Svart á hvítu - 01.10.1977, Síða 24
ekkert annað í hugmyndafræöilegu, menningar-
legu og listrænu tilliti en endurreisn hirðskáld-
skaparins.
Ég ætla nú að reyna að sýna muninn á skáldi
Kerfisins og skáldi Hreyfingarinnar meó því að taka
tvö alþekkt dæmi. Á sínum tíma fór Lenín þess á leit
við Gorkí að hann léti sköpunarkraft sinn þjóna
hinni byltingarsinnuðu bolsévikahreyfingu. Stalín
bar sig öðru vísi að. Hann gerði Gorkí tilboð um
nokkuð sem var í grundvallaratriðum fráburgðið
bón Leníns, sem sé aö hann geröist málpípa,
fáránlegt andlit gagnbyltingarsinnaðs stjórnarfars,
termidórísks afturhalds, blinds valds skrifræöisríkis
og fjármálavalds þess. Hitt dæmið er Mayakovsky.
Hvenær framdi skáldið sjálfsmorð? Á þeirri stundu
að hann áttaði sig á því að nú skyldi honum ekki
leyft að vera byltingarsinnað skáld, heldur var því
þvert á móti beint til hans að hann gyllti og fegraði
stjórnarhætti vinnumáladómstóla rússneska ríkis-
ins, sem endurreistir voru um þetta leyti, — á þeirri
stundu brotnaði knörrinn ástar. Stalínisminn sem
gagnbyltingarform reynir einnig hið sama við okk-
ur; að gera skáld Hreyfingarinnar aó skáldi Kerfis-
ins.
Hér og nú standa málin þannig, svo að ég
endurtaki það enn einu sinni, að reynt er að svipta
hina skapandi menntamenn því sköpunarfrelsi sem
þeim er samt sem áður tryggt með lögum. Án þess
að ég óski þess að verða um of dramatískur hygg
ég að eftirfarandi verðum við að hafa hugfast:
Gegn skipulagðri undirokun og frelsissviptingu er
nauðsynlegt að koma á fót skipulagðri andstöðu.
Ef það er ekki unnt, þá verða einstaklingar að and-
æfa. Hvernig svo sem málin standa verðum viö að
rísa upp og mótmæla kúguninni.
Þegar þjóðfélag gengur á ákveðnu tímabili inn í
allsherjar kreppu sem nær til allra gilda þess,
kreppu sem engin leið er að greiða úr nema gjalda
hörmungartolla með frelsi einstaklinga og manns-
lífum, þá hljóta þeir að bera mest ábyrgð á þessum
óförum sem dýpstan skilning hafa á þeim, þ. e.
menntamennirnir og einkum og sérílagi skapandi
menntamenn.
Hvernig eigum við að bregðast við þessari
ábyrgð? Hvað eigum við að gera til þess að verða
það sem við ætlum okkur að verða; mennirnir sem
þekkja heiminn og vita hvernig á að breyta honum?
Eigum við að uppfræða alþýðuna? Nei. Af því aö
tólfhundruð ár hafa kennt henni með eldi og sverði.
Ef hún hefur ekkert numið og ekkert skilið, getum
við ekkert gert. Þá er allt orðið um seinan. Annað
hvort er alþýðan reiðubúin nú eða ekki. Allir lær-
dómar sem unnt er að draga af sögunni hafa verið
dregnir. Hlutverk okkar nú getur því einungis orðið
að taka hiklaust og ákveðið núverandi aðstæður til
gagnrýninnar athugunar. Frelsi til að skapa, löglegt
eða ólöglegt, er hvað sem öðru líður, ófrjótt, ef
skáldið glatar hinni nánu leynd þessa frelsis. Árið
1921 nokkrum mánuðum fyrir dauða sinn komst
Blok svo aö orði um Puskhin: „Pushkin féll ekki fyrir
skotum Dantes. Hann kafnaði vegna surefnisskorts
. . . Friður og frelsi . . . en þeir taka einnig frá okkur
friðinn og frelsið. Ekki algjörlega hinn ytri frið, en
skapandi frið. Ekki frelsi barnsins, ekki frið frjáls-
hyggjupostulanna, heldur hiö frjóa og leynda
frjálsræði. Skáldið er dautt því að þeir gefa ekki
lífsanda þess loft, og dagar lífsins hafa lit sínum
glataö." Já, dagar lífsins hafa lit sínum glatað.
Því aö eigi Ijóðlistin að hafa einhverja merkingu,
ef Ijóðið á ekki aó vera fjarstæóa, má sagan ekki
vera fjarstæða (hvorki í opinberun sinni né mark-
miðum). Lífið sjálft ætti að vera hlaðið innri merk-
ingu. Dagar lífsins ættu að glóa eins og gimsteinar.
Til hvers værum við annars að hugsa frammi fyrir
hrunadansi mannlegrar tilveru? Til hvers fremdum
við annars list okkar í rangsnúinni veröld?
Leikir, listir, vísindi og heimspeki berjast í þágu
mannssálarinnar. Þau umkringja hana með út-
ópíum — bölsýnum og bjartsýnum framtíöarhug-
leiðingum —; Þau reyna aó ná til hennar með bylt-
ingarsinnuðum fræöikenningum og gagnbylt-
ingarstarfsemi, á meðan hún heldur áfram að vera
þögul, áttavillt og stöð eins og gömul bykkja, fram-
mi fyrir eigin mikilleik. Hefur maðurinn gert allt sem
í hans valdi stendur? Hafa öll hin ómissandi
snilldarverk verið mótuð eða rituð? Berum við ekki
öll sem sköpum eöa teljum okkur vera aö skapa
fóstur undir belti sem við vitum fyrirfram að verður
eytt? Kannski. Alþýðan hefur ekki lengur sama
sóknarþungann og fellibylurinn. Þvert á móti er
hún eins og ryðguð vél. Þessi breyting á ein-
kennum er tengd annarri. Alþýöan er ekki lengur
skapari efnislegra og andlegra verðmæta; hún
takmarkar sig við neyslu þess sem hún framleiðir.
Karlmenn þjóðar minnar haga sér eins og
mýrarskordýr. Mýrarnar þorna upp og vatnið
hverfur innan nokkurra daga, en skordýrin taka
ekki eftir neinu og halda áfram að starfa í iðandi
kös, rekast hvert á annað, gleypa hvert annað,
tengjast hvert öðru . . .
Hvaðan kemur öll þessi eyðilegging? Tilveru-
hættir sögulegs veruleika eru margir: veruleiki fyrir
stríð, veruleiki eftir stríð, veruleiki innri samfélags-
baráttu, veruleiki sem reynir stéttarlega mála-
miðlun, veruleiki alræðis einnar stéttar, veruleiki
þar sem áhersla er lögð á að styrkja ríkisstofnanir,
réttarfar, lögreglu o. s. frv. . . . Við lifum veruleika
sigraðra sósíalískra byltinga. Við stöndum við
landamæri tveggja heima. Báðir eru vonlausir.
Hinn fyrri er auðvaldsheimurinn, en fall hans er
óhjákvæmilegt, hinn síðari er sósíalískur heimur
sem enn hefur ekki séð dagsins Ijós. Sigrar
Októberbyltingarinnar, sem í reynd hafa skekió
heiminn í fimmtíu ár, hafa verið svo gjörsamlega
afmáöir að þessi bylting er nú orðið skoðuð sem
lítilfjörlegt smáatriði ásamt meó fjölda annarra at-
burða sem fært hafa Evrópu til hægri og vinstri til
skiptis síðastliðnar tvær aldir. í augum nútíma-
manna er hún engu mikilvægari en uppreisn
Spartakusar, Taiping eða einræðisstjórn jakobína.
Tilraunir okkar í síðasta frelsisstríði (verkalýðsvöld,
smábændanefndir vopnaöar öreigasveitir, kosn-
ingar og brottrekstur opinberra fulltrúa sem
voru algjörlega háðir umbjóðendum sínum, efna-
hagslegt og pólitískt jafnrétti, algjör og almenn aðild
að allri þjónustu, upplausn hers og lögreglu,
áætlunarbúskapur o. s. frv.) hafa verið afmáðar svo
rækilega að stríð þetta er nú jafn mikilvægt fyrir
20