Morgunblaðið - 13.10.2011, Blaðsíða 37
MENNING 37
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 13. OKTÓBER 2011
Plágur hafa herjað á mann-fólkið frá örófi alda og þaðer eðlilegt að fólk hræðistþað að illlæknandi sjúk-
dómur geti lagt stóran hluta heims-
byggðarinnar í bælið og milljónir
manna fallið. Nóg er að nefna stóru
bólu, svartadauða, spænsku veikina
og mænusótt til að vekja óhug hjá
fólki því lýsingar af þessum plágum
eru skelfilegar og vel til þess fallnar
að valda hræðslu fólks við slíka
sjúkdóma. Þessi hræðsla hefur þó-
nokkrum sinnum verið handritshöf-
undum yrkisefni og yfirleitt verða
til frambærilegar spennumyndir
sem sýna ráðþrota vísindamenn
sem berja höfðinu við steininn þeg-
ar almenningur ópar og veinar í ör-
væntingu og fólk engist af kvölum
og ráðaleysi yfir fráfalli allra sem
þeir elskuðu. Contagion er ekki
þannig mynd.
Mitch Emhoff (Damon) tekur á
móti eiginkonu sinni, Beth (Palt-
row) eftir viðskiptaferð til Japans
og rúmum sólarhring síðar er hann
kominn í einangrun á sjúkrahúsi og
hefur horft á eftir eiginkonu sinni
og stjúpsyni falla fyrir sjúkdómi
sem enginn virðist vita nokkur deili
á.
Á svipuðum tíma fara sjúkdóma-
varnastofnanir að fá veður af svip-
uðum tilfellum á öðrum stöðum í
heiminum og fljótlega er útlit fyrir
að um faraldur sé að ræða. Dr. Ellis
Cheever (Fishburne) ber ábyrgð á
að komast að uppruna þessa sjúk-
dóms, sem hegðar sér á margan
hátt furðulega, og reyna að finna
leið til að hefta útbreiðslu hans og
nýtur við það aðstoðar dr. Erin Me-
ars (Winslet). Í kjölfar þessa hefst
svo atburðarás sem fylgir þessu
fólki eftir í baráttu sinni við sjúk-
dóminn sem þau tækla hvert á sinn
hátt og hver og einn þarf að heyja
sína baráttu á sínum vígvelli.
Það er erfitt að giska á hvað leik-
stjórum gengur til þegar þeir
ákveða hvaða pól þeir ætla að taka í
hverja hæð fyrir sig og í tilfelli So-
derberghs finnst mér það al-
gjörlega óskiljanlegt. Sagan hefur
eins og fyrr sagði allt til þess að
bera að verða burðarás í frábærri
spennumynd en nær að mínu mati
aldrei nægjanlega háu flugi. At-
burðarásin verður aldrei nógu hröð
og tilfinningarnar aldrei nógu öfga-
kenndar. Ef ég ber þessa mynd
saman við mína eftirlætis Soder-
bergh-mynd, Ocean’s Eleven, þá sé
ég samt hvað stílbragðið heldur sér.
Soderbergh virðist gjarnan taka sér
tíma í að byggja upp góðan upplýs-
ingagrunn og enda síðan á þrælf-
lóknu spennuatriði en það skilaði
sér ekki í þessu tilviki.
Þegar horft er á þessa kvikmynd
sem skartar þremur óskars-
verðlaunaleikurum og fleiri til-
nefndum, óskarsverðlaunaleik-
stjóra, og bæði veggspjald og stikla
lofa talsverðum hasar og átak-
anlegum dramaatriðum, verður
upplifunin svolítið í átt við það að
heyra vinnufélaga þinn í afslöpp-
uðum seinni kaffitíma tala um pest
sem gekk í sveitinni hérna um árið.
Sambíóin
Contagion
bbbnn
Leikstjóri: Steven Soderbergh. Leikarar:
Marion Cotillard, Matt Damon, Laur-
ence Fishburne, Jude Law, Gwyneth
Paltrow, Kate Winslet. Bandaríkin 2011.
106 mínútur
HJALTI STEFÁN
KRISTJÁNSSON
KVIKMYNDIR
Hasar Það er ýmislegt sem getur gerst þegar mannfólkið lendir í erfiðum aðstæðum líkt og gerist í Contagion.
Stjörnum prýtt seinna kaffi
Spænski leikarinn
Javier Bardem
staðfesti í fyrra-
kvöld að hann
hefði tekið að sér
hlutverk næsta ill-
mennis í nýjustu
myndinni um
James Bond. Játn-
ingin fór fram í
bandaríska frétta-
þættinum Nightline og sagðist leik-
arinn afar spenntur að taka að sér
hið nýja hlutverk, sérstaklega þar
sem foreldrar hans hefðu verið iðn-
ir við að horfa með honum á myndir
um njósnara hennar hátignar allt
frá því Bardem var á barnsaldri.
Sam Mendes mun leikstýra nýj-
ustu James Bond myndinni sem-
verður sú 23. í röðinni en hlutverk
aðalpersónunnar verður sem fyrr í
höndum breska leikarans Daniel
Craig.
Javier
Bardem
Bardem verð-
ur skúrkurinn
Fyrirtækið DC Entertainment
hyggst gefa út teiknimyndasögur
byggðar á Millenium-þríleik Stiegs
heitins Larssons. Kvikmyndir hafa
verið gerðar eftir bókunum þremur
í Svíþjóð og bandarísk endurgerð á
þeirri fyrstu, Menn sem hata konur,
verður frumsýnd í desember nk. en
sú heitir á ensku The Girl With The
Dragon Tattoo. DC hefur gefið út
mikinn fjölda teiknimyndasagna í
gegnum árin, m.a. um ofur-
hetjurnar Superman, Batman og
Wonder Woman. Hver skáldsagn-
anna verður gefin út sem tvær
myndasögubækur, bæði prentaðar
og í stafrænu formi. Sú fyrsta kem-
ur út á næsta ári.
Millennium-myndasögur
Hörkutól Noomi Rapace sem Lisbeth Salander í Menn sem hata konur.
MIÐASALA Á WWW.SAMBIO.IS
-ENTERTAINMENT
WEEKLY
HHHHH HHHH
- A.E.T MORGUNBLAÐIÐ
HHHHH
-FRÉTTATÍMINN, Þ.Þ.
SÝND Í ÁLFABAKKA OG
EGILSHÖLL
ÍSLENSK
TAL
SÝND Í
SÝND Í ÁLFABAKKA,
EGILSHÖLL, KRINGLUNNI
OG AKUREYRI
SÝND Í ÁLFABAKKA,
EGILSHÖLL, KRINGLUNNI
OG AKUREYRI
SÝND Í ÁLFABAKKA OG
KRINGLUNNI
- ENTERTAINMENT WEEKLY
HHHH
- CHICAGO READER
HHHH
FRÁ ÓSKARSVERÐLAUNALEIKSTJÓRANUM
STEVEN SODERBERGH KEMUR MAGNAÐUR ÞRILLER
NÆSTU SÝNINGAR Á FÖSTUDAG
SÝND Í ÁLFABAKKA
SÝND Í ÁLFABAKKA, EGILSHÖLL, KRINGLUNNI
OG AKUREYRI
SÝND Í ÁLFABAKKA, EGILSHÖLL, KRINGLUNNI,
AKUREYRI OG KEFLAVÍK
„STÓRKOSTLEG SKEMMTUN
FYRIR ALLA FJÖLSKYLDUNA.“
„KLASSÍK SEM ÞÚ VILT
SJÁ AFTUR OG AFTUR“
- J.C. SSP
HHHH
HRAFNAR,
SÓLEYJAR
MYRRA&
BYGGÐ Á SAMNEFNDRI SKÁLDSÖGU
REAL STEEL kl. 6 - 8 - 10:40 2D 12
REAL STEEL kl. 8 - 10:40 2D VIP
CONTAGON kl. 8 - 10:40 2D 12
CONTAGON kl. 5:50 2D VIP
HRAFNAR,SÓLEYJAR &MYRRA kl. 6 2D L
JOHNNY ENGLISH REBORN kl. 5:50 - 8 - 10:10 2D 7
KONUNGUR LJÓNANNA kl. 6 3D L
DRIVE kl. 8 - 10:10 2D 16
ALGJÖR SVEPPI kl. 6 2D L
CRAZY, STUPID, LOVE kl. 8:30 2D 7
HORRIBLE BOSSES kl. 10:40 2D 12
/ ÁLFABAKKA
REAL STEEL kl. 5:20 - 8 - 10:40 2D 12
CONTAGON kl. 10:40 2D 12
KONUNGUR LJÓNANNA Ísl. tal kl. 5:30 3D L
DRIVE kl. 5:30 - 8 - 10:20 2D 16
ALGJÖR SVEPPI kl. 5:30 2D L
SHARK NIGHT kl. 10:30 3D 16
CRAZY, STUPID, LOVE kl. 8 2D 7
REAL STEEL kl. 10:10 2D 12
ABDUCTION kl. 10:20 2D 12
/ EGILSHÖLL
/ KRINGLUNNI
/ KEFLAVÍK
/ AKUREYRI
/ SELFOSSI
REAL STEEL kl. 5:30 - 8 - 10:40 2D 12
CONTAGON kl. 8 - 10:20 2D 12
KONUNGUR LJÓNANNA Ísl. tal kl. 6 3D L
KONUNGUR LJÓNANNA Enskt tal kl. 8 Ótextuð 3D L
DRIVE kl. 10 2D 16
ALGJÖR SVEPPI kl. 6 2D L
REAL STEEL kl. 8 2D 12
CONTAGON kl. 10:20 2D 12
HRAFNAR,SÓLEYJAR &MYRRA kl. 8 2D L
SHARK NIGHT kl. 10:20 3D 16
KONUNGUR LJÓNANNA Ísl. tal kl. 6 3D L
ALGJÖR SVEPPI kl. 6 2D L
HUGH JACKMAN
ER FRÁBÆR
Í EINNI ÓVÆNTUSTU
MYND ÁRSINS
FRÁ FRAMLEIÐANDANUM STEVEN SPIELBERG
HANN HLÆR FRAMAN Í HÆTTUNA
FRÁ ÞEIM
SÖMU OG
FÆRÐU OKKUR
MISTER BEAN
ROWAN ATKINSON
HHH
„ ENGLISH Í GÓÐUM GÍR“
- K.I. -PRESSAN.IS
SÝND Í ÁLFABAKKA OG
AKUREYRI
Anna Bolena
donizetti
15. okt kl.17:00
í Beinni útsendingu
19. okt kl.18:00 Endurflutt
www.operubio.is
-S.S. FILMOPHILIA.COM
HHHH
-J.O. JOBLO.COM
HHHH
NÝR ÞÁTTUR Í MBL SJÓNVARPI
ALLA FIMMTUDAGA!