Morgunblaðið - 13.10.2011, Qupperneq 25

Morgunblaðið - 13.10.2011, Qupperneq 25
MINNINGAR 25 MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 13. OKTÓBER 2011 ✝ ÞorbergurAuðunn Við- arsson fæddist á Akranesi 19. mars 1970. Hann lést í faðmi eiginkonu sinnar og fjöl- skyldu á líkn- ardeild Landspít- alans 4. október 2011. Foreldar Þor- bergs eru Ólöf Gunnarsdóttir, f. 23.12. 1943 á Akranesi og Viðar Einarsson, f. 21.6. 1942 á Akranesi. Systkini Þorbergs eru 1) Gunnar Jóhann Viðarsson, f. 22.12. 1963, giftur Þorbjörgu Ragnarsdóttur, f. 29.9. 1963, þau eiga tvö börn, Ragnar Þór Gunnarsson og Ólöfu Gunnarsdóttur. 2) Elín Viðarsdóttir, f. 4.12. 1964, hún á þrjú börn, Viðar Mána Gunn- arsson, Ólöfu Gunnarsdóttur, Svövu Gunnarsdóttur. 3) Einar Laufeyju Evu Stefánsdóttur, f. 22.10. 1996, frá 5 ára aldri hugs- aði Þorbergur Auðunn um hana sem sitt eigið barn. Foreldrar Auðar Magnúsdóttur eru Magn- ús Ingvar Ágústsson, f. í Reykja- vík 13.6. 1953 og Hjördís Haf- steinsdóttir, f. í Reykjavík 15.11. 1952. Þorbergur gekk í skóla á Akranesi og Fjölbrautaskóla Vesturlands. Hann lærði síðar málaraiðn í Iðnskólanum í Reykjavík og starfaði alla tíð sem málari. Þorbergur fluttist til Reykjavíkur rúmlega tvítugur og bjó þar alla tíð síðan. Þor- bergur æfði sund með Sund- félagi Akraness fram að tvítugu og keppti fyrir Íslands hönd með unglingalandsliðinu og setti meðal annars Íslandsmet. Hann var mikill tónlistarmaður og spilaði með hinum ýmsu hljóm- sveitum. Hann var mikill áhuga- maður um fótbolta og studdi lið ÍA dyggilega. Hann var mikill Skagamaður og þótti vænt um rætur sínar á Akranesi. Útför Þorbergs fer fram frá Fossvogskirkju í dag, 13. októ- ber 2011, og hefst athöfnin kl. 13. Viðarsson, f. 6.10. 1972, giftur Krist- ínu Sveinsdóttur, f. 16.10. 1968, þau eiga þrjú börn, Karenu Ósk Krist- ínardóttur, Elísu Björk Ein- arsdóttur, Hebu Bjarg Ein- arsdóttur. 4) Er- lingur Viðarsson, f. 3.6. 1975, sambýlis- kona hans er Elfa Sif Ingimars- dóttir, f. 6.3. 1980, þau eiga þrjú börn, Sigrúnu Líf Erlingsdóttur, Mikael Hrafn Helgason og Hönnu Bergrós Gunnarsdóttur. Þorbergur Auðunn Viðarsson var kvæntur Auði Magnúsdóttur, f. 26.4. 1976 í Reykjavík. Hann á tvö börn af fyrra hjónabandi með Völu Árnadóttur, Óttar Inga Þorbergsson, f. 2.7. 1994 og El- ísabetu Huld Þorbergsdóttur, f. 21.5. 1997. Auður á eitt barn, Elsku ástin mín, ég heyrði röddina þína áður en ég sá þig fyrst, við hittumst 10 mínútum seinna, við vissum það bæði strax að okkur var ætlað hvort annað. Þú gerðir mig að betri manneskju og varst mér alla tíð gríðarlega góður og börnunum okkar Óttari Laufeyju og Elísabetu. Það er ekki hægt að lýsa þeirri sorg og þeim söknuði sem ég fer nú í gegnum en þú lofaðir mér því að vera alltaf hjá mér, og sagðir alla tíð við mig frá byrjun okkar sambands „Þetta er rétt að byrja, gullið mitt“. Við áttum yndisleg 10 ár saman og við vorum svo samrýmd og þú varst minn besti vinur. Litlir hlutir eins og kaffi- bollinn okkar á morgnana og knúsið þitt og hláturinn okkar saman eru eitthvað sem ég fæ aldrei aftur en mun lifa í hjarta mínu svo lengi sem ég dreg and- ann. Farðu í friði, elskan mín, og við hittumst aftur. Þín Auður. Hinsta kveðja frá föðursystur. Við fæðumst og deyjum í Frelsarans nafni, skútunni stýrum við nokkurn veginn. Fagur drengur nú stendur í stafni og siglir að ströndinni hinum megin. Frænda minn kveð ég með sorg í hjarta, áfram ég feta lífsins veginn. Á himninum sindrar stjarnan þín bjarta, við hittumst á ströndinni hinum megin. Bjarney Einarsdóttir (Badda frænka) Elsku Beggi, fallegi faðir barnanna minna, takk. Takk fyrir fallegustu gjafirnar sem nokkur maður getur gefið konu, börnin okkar, sem bera hjartalagi þínu og hæfileikum svo skýr merki. Takk fyrir allar góðu og fal- legu stundirnar sem við áttum saman. Takk fyrir alla gleðina sem þú veittir okkur með húmor og tón- list og brosinu bjarta. Við komum til með að ylja okk- ur og brosa að minningum um þig og þó tár muni renna þá er það vegna þess að við elskuðum þig svo mikið. Öll við færum, elsku vinur, ástar þökk á kveðjustund. Gleði veitir grátnu hjarta. guðleg von um eftirfund. Drottinn Jesú, sólin sanna, sigrað hefur dauða og gröf. Að hafa átt þig ætíð verður, okkur dýrmæt lífsins gjöf. (Ingibjörg Sigurðardóttir) Við söknum þín, elsku Beggi, en við munum varðveita tónlist- ina þína og sækja þangað allar góðu minningarnar um þig og samveru okkar. Með söknuði og þakklæti fyrir árin okkar saman kveð ég þig nú, en við hittumst aftur hinum meg- in. Vala. Hún Vala kynnti hann fyrir okkur sem kærastann sinn og hann féll vel inn í gáskafullan hóp barna okkar og tengdabarna þar sem sjaldan er talað í alvöru en stríðninni gefið olnbogarými eftir getu hvers og eins. Og Beggi varð þar enginn eftirbátur enda orð- snjall, harðgreindur og fyrirferð- armikill garpur. Trúlofunin varð að hjónabandi og tíðar heimsóknir til litlu fjöl- skyldunnar í Skildinganesinu urðu órjúfanlegur hluti af tilveru okkar. En þar kom að sifjaböndin rofnuðu. Samskipti okkar við Begga urðu að sjálfsögðu strjálli en þrátt fyrir þetta rofnuðu ekki vináttubönd og hann var jafnan aufúsugestur á heimili okkar. Ef taka þurfti málningarpensil í hönd var hann ævinlega kvaddur til enda bæði afkastamikill og vandvirkur. Við kveðjum í dag góðan vin og þann tengdason sem hann alla tíð varð í hjörtum okkar. Þau Vala gáfu okkur hlutdeild í gullmolun- um sínum tveim þeim Óttari Inga og Elísabetu Huld sem þau eign- uðust saman og veittu yl og kær- leika inn í erfiða baráttu föður síns síðustu vikurnar fyrir brott- för hans. Umhyggja sú sem þau sýndu honum þá var aðdáunar- verð og lærdómsrík þeim sem með því fylgdust. Sagt er að tíminn lækni öll sár og við biðjum af alhug þann sem öllu stýrir að styrkja þau í sorg- inni og hjálpa þeim að ganga heil inn í lífið með góðar minningar. Þess sama óskum við foreldrum hans, eiginkonu og öllum ástvin- um. Megi góður Guð styrkja ykkur öll. Elísabet og Árni Gunnarsson. Beggi, vinur minn og fyrrver- andi svili, er fallinn frá langt um aldur fram. Hann háði stutta en erfiða baráttu við veikindi og varð um síðir að láta í minni pokann. Ég kynntist Begga þegar hann og Vala fóru að skjóta sér saman fyrir margt löngu. Það var gaman að fylgjast með þeim þegar þau voru að koma sér upp heimili og því hversu samstiga þau voru í öllu sem þau tóku sér fyrir hend- ur. Þau eignuðust tvö börn, Óttar og Elísabetu, sem hafa verið sannkallaðir gimsteinar foreldra sinna. Beggi fann sig vel í föð- urhlutverkinu. Hann var einstak- lega barngóður og var stoltur af börnunum sínum. Hann hafði ein- stakt lag á börnum og hændust synir mínir mjög að honum. Beggi var hrókur alls fagnaðar hvar sem hann kom og ekki skemmdi það fyrir þegar hann hafði gítarinn meðferðis. Hann var mjög músíkalskur og kunni ógrynni af lögum. Hann var góð- ur söngvari, sviðsvanur og skemmtilegur. Ógleymanleg er ferðin sem við fórum í brúðkaup Steindórs og Jónu á Krókinn, ég og Gyða, ásamt Begga og Völu og Kristjáni og Pálu. Þar var Beggi svo sann- arlega í essinu sínu. Hann var alltaf boðinn og búinn til að að- stoða alla og var listagóður mál- ari. Þegar hann og Vala skildu fækkaði stundunum með Begga, en alltaf þegar við hittumst eftir það var þó eins og við hefðum hist í gær. Það er erfitt að gera sér grein fyrir hvað ræður för í þessu lífi. Beggi hafði ungur að aldri átt við veikindi að stríða, en hann bar það aldrei með sér. Hann var hár og myndarlegur og smá „bóhem- týpa“. Beggi var í blóma lífsins og átti svo margt ógert. Hann á yndisleg börn og ástvini sem nú horfa á eftir honum með miklum söknuði. Eftir stendur þó minningin um góðan dreng sem enginn getur tekið frá þeim eða okkur. Elsku Vala, Óttar og Elísbet, ég sendi ykkur innilega samúðar- kveðju frá mér og Gyðu. Auk þess vottum við Auði, eftirlifandi konu Begga, Laufeyju dóttur hennar, foreldrum Begga og fjölskyldu, okkar dýpstu samúð. Það var ómetanlegt fyrir Begga að njóta allrar þeirrar væntumþykju sem fólkið í kringum hann sýndi hon- um og ég trúi því að það hafi auð- veldað honum undirbúninginn að himnaförinni. Við vorum heppin að fá að vera samferðamenn Begga í vegferð lífsins. Tómas Hallgrímsson. Mig langar í nokkrum fátæk- legum orðum að minnast elsku- legs vinar míns Þorbergs Viðars- sonar sem lést langt um aldur fram úr illvígum sjúkdómi. Hvar er hægt að byrja þegar maður sest niður og reynir að hripa nið- ur okkar sögu sem nær rúm 20 ár aftur í tímann. Mjög ungur fékkstu smjörþefinn af þeim veik- indum sem nú hafa lagt þig, en baráttumaður varstu fram í rauð- an dauðann og lífsgleðin uppmál- uð alla tíð. Ég var svo lánsamur að fá að kynnast þér í leik og starfi, en við áttum býsna margt sameiginlegt. Ég man vel þegar þú hélst á Völu Árnadóttur eins og brúðgumi heldur á brúði út um dyrnar á Rein eftir frumsýningarpartí á Gosa fyrir margt löngu síðan og þið hurfuð út í nóttina, eignuðust tvö yndisleg börn, Óttar Inga og Elísabet sem eru fallegir og vel gefnir unglingar í dag. Hófuð sambúð á Akranesi, síð- ar í Reykjavík, þið giftuð ykkur, en einsog gerist og gengur þá skilur leiðir hjá fólki og nýr kafli hefst. Þú lærðir málaraiðn sem þú stundaði alla tíð, frábær fag- maður, ekki bara sem málari, tón- listin skipaði alla tíð afar stóran sess í þínu lífi, söngvari og „per- former“ af guðsnáð, eitthvað sem var meðfætt, leikari og lagasmið- ur. Hefðir hæglega getað þrætt þig eftir hlykkjóttum vegi listar- innar, enda fjölskylda þín músík- ölsk í meira lagi. Ég man líka þegar við lékum saman í Óvitum þar sem þú lékst Guðmund og ég lék Finn, held að þetta hafi verið 1993, svo man ég nokkrum árum áður þegar þú komst úr langri og strangri ferð frá Bandaríkjunum þar sem þú keyptir Ovesation gítarinn þinn sem fylgdi þér allt lífið. Þú varst algjörlega frábær í hlutverki skemmtanastjórans í Kabarett þar sem hæfileikar þín- ir nutu sín til fulls. Við brölluðum æði margt saman, spiluðum eitt- hvað í hljómsveit en mér fannst ég bara vera leikmaður við hlið þér. Í kringum aldamótin 2000 kynntist þú Auði Magnúsdóttur og gekkst dóttur hennar Lauf- eyju í föðurstað. En fyrst og síð- ast varstu fjölskyldumaður og frábær faðir með ríka réttlætis- kennd, hörkuduglegur í öllu sem þú tókst þér fyrir hendur. Ég gæti haldið áfram í löngu máli en læt hér staðar numið. Ég veit að þú ert kominn á ein- hvern góðan stað þar sem þú fylgist stoltur með fjölskyldu þinni og börnum vaxa og dafna, með gítarinn í kjöltunni og syng- ur henni dýran óð. Ég kveð þig, kæri vinur, með söknuði en einn- ig þakklæti fyrir allar þær sam- verustundir sem lifa í minning- unni. Ég votta fjölskyldu Þorbergs Auði Magnúsdóttur, börnum, foreldrum, systkinum og tengda- foreldrum mína innilegustu sam- úð. Guðleifur Rafn Einarsson. Við erum stödd í Tivolí í Kaup- mannahöfn. Við hjónin, ásamt ykkur Auði, sitjum úti á veitinga- stað að borða og það er byrjað að skyggja og kólna. Tobbi, þú varst búinn að vefja Silju inn í teppi og heldur á henni í fanginu eins og hvítvoðungi og hún hjúfrar sig upp að þér. Manstu Tobbi – við tókum mynd af þér með Silju Björk í fanginu. Ég mun alltaf varðveita þessa mynd því hún er lýsandi dæmi um það hvernig þú nálgaðist börnin okkar. Þú varst ótrúlega nærgætinn og hlýr og sýndir þeim alltaf einlægan áhuga, elsku vinur. Þú varst alltaf tilbúinn til að hjálpa okkur þegar á reyndi, hvað sem á dundi. Komst yfir til okkar alveg sama hvað klukkan var og tókst á því með okkur. Þið Auður gáfuð okkur tækifæri til að anda þegar við þurftum rými fyrir okk- ur. Takk fyrir það, elsku Tobbi minn og Auður. Takk fyrir að kenna Markúsi á gítar og vera honum fyrirmynd. Hann átti lag sem þú söngst á ipodinum sínum og hlustaði á það aftur og aftur. Við töluðum við góðan vin okk- ar sem þú málaðir fyrir. Ég spurði hann hvað hefði staðið upp úr í samskiptum við þig meðan á verkefninu stóð. Honum var tíð- rætt um hversu mikill Skagamað- ur þú varst og mér fannst hann hitta naglann á höfuðið þegar hann sagði: „Tobbi var enginn venjulegur stuðningsmaður. Hann var ekki á hliðarlínunni – Tobbi var inná!“ Þú varst ótrú- lega öflugur í að styðja klúbbinn þinn, sama hvort gekk vel eða illa. Þú smíðaðir og málaðir heima hjá Gústa bróður Auðar. Gústi talar um hvað þú varst flinkur fagmaður hvort sem um væri að ræða að mála eða smíða, að það hafi aldrei þurft að biðja Tobba um hlutina tvisvar. Þú varst traustur maður. Það sýndir þú með umhyggju þinni fyrir Laufeyju dóttur Auðar sem þú reyndist einstaklega vel og hugsaðir um hana eins og þína eigin dóttur. Það var sérstaklega gaman að fylgjast með þér þegar við vorum saman fjölskyldurnar í fríi á Flór- ída fyrir nokkrum árum hvernig þú faðmaðir börnin þín að þér og þreyttist aldrei á að snúast í kringum þau og gefa af þér. Við tókum að okkur að elda, manstu? Þú alltaf pollrólegur, jákvæður og bjartsýnn. „Ekkert mál, vinur. Sjálfsagt mál, vinur. Hvað get ég gert fyrir þig, vinur?“ Er það nema eðlilegt að einu lýsingar- orðin sem maður fær um þig þeg- ar þú ert farinn séu þessi: Hvers manns hugljúfi, barngóður, blíð- ur og hjálpsamur? Elsku Auður, Laufey, Óttar og Elísabet. Þið hafið verið að bera þunga krossa að undanförnu og það er mikið á ykkur lagt. Tobbi lauk sinni göngu hjá okkur og er far- inn inn í ljósið allt of snemma. Við erum þakklát fyrir þann mann sem hann var og okkar hlutverk er nú að taka allt það góða sem hann gaf okkur sem vinur, faðir og eiginmaður og nota það sem styrk, verðmæta reynslu og vega- nesti í lífinu okkar og sýna þannig í verki og orðum hvað við kunnum að meta hann mikið, þannig höld- um við minningu hans best á lofti um ókomna framtíð. Eftir vetur kemur vor og eftir dimma nótt kemur vonandi nýr dagur. Takk fyrir, elsku vinur. Berglind og Heimir. Þorbergur Auðunn Viðarsson ✝ Ástkær eiginmaður minn, GUÐNI ÓLAFSSON, Hlaðhömrum 2, Mosfellsbæ, lést á hjúkrunarheimilinu Eir laugardaginn 1. október. Útförin fór fram í kyrrþey frá Lágafellskirkju þriðjudaginn 11. október. Hjartans þakkir til þeirra sem sýndu mér hlýhug, samúð og stuðning við andlát og útför hans. Sérstakar þakkir til starfsfólks 3. hæðar, norður á hjúkrunar- heimilinu Eir. Magnea Magnúsdóttir. ✝ Ástkær eiginkona mín, móðir, tengdamóðir, amma og langamma, ÁSLAUG EYÞÓRSDÓTTIR, Birkihvammi 4, Hafnarfirði, andaðist á Landspítalanum við Hringbraut miðvikudaginn 12. október. Útför fer fram frá Hafnarfjarðarkirkju miðviku- daginn 19. október kl. 13.00. Eiríkur Ágústsson, Sesselja Eiríksdóttir, Alfreð Dan Þórarinsson, Hafsteinn Eiríksson, Ágúst Þór Eiríksson, Guðbjörg Þórisdóttir, Haraldur Ragnar Ólafsson, Hafdís Jensdóttir, barnabörn og barnabarnabörn. ✝ Dóttir mín, eiginkona mín, móðir okkar, tengdamóðir og amma, KRISTRÚN HELGA M. WAAGE, Brekkubæ 21, Reykjavík, lést í faðmi fjölskyldu sinnar á 11E krabba- meinsdeild Landspítalans mánudaginn 10. október. Útför fer fram frá Árbæjarkirkju mánudaginn 17. október kl. 13.00. Jarðsett verður í Hvammskirkjugarði í Dölum daginn eftir. Eðvaldína Magney Kristjánsdóttir, Viðar G. Waage, Bjarki V. Waage, Sveinbjörg Ólafsdóttir, Smári V. Waage, María Sunna Einarsdóttir og barnabörn. ✝ Elskuleg móðir mín, tengdamóðir, amma og langamma, SÓLVEIG JÓNSDÓTTIR frá Vopnafirði, Dalbraut 27, sem lést á líknardeild Landspítala Landakoti miðvikudaginn 5. október, verður jarðsungin frá Áskirkju föstudaginn 14. október kl. 13.00. Svanhildur Sigurjónsdóttir, Hreinn Sveinsson, Sigurjón Hreinsson, Sif Melsteð, Guðmundur Hreinsson, Ragna María Ragnarsdóttir og barnabarnabörn.

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.