Líf og list - 01.04.1950, Blaðsíða 17

Líf og list - 01.04.1950, Blaðsíða 17
andstöðu við hinn ofstækisfulla liðsforingja, sem telur það skyldu ættjarðarinnar, að uppræta trúna, og lifir fyrir þessa köllun sína líkt og vandlætingafullur postuli. Því að presturinn verður, með því að rígbinda sig þannig trúarköllun sinni fram í dauðann, ágætt tákn ekki einungis um kynngimátt and- ans, heldur og um þá einkennilegu mótsögn, aðandleg heilindi eru ekki nauðsynlega samfara félagslegri göfgi, en getur verið ódrepandi sannfæring, sem á sér dýpri rætur cn félagslegar dyggðir. 1 annarri skáldsögu, „Brighton Rock“, hefir Graliam Greene leitazt við að ein- beina sögu sinni að vandamáli hins illa, en fulltrúi þess í sögunni 17 ára garnall glæpamannaforingi. „Brighton Rock“ nær ekki sama áfangri og „The Power and the GIory“, mest megnis vegna þess, að hin unga söguhetja verður aldrei fullkomlega heilsteypt vera. Sagan reynir þó að leggja áherzlu á, að jrað sé, ef til vill, handan venju- legra takmarka félagslegs og sálar- legs misræmis, eittlivert óskiljan- legt tortímingarafl í oss, sem virð- ist vera neitun á öllu andlegu lífi. Þar sem Graham Greene ritar greinilcga með því að hafa trúar- legan bakhjarl, virðist eins og Rex Warner, sem er einn hinna fáu yngri efnilegra sagnahöfunda okk- ar, bindi sig ekki við neina sér- staka trúarstefnu. Rex Warner byrjar feril sinn sem stúdent í grískum fræðum, og gömlu fræðin kunna að hafa hjálpað honum að rneta gildi þessa andlega frelsis, sem, ásamt samvizkufrelsi og óbeit á allri kúgun, er hvarvettna að finna í sögum hans þremur. Þessar sögur, sem hafa greinilega orðið fyrir áhrifum af hinum stórbrotnu en taugabrengluðu hugleiðingum I'ranz Kafka, hafa tilhneigingu til að taka á sig sjálfstæðan stíl og yf- irbragð. í mestu skáldsögu hans til þessa, „The Professor“, nær stíl- snilld hans hástigi. í samræðum þessum er drepið á liið raunveru- lega deiluefni — og því veitt full- komið skil — rnilli andlegs frelsis annars vegar og andlegrar þrælk- unar liins vegar. Að síðustu langar mig að geta enn yngri höfundar, William Sansom að nafni, sem hefir gefið út til þessa tvö smásagnabindi. Annað þeirra f'lytur smásögu, sem er einkar góð. í sögunni „The Maze“ hefir Sansom tekizt að skapa lieim, með því að bregða upp mjög skýrum myndum fyrir augað og með fullkomlega ljósum, en þó einkennilega dulrænum stíl, sem líkist andans spennistöð, þar sem lesandinn, er fylgir söguhetju Sansoms inn í völundarhús hans, villist, þá er hann fálmar eftir lykl- inum — ekki einungis eftir lykl- inurn að völundarhúsinu — heldur og heiminum sjálfum. II. Að undanskildum þessum þrem ofangreindu höfundum er ensk samtíðar-sagnagerð yfirleitt ekki sérstaklega frumleg. Þó skortir nú á dögum ckki verulega athyglis- Graham Greenc verð ljóð í kvæðagerð, þó að mörg yngri skáldin hafi tyrfið og óljóst orðalag. En áður en freistazt er til að sýna, hvcrnig enn meiri áherzla virðist vera lögð á andlcg verðmæti jafnt í samtíðar-ljóðagerð og í beztu sagnagerð, ber að geta lof- samlcga síðustu ljóðabókar W. P. Yeats. Yeats dó sncnnna í styrjöld- inni, án þess að hafa náð nokkru sérstöku takmarki, eftir að liafa lif- að í sífelldri andlegri pílagríms- göngu, sem knúði hann til að þjóna svo einkennilegum yfirboð urum eins og töfratrú, indverski heimspeki (smbr. hversu Huxley og Maugham eru einkennilega heill aðir að indverskum hugmyndum) og ný-platónskri hugsun. Þó að svo sýndist í tveim fyrri kvæðum, ort- um 1928 og 1930 í „Sailing to Byz- antium“ og „Among School Child- rcn“, að Yeats hefði öðlazt per- sónulega heildarsýn af hinum sýni- lega og ósýnilega heimi, eru mörg kvæðin í „The Last Poems" kvala- stunur andlegs ósigurs og óbland- innar þjáningar. Ljóð, senr ort eru á gamals aldri, lineigjast að því, að vera annað hvort yfirprestleg eða væmnislega tilfinninganæm, en í bók Yeats „The Last Poems“, er hin mikla skelfing ófullnægðrar ævi. Það er sem Yeats í hinni eftir- tektarverðu „Vision“ hafi talið sig hafa skynjað hciminn, en gæti ekki gert neitt annað í andarslitrunum en fullvissa sig um, að honum hefði skjátlazt. Þessi „Last Poéms“ munu lifa vcgna heiðarleika þeirra og einfeldni. Það er eftirtcktarvert að athuga í þessu sambandi, að Walter de la Mare, sem valdi sér það hlutskipti á hinni löngu lífsleið sinni, að lifa í einkennilega leyndardómsfullum, Jiöglum, en þó hljómþýðum skugga- og draumaheimi bæði í sagna- og ljóðagerð sinni, hefir auðnazt að særa fram andríkt og ógnþrungiðlandslag í hinu langa og LÍF og LIST 17

x

Líf og list

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Líf og list
https://timarit.is/publication/819

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.