Birtingur - 01.01.1956, Qupperneq 21

Birtingur - 01.01.1956, Qupperneq 21
atriða og mikilvægi fágunar. Þetta á við um yngri leikarana hér. Einnig skortir nokkuð á að þeir kunni að hreyfa sig á sviðinu og þá vantar sanna ljóðræna tilfinningu. En þá skortir sízt hjartalag og löngun til að vera sannir í listinni. Hitt kemur með auknum þroska. Framsögninni er nokkuð ábótavant og raddbeitingu. En þeir stóðu sig mjög vel og reyndu af öllum mætti að fullnægja kröf- unum. Þeir kunna ekki enn að nota öll tæki: rödd, líkama, huga, hjarta og svo þurfa þeir líka að læra að starfa saman í hópi, sem ein heild. Við töluðum nokkra stund um flutning Ijóðlistar og þá segir Hudd að það voðaleg- asta sem fyrir leikara geti komið sé að sagt verði: he is talking verse, hann talar Ijóðin. Að lokum segist ég hafa lesið ummæli hans um Kjarval og Hudd segir: Já, hann hefur allt til að bera sem mikill listamaður, ég fer með þessa bók heim til að sýna löndum mín- um svo ég geti sannað mál mitt þegar ég segi frá honum, það er listaverkabók Kjarv- als, einn af leikurunum gaf mér hana. Helzt vildi ég fá sýningu eftir hann til London. Að lokum lætur Hudd í ljós að það sé í valdi Þjóðleikhússins hvort hann komi aftur hingað og mér heyrist að ekki standi á honum. f--------------------------------------------- BIRTINGUR Ritstjórn: Einar Bragi (áb.), Suðurgötu 8, Geir Kristjánsson, Tjarnargötu 10A, Hörður Ágústsson, Laugavegi 135, Jón Óskar, Blönduhlíð 4, Thor Vilhjálmsson, Karfavogi 40 - slmi 3760 Kemur út fjórum sinnuin á ári. Árgangur til áskrif- enda kr. 80.00. Lausasöluverð kr. 25.00 heftið. Efni í ritið sendist einhverjum úr ritnefndinni. Hörður Ágústsson gerði kápuna. — Hjörleifur Sig- urðsson valdi lit. — Birgir Eydal prentaði ritið. Myndamót: Litróf h.f. PrentsmiÖja Þjóöviljans h.f. v_____________________________________________/ Frá ritstjórninni Annar árgangur Birtings hefst nokkru síðar en ætlað var vegna ýmissa atvika, kemur því næsta hefti í kjölfar þessa, þannig að tvö verði komin út áður en sumarhlé hefst. Því miður verður ekki hjá því komizt að hækka árgjald Birtings úr 60 krón- um í krónur 80 vegna stórhækkaðs vefrðlags og aukins kostnaðar, þarf varla að styðja þetta rökum hér, svo áþreifanlegt er það öllum almúga. Enn er talsvert áskriftargjald ógreitt frá fyrra ári. Má greiða í bókaverzlun Braga Brynjólfssonar Hafnarstræti, eða til Hannesar Sigfússonar Vesturgötu 65. Birtingur þakkar velvilja og stuðning ótaldra aðilja sem hann væntir að njóta áfram. 15

x

Birtingur

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Birtingur
https://timarit.is/publication/823

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.