Morgunblaðið - 28.10.2011, Page 10
10 DAGLEGT LÍF
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 28. OKTÓBER 2011
Ylfa Kristín K. Árnadóttir
ylfa@mbl.is
A
xel segist hafa haft
áhuga á bakaraiðninni
frá því hann var lítill.
„Móðir mín er bakari
og þannig vaknaði
áhuginn hjá mér,“ segir hann.
Sumarið eftir 9. bekk grunnskólans
byrjaði hann að vinna í bakaríi og
um leið og hann kláraði 10. bekk
fór hann á nemasamning í Köku-
horninu. Þá um haustið hóf hann
bakaranám í Menntaskólanum í
Kópavogi og að því loknu byrjaði
hann sem konditornemi í Mosfells-
bakaríi.
Dró skemmtilegt verkefni
Hann var búinn að starfa þar í
eitt ár þegar hann hóf konditornám
í ZBC (Zealand Business College) í
Ringsted í Danmörku. „Ég fékk
bakaranámið metið og þurfti ekki
að taka grunndeildina aftur. Ég
þurfti því aðeins að fara út í tvisvar
sinnum fjórar vikur og tvisvar
sinnum fimm vikur. Ég byrjaði í
ágúst í fyrra, tók þá fyrri helming-
inn, svo fór ég í fimm vikur í febr-
úar og seinustu fimm vikurnar tók
ég núna í september. Þá var ég í
sveinsprófsbekknum og honum
lauk með sveinsprófinu,“ segir Ax-
el en hann var hæstur bekkjar-
félaga sinna á sveinsprófinu. „Það
var svolítið skemmtilegt. Ég er
ekki enn búinn að átta mig á þessu
en þetta var mjög gaman. Viku fyr-
ir sveinspróf er dregið um verkefni
og ég dró mjög skemmtilegt verk-
efni,“ segir Axel en honum var falið
að gera deserta, tertur, borðskraut
og kransaköku.
Hann segir að vikan fyrir
sveinsprófið hafi verið mjög stress-
andi. „Þá þarf að fara að raða sam-
an uppskriftum, reikna saman og
æfa sig og gera möppu fyrir dóm-
arana. Það er mikið verið að pæla
og breyta. Meistarinn minn, Hafliði
Ragnarsson, lánaði mér form og
Í draumastarfinu
sem konditor
Strax sem ungur drengur vissi Axel Þorsteinsson hvað hann ætlaði að verða þegar
hann yrði stór. Hann ætlaði að verða bakari. Nú aðeins 22 ára að aldri hefur
hann lokið sveinsprófi í konditor, með hæstu einkunnina í bekknum sínum, og
bar í september sigur úr býtum í keppninni um bakara ársins 2011.
Morgunblaðið/Kristinn
Konditor Eins og gefur að skilja er Axel stoltur af titlinum bakari ársins.
Nú þegar hrekkjavakan ógurlega
gengur í garð er ekki úr vegi að glápa
á nokkrar hryllingsmyndir til að koma
sér í réttu stemninguna. Á ofan-
greindri vefsíðu eru taldar upp þær
hryllingsmyndir sem tróna í tuttugu
efstu sætunum á vinsældalistanum.
Þar kennir ýmissa grasa og greinilegt
að þessar gömlu góðu klikka ekki. Til
dæmis trónir hin sígilda The Rocky
Horror Picture Show efst á listanum,
en eins og allir vita er þar á ferð bráð-
skemmtileg hryllingsópera, mynd
sem öll fjölskyldan getur skemmt sér
vel yfir. Þetta er úrvalsmynd til að
bjóða fólki heim að sjá og hafa þema
tengt myndinni þannig að fólk getur
komið í búningum sem minna á klæði
persóna myndarinnar. Aðrar myndir á
listanum eru dimmari, t.d. The Shin-
ing eftir meistarann Stanley Kubrick,
The Silence of the Lambs, Poltergeist
og A Nightmare on Elm Street.
Vefsíðan www.rd.com/family/top-20-scary-halloween-movies
Vinsælustu hryllingsmyndirnar
Núna um helgina verður Uppvakn-
ingahátíð í Bíó Paradís. Sýndar verða
sex kvikmyndir sem kljást við upp-
vakninga (eða zombíur) á einn eða
annan hátt. Í myndavali var áhersla
lögð á lítt þekktar perlur sem flokk-
ast undir uppvakningakvikmyndir og
þá fyrst og fremst eldri myndir, sem
og sjaldséð eða gleymd meistara-
stykki. Má þar nefna Night of the Liv-
ing Dead, frá árinu 1968 og White
Zombie frá 1932. Hryllingssveitin
Malneirophrenia mun standa fyrir
kvikmyndatónleikum í bíóinu laugar-
dagskvöldið kl. 20. Radio Karlsson
mun leika á undan Malneirophreniu.
Endilega …
… kíkið á Upp-
vakningahátíð
Horror Night of the Living Dead.
Á tískuvikunni í Jóhann-
esarborg á dögunum mátti
sjá skrautlega klædd módel
í fatnaði úr smiðju Thula
Sindi. Sindi er ungur suður-
afrískur hönnuður sem nýlega landaði
stórum samningi við tískuvöruversl-
unina Edgars. Svo virðist sem vefn-
aðariðnaðurinn í Suður-Afríku
geti nú tekið við sér á nýjan
leik því afríski tískumark-
aðurinn sækist nú
frekar eftir efnum
sem búin eru til
í heimaland-
inu. Þetta
var í áttunda
sinn sem
tískuvikan í
Jóhann-
esarborg var haldin
og var þar mikið um glamúr
og glans.
Á sama tíma var tísku-
vikan í Moskvu í fullum
gangi. Vikan er sú
stærsta í Austur-
Evrópu og hefur
Mercedes Benz nú gert
samning um að vera
styrktaraðili tískuvik-
unnar næstu þrjú árin.
Þar gaf að líta nýjasta nýtt
frá rússneskum hönnuðum
að stærstum hluta en einnig
breskum og spænskum.
Tískuvikur
Glamúr, glans og litagleði
á tískusýningapöllunum
Reuters
Litríkt Hönnun frá suður-afríska hönnuðinum Thula Sindi.
Smart Þessi er eins og fínasta Parísardama í þessu
skemmtilega setti af jakka og pilsi.
Ný vídd Hönnun
rússneska hönn-
unarteymisins
Labratoriya 13 er
heldur óvenjuleg.
Skannaðu kóðann
til að fara inn á
vefsíðuna.