Morgunblaðið - 28.10.2011, Side 1
F Ö S T U D A G U R 2 8. O K T Ó B E R 2 0 1 1
Stofnað 1913 253. tölublað 99. árgangur
EINHVER DÝNAMÍK
Á MILLI HLJÓM-
SVEITARMEÐLIMA
GÆÐAMATUR
OG STEMNING
ER Í DRAUMA-
STARFINU SEM
KONDITOR
32 SÍÐNA AUKABLAÐ
UM JÓLAHLAÐBORÐ VALINN BAKARI ÁRSINS 10NÝ PLATA FRÁ REYKJAVÍK! 38
KJARADAGAR
Notaðir bílar á góðu verði.
Sérstök kjör á völdum bílum og
frábærir lánamöguleikar.
Opið til kl. 20.
Morgunblaðið/Kristinn
Gæsla Að óbreyttu mun engin þyrla sinna
sjóbjörgun utan 20 mílna eftir áramót.
Gengið verður á ríkisstjórnar-
fundi í dag frá fjármögnun vegna
leigu á björgunarþyrlu eftir ára-
mótin, að sögn heimildarmanna
Morgunblaðsins. TF Líf, þyrla
Landhelgisgæslunnar, fer þá í
klössun og ljóst að neyðarástand
gæti skapast ef ekki yrði nein þyrla
til taks yfir vetrarmánuðina.
„Það sem núna þarf að koma til
er ákvörðun ríkisstjórnarinnar um
fjárveitingu á næsta ári til að leigja
þyrlu. Undan því verður ekkert vik-
ist,“ sagði Ögmundur Jónasson inn-
anríkisráðherra. Hann segir að
fram til þessa hafi ekki borist nógu
hagstæð leigutilboð. »2
Hyggjast samþykkja
leigu á björgunar-
þyrlu í stað TF Líf
Góð afkoma
» Afkoman er almennt góð, að
sögn Adolfs Guðmundssonar,
formanns LÍÚ.
» Verð er hátt á flestum afurð-
um. Heildarafli hefði aukist í
fyrra og ljóst að tekist hefði að
byggja upp þorskstofnana.
» En hann sagði að forsætis-
ráðherra væri í „heilögu stríði“
við atvinnugreinina.
Hjörtur J. Guðmundsson
hjorturjg@mbl.is
Verði frumvarp ríkisstjórnarinnar
um breytt fiskveiðistjórnunarkerfi að
lögum óbreytt mun það hafa í för með
sér neikvæð áhrif á sjóðstreymi í
sjávarútveginum upp á 320 milljarða
króna næstu 15 árin. Þetta kom með-
al annars fram í erindi Þorvarðar
Gunnarssonar, framkvæmdastjóra
endurskoðunarfyrirtækisins Delo-
itte, á aðalfundi Landssambands ís-
lenskra útvegsmanna (LÍÚ) sem
hófst í gær, þar sem hann greindi frá
niðurstöðum úr nýrri viðamikilli
skýrslu sem fyrirtækið hefur unnið
fyrir LÍÚum áhrif frumvarps stjórn-
valda á starfandi sjávarútvegsfyrir-
tæki.
Þorvarður sagði að ef núverandi
fiskveiðistjórnunarkerfi yrði áfram
við lýði yrði sjóðstreymið í sjávarút-
vegi jákvætt um 150 milljarða á tíma-
bilinu samkvæmt sjóðstreymisspá
Deloitte sem þýddi að fyrirtæki innan
hans gætu vel staðið undir skuldbind-
ingum sínum, en yrði hins vegar nei-
kvætt um 170 milljarða næði frum-
varp ríkisstjórnarinnar fram að
ganga. Ljóst væri að frumvarpið
hefði stórskaðleg áhrif á sjávarútveg-
inn.
Þá kom ennfremur meðal annars
fram í máli Þorvarðar að sjávarútveg-
urinn væri sú atvinnustarfsemi hér á
landi sem notið hefði langminnstra
afskrifta af hendi þriggja stærstu
bankanna á árunum 2009 og 2010.
MLeiddi til fjöldagjaldþrots »6
320 milljarðar í mínus
Frumvarp ríkisstjórnarinnar um breytta fiskveiðistjórnun hefði neikvæð áhrif á
sjóðstreymi í sjávarútveginum upp á 320 milljarða króna á næstu fimmtán árum
Frumvarp Slæm áhrif á útveginn.
Nóbelsverðlaunahafinn og hagfræðiprófessorinn Paul
Krugman sagði örðugt að sjá hvernig upptaka evr-
unnar hefði átt að bjarga einhverju í kjölfar krepp-
unnar en Íslendingar hefðu notið sveigjanleika krón-
unnar við að endurreisa íslenskt efnahagslíf. Krugman
var einn ræðumanna á ráðstefnu stjórnvalda og Al-
þjóðgjaldeyrissjóðins í Hörpu en þar var fjallað um
hvaða lærdóm megi draga af efnahagskreppunni og
verkefnin framundan. Willem Buiter, aðalhagfræðing-
ur Citigroup, hvetur hins vegar Íslendinga til að taka
upp evruna á meðan Martin Wolf, aðalhagfræðingur
Financial Times, tekur undir með Krugman og hvetur
Íslendinga til að hugsa vandlega um evruna. „Ef þið
farið á evrusvæðið eruð þið að ganga í Þýskaland.“
Joseph Stiglitz, prófessor við Columbia-háskóla,
kom hins vegar inn á niðurskurð stjórnvalda í kjölfar
hruns og taldi hann óþarflega mikinn. Ísland hafi hins
vegar gert rétt í Icesave-málum.
Ræðumenn komu einnig inn á gjaldeyrishöft og voru
á öndverðum meiði um gildi þeirra. sigrunrosa@mbl.is
Evran hefði ekki bjargað
Ísland fór rétt að við lausn Icesave, segir Stiglitz
Bleika slaufan var í aðalhlutverki á skemmtun
Krabbameinsfélagsins sem bar nafnið Bleika
konukvöldið og var haldin í Hörpu í gærkvöldi,
hér rammar bleikur, slaufulagaður ís inn andlit-
ið á einum þátttakandanum. Fjöldi landsþekktra
listamanna kom fram á skemmtuninni.
Ísköld og bleik slaufa í Hörpu
Morgunblaðið/Kristinn
Steinþór Páls-
son, bankastjóri
Landsbankans,
skaut föstum
skotum á stjórn-
málamenn í er-
indi sínu á aðal-
fundi LÍÚ í gær
og sagði hann
óeðlilegt að ríkið
ætti mikinn
meirihluta í bankanum. Eignarhlut-
inn ætti ekki að vera meira en
u.þ.b. þriðjungur en ríkið á nú 87%
hlut.
Við þessar aðstæður væri alltaf
hætta á að stjórnmálamenn færu að
skipta sér með óeðlilegum hætti af
rekstrinum. Í ljósi atburða síðustu
vikur vissi hann ekki hvenær hann
gæti fengið furðuleg bréf og vísaði
þar til afskipta stjórnmálamanna af
Bankasýslu ríkisins undanfarnar
vikur. »6
Gæti fengið send
„furðuleg bréf“
Steinþór Pálsson