Líf og list - 01.04.1950, Blaðsíða 23

Líf og list - 01.04.1950, Blaðsíða 23
Á KAFFIHÚSINU. Framhald af bls. 2. verkið Óhreinar hendur? En síðast og ekki sízt er það hlutverk Þjóðleikhúss- ins að vekja upp íslenzka leikrita- smíð, finna og nota þá hæfileika, sem oss kunna að fæðast, annars verður það aldrei íslenzkt þjóðleikhús Það er sagt, að 18 manns hafi tekið þátt í leikrita- samkeppni útvarpsins og 18 í sam- keppni Þjóðleikhússins. Þetta er furðu- legur fjöldi. Ekki geta þetta verið ein- tómir freymóðar. Hér er fagurt verk- efni fyrir leikhúsið að rannsaka þennan villigróður og finna og rækta lífgrösin, ef til eru. Aðeins örfáir núlifandi ís- lendingar eru þekktir fyrir leikritagerð, og er sjálfsagt, að Þjóðleikhúsið veiti þeim verðskuldaða athygli. Vér minnumst manns eins og Tryggva Sveinbjömssonar, sem líklega er af- kastamestur núlifandi leikritahöfundin- íslenzkur, en hefur af ilki nauðsyn orðið að sækja undir erlent leikhús með list sína. Hann hefur þó þegar hlotið þá viðurkenningu, að þrjú leik- rit hans hafa verið sýnd á konunglega leikhúsinu í Höfn. Ekkert þeirra hefur verið sýnt á íslenzku sviði. Þjóðleikhúsið og tungan. ÞJ ÓÐLEIKHÚ SIÐ á að vera bólverk fyrir islenzka tungu. Foringjar allir og óbreyttir liðsmenn verða að sækja fram undir hennar melki, og aginn þarf að vera strangur. Þjóðleikhúsið á að varðveita mál vort klárt og kvitt af allri villu, meðan vort láð heldur lýði og byggðum. Já, þjóðleikhússtjóra er vandi á höndum. Þó höfum vér ekki nefnt þessi atriði af því, að vér efum, að hann og samstarfsmenn hans geri sér grein fyr- ir þeim. Vér treystum þeim til alls hins bezta og hlökkum til að fylgjast með starfi þeirra. Senn er 20. apríl. Vér sendum Þjóðleikhúsinu árnaðaróskir vorar. Hvar er Jón Reykvíkingur? HVAÐ er orðið af þeim intelligenta skítakarakter, sem eitt sinn skrifaði í Mánudagsblaðið og gerði höfuðborginni þann sóma að kalla sig Jón Reykvík- ing? Hann virðist hafa dregið sig í hlé upp á síðkastið. Hælbítur sá var óneit- anlega skemmtilegur dóni, og Mánu- dagsblaðið er ólesandi, síðan hann hvarf. Nú er þar aðeins óskemmtilegur dónaskapur. Er Jón Reykvíkingur dauður, eða hefur hann týnt tönnum, svo að jafnvel ekki sé ein gemla eftir? Fylgist með fjöldanum, sem velur „Faxana". FLUGFÉLAG ÍSLANDS LÍF og LIST 23

x

Líf og list

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Líf og list
https://timarit.is/publication/819

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.