Líf og list - 01.04.1950, Side 18

Líf og list - 01.04.1950, Side 18
EDDURNAR BÓKMENNTARÝNI LÝRIIÍKIN. íslcnzk nútímalýrikk. Urvals- kvæði cftir 30 skáld. Kristinn E. Andrésson og Snorri Hjartarson bjuggu út. Þorlcifur Gunnarsson. Safnrit og sýnisbækur einstakra höf- unda eða fleiri saman eru að verða æ vinsælli. Og þó eru þau sú tegund bók- mennta, sem aldrei verður hægt að gera öllum til hæfis með.nema svo heppilega standi á, að ekki liggi meira eftir höf- undinn, er til greina kemur, en sem svarar skikkanlega til sætisrúms í safn- inu. Af verkum hinna saknar maður nær alltaf einhvers, sem ekki var tekið með í úrvalið. Vegna þessa eru slík söfn nokkurs konar „prívatmál!“ En hver hefur ekki gaman af þeim? En hér eru smekkvísir veljendur að verki. Öll eru kvæðin góð og lýrísk. Það skal tekið fram, sem reyndar stendur í formála bókarinnar, að kvæð- in eru öll til orðin eftir aldamót, og því þýðir ekki að leita þama að „Ég bið að heilsa" eftir Jónas né neinu eftir Þor- stein, einhvern mesta lýrikkara ís- lenzkra bókmennta. Samt er þetta in- dælasta bók. Og að ytra frágangi er hún hreinasta gersemi. siðasta kvæði hans, „The Travell- er“. Ferðalangur hans, sem er mað- ur „í sannleiksleit, deyr í hinni miskunnarlausu eyðimörku, án þess að hafa náð takmarki — ef í rauninni nokkru takmarki er að ná. Þó deyr hann sem sigurvegari. För hans um óbrotið, en ákaflega iifandi klettaland og eyðimerkur- lönd, virðist einkennileg eftirlík- ing af pílagrímsgöngu Christians í líkingasögu Bunyans. í því ríkir sönn tign. og skáldlegur hreinleiki. Stgr. Sig. ísl. Frh. í næsta blaði. SAGAN. Saga íslcndinga VII. Tímabilið 1770—1830. Upplýsingaröld. Sam- ið hcfur Þorkell Jóhannesson. — Mcnntamálaráð og Þjóðvinafélag. Dr. Þorkell Jóhannesson er afkasta- mikill og traustur sagnfræðihöfundur, og í hans höndum verður efnið aldrei of þurrt og leiðinlegt, því að í frásögn hans er hæfilegur hraði. Þannig skrif- ar hann um sérgrein sína, atvinnu- og viðskiptasöguna, sem fáir sérfræðingar eiga sýnt með að blása lífi í. Og í menn- ingar- og menntaþættinum, sem hann lýkur bókinni með, er hann á góðum spretti og gerir hann skemmtilegan. Og af því að íslendingar eiga enga sam- fellda bókmenntasögu, ekki einu sinni ágrip, munu þeir verða guðsfegnir bók- menntayfirliti dr. Þorkells á þessu tíma bili, sem hann veitir ríflegt rúm af bók sinni. Saga mannsandans. I. Forsaga. II. Austurlönd eftir Ág. H. Bjama- son. Hlaðbúð, Rv. íslenzkri alþýðu opnaðist SEinnarlega ný útsýn fyrir fjörtíu árum, þegar Yf- irlit yfir sögu mannsandans byrjaði að koma út, þar sem Ágúst H. Bjarnason, þá kominn sprenglærður utan úr hin- um stóra heimi, flutti heimspekina á máli, sem allir skyldu. Bókinni var tek- ið forkunnar vel, og hefur hún verið ó- fáanleg um áratugi. Hún hafði ákaflega mikil áhrif á kynslóðina, sem þá var að vaxa úr grasi. Það var því fagnaðarefni mörgum, þegar bókin byrjaði að koma í annari útgáfu í vetur. Þessi útgáfa er bæði aukin og endurbætt, og höfundur virðist vera engu síður ferskur í athug- un og framsetningu en hann var fyrir nærri hálfri öld. Ritið á að verða sex bindi alls, og verður að öllu leyti viða- meira en það var í fyrri útgáfu. Útgef- andinn, Hlaðbúð, virðist hafa sett sér það markmið að gefa aðeins út frum- samin verk islenzkra höfunda og er einn hinn vandvirkasti um allan frá- gang á bókum sínum. Eddukvæði. Snorra-Edda. Eddu- lyklar. — Guðni Jónsson bjó til prentunar. — fslendingasagnaút- gáfan, Rvk. Enda þótt mikið kapphlaup virðist hafa verið þreytt undanfarin ár um út- gáfu á fornsögum okkar, hefur enginn þessara útgefenda sinnt því að færa okkur Eddurnar í nýjum búningi, fyrr en hin ágæta íslendingasagnaútgáfa sendi þær frá sér um áramótin undir ritstjórn Guðna magisters Jónssonar. Sigurður Kristjánsson var brautryðj- andi í því að gera þessar gömlu bækur, sem alltaf verða nýjar, að almennings- eign. En síðan er liðin meira en hálf öld, og margt hefur breyzt á þeim tíma, bókagerð einnig. Það er aðstandendum hinnar nýju íslendingasagnaútgáfu ljóst. Bækur hennar bera því vott. Þrír höfuðkostir eru á þessari nýju útgáfu af Eddunum. Guðni magister hefur tekið af marga afkáralega orða- stöfun, sem var í eldri alþýðuútgáfuAi. Og þó finnst mér hann ekki ganga nógu langt í því að gera ritháttinn okkur tungutaman. En ekki þýðir um það að fást, því að stafsetning á fornritum okk- ar virðist fremur vera trúarlegt atriði en að hún taki til skynseminnar, og eru norrænufræðingar þar af ýmsum trú- arbrögðum! Svo hefur Guðni skeytt sólarljóðum við Eddukvæðin og breytt nafninu á þessu mikla safnriti, og er hvort tveggja snjallræði, því að þarna finnst manni, að Sólarljóðin eigi heima, og vel má gefa nafni Sæmundar brott- leyfi meðan enginn botnar í þeirri feðr- un. En helzta nýjungin á útgáfu Guðna er orðasafn það, er hann nefnir Eddu- lykla. Það var gott að fá. Ekki eigum við of margar orðabækur yfir tungu vora. Þær eru mörgum manni dagleg nauðsyn, þótt fáir lesi þær eins og reyfara. G. B. SAKESPEARE IIEFIR ORÐIÐ: .....Vér erum búnir að lifa hið fegursta af vorri öld; vélræði, undirhyggja, níðingsskapur og skemmdarfár alls konar óreglu ofsækir oss hvíldarlaust allt of- an í gröfina . . .“ (Greifinn af Gloster í „Lear kon- ungi“ eftir Shakespeare, Fyrsti akt — önnur sena). 18 LÍF og LIST

x

Líf og list

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Líf og list
https://timarit.is/publication/819

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.