæra í málinu í miðri
aðalmeðferð. Þá einnig á hendur 17
ára pilti, Brynjari Loga Barkarsyni.
Saksóknari var óviss um hvað ætti að
þykja heppileg refsing fyrir Brynjar
en nefndi eitt og hálft ár og lagði í dóm
hvort refsingin yrði bundin skilorði.
Brynjar Logi staðfesti ýmislegt
sem aðeins hafði komið fram hjá fórn-
arlambinu í málinu og þó að hann hafi
neitað sök í málinu tókst að draga upp
úr honum ýmislegt sem bendir til þess
að ákæran sé á rökum reist. Saksókn-
ari fullyrti til að mynda að Brynjar
hefði sagt við skýrslutöku hjá lögreglu
að fórnarlambið hefði ekki getað kom-
ist burtu, sem sagt að hann hefði verið
sviptur frelsi sínu. Þessu neitaði
Brynjar hins vegar fyrir dómi og
sagðist sjálfur hafa boðið honum að
fara nokkrum sinnum.
Þau atriði sem Hulda María vísaði
til í málflutningi sínum að bentu til
sektar samkvæmt ákæru voru fram-
burður fórnarlambsins, framburður
Brynjars, áverkavottorð, tæknigögn
og rannsókn símagagna. Þetta sagði
hún staðfesta framburð fórnarlambs-
ins á meðan framburður Ríkharðs og
Davíðs fyrir lögreglu og dómi væri
ótrúverðugur.
Á móti bentu verjendur á að fram-
burður fórnarlambsins sem málið og
ákæran byggðist að langmestu leyti á
hefði breyst mikið frá fyrstu skýrslu-
töku. Raunar hefði hann breyst svo
mikið að gefa þurfti út framhalds-
ákæru í miðju máli með gjörólíkri at-
vikalýsingu. Töldu þeir að vegna reik-
uls framburðar fórnarlambsins þyrfti
að gera enn meiri kröfur um að hægt
væri að sanna málið með þeim gögn-
um sem lögð voru fyrir dóminn.
Að mati verjenda samsvara áverk-
ar á fórnarlambinu áverkum eftir
minniháttar líkamsárás. Komið hafi
fram að hann hafi margsinnis getað
yfirgefið þá menn sem hann var með á
umræddum tíma og engin gögn séu til
sönnunar því að reynt hafi verið að
stela einu né neinu.
Þá hafi bæði Davíð og Ríkharð við-
urkennt að til átaka hafi komið. Þau
hafi verið smávægileg og engum
vopnum beitt. Davíð viðurkenndi
minniháttar líkamsárás en Ríkharð
að hafa hrint fórnarlambinu á borð.
Þeir eigi því að fá dóma eftir því.
Gert er að ráð fyrir að dómurinn
verði kveðinn upp í næstu viku.
Slagsmál eða skipulögð atlaga
Verulegur munur er á ákæru í Black Pistons-málinu svonefnda og skýringum verjenda sakborninga
Líklegt má þykja að vitnisburður 17 ára pilts muni ráða úrslitum um mörg atriði þó að hann neiti sök
Sakborningar Davíð Freyr Rúnarsson og Ríkharð Júlíus Ríkharðsson.
Samkvæmt ákæruskjali eru
Davíð Freyr, Ríkharð Júlíus og
Brynjar Logi ákærðir fyrir frels-
issviptingu og tilraun til ráns.
Davíð og Ríkharð einnig fyrir
sérstaklega hættulega líkams-
árás, að kvöldi þriðjudagsins 10.
maí sl. og miðvikudaginn 11.
maí.
Þá segir í ákæru að mennirnir
hafi í félagi reynt að neyða út úr
ungum karlmanni, fórnarlambi í
málinu, fé með því að hóta að
beita hann og nána
vandamenn hans of-
beldi, svipta hann
frelsi sínu og beita
hann líkamlegu of-
beldi ef hann útveg-
aði þeim ekki kr.
10.000.000
í reiðufé,
ferðatölvu,
tvo flat-
skjái, tvö
mótorhjól og
bifreið.
Vildu milljónir
og mótorhjól
LÍKAMSÁRÁS, FRELSIS-
SVIPTING OG RÁNSTILRAUN
Hulda María
Stefánsdóttir
Bílaumboðið Askja ehf • Krókhálsi 11 • 110 Reykjavík
Sími 590-2100 • askja.is • askja@askja.is
Fjármögnun býðst fyrir allt að 10 ára gamla bíla · Allt að 60% fjármögnun · Jafnar greiðslur á samningstíma
Lánstími allt að 7 ár · Engin stimpil- eða þinglýsingargjöld · Gull- og platinumhafar Ergo fá afslátt af lántöku-
gjöldum og betri vaxtakjör . Nánar á ergo.is.
Opið virka daga frá 9-18
Laugardaga frá 12-16
Brot af því besta á askja.is
Kia cee’d
árg. 2010, ekinn 36 þús. km
1400cc, bensín, beinsk.
Verð kr. 2.260.000
Mánaðarleg afborgun kr. 29.290
miðað við 678.000 kr. útborgun og lán til 72ja mánaða
Verð kr. 1.990.000
Subaru Legacy Lux. 4wd
árg. 2006, ekinn 98 þús. km
1994cc, bensín, sjálfsk.
Verð kr. 990.000
Kia Picanto
árg. 2005, ekinn 53 þús. km
1086cc, bensín, sjálfsk.
Verð kr. 1.990.000
Toyota Yaris
árg. 2010, ekinn 39 þús. km
1000cc, bensín, beinsk.
Verð kr. 2.890.000
Toyota Avensis
árg. 2006, ekinn 80 þús. km
1998cc, bensín, sjálfsk.
Verð kr. 1.690.000
Ford Escape
árg. 2005, ekinn 120 þús. km
2966cc, bensín, sjálfsk.
Mánaðarleg afborgun kr. 25.890
miðað við 597.000 kr. útborgun og lán til 72ja mánaða
Mánaðarleg afborgun kr. 25.590
miðað við 796.000 kr. útborgun og lán til 60 mánaða
Mánaðarleg afborgun kr. 15.590
miðað við 396.000 kr. útborgun og lán til 48 mánaða
Mánaðarleg afborgun kr. 36.990
miðað við 1.156.000 kr. útborgun og lán til 60 mánaða
Mánaðarleg afborgun kr. 26.390
miðað við 676.000 kr. útborgun og lán til 48 mánaða
6 ár e
ftir
af áb
yrgð
!
Ekinn
aðein
s
53.00
0 km