Morgunblaðið - 13.10.2011, Síða 14

Morgunblaðið - 13.10.2011, Síða 14
VIÐTAL Anna Lilja Þórisdóttir annalilja@mbl.is Það er rangt að kvenkennarar geti ekki kennt drengjum og það hefði lítil áhrif á námsárangur stráka ef fleiri karlkynsfyrirmyndir væri að finna í grunnskólunum. Þetta segir Hermundur Sigmundsson, prófess- or í lífeðlislegri sálarfræði við Há- skólann í Þrándheimi, en hann hefur rannsakað nám og færniþróun um árabil og hefur haldið fjölda fyr- irlestra, hér á landi og erlendis, um kennsluaðferðir. „Svona alhæfingar um skólastarf skemma fyrir náms- árangri barna, ekki síst drengja. Ef við ætlum að bæta námsárangur þarf að breyta kennsluaðferðum og skipulagi skóladags á yngsta stigi grunnskólans,“ segir Hermundur. Upplifa sig sem tapara Lestrarkennsluaðferðir hafa breyst á undanförnum árum. Marg- ir þekkja svokallaða hljóðaaðferð þar sem byrjað er á að kenna bók- stafi og hljóð þeirra, sem síðan verða að orðum. Síðustu árin hefur orðaaðferðin orðið nokkuð útbreidd, en þar eru orð greind niður í hljóð bókstafa. Hermundur segir þetta ekki góða þróun. „Samkvæmt rann- sóknum þroskast vinstra heilahvel stelpna fyrr, en það þýðir að þær eru ekki jafn háðar því og drengir hvaða aðferð er notuð. Orðaaðferðin hentar strákum ekki, þeir ná illa tökum á lestri. Hljóðaaðferðin hent- ar aftur á móti bæði strákum og stelpum og óháðar rannsóknir sýna að hún skilar langbestum árangri.“ Hann leggur áherslu á mikilvægi þess að vekja og viðhalda áhuga barna á lestri. „Það þarf að kenna börnunum að lesa og síðan þarf að fá þau til að lesa.“ Hermundur telur að orðadæmi séu lögð fyrir börn allt of snemma, þau sem illa séu læs, fari þá líka að upplifa sig sem tapara í stærðfræði. „Ef þú ert með of litla færni og ræður ekki við áskoranirnar verður þú leiður og þá er alveg tilvalið að verða óþekkur. Við erum að byggja upp tapara frá 6-7 ára aldri.“ Áhersla á grunnfögin Hermundur segir að skipulag skóladagsins skipti sköpum varð- andi námsárangur og telur að af- færasælast væri að fyrstu fjögur ár grunnskólans væru helguð grunn- þekkingu í lestri, skrift og stærð- fræði til að leggja grundvöll fyrir aðrar námsgreinar sem kenndar eru síðar á námsferlinum. „Ég sé fyrir mér að í upphafi skóladags fái börn- in að hreyfa sig í hálftíma. Síðan er lögð áhersla á grunnfögin, í stuttum lotum með hléi á milli og eftir há- degi væri listgreinakennsla og íþróttir. Með að láta krakkana sitja kyrra í einn og hálfan tíma í einu er- um við að biðja um læti og vanda- mál. Minni líkamleg hreyfing í sam- félaginu leiðir til meiri atferlisvandamála,“ segir Hermund- ur. Hann er sömuleiðis gagnrýninn á opna skólann. „Það fyrirkomulag virkar engan veginn fyrir þá slök- ustu. Sterku krakkarnir pluma sig nánast hvar sem er, en opin rými skemma fyrir slökum krökkum sem þurfa að vera í öruggu umhverfi með kennurum sem þeir treysta.“ Þurfa ekki fimm ára nám „Við erum ekki að nota bestu mögulegu aðferðir við lestr- arkennslu og svo erum við hissa á að okkur gangi ekki vel í PISA- rannsókninni,“ segir Hermundur. Hann segir að í Noregi séu kenn- arar að öllu jöfnu sjálfráðir um hvaða aðferðir þeir nota við lestr- arkennslu og að í kennaranámi þar í landi sé engin aðferðafræði kennd í lestrarkennslu. Hann setur spurn- ingarmerki við fullyrðingar um að árangur íslenskra nemenda muni batna með lengingu kennaranáms. „Kennarar þurfa ekki fimm ára nám, en við þyrftum að fara í gegn- um kennaramenntunina og byggja á því sem hefur reynst best úti í heimi. Það er þversögn að land sem er að spara peninga skuli lengja kennaramenntun án þess að vitað sé til þess að það skili einhverju.“ Hermundur segir það vekja ýms- ar spurningar hversu afgerandi fé- lagslegar aðstæður nemenda eru fyrir námsárangur barna. „Erum við sátt við að skólinn hafi svona lít- ið vægi í menntun barnanna? Og hvað með þau börn sem standa höll- um fæti, hver er skylda okkar við þau? Skólinn þarf að hjálpa þeim börnum sem fá litla hjálp heima hjá sér.“ Barnið er dottið í brunninn Tæplega ellefu þúsund grunn- skólanemendur eða rúmlega 25% nutu sérkennslu hér á landi á síð- asta skólaári. Hermundur segist sannfærður um að með því að huga að öðrum aðferðum í lestrarkennslu og námsskipulagi minnki þörf fyrir sérkennslu. „Sérkennsla kostar 3-4 milljarða á ári í Noregi. Það væru heilmiklir peningar ef hægt væri að spara 5% af því sem hún kostar. Mesta áherslan ætti að vera á sérkennslu í yngsta aldurshópnum og minnka síðan þegar börnin verða eldri. En þessu er ekki þannig farið og við erum að byrgja brunninn þegar barnið er fyrir löngu dottið ofan í hann.“ Breyta þarf kennsluaðferðum  Sálfræðiprófessor segir alhæfingar skemma fyrir námsárangri drengja  Rangt að fleiri karl- kennarar og lengri kennaramenntun leysi vanda grunnskólans  Endurskoða þarf kennsluaðferðir Morgunblaðið/Þorkell Kynjamunur og kennsluaðferðir Hermundur Sigmundsson, prófessor við Tækni- og vísindaháskólann í Noregi. Kynlegur munur » Margar rannsóknir hafa ver- ið gerðar á námsvanda grunn- skóladrengja, en rannsóknir hafa í minna mæli beinst að stúlkum og skólagöngu þeirra. » 80% þeirra sem eru með greiningu á sérþörfum í grunn- skólum hér á landi eru drengir. » Kynjamunur á námsárangri í Reykjavík er fyrst og fremst í lestri. Þessi munur kemur strax fram í lesskimunum í 2. bekk grunnskóla og er viðvar- andi til loka grunnskólans 14 FRÉTTIRInnlent MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 13. OKTÓBER 2011 Nýleg rannsókn á vegum Reykja- víkurborgar vakti mikla athygli, en þar kom m.a. fram að fjórð- ungur 15 ára drengja getur ekki lesið sér til gagns. Hermundur segir það skjóta skökku við að ýmsar ytri aðstæður eru nefndar til sögunnar sem sökudólgar, en ekki er minnst á að endurskoða þyrfti kennsluaðferðir. „Hvernig stendur á því að miklu fleiri nem- endur eru ólæsir eða illa læsir í dag, heldur en fyrir nokkrum ár- um? Flestir nemendur ættu að standa betur í dag, því að skóla- dagurinn er lengri og skólaárið sömuleiðis,“ segir Hermundur. „Þegar ég var í grunnskóla fyrir 30 árum var lítill munur á strákum og stelpum, námslega, væntanlega hefur fólk lítið sem ekkert breyst síðan þá.“ Hermundur segir að rannsóknir sýni að 3-4% fólks geti ekki lært að lesa vegna lífeðlisfræðilegra vandamála. „Því hefur verið hald- ið fram að miklu hærra hlutfall sé lesblint eða með lestrarvanda- mál. Ég vil halda því fram að stór hluti hafi ekki fengið örvun við hæfi.“ Að sögn Hermundar hafa hug- myndir hans hlotið misjafnan hljómgrunn hér á landi, en fyr- irhugaður er fundur hans með Jóni Gnarr borgarstjóra, þar sem rætt verður um hugsanlegt rann- sóknarsetur á sviði náms og þró- unar. Verði setrið að veruleika verður þar m.a. lögð áhersla á já- kvæða sálfræði í skólastarfi. „Við erum svo lítið land að það ætti að vera auðvelt að breyta mál- um.“ Hvers vegna eru fleiri grunn- skólanemendur ólæsir í dag? MUN FUNDA MEÐ BORGARSTJÓRA 12. - 16. OKTÓBER 2011 Sigurður Már Jónsson blaðamaður vinnur nú að bók um Icemálið og að- draganda þess og vonast til að ljúka henni á næstu mánuðum. Hann segist þegar hafa rætt við 40-50 af þeim sem helst komu við sögu, þ. á m. suma af samningamönnunum. Sigurður Már notar ákveðinn tíma- ramma, hyggst nema staðar þegar fyrri þjóðaratkvæðagreiðslunni lauk í mars 2010. Það sem síðan hafi gerst sé í reynd hluti af eftirleik málsins, segir hann. „Það hefur ekki enn gengið hjá mér að ná í alla. En þótt ég reyni að ræða við sem flesta er þetta ekki við- talsbók í neinum skilningi orðsins, ég vinn líka úr ýmsum gögnum,“ segir Sigurður Már. „Ætlunin er að þarna verði til heildstæð frásögn sem end- urvarpi dálítið því sem var að gerast bak við tjöldin, hvernig þetta gekk fyrir sig. Ég reyni svolítið að rýna í vinnulagið.“ Hann segist að- spurður fjalla um deilurnar um laga- legu túlkunina þegar það sé nauð- synlegt. „En þetta er ekki lög- fræðileg útlistun, ekki þannig að leikmenn geti ekki komið að þessu heldur er þetta hugsað þannig að sem flestir geti lesið bókina sér til skilnings og gagns.“ Ritar bók um Icesave-málið Sigurður Már Jónsson  Hvað gerðist á bak við tjöldin? „Það segir fátt af einum,“ segir Sig- urður Torfi Guðmundsson, varafor- maður Fangavarðafélags Íslands, en fangaverðir hér á landi eru ósáttir við að félagsmenn þeirra séu einir á vakt og gera skýlausa kröfu um að slíkum vöktum verði hætt. Samtök norrænna fangavarða hafa krafist þess að eins manns vaktir í norræn- um fangelsum verði aflagðar í kjöl- far þess að 25 ára gamall kven- fangavörður í sænsku fangelsi var barinn til bana á meðan hún var ein á vakt. Einn fangavörður er á vakt á næt- urnar í tveimur fangelsum hér á landi, annars vegar á Kvíabryggju og hins vegar í fangelsinu á Ak- ureyri en það fangelsi er inni á lög- reglustöð þar sem einnig eru lög- reglumenn á vakt. Vilja ekki vera einir á vaktinni

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.