Morgunblaðið - 13.10.2011, Síða 23

Morgunblaðið - 13.10.2011, Síða 23
23 MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 13. OKTÓBER 2011 Í fjárlagafrumvarpinu fyrir árið 2012 sem nú liggur fyrir Alþingi er gert ráð fyrir að frádráttarbært viðbótariðgjald sem ráð- stafað er í séreign- arsparnað lækki úr 4% í 2% af launum. Þetta þýðir að einstaklingar sem hafa greitt 4% af launum í sér- eignarsparnað verða að lækka iðgjald sitt í 2%, til að forðast tvískattlagningu. Stefnt er að því að breyt- ingin skili ríkinu 1,4 millj- örðum í auknar skatttekjur eða um 0,3% af heild- arskatttekjum á árinu 2012. Við teljum að þessi breyting sé vanhugsuð því með henni er vegið að langtímasparnaði og af- komu fólks á efri árum. Viðbótarlífeyrissparn- aður er eitt hagstæðasta sparnaðar- form sem völ er á og líka eitt það ein- faldasta. Launagreiðandi sér um að draga iðgjald af launum einstaklinga og greiða til þess vörsluaðila sem við- komandi hefur valið sér. Við bætist að hvorki þarf að greiða fjármagns- tekjuskatt af vaxtatekjum né erfða- fjárskatt ef erfingjar eru maki og börn. Jafnframt er lífeyrissparnaður ekki aðfararhæfur við gjaldþrot. Þegar þessir sérstöku þættir viðbót- arlífeyrissparnaðar eru hafðir í huga sést að hvatinn til að spara með öðr- um hætti er minni. Því er allt eins lík- legt að frumvarpið, verði það sam- þykkt óbreytt, muni leiða til þess að langtímasparnaður minnki. Lífeyr- isárin eru að meðaltali um fjórðungur af fullorðinsárunum og ræður sparn- aður mestu um fjárhagslega afkomu á þessu æviskeiði. Frá því í mars 2009 hefur ein- staklingum verið heimilt að taka út um og að ríkið sé því með þessum að- gerðum að hjálpa fólki. Þetta er að sjálfsögðu alrangt, enginn er skyldug- ur að leggja fyrir í séreignarsparnað, hvorki 4% af launum né 2% og ein- staklingar með séreignarsparnað geta sjálfir valið að lækka iðgjaldið ef það hentar þeim betur. Fjölmargir hafa þegar gripið til þess ráðs í kjölfar efnahagshrunsins eins og eðlilegt er. Önnur rök hafa verið á þann veg að þetta sé leið til þess að örva hagkerfið og hvetja til einkaneyslu og fjárfest- inga. Væntanlega mun einkaneysla eitthvað aukast með þessum aðgerðum en rétt er að gera sér grein fyrir því að fjármunir sem greiddir eru í sér- eignarsparnað fara beint aftur út í hagkerfið í formi fjárfestinga með ein- um eða öðrum hætti. Vandséð er því að þessi aðgerð muni leiða til meiri fjárfestinga í hagkerfinu en ella hefði orðið. Loks þarf að hafa í huga að það hef- ur tekið langan tíma að byggja upp séreignarsparnað. Ef stjórnvöld ákveða síðar að heimila aftur að leggja fyrir 4% iðgjald til viðbótarlífeyr- issparnaðar er alls óvíst að fólk velji að hækka iðgjaldið á ný. Að öllu samanlögðu er ljóst að boð- aðar breytingar á séreignarsparnaði eru ekki góðar. Það er engu að síður von okkar að frumvarpið fái ítarlega og faglega umfjöllun en um leið að ráðamenn beri að lokum gæfu til að falla frá þessum hugmyndum. séreignarsparnað sinn þótt 60 ára aldri sé ekki náð. Þeir sem hafa nýtt sér þá heimild hafa valið að auka ráð- stöfunartekjur í nútíð á kostnað ráð- stöfunartekna í framtíð. Fyrirhuguð breyting felur ekki í sér val um að lækka iðgjaldið úr 4% í 2% af launum heldur er hún þvinguð í gegn með lagabreytingu. Þessi fyrirhugaða breyting á lögum felur í sér að ríkið fær minni skatt- tekjur í framtíðinni en það hefði feng- ið að öllu óbreyttu og líkur aukast á að ríkissjóður þurfi í meiri mæli en áður að bera ábyrgð á lífeyr- isgreiðslum einstaklinga. Því er í raun ekki verið að auka tekjur ríkisins, heldur aðeins verið að færa þær fram í tíma. Auknar byrðar munu því óhjá- kvæmilega leggjast á næstu kynslóðir verði af þessari breytingu. Þau rök hafa verið færð fyrir þess- ari tillögu að einstaklingar þurfi á launum sínum að halda á krepputím- Eftir Arnald Loftsson, Gunnar Baldvinsson, Harald Yngva Pétursson, og Tryggva Guðbrandsson » Viðbótarlífeyr- issparnaður er eitt hagstæðasta sparnaðar- form sem völ er á og líka eitt það einfaldasta. Arnaldur Loftsson Arnaldur er framkvæmdastjóri Frjálsa líf- eyrissjóðsins, Gunnar framkvæmdastjóri Almenna lífeyrissjóðsins, Haraldur Yngvi rekstrarstjóri séreignarsjóðsins Lífeyr- isauka, og Tryggvi framkvæmdastjóri Ís- lenska lífeyrissjóðsins. Vegið að langtímasparnaði Tryggvi Guðbrandsson Haraldur Yngvi Pétursson Gunnar Baldvinsson Enn á ný eru umræður um Land- eyjahöfn og samgöngur milli lands og Eyja. Nú er gerð athugasemd við staðsetningu hafnarinnar, þær athugasemdir eru reyndar fullseint fram komnar. Hins vegar ber okk- ur að vinna úr þeim viðfangsefnum sem blasa við og hægt er að bæta og breyta. Þessum málum er gjarn- an stillt þannig upp að hér sé ein- ungis um málefni Vestmanneyinga að ræða. Það er deginum ljósara að Herjólfur er þjóðvegurinn milli lands og Eyja. Öryggi í ferðum hans er hluti af lífæð hinna kraft- miklu eyjarskeggja. Hins vegar skiptir Landeyjahöfnin okkur hér í Rangárþingi ekki síður afar miklu máli. Í mínu sveitarfélagi opnar Landeyjahöfn nýja möguleika og er spennandi kostur á svo ótal mörgum sviðum. Bæði hvað varðar atvinnumál, samstarf sveitarfélaga og fjölbreytni í mannlífi. Í mán- uðinum hittust starfsmenn stjórn- sýslunnar í Vestmannaeyjum og Rangárþingi eystra til þess að bera saman bækur sínar. Þegar er hafið samstarf í starfsemi íþrótta- félaganna sem er grunnur að framtíðinni. Unga fólkið lærir að vinna saman og sú samvinna þykir einnig sjálfsögð þegar fram í sækir. Fólk hrindir frá ósýnilegum hindrunum og kemst að því eins og skáldið Tómas Guðmundsson: „… samt dáist ég enn meir af hinu / hve hjört- um mannanna svipar saman / í Súdan og Grímsnesinu …“ Þetta eru einungis spurningar um viðhorf. Ljóst er að ríkisstjórnin verður að huga strax að kaupum á nýrri ferju eða leigja eina slíka, sem hentar til þess að þjón- usta þessa samgönguleið. Því vissulega er hér um þjóðveg að ræða. Landeyjahöfn er fallegt og vel gert mannvirki og verkið lofar meistarann. Hins vegar er líklegt að það sé ekki fullgert m.t.t. aðstæðna á Landeyjasandi. Uppgræðslan á sandinum hefur tekist vel og það er von mín og trú að þetta mannvirki eigi enn eftir að sanna frekara gildi sitt. Það er stórkostlegt að tæplega 200.000 farþegar hafa farið í gegnum höfnina á þessu ári. Látum ekki deigan síga, höldum áfram að finna lausnir á þessu viðfangsefni. Til hagsbóta fyrir Vestmanneyinga og okkur sem höfum Eyjarnar fyrir augunum steinsnar frá landi. Eftir Ísólf Gylfa Pálmason » Í mínu sveit- arfélagi opn- ar höfnin nýja möguleika og er spennandi kost- ur, hvað varðar atvinnumál, samstarf sveit- arfélaga og fjöl- breyttara mann- líf. Ísólfur Gylfi Pálmason Höfundur er sveitarstjóri í Rangárþingi eystra. Landeyjahöfn fyrir þjóðina alla Rok og rigning Dæmigert haustlægðaveður tók á móti fólki í höfuðborginni í gær og búast má við svipuðu veðri í dag en stelpur í Hlíðaskóla létu það ekki á sig fá og tóku því með brosi á vör. Árni Sæberg

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.