Morgunblaðið - 28.10.2011, Blaðsíða 35

Morgunblaðið - 28.10.2011, Blaðsíða 35
DAGBÓK 35 MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 28. OKTÓBER 2011 Grettir Smáfólk Hrólfur hræðilegi Gæsamamma og Grímur Úthverfið Kóngulóarmaðurinn Ferdinand MIKIÐ ERTU FALLEG Í DAG TAKK FYRIR ÞAÐ, ÞÚ ERT EKKI SVO SLÆMUR SJÁLFUR ÉG VEIT OG ÞARFÓR RÓMANTÍKIN VIÐ ÆTLUM Í DÝRA- GARÐINN FRÁBÆRT SKEMMTIÐ YKKUR VEL! ÉG HEF EKKI FARIÐ Í DÝRAGARÐINN SÍÐAN ÉG FÓR Í HÓPFERÐ MEÐ BEKKNUM HÉRNA UM ÁRIÐ SVO ÞURFTUM VIÐ AÐ SKRIFA RITGERÐ UM FERÐINA, EN MÉR TÓKST EKKI AÐ KLÁRA MÍNA ÉG VAR EINI KRAKKINN SEM FÉLL Á ÞVÍ AÐ FARA Í DÝRAGARÐINN VILTU VINSAMLEGAST HÆTTA AÐ RAULA „HAFIÐ BLÁA HAFIД?! ÉG FINN EKKERT HÉRNA UM ÞAÐ HVERNIG EIGI AÐ LÆKNA KVEF, ÉG HELD AÐ VIÐ ÞURFUM BARA AÐ LÓGA HONUM VELKOMIN Í MÓTORHJÓLAKENNSLU AÐ ÞESSU NÁMSKEIÐI LOKNU MUNIÐ ÞIÐ HAFA LÆRT AÐ AKA MÓTORHJÓLI EÐA VESPU AF FULLU ÖRYGGI SPURNINGAR? EKKI GÆTI ÉG FENGIÐ ÞIG TIL ÞESS AÐ SANNFÆRA KONUNA MÍNA UM ÞAÐ? ER EKKI EITTHVAÐ SEM ÞIG LANGAR AÐ SEGJA MÉR? ÞRJÚ LÍTIL ORÐ JÚ, „ÞÚ KÆFIR MIG” VÁ, KONAN MÍN ER FRÁBÆR LEIKKONA ÞÁ ER KOMIÐ AÐ MÉR AÐ STÍGA Á SVIÐ! Barnabæk- ur óskast Ég er að leita að tveimur barnabókum sem voru til á heimili foreldra minna. Þetta eru bækurnar Prins- essan sem átti 365 kjóla og Litla nornin Nanna. Þessar bækur voru í meðalstóru broti með ákaflega fallegum myndskreyt- ingum. Ef einhver á þessar bækur í fórum sínum og er til í að láta þær frá sér, þá vil ég gjarnan fá símtal. Síminn hjá mér er 472-1144 / 869- 7356. Hugleiðingar Í grein í Morgunblaðinu 14. okt sl. var talað um „andakt“ vegna Kárahnjúka. Hvað er andakt? Ég hélt að í helgistund færi fram lofgjörð fyr- ir landið góða, ákall og beiðni um slysalausar framkvæmdir. Nóg um það. Hvergerð- ingar voru óttaslegnir hérna á dögunum. Jarðskjálftar af mannavöldum. Er það nema von? Guð á höf- undarréttinn! Það er einlæg ósk mín að allt fari vel. Auðmýkt gagnvart skaparanum sakar ekki. María Eiríksdóttir. Ást er… … að fá aldrei nóg af litlu gjöfunum hans. Velvakandi Svarað í síma 5691100 frá 10–12 velvakandi@mbl.is Félagsstarfeldriborgara Aflagrandi 40 | Vinnustofa kl. 9, bingó kl. 13.30. Árskógar 4 | Smíði/útskurður kl. 9. Bingó kl. 13.30. Boðinn | Vetrarfagnaður kl. 14. Bræð- urnir Guðni og Steini spila á harmonikku og sög, Sigurður bætist í hópinn. Stefán H. Stefánsson syngur nokkur lög. Kaffi- hlaðborð. Bólstaðarhlíð 43 | Kertanámskeið/ handavinna kl. 9, söngstund kl. 13. Dalbraut 18-20 | Söngstund kl. 14. Dalbraut 27 | Handavinna kl. 8. Lestur úr dagblöðum kl. 10. Upplestur í handa- vinnustofu kl. 14. Listamaður mánaðar- ins. Félag eldri borgara í Kópavogi | Bók- menntakynning í Gullsmára 13 1. nóv. kl. 20. Kjartan Ragnarsson leikstjóri segir frá leikgerð sinni á Heimsljósi Halldórs Laxness sem frumsýnt verður í desem- ber. Félagsvist í Gullsmára mán. kl. 20, Gjábakka mið. kl. 13, fös. kl. 20. Félag eldri borgara, Reykjavík | Leik- félagið Snúður og Snælda, æfing kl. 9. Námskeið/Egilssaga kl. 13. Dansleikur sun. kl. 20, Klassík leikur. Félagsheimilið Gjábakki | Botsía kl. 9.15, málm/silfursmíði kl. 9.30/13, jóga kl. 10.50, félagsvist kl. 20. Félagsheimilið Gullsmára 13 | Vefn- aður kl. 9, jóga kl. 9.30, ganga kl. 10. Leikfimi kl. 10.30, Gleðigjafarnir kl. 14. Félagsstarf eldri borgara, Garðabæ | Vatnsleikfimi kl. 9/11, félagsvist/leður- saumur kl. 13. Leikhúsferð á Listaverkið 3. nóv. kl. 19.30, verð kr. 3600, pantað í s. 5511200, fráteknir miðar fyrir eldri borgara í Gbæ, bíll frá Jónshúsi og G.torgi kr. 500, seldir í Jónshúsi. Síðasti dagur í dag til að panta leikhúsmiða. Félagsstarf eldri bæjarbúa Seltjarn- arnesi | Kaffispjall í krók kl. 10.30. Spil- að í krók kl. 13.30. Syngjum saman kl. 14.00. Jóga fellur niður í dag. Félagsstarf Gerðubergi | Vinnustofur kl. 9. Prjónakaffi kl. 10. Stafganga/létt ganga um nágrennið kl. 10.30. Frá hád. spilasalur opinn. Kóræfing fellur niður. Miðvikud. 2. nóv. kl. 15 fundur v/ Fagrabergs. Hraunbær 105 | Handavinna kl. 9. Hraunsel | Tréskurður kl. 10, leikfimi Bjarkarhúsi kl. 11.30, brids kl. 13. Hvassaleiti 56-58 | Jóga kl. 9/10. Vinnustofa kl. 9 án leiðbeinanda. Uppselt á sviðaveisluna kl. 18 í kvöld. Hæðargarður 31 | Við Hringborðið kl. 8.50, gönuhlaup/thaichi kl. 9, myndlist kl. 13, gáfumannakaffi kl. 15. Hæð- argarðsbíó kl. 16. Myndlistarsýning Kristjönu Þórðardóttur opnuð 2. nóv kl. 14. Íþróttafélagið Glóð | Byrjenda- námskeið í pilates hefst 2. nóv. og nýtt byrjendanámsk. í zumba 4. nóv. Langahlíð 3, félagsmiðstöð | Blaða- klúbbur kl. 10.30, vist/brids kl. 13, bingó aðra hverja viku kl. 13.30, kaffiveitingar kl. 14.30. Norðurbrún 1 | Myndlist/útskurður kl. 9. Bingó kl. 13.30. Vesturgata 7 | Kaffi/dagblöð kl. 9, enska kl. 10.15, tölvukennsla kl. 12.30, sungið v/flygil kl. 13.30, tölvukennsla frk. kl. 14.15, dans í aðalsal kl. 14.30. Vesturgata 7 | Enska kl. 10.15. Hádeg- isverður kl. 11.30, sungið v/flygil kl. 13.30. Dansað kl. 14.30. Veislukaffi. Vitatorg, félagsmiðstöð | Smiðja kl. 8.30, leirmótun og handav. kl. 9, morg- unst. kl. 9.30, leikfimi kl. 10.15, bingó kl. 13.30. Þórðarsveigur 3 | Bingó kl. 13.30. Góðkunningi Vísnahornsins Pét-ur Stefánsson hefur sent frá sér bókina Góðir siðir með heil- ræðavísum og skemmtilegum sög- um í vísnaformi. „Þessi bók hefur uppeldislegt gildi fyrir börn á öll- um aldri, hún tekur á einelti, hjálp- semi, góðvild, vinskap og virð- ingu.“ Þar á meðal er vísan: Svo skal aldrei leggjast lágt að ljúga, svíkja, stela. Berðu ætíð höfuð hátt svo hafir ei neitt að fela. Nú þegar barnavísnabókin er komin út varð Pétri að orði: Þyrnum stráður þykir mér þessi ljóðavegur. Í kveðskapnum ég orðinn er ósköp barnalegur. Þrír úrvalshagyrðingar tróðu upp í Grindavík á laugardagskvöld. Fyrir mótið voru þeir beðnir að senda mynd af sér til að hægt væri að kynna þá. Friðrik Stein- grímsson orti er hann sá myndina af Sigrúnu Haraldsdóttur (sem finna má á http://grindavik.is/ v/8101): Fetar nú Sigrún í forsetans spor í ferlegu reiðtúra skaki, nábleik í framan með nefrennsl’ og hor og nýlega dottin af baki. Jón Ingvar orti í þessu föruneyti: Ýmislegt ég læt mig hafa, mér líður á þessu uppistandi sem væri ég með ömmu og afa í æsku minni á Norðurlandi. Sigrún svaraði: Spé þér sposkur temur, spaug ert fram að bera, feyskinn virðist fremur, faðir okkar vera. Pétur Blöndal pebl@mbl.is Vísnahorn Af börnum og góðum siðum - nýr auglýsingamiðill  569-1100finnur@mbl.is

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.