Líf og list - 01.04.1950, Qupperneq 20
sér nýtt stríð, nazisminn. Hún lætur í ljós andúð sína.
Og Jtegar ófreskjan er komin til valda, er Káthc Koll-
witz svipt starfi og sambandi við akademíið og henni
bannað að sýna verk sín. Síðan kemur stríðið. 1940
missir hún mann sinn eftir fimmtíu ára sambúð. Son-
arsonur hennar, Peter, heitinn eftir þeim syni henn-
ar, sem fórst í fyrra stríðinu, fer á vígvöllinn og kem-
ur ekki til baka. Og skömmu síðar er heimili hennar
sprengt í rúst. Þá hefjast hrakningarnir. Loks útvcgar
vinur hennar henni liúsaskjól í Moritzlturg hjá Dresd-
en. En nú var þrekið þrotið. Lengi lá hún nær dauða
en lífi. Sonur hcnnar, Dr Hans Kollwitz, segir þann-
ig frá:
„Síðast heimsótti ég móður mína á föstudaginn
langa 194. Ég las fyrir hana páskasögu úr Matthcusar-
guðspjalli, sem hún hafði heyrt sem óratóríum, og
Páskagönguna úr hennar elskaða „Faust". Hún kom
mér íyrir sjónir eins og drottning í útlegð. Þó að hún
væri hrunin saman, var hún svo óendanlega góð.
Jutta dóttir mín var við banabeðinn hennar 22. apríl
1945. Síðustu orð hennar voru: „Heilsaðu öllum.“
Káthe Kollwitz dó tæplega 78 ára gömul. Askan aí
henni var jarðsett við hlið manns hennar og systra
undir grafmyndinni, sem hún hafði gert sjálf.
Káthe Kollwitz langaði til að mála, en kennari
hennar bægði henni frá því og réði henni að
helga sig eingöngu svartlistinni. Hún fór að ráð-
um hans. En þegar hún er komin á efri ár, byrjar
hún á höggmyndagerð. Og henni tókst að skapa
sum af stórbrotnustu verkum sínum á Jtví sviði.
Vinur hennar og samverkamaður, Harald Isen-
stein, hefur látið þessi orð falla um hana:
„Ég Jtckki tæplega nokkurn listamann, sem eins
vorkunnarlaust hefur flett frá sínum innra
manni, engan, sem með slíku miskunnarleysi hef-
ur haldið dómsdag yfir sjálfum sér og verkum
sínum. Hið mikla og óvenjulega í list Káthe Koll-
witz er hið farsæla jafnvægi milli ástríðufullrar
tilfinningar, liugmyndal'lugs og sjaldgæfrar form-
skynjunar."
.Sýningarsalur Ásmundar Sveinssonar viðFrcyju-
götu hefur fengið hingað til lands á annað hundr-
að myndir eftir Káthc Kollwitz, sem búið er að
sýna á hinum Norðurlöndunum við mikla að-
sókn, og efnir til sýningar á ]>eim páskavikuna og fram
í mánuðinn. Líf og List þakkar forstöðumönnum þess-
arar sýningar, þeim Ásmundi Sveinssyni og Gunnari
Sigurðssyni, sýningarstjóra, fyrir að hafa ráðizt í að
fá myndir Jiessar tii landsins, því að áhorfendum
munu seint líða þær úr minni. G. B.
Gráfmyndin.
20
LÍF og LIST