Líf og list - 01.04.1950, Síða 9

Líf og list - 01.04.1950, Síða 9
Existensíalisminn EFTIR BERNARD FRIZELL. Unglingslegur listmálari með ljóst hár úfið grcttir sig. Hann er í * krumpnum fötum. ,,Ca me dég- oute“ (þetta er andstyggilegt), tuldrar liann. Það er angandi vorkvöld og troð- fullt af fólki uppi á þakinu á Cou- pole, stóru kaffiliúsi í París. „Horfðu bara á þetta fólk,“ nöldrar málarinn önugur. „Get- urðu séð eitt einasta ánægjuandlit, eitt bros? Hefurðu nokkurn tíma séð aðra eins andans örbirgð? Fyrir stríðið var lireinasta paradís hérna á þakinu. Maður gat setzt og rabb- að við bvern sem var, og fólk var glatt og bló. Nú lyktar borgin af kvikindum með kontóristasálir. Enginn hlátur. Paris n’est plus Paris■“ Sjónarmið- þessa úrilla unga manns, er afleiðing styrjaldarinn- ar. Og tónninn er þessu líkur hjá flestum menntamönnum og and- ans mönnum Parísar eftirstríðsins. Nýir ismar og afbrigði af lífspeki hafa sprottið eins og gorkúlur, beimspekiafsprengi blóðs, svita og tára. Ömurlegastar eru kenningar dolorismans (bölstefnunnar). Höf- undur bans og postuli er Julien Teppe, eineygður, taugaveiklaður og mannbatursfullur meinlæta- maður, sem flækist um götur borg- arinnar og prédikar, að „kvöldin ein“ gefi skyni og skilningi manns- ins skerpu til að sjá raunveruleik- ann. Teppe hvessir iðulega augun g þokkalega og saklausa Parísarbúa og breytir úr sér: „Eftir tuttugu ár verðurðu ekki annað en sorplirúga í líkkistu.“ Hann heldur því fram, að rökrétt takmark lífsins sé sjálfs- rnorð. Vinsælust heimspeki i París hef- ur orðið sú, sem kallast existensíal- ismi (tilverukenningin). Hún er nokkuð flóknari, en tæplega eins bölsýn og hinar. Existensíalisminn er torskýrður, enda er hann af fylg- ismönnunum fluttur á nærri óskilj- anlegu hrognamáli. Hann sveigir sér fram hjá siðferðilegum og sið- fræðilegum verðmætum allrar ann- arar heimspeki og hefst á einni staðreynd, tilveru mannsins. Exist- ininn; langt fyrir handan fjarlægustu trjátoppana glömpuðu snæviþaktir og sí-hvítir kollar fjallanna . . . Á leiðinni til baka gekk ég um mollulegt sölutorg þorpsins, sem lykt- aði rammt af brenndri mykju, þar var krökkt af fólki, hestum og ösnum og verzlun öll í fullu fjöri; á morgnana kom fólk af ýmsum þjóðflokkum fjall- lendsins ofan á sölutorgið; Kirkassíu- konur í svörtum og síðum skikkjum gengu þar um á háum og rauðum stíg- vélum og vögguðu sér tignarlega, höf- uðbúnaður þeirra var svartur, og hauk- frán augu þeirra skutu stöku sinnum gneistum undir þessum jarðarfarar- klæðnaði. Síðan héldum við til sjávarstrandar- innar, ferðuðumst alltaf frá einum stað til annars, böðuðum okkur og lágum í sólinni fram að hádegi. Eftir dögurð — steiktan fisk, hvítvín, hnetur og ávexti — urðu ljósaskipti i litla kofanum okk- ar með tígulsteinsþakinu. Þá skinu sterkir geislar gegnum niðurdregin gluggatjöldin. Þegar hitinn rénaði og við opnuðum gluggann, virtist sjórinn, sem sást þaðan, skáhallt fyrir neðan okkur milli kyprus-trjánna, vera fjólublár, hann lá þarna sléttur og svo kyrr og friðandi, að það virtist ekki geta verið nokkur endir á allri þessari kyrrð og fegurð. Er komið var fram undir sólarlag, drógu einkennileg ský sig saman yfir sjóinn; þau glóðu svo dýrðlega, að hún lagði sig stundum út af á legubekkn- um, huldi á sér andlitið með þunnum hálsklút og grét; aðrar tvær vikur, þrjár vikur — og síðan aftur Moskva! Næturnar voru heitar og niðdimmar, í sorta þeirra hreyfðust maurildi og glitruðu eins og gimsteinar, og kvakið froskanna í skóginum hljómaði eins og trébjölur. Þegar áugu okkar höfðu vanizt myrkrinu, komu stjörnurnar í ljós og fjallsröndin fyrir ofan þorpið skagaði fram á milli trjánna, sem við höfðum ekki tekið eftir á daginn. Og alla liðlanga nóttina mátti heyra holu trumbuhljóðin og hása kveins-ómana, blendnum heimþrá og örvæntingu, af því, sem virtist einn og sami sífelldi söngurinn. Ekki langt frá okkur féll lítil, tær á í grýttum farvegi eftir gili, sem lá úr skóginum niður að sjónum. Hversu töfrandi glóði úði hennar á þeirri dul- arfullu stundu, er síðbúinn máninn leit hvasst, eins og einhver himnesk vera, ofan á fjöllin og skógana. Á nóttunni hnipruðu sig stundum saman ógnandi ský yfir fjöllum, ofsaleg- ur stormur skall ó, þess á milli þaut I grafarlegum skóginum og dularfullar grænar hyldýpisgjár opnuðust og stór- kostlegar drunur klufu loftið. Þá vökn- uðu arnarungarnir inn á milli trjánna í skóginum, snjó-leóparðinn ýlfraði, og sjakalarnir tóku að gjamma . . . Eitt sinn rann heill hópur af þeim á ljósið í glugganum okkar — þeir hlaupa alltaf að húsum á slíkum nóttum — við opn- uðum gluggann og horfðum niður á þá, þar sem þeir stóðu þarna í glampandi hellirigningunni, vælandi — og báðu okkur um að hleypa sér inn . . . Hún grét af fögnuði, þegar hún horfði á þá. Hann leitaði að henni í Gelendjik og í Sochi. Á öðrum degi eftir komu sína til Sochi, baðaði hann sig um morgun- inn í sjónum, rakaði sig svo, fór í lireina skyrtu, klæddist snjó-hvítum her-jakka, snæddi hádegisverð í gisti- húsinu sínu í garðinum fyrir framan veitingasalinn, drakk eina flösku af kampavíni og líkjör með kaffinu, reykti síðan hægt vindil. Þegar hann kom aft- ur inn í herbergið sitt, lagðist hann niður á legubekk og skaut sig gegnum gagnaugun með tveimur skammbyss- um. Stgr. Sig. ísl. LÍF og LIST 9

x

Líf og list

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Líf og list
https://timarit.is/publication/819

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.