Birtingur - 01.01.1956, Page 18
THOR VILH JÁLMSSON :
Rabbað við
Walter Hudd
Walter Hudd kom til Islands til að kenna
leikurum okkar að flytja verk Shakespeare.
Hann er ljúfur og hlýlegur í viðmóti og svo
lifandi í ræðu að það er ekki hlaupið að
þvi að skrifa eftir honum viðtal. Hann hefur
á sér fágunarblæ hins menntaða Englendings
sem hefur brotið af sér eylendingssérhætti
Bretans og er víðsýnn og frjálslyndur í skoð-
unum sem hann fer ekkert varlega með. Hann
hikar ekki við að svara spumingum mínum,
þarf ekki að leita orðanna, þau koma eðlilega
og óþvingað.
Hvað finnst ykkur — em sannir leikar-
ar ekki sérstakur þjóðflokkur, óháðir hin-
um rauðu línum landabréfsins, kannski ein-
hverskonar kynjaverur loftsins sem koma
aðvífandi til að þéttast í þessari efnismynd
eina stund og annarri liina stundina, kannski
hafa tímamælar okkar varla þokazt meðan
ólíkum myndum brá fyrir.
Og þó: leikarar, þeir eru eins og aðrir lista-
menn: þúsund þjóðflokkar, ég og þú.
Snemma í talinu bar okkur að tilraunum
að kvikmynda Shakespeare. Ég spyr: Orkar
það ekki illa á yður sem homme de théátre,
leikhúsmann, að verið sé að kvikmynda
Shakespeare ?
Nei alls ekki, segir Hudd. Þvert á móti.
Ég held að leikrit Shakespeare séu einmitt
12
Walter Hudd — Ljósm. Kaldal
mjög vel fallin til kvikmyndunar. Atburða-
rásin er svo hröð og sviðskipti ör og leikrit-
in veita kvikmyndaranum mikla og stór-
brotna möguleika en vitanlega glatast Ijóðið
að miklu leyti.
Hvernig falla yður kvikmjmdir Sir Laur-
ence Olivier?
Hamlet var gerður of einfaldur, svarar
Hudd, en með þessu móti kynntist gífurlegur
fjöldi fólks verkinu sem annars hefði ekki
komist í neina snertingu við það og það er
kannski höfuðávinningurinn við þá mynd.
Fannst yður Hamlet ekki vera það sem
Frakkinn kallar Théátre filmé, kvikmynduð
leiksýning?
Má vera. Aftur var Hinrik 5. að öllu leyti
vel heppnuð sem kvikmynd. Miklu betri kvik-
mynd en Hamlet enda er þar minna um heim-
spekilegar vangaveltur. Hinrik V. er atburða-
mikið leikrit og í því er hröð líkamleg og
andleg hreyfing. Ég held kvikmyndin hafi
verið betri en nokkur leiksýning gæti orðið
á því verki. Nú hefur Olivier gert nýja Shake-
speare-mynd: Richard IH., ég hlakka mikið