Líf og list - 01.01.1951, Blaðsíða 8

Líf og list - 01.01.1951, Blaðsíða 8
 MYND 1: Þessi vasi er frá Chiriqui- Indíánunum, sem bjuggu í Chiriqui- á Panamaeiðinu. Hann sýnir hina einföldu, stílhreinu skreytingu Indí- ánanna. f) um. Þar að auki þarf að gæta þess vandlega, að inyndin eða mynztrið gangi ekki út úr flet- inum, þ. e. a. s. sé ekki í æpandi mótsögn við sína eigin undir- stöðu (hugsið ykkur ljósmynd- arkopíu af rós með daggardropa á hverjum þyrni og „natural“- maðkaflugu á einu blað'inu, glansmálaða á Indíánagoð frá Perú!) List verður að vera sjállfri sér samkvæm, annars er hún ekki list, heldur skoplegt afskræmi. Þegar listamenn tala um, að skreyting sé „of hörð“ eða „of lin“ eða að hún „standi ekki“, meina þeir að fígúran eða mynztrið sé ekki í sem beztu samræmi við flötinn, formið' eða íiara umhverfið (t. d. fígúra í málverki). IV. Prjál eða list? Enn er sú hætta á vegi skreyt- ingamannsins og raunar allra, sem með liti fara, að litasam- setningin verði „sæt“; hræri- grautur af liráum, kvoðukennd- um litum, með smeðjulegri á- ferð, sem minnir á tertu, brjóst- sykur og íleiri síður en svo keramisk eða myndræn íyrir- bæri. Slík og þvílík er framleiðs'la póstkortasmiðanna og gervimál- aranna, sem fyllir listmunaverzl- anir bæjarins. Sársjaldan sést neitt af verkum þeirra fáu myndlistarmanna, sem stöðugt leita sannleikans í leyndardóm- um litanna sjálfra — efnisins, sem þeim er í hendur fengið og túlka hin kyrrlátu viðfangsefni umhverfis sig af þeirri sannleiks- ást, þeirri fölskvalausu fegurð- MYND 2: Þetta ker er frá Chiriqui- Indíánum. Hið keramiska form sést vel. artilfinningu, sem þeim er runn- in í merg og blóð. Þessi mótív, fögur í látlausri tign sinni, máluð í djörfum, hreinskilnum litum jarðarinnar og loftsins, hljóta að hrífa livert auga, sem skynjar fegurð. — Ilin frjálsa, sjálfkrafa bygg- ing, sem mest hrífur skynjand- ann í hvers konar list, þar sem andstæður mætast í reisn og glæsileik, er aðalsmerki höfund- arins, — listamannsins. Fram á síðustu ár hafa marg- ir litið á keramik sem hreint handverk og enn í dag gera jafn- vel listunnendur sér ekki Ijóst, hve fráleit þessi skoðun er. Hlutur, sem er jafn ríkur af íormum, litum, línum og stemn- ingum og fallegur keramikgrip- ur, ber alls ekki hinn sljóa skran- svip handverksins, þvert á móti fylgir honum liinn lífræni tígu- leiki listaverksins. Upp á síðkastið liefur viðhorl listamanna yfirleitt til listgildis keramikmuna breytzt noklcuð lil batnaðar, meðal annars vegna þess, að margir ágætir mynd- listarmenn hafa snúið sér að keramikskreytingu — jafnframt því sem þeir hafa unnið að myndlistinni. T. d. má nefna hinn heimsfræga listmálara Picasso. V. íslenzk keramik Keramikiðnin hefir flest skil- yrði til að verða listiðnaður öðr- um iðnum fremur og jafnvel list- grein. En því miður er ekki hægt að segja, að íslenzk kera- mik fari vel af stað, hvað þetta varðar. Iðnin hefir h'lotið litla útbreiðslu hér á landi (5 starf- MYND 3: Þetta er mynd af kera- mikskreytingu frá Chiriqui-Indíán- um. Þannig byggðu Indíánar skreyt- ingar sínar á lífinu sjálfu. Þar sjást allskonar dýr, krókódílar, slöngur, eðlur og menn, sem eru stíluð til samræmis við formið, sem þau standa á. 3 LÍF og LIST

x

Líf og list

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Líf og list
https://timarit.is/publication/819

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.