Morgunblaðið - 28.10.2011, Síða 40

Morgunblaðið - 28.10.2011, Síða 40
Hvað færðu ekki staðist? Dóttur mína og sveitasælu. Áttu þér leyndan hæfileika og ef svo er þá hvern? Ég get sett fæturna aftur fyrir haus og svo átti ég til að sigra grettukeppnir sem barn. Ég get gert mig mjög ófrýnilega. Svo get ég alveg verið skemmtileg inn á milli. Það er leyndur hæfileiki. Ef þér hefði staðið til boða að syngja við brúðkaup Vil- hjálms og Katrínar, hvaða lög hefðir þú sungið? Íslenskan fimmundarsöng og beðið þau vel að lifa. Hvað fær þig til að skella upp úr? Það er svo margt. Það þarf frekar lítið til að ég skelli upp úr, lífið getur verið svo afspyrnu- hlægilegt. Hvers viltu spyrja næsta aðalsmann? Ætlarðu að koma að sjá Hreinsun í Þjóðleik- húsinu? Geturðu lýst þér í fimm orðum? Ég get það eiginlega ekki. Það eru fimm orð. Hver er uppáhaldsleikarinn þinn? Ég á mér svo marga uppáhaldsleikara að ég vil ekki gera upp á milli þeirra. Allir leikarar hafa kosti og galla, gera stundum vel og stundum ekki eins vel. Hefurðu einhvern tímann vaknað á Raufarhöfn í miðjum júlí í blankalogni og horft út á hafið? (spyr síðasti að- alsmaður, Grímur Atlason) Nei, reyndar ekki, ég á það eftir. Það er örugglega mjög hressandi. Hvaða Hollywood-leikari finnst þér leiðinlegastur? Þetta er algjörlega spurning sem ég get ekki svarað, eins og ég sagði áðan eiga leikarar misjafna daga, eins og aðrir. Hver er þessi Zara? Hún er ung stúlka sem er á flótta, nýflúin úr mansali og er mjög margbrotin manneskja, eins og manneskjan er yfirleitt. Finnst þér ekki óþægilegt að láta Margréti Helgu draga þig um leiksviðið á hárinu? Þetta er nú kannski svolítið ýkt. Hún dregur mig reynd- ar ekki um á hárinu þótt ég hafi lent í því í öðrum sýn- ingum. Maður er svolítið marinn og blár eftir átakasen- ur en þá föðmumst við bara á eftir. Kanntu vel við sviðsljósið? Ég veit það ekki. Mér finnst nú best að vera bara heima hjá mér. Mér finnst það allt í lagi ef maður er að gera eitthvað af viti og sem virkilega skiptir máli. Nei og já, ég lít ekkert á þetta þannig, þetta er bara hluti af þessu starfi. Stundum og stundum ekki. Það er í raun best að vera heima. Trúir þú á hið góða í manninum? Já, svo sannarlega. Geturðu lýst dansstíl þínum á djamminu? Ég fer afskaplega sjaldan á djammið en er upphaflega dansari. Ég er mikið dansfífl, þetta er góður punktur, ég ætti líklega að skella mér út á lífið að dansa. Ég dansa mikið heima í stofu með dóttur minni á kvöldin. „Ég get gert mig mjög ófrýnilega“ Aðalsmaður vikunnar er Arnbjörg Hlíf Valsdóttir leikkona en hún fer með hlutverk Zöru í leikritinu Hreinsun sem frumsýnt var í Þjóðleikhúsinu í gær Átök Arnbjörg Hlíf leikur Zöru í leik- ritinu Hreinsun í Þjóðleikhúsinu. 40 MENNING MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 28. OKTÓBER 2011 HHHH -FRÉTTATÍMI- CHICAGO READER HHHH NÚMERUÐ SÆ - NEW YORK TIMES HHHH HHHH - A.E.T MORGUNBLAÐIÐ - K.I. PRESSAN.IS HHH MIÐASALA Á S á allar sýningar merktar með grænuSPARBÍÓ 3D 1.000 kr. SPARBÍÓ SÝND Í ÁLFABAKKA, EGILSHÖLL, KEFLAVÍK OG SELFOSSI ROWAN ATKINSON SÝND Í ÁLFABAKKA, EGILSHÖLL, KRINGLUNNI, AKUREYRI OG KEFLAVÍK SÝND Í KRINGLUNNI SÝND Í ÁLFABAKKA, EGILSHÖLLI, KRINGLUNNI OG AKUREYRI HHH - K.I. -PRESSAN.IS EINN FYRIR ALLA - ALLIR FYRIR EINN BYGGÐ Á EINU FRÆGASTA ÆVINTÝRI ALLRA TÍMA HÖRKUSPENNANDI ÆVINTÝRAMYND SEM ALLIR ÆTTU AÐ HAFA GAMAN AF TINNI, TOBBI OG KOLBEINN KAFTEINN, DÁÐUSTU HETJUR ALLRA TÍMA LIFNA VIÐ Í FLOTTUSTU ÆVINTÝRAMYND SÍÐARI ÁRA. "GÓÐUR HASAR OG FRÁBÆR HÚMOR, SJÁÐU HANA UNDIR EINS!" - TÓMAS VALGEIRSSON, KVIKMYNDIR.IS HHHH MYNDINSEMALLIRERUAÐTALAUM SEMÓVÆNTASTASMELLÁRSINS. BYGGÐÁMETSÖLUBÓKINNIHÚSHJÁLPIN EFTIRKATHRYNSTOCKETT „SÍGILD FRÁ FYRSTA DEGI“ - US WEEKLY HHHH „BESTA KVIKMYND ÁRSINS“ - CBS TV HHHH „STÓRKOSTLEG“ - ABC TV HHHH „FYNDIN, TILKOMUMIKIL“ - BACKSTAGE HHHH SÝND Í ÁLFABAKKA, EGILSHÖLL OG KRINGLUNNI - BÖRKUR GUNNARSSON, MORGUNBLAÐIÐ HHHH VARIETY 90/100 BOXOFFICE MAGAZINE 90/100 ROTTEN TOMATOES 91/100 - EMPIRE HHHH SÝND Í ÁLFABAKKA OG SELFOSSI SÝND Í ÁLFABAKKA Kvikmyndin We Need to Talk About Kevin, eftir leikstjórann Lynn Ramsay, hlaut aðalverðlaun kvikmyndahátíðar bresku kvik- myndastofnunarinnar, BFI, í Lund- únum í fyrradag, sem besta kvik- myndin. Myndin er byggð á sam- nefndri skáldsögu Lionels Shrivers. Í aðalhlutverkum eru Tilda Swin- ton og John C. Reilly. Leikstjórinn John Madden fór fyrir dómnefnd hátíðarinnar og sagði hann að úr mörgum frábærum myndum hefði verið að velja en kvikmynd Rams- ays hefði heillað dómnefndina. Af öðrum verðlaunamyndum á hátíð- inni má nefna að Werner Herzog hlaut verðlaun fyrir bestu heimild- armyndina, Into the Abyss: A Tale of Death, A Tale of Life. Í henni er dauðarefsingin tekin fyrir og þá í Texas í Bandaríkjunum. Afbragð Swinton og Reilly í We Need to Talk About Kevin. Kvikmynd Ramsays sú besta Táningspoppstjarnan Justin Bieber sendir í næstu viku frá sér jóla- plötu, Under the Mistletoe, og ætlar áður en langt um líður að senda frá sér aðra breiðskífu, Believe. Það eru engin peð í tónlistarbransanum sem aðstoða drenginn við gerð hennar: Kanye West og Drake. Bieber vann með Busta Rhymes og Mariuh Carey að jólaplötunni og því ljóst að stjörnurnar eru tiltækar þegar kallið berst frá pilti. Bieber mun semja mörg laganna á plöt- unni væntanlegu sjálfur, að því er fram kemur á vef Guardian. Reuters Stjarnan Bieber er 17 ára og afar vin- sæll meðal ungmenna víða um lönd. Bieber starfar með West og Drake

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.