Morgunblaðið - 28.10.2011, Blaðsíða 15

Morgunblaðið - 28.10.2011, Blaðsíða 15
Rek stra rleig a Opið alla virka daga frá 10 - 18 www.benni.is Tækifæri til að hagræða í rekstri fyrirtækisins ! Hafðu samband við ráðgjafa okkar í síma 590 2000 Bílabúð Benna - Tangarhöfða 8-12 Reykjavík - sími 590 2000 Sérfræðingar í bílum Fyrir tæki færi! Bílabúð Benna býður fyrirtækjum sem hafa hug á að yngja upp og hagræða í bílaflota sínum, breiða línu af Chevrolet, til rekstrarleigu. Um er að ræða rekstrarleigu á Chevrolet bílum í 12-24 eða 36 mánuði. • Minni fjármagnsbinding fyrir fyrirtæki • Engin endursöluáhætta • Þjónustueftirlit og smurþjónusta innifalin • Leigugreiðslur að fullu gjaldfærðar í bókhaldi • Bifreiðar hvorki eignfærðar né afskrifaðar • Bifreiðar fáanlegar vsk. breyttar Bensín Metan Dísel Fáanlegir: MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 28. OKTÓBER 2011 Opinber gjöld sem lögð eru á félög og aðra lögaðila á þessu ári nema 104,6 milljörðum króna samkvæmt frétt frá ríkisskattstjóra. Í fyrra nam sambærileg álagning 78,4 milljörð- um. Hækkun álagningarinnar er því 33,4%. Þessu til viðbótar kemur til fyrirframgreiðslu á þessu ári viðbót á sérstakan skatt á fjármálafyrir- tæki vegna álagningar á árinu 2012 og nemur hann tæplega 2,1 milljarði króna. Alls sættu 11.686 lögaðilar áætlun eða 32,02% af skattgrunnskrá. Til samanburðar sætti 12.461 lögaðili áætlun á síðasta ári eða 35,10% af skattgrunnskrá. Fjöldi lögaðila á skattgrunnskrá á landinu öllu er 36.499, samkvæmt frétt ríkisskatt- stjóra. Endurgreiðslur vegna rannsókn- ar- og þróunarkostnaðar nýsköpun- arfyrirtækja koma nú í fyrsta skipti til framkvæmda og nema samtals 485.550.220 kr. Á vef ríkisskattstjóra er birtur listi yfir 50 gjaldahæstu lögaðilana 2011. Samkvæmt honum greiðir rík- issjóður Íslands rúmlega 9,5 millj- arða. Næst kemur GLB Holding, sem fer með eignarhald dótturfélaga Glitnis, með 4,7 milljarða. Þá Arion banki hf. með tæplega 4,1 milljarð, Reykjavíkurborg með 2,6 milljarða, NBI hf. (Nýi Landsbankinn), 2,3 milljarða, Eignasafn Seðlabanka Ís- lands ehf. 2,1 milljarð, Alcan á Ís- landi hf. 2,05 milljarða, Norðurál með 1,6 milljarða og Samherji með tæplega 1,1 milljarð. Lögaðilar borga 104,6 milljarða  Álagningin óx um 33,4% á milli ára Morgunblaðið/Golli Ríkissjóður Hæsti gjaldandinn er ríkissjóður með yfir 9,5 milljarða. Ólafur Bernódusson Skagaströnd Herra Jón Aðalsteinn Baldvins- son, vígslubiskup á Hólum, pre- dikaði í hátíðamessu í Hóla- neskirkju á Skagaströnd, sem haldin var 23. október til að minnast 20 ára vígsluafmælis kirkjunnar. Tveir fyrrverandi sóknarprestar Hólanesskirkju þeir Ægir Sigurgeirsson og Magnús Magnússon þjónuðu fyrir altari ásamt sóknarprestinum Úr- súlu Árnadóttur. Kirkjukór Hóla- neskirkju söng við athöfnina und- ir stjórn organistans Hugrúnar Hallgrímsdóttur og tvær ung- lingsstúlkur spiluðu forspil og eft- irspil með henni á píanó og saxó- fón. Að þessari fjölsóttu messu lok- inni var gestum boðið til kaffi- samsætis í félagsheimilinu þar sem fram fór tónlistarflutningur og nokkur ávörp voru flutt. For- maður sóknarnefndar, Lárus Æg- ir Guðmundsson, rakti sögu kirkjuhalds á Skagaströnd í stuttu máli og byggingarsögu þeirrar kirkju sem varð 20 ára þennan dag. Bygging kirkjunnar tók 12 ár, frá 1979-1991, enda dýrt mannvirki á sinni tíð fyrir lítinn söfnuð. Nefndi Lárus, sem dæmi um hvernig allir hefðu lagst á eitt við bygginguna, að sjómenn og útgerðarmenn gáfu í nokkur ár eins dags rækjuafla sinn til kirkj- unnar. Landverkafólkið vann síð- an rækjuna í sjálfboðavinnu þann- ig að allur ágóði af afurðum þessara daga rann óskiptur til kirkjunnar. Sama gerðu aðrir sjó- menn og fólk í frystihúsinu með fiskafla eins dags á ári. Hólaneskirkja er fallegt hús með sérstaklega góðan hljóm- burð. Þess vegna er hún vinsæl meðal tónlistarmanna og kóra til tónleikahalds og annarrar menn- ingarstarfsemi. Segja má að hjarta samfélagsins slái í kirkj- unni – ekki aðeins í trúarlegum skilningi heldur einnig í ýmsu öðru sem fegrar og göfgar mann- lífið á litlum stað eins og Skaga- strönd. Morgunblaðið/Ólafur Bernódusson Hólaneskirkja 20 ára vígsluafmælis kirkjunnar var minnst 23. október. Göfgar mannlífið á Skagaströnd  20 ára afmæli Hólaneskirkju

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.