Líf og list - 01.04.1950, Blaðsíða 12

Líf og list - 01.04.1950, Blaðsíða 12
STAFKRÆKLINGAFRÆÐI og SKALD Hér fer á eftir smásaga eftir kom- ungan, ókunnan höfund. „Lxf og list" telur hana mikinn hvalreka á fjörur sínar og þykir því hlýða, að fylgja henni úr garði með nokkrum orðum og herma jafnframt lesendum, hvernig hún barst tímaritinu í hendur og hví hún er tekin hér til birtingar. Svo er mál með vexti, að sá, er þetta ritar, veitir tilsögn í móðurmálsgreinunum í Gagnfræðaskólanum við Lindargötu hér í bæ. Að vísu fer sú fræðsla að mestu leyti fram eftir ströngustu fyrir- mælum fræðslulaganna alræmdu, stuðzt við málfræðikenningar Björns Guðfinnssonar, þar sem aukaatriði em gerð að aðalatriðum, nemendur hvattir til að leggja hinar fáránlegustu staf- setningarreglur á heilann til þess að geta slampazt í gegnum vorpróf. Móð- urmálskennarar við þessa unglinga- skóla verða blátt áfram að hlíta þess- um fyrirmælum í kennslu sinni út í yztu æsar, ella eiga þeir á hættu, að prófsárangur nemenda þeirra verði lít- ill eða enginn, því að prófverkefnin öll eru samin af ströngustu — mér liggur við að segja — „orthodoxustu“ björns- guðfinnskutrúmönnum meðal íslenzku- kennara hér í Reykjavík. En hver hef- ir árangurinn orðið af þessu þurra- striti þessara „orthodoxu“ stafkrækl- inga? Enginn annar en sá, að tungunni flughrakar með hverjum deginum, sem líður, áhugi æskunnar á fallegu máli og fögrum stíl fer óðum þverrandi, lítil gleði yfir því að spreyta sig á að hugsa eða semja — eða í fáum orðum sagt: allt of lítill vísir til sköpunargleði al- mennt. — En nú er þannig málum hátt- að, að ég hefi stöku sinnum brotið í bága við þessi lög, látið nemendur semja ritgerðir um efni, sem ég taldi, að væru þeim skapfelld, forðazt að taka harðar á stafvillum í þessum rit- gerðum en brýnasta þörf krafði, en hins vegar tekið þeim mun harðar á alvarlegum mál- og hugsanavillum, og reynt af fremstu getu að benda þeim á einhverjar leiðir til að auðga og vanda málfar, stíl og frásögn. Að dómi sannmenntaðra manna hlýtur þetta vit- anlega að vera meginhlutverk allra ís- lenzkukennara, en eins og nú er um hnútana búið, er nær ókleift að gegna þessu veigamikla hlutverki. Það er kunnara en frá þurfi að segja. Raunar mæla lögin svo fyrir, að nemendur semji 4—G ritgerðir um veturinn, en það er allt of lítið, og auk þess er fyrir- hann verði að aðhafast til að verða frjáls. Maðurinn sé frábrugðinn öðrum skepnum og dauðum hlut- um í því, að honum sé frjálst að velja sér það, sem hann vill gera. En þetta valfrelsi verði þá fyrst að fullkomnu frelsi, þegar maðurinn hefir gert sér val og snýr sér að at- höfninni, t'er að keppa að mark- inu, sem hann hefur sett sér. Frels- ið sé æðst allra hluta. Bókmenntir existensíalista liafa orðið fyrir miklum áhrifum, bæði í tækni og efnisvali, frá bandarísk- um rithöfundum eins og þeim William Faulkner, Erskine Cald- well og John Dos Passos, og hafa hneykslað lesendur, bæði málið á þeim og hugmyndir sem þar koma fram, álíka og Louis-Ferdinand Céline gerði fyrir styrjöldina. Við- kvæmum borgurum þykir nóg um, þegar þeir sjá setningu eins og j^essa, Jxar sem söguhetjurnar eru karl og kona og karlhetjan lýtur yfir kvenhetjuna dauðadrukkna og segir: „Beiskan uppsöluilm lagði út úr þér áðan, en Marthieu andaði honum áfergjulega að sér.“ Enginn frýr Sartre vits, svörn- ustu andstæðingar hansoggagnrýn- endur efast ekki um gáfur hans. Meginverk hans heimspekilegs efn- is er yfir 700 blaðsíðna rit og heit- ir L’Etre et la Néant (Veran og ekkert). Ingimar Erl. Sigurðsson munað að taka mark á ritgerðum þess- um í einkunnagjöf. Svo svívirðilegur er lágkúruháttur þessara aumingja manna, er telja sig halda vörð um tunguna. Og nú var það eitt sinn, að ég gaf nemendum í þessum gagnfræðaskóla sjálfvalið efni til heimaritgerðar. Flest- ir þessara nemenda höfðu fram til þessa sýnt lítil tilþrif í stíl og list- rænni meðferð máls, — stílarnir flest- ir verið bragðdaufir og litlausir, tæp- ast örlað á nokkru hugmyndaflugi eða sköpunarþrá, orðaforði af skornasta skammti og ósmekklega valið til orða- lags yfirleitt — eins og kannske við mátti búast. Ég hafði raunar lengi haft grun um, að eitthvað óvenjulegt byggi Það sem franskir gagnrýnendur liafa mestan viðbjóð á í skáldrit- um existensíalista, er hið tilfinn- ingasnauða viðliorf til mannsins og veraldarinnar, smekklausar endur- tekningar, og ruddalegt málfar. Al- geng yrkisefni eru saurlifnaður, kvöl, skelfing, ragmennska og lífs- íiótti, þar sem persónurnar fórna höndum í örvæntingu og spyrja sí og æ: „Hvers vegna lifum við á þessum tímum?“ Að Jjcssu leyti er hreyfing þessi táknræn um vonleysið, sem farið hefur um margar Jjjóðir í kjölfar styrjaldarinnar. G. B. ísl. 12 LÍF og LIST

x

Líf og list

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Líf og list
https://timarit.is/publication/819

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.