Líf og list - 01.04.1950, Blaðsíða 14

Líf og list - 01.04.1950, Blaðsíða 14
r--------------------------^ KATHLEEN RAINE: FERÐALANGURINN Hundrað ár ég svaf und þyrniviði, unz tréð varð rút og greinar af hugsuninni, unz hvit blóm sprungu út A krónu minni. Þúsund ár ég flaut og barst um valn, unz barmafull mín augu sáu mánaskin og skýjabrennu i loftsins hvelfi háu. Vindur, sem blés yfir lendur, ég byggði mér musteri úr snjó, kastala úr sandi, og skildi við þau í auðn eins og dauðs manns hendur. Ég borinn var i heiminn til að lifa einn dag, ég hefi vœngi, sem glilra og ótal þúsund augu, ég hlýt að deyja í eldinum eða drukkna i vatnsins ál. Ég verð að lifa — ég verð að deyja, ég er minning allra, er þrá, ég er heimsins aska, og ég tendra heimsins bál. Steingrímur Sigurðsson þýddi. -------------------------------------------------------------------) „Ég vil verða málari,“ sagði liún og sýndi mér fáeinar myndir eftir sig. Þær voru fast mótaðar og vel málaðar, en ekki nógu lifandi. Ég minntist á það við hana, en hún varð ergileg á svipinn og sagði: „Alltaf þetta, þetta segja kenn- ararnir líka.“ Ég áræddi ekki að fara lengra út í þessa sálma og spurði: „Hver býr í kjallaranum?" Hún þagnaði, stóð upp, benti mér að koma. Við gengum niður stigann og niður í kjallara. Það marraði í hurðinni — ég stóð á miðju gólfi í illa ræstuðu, tóniu herbérgi að undanteknum tveim stólpum, sem stóðu við liægri vegg- inn, og ofan á þeim eitthvað hulið þvkkri, svartri ábreiðu, klæði, sem (hóst til hliðar, og í ljós kom stór, hvítmáluð kista, líkkista. Hún opn- aði líkkistuna, skrækti og benti á tvö starandi augu. Hún skríkti aft- ur: „Dauðinn býr í kjallaranum!!“ Það eru sex mánuðir liðnir síð- an ég kom frá Danmörku. Ég hefi l’engið skurðlæknisembætti á Nýja spítalanum. Og í kvöld á ég að skera fyrstu manneskjuna upp. Ég liefi verið kvíðinn síðustu tvær vik- urnar, reykt tvo pakka af sígarett- um á dag og ekki komið nálægt kvenfólki í langan tíma. Um að gera að hafa taugarnar í lagi, þó að ekki sé nema um einfaldan botnlangaskurð að ræða. Stundin rennur upp. Það er kvenmaður. Hún liggur þaxna á skurðborðinu, Shelley og ljóðagerðin. Það er ævagömul trú manna á meðal, að listaverk, ljóð og sögur eigi aðeins að gegna því hlutverki, að vera til skemmtunar og dægradvalar. Slíkt fólk hafnar að trúa því, að list geti haft nokkra dýpri merking í lífi voru eða megni að ráða athöfnum vorum. — Á hinn bóginn eru margir þeirra skoðun- ar, að list verði að vera fræðandi, með augljósum „móral“, sem heimfæra megi upp á tiltekið ástand. Þessu hefur Shelley svarað bezt í riti sínu, „Til varnar ljóðagerðinni", og þar kemst hann að kjarna málsins. Hann segir, að skáldskapnum beri að gera fólki til geðs, en það útiloki ekki skáld- skapinn frá því að orka á siðferðiseðli vort. Ljóðin verka með guðdómlegum hætti. Hið mikla tæki siðgæðisins er í- myndunaraflið,og ljóðið er miðill þess“. Shelley álítur ,að ljóð, og reyndar all- ur skáldskapur, hvort heldur er laust mál eða bundið, geri hugann ferskari. Hvert nýtt skáld, með nokkra ærlega taug, reynir að sýna heiminn í nýju ljósi, eins og hann kemur því fyrir sjónir. Stundum gerir skáldið það, án þess að fara út fyrir viðjar tíðarandans og hefðbundins hugsunarháttar. og ósjálfrátt verð ég að dást að vextinum. Það er búið að svæfa hana. „Allt er til reiðu,“ segir litla, rauðhærða hjúkrunarkonan, sem á að vera mér til aðstoðar. Auk þess eru þarna tveir æfðir læknar, vinir mínir, sem ég hafði óskað, að væru viðstaddir. Þeir höfðu brosað og sátu nú á legubekk og lásu dag- blöðin ....... Hið fyrsta, sem ég sá, þegar ég rankaði við mér, voru tvö starandi augu, augun í kjallar- anum. Jarðarförin fór fram viku síðar. Litla dóttir móðurbróður míns var borió til grafar. Stór, hvítmáluð kistan seig hægt ofan í jörðina. Síð- asti sólargeislinn situr fastur á hcnni. Málverkin hennar hafa öðl- azt líf — líf — fyrir dauða. 14 LÍF og LIST

x

Líf og list

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Líf og list
https://timarit.is/publication/819

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.