Morgunblaðið - 28.10.2011, Page 39
MENNING 39
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 28. OKTÓBER 2011
Harpa kynnir nýja tónleikaröð sem nefnist Undiraldan í samstarfi við 12
tóna. Tónleikarnir verða í Kaldalóni tvisvar í mánuði. Fyrstu tónleikarnir í
röðinni verða á morgun kl. 17.30 en fyrsta hljómsveitartvennan til að stíga
á svið eru Sykur og Just Another Snake Cult. Allir eru velkomnir og að-
gangur ókeypis. Tónleikaröðin er sett fram í því skyni að kynna grasrótina
í íslenskri tónlistarmenningu og veita ungum og upprennandi hljóm-
sveitum/listamönnum tækifæri til að spila í Hörpu og leyfa almenningi að
fylgjast með þeirri grósku sem á sér stað í íslensku tónlistarlífi.
Ný tónleikaröð í Hörpu
Í Undiröldu Hljómsveitin Sykur kemur fram á morgun í Kaldalóni.
Skapti Hallgrímsson
skapti@mbl.is
Farið verður í gegnum Íslandssög-
una, allt frá Hrafna-Flóka til nú-
tímans, á sviði Samkomuhússins á
Akureyri í kvöld. Þar frumsýnir
hljómsveitin Hundur í óskilum eigið
leikverk, Sögu þjóðar. Samkomuna
kalla Eiríkur G. Stephensen og
Hjörleifur Hjartarson sjóntónleika.
Benedikt Erlingsson leikstýrir
Hundinum í þessu spennandi verki.
Félagarnir unnu undir stjórn Bene-
dikts á síðasta leikári, þegar þeir
sömdu og fluttu músík í Íslands-
klukkunni í Þjóðleikhúsinu og hlutu
Grímuna að launum. Morgunblaðið
hitti þremenninganna í gær.
– Tónleikar Hunds í óskilum hafa
gjarnan verið hálfgert uppistand,
ekki satt?
„Þeir þróuðust í þá átt að verða
einhvers konar sirkus. Þetta var því
spurning um að stíga skrefið alveg
yfir í leikhúsið,“ segir Hjörleifur.
Eiríkur kveður hugmyndina gamla,
en í vor hafi þeir látið til skarar
skríða. „Við höfðum samband við
Maríu [Sigurðardóttur] leik-
hússtjóra og spurðum hvort hún
hefði áhuga á samstarfi. Hún tók
okkur mjög vel.“
– Í kynningu segist þið fara á
hundavaði í gegnum Íslandssöguna.
Nema hvað!
„Og sýningin hét upphaflega Ís-
lenski fjárhundurinn – Saga þjóðar,
en fjárhundurinn var eiginlega bara
til vandræða svo við hentum honum
út á síðustu stundu,“ segir Eiríkur.
– Miðað við það sem þið hafið
gert áður reikna ég með að verkið
sé á léttu nótunum. Er það rétt?
„Þetta er skemmtun, en við erum
líka með boðskap. Við vonumst til
þess að fólk fari út í góðu skapi,“
segir Eiríkur og Benedikt leikstjóri
skýtur inní: „Miðað við það sem
þeir hafa gert hingað til er þetta í
alvarlegri kantinum.“
– Var eitthvað í Íslandssögunni
sem kom ykkur á óvart?
„Vinnan staðfesti grun okkar um
að hér hafa orðið mörg hrun og
góðærin hafa líka verið mörg,“ seg-
ir Hjörleifur. Benedikt bætir við að
skemmtilegt hafi verið að fara í
gegnum söguna og rifja upp ýmsa
hluti, „eins og fjárkláðamálin. Eftir
á spyr maður hvort það skipti máli,
að lækna eða skera; samt klauf
þetta þjóðina í tvennt. Þjóðin týnir
sér alltaf í einhverjum fjár-
kláða …“
– Má ekki segja að efnahags-
hrunið hafi verið einhvers konar
fjárkláði?
„Jú, en Icesave var bara eins og
desílítramál miðað við fjárkláða-
málin, eins og Hjörleifur orðar
það,“ segir leikstjórinn og Hjörleif-
ur botnar: „Sagan snýst dálítið um
fé. Það byrjar með því að Hrafna-
Fólki verður gjaldþrota fyrsta vet-
urinn sinn á Íslandi, og síðan höfum
við verið að endurtaka það í mis-
munandi útgáfum.“
Þeir hafa grúskað mikið í sögu
þjóðarinnar, eins og nærri má geta.
„Það hefur verið mjög gaman og ég
held að þetta geti líka verið góð
upprifjun og skemmtileg fyrir
áhorfendur. Við höfum talað um að
stundum gleymist í listsköpun að
fræða með skemmtun. Nú fræðum
við okkur og aðra og gerum það
með mikilli glaðværð,“ segir Hjör-
leifur.
Leikstjórinn, sá kunni sagnamað-
ur, segist öfunda samstarfsmenn
sína af því hve þeir eru skemmti-
legir tónlistarmenn. „Tónlistin og
ljóðið opnar einhverja glugga, veita
djúpa innsýn; þeir segja ekki bara
sögur heldur fljúga allt í einu á
vængjum ljóðs og lags inn á þessi
sögusvið.“
– Hvað getur áhorfandinn lært af
Sögu þjóðar?
„Til dæmis það að það verður aft-
ur hrun og aftur koma góðæri og
hallæri og farsóttir,“ segir Hjörleif-
ur. Eiríkur kinkar kolli.
„Framtíðin er björt; full af hall-
ærum og góðærum,“ segir Bene-
dikt. „Upprifjun á sagnfræði er
kannski alltaf dulbúin aðferð til
þess að horfa fram í tímann; við
þurfum að vita hvaðan við komum
og hvar við erum til að vita hvaða
kúrs við tökum. Við erum að búa
áhorfendur undir komandi hallæri
og góðæri. Bólusetja fólk fyrir
áföllum framtíðarinnar!“
Farið yfir sögu þjóðar á hundavaði
Hundur í óskilum frumflytur frumsamið verk Fræða sjálfa sig og aðra með mikilli glaðværð
Morgunblaðið/Skapti Hallgrímsson
Saga þjóðar Hjörleifur Hjartarson, til vinstri, og Eiríkur G. Stephensen semja og flytja Sögu þjóðar í tali og tónlist.
Leikstjórinn Benedikt Erlingsson lýsir leiðina frá því fyrstu menn tóku sér bólfestu á Íslandi, til dagsins í dag.
LAUGARÁSBÍÓ Sýningartímar
ÆVINTÝRI TINNA 3D Sýnd kl. 5 (950 kr.) - 8
ÆVINTÝRI TINNA 2D Sýnd kl. 5 (700 kr.)
BORGRÍKI Sýnd kl. 6 - 8 - 10:15
THE THING Sýnd kl. 8 - 10:15
ÞÓR 2D ÍSL TAL Sýnd kl. 4 (750 kr.)
KILLER ELITE Sýnd kl. 10:15
NÝ ÍSLENSK SPENNUMYND
Í ANDA STIEG LARSSON MYNDANNA
HVERSU
LANGT MYNDIR
ÞÚ GANGA FYRIR ÞANN
SEM ÞÚ ELSKAR?
HHHH
ÞÞ. FRÉTTATÍMINN
HHHH
KHK. MBL
HHH
AK. DV
-bara lúxus sími 553 2075
Miðasala og nánari upplýsingar
www.laugarasbio.is
Þú færð 5% endurgreitt í Laugarásbíó ef þú
greiðir með kreditkorti tengdu Aukakrónum
„TIL HAMINGJU
ÍSLAND“
- H.S.S., MBL
HHHHH
15.000
MANNS
Á AÐEINS
11 DÖGUM!
HHHH
- R.E., FBL Tilboð í bíó GILDIR Á ALLAR SÝNINGARMERKT R MEÐ RAUÐU
TINNI, TOBBI OG KOLBEINNKAFTEINN,
DÁÐUSTU HETJUR
ALLRA TÍMA LIFNA
VIÐ Í FLOTTUSTU
ÆVINTÝRAMYND
SÍÐARI ÁRA.
FRÁ STEVEN SPIELBERG OG PETER JACKSON
„GÓÐUR HASAR OG FRÁBÆR HÚMOR,
SJÁÐU HANA UNDIR EINS!”
-T.V. -KVIKMYNDIR.IS/SÉÐ OG HEYRT
HHHH
B.G. -MBL
HHHH
FRÁ STEVEN SPIELBERG
OG PETER JACKSON
SMÁRABÍÓ HÁSKÓLABÍÓ
BORGARBÍÓ
5%NÁNAR Á MIÐI.IS
NÁNAR Á MIÐI.IS
GLERAUGU SELD SÉR 5%
K.H.K. - MBLA.K. - DV
-K.G., DV
Þ.Þ. - FRÉTTATÍMINN
“TIL HAMINGJU, ÍSLAND”
-Þ.Þ., FT
ÆVINTÝRI TINNA 3D KL. 6 - 8 - 10 7
THE THING KL. 10 16
ÞÓR 2D KL. 6 L
BORGRÍKI KL. 8 14
-H.S.S., MBL
ÆVINTÝRI TINNA 3D KL. 5.40 - 8 - 10.20 7
HEADHUNTERS KL. 8 16
ÞÓR 3D ÍSLENSKT TAL KL. 5.50 L
BORGRÍKI KL. 10.15 14
MIDNIHGT IN PARIS KL. 5.50 - 8 L
WHAT´S YOUR NUMBER KL. 10.10 12
ELDFJALL KL. 5.45 - 8 - 10.15 L
ÆVINTÝRI TINNA 3D KL. 3.20 - 5.40 - 8 - 10.20 7
ÆVINTÝRI TINNA 3D LÚXUS KL. 3.20 - 5.40 - 8 - 10.20 7
ÆVINTÝRI TINNA 2D KL. 3.20 - 5.40 - 8 - 10.20 7
HEADHUNTERS KL. 5.45 - 8 - 10.15 16
ÞÓR 3D ÍSLENSKT TAL KL. 3.40 - 5.50 L
ÞÓR 2D ÍSLENSKT TAL KL. 3.40 L
BORGRÍKI KL. 8 - 10 14
VARIETY 90/100 - BOXOFFICE MAGAZINE 90/100 - ROTTEN TOMATOES 89%
“GÓÐUR HASAR OG FRÁBÆR HÚMOR,
SJÁÐU HANA UNDIR EINS!”
- TÓMAS VALGEIRSSON, KVIKMYNDIR.IS
“STÚTFULL AF FJÖRI OG HASAR!”
- IAN NATHAN, EMPIRE!
- B.G., MBL.