Birtingur - 01.01.1956, Síða 24

Birtingur - 01.01.1956, Síða 24
NÍNA TRYGGVADÓTTIR: FERNAND LÉGER Ég minnist þess alltaf þegar ég sá Femand Léger í fyrsta sinn. Það var hjá málaranum og kvikmyndastjóranum Hans Richter í 28. götu í New York. Ég hafði verið að nema kvikmyndatækni hjá Richter um veturinn og þar sem hann var einnig ágætur listmálari hitti ég oft hjá honum ýmsa þekkta málara. Léger vann um þær mundir með Richter að myndinni „Dreams that money can buy“. 1 þeirri kvikmynd f jallar langur kafli um hann og málverk hans. Það sem fyrst vakti athygli í fari Léger var hve miklu þreki hann virtist gæddur, kraftur hans og brennandi áhugi á umheiminum. Þegar hugsað er til þessa þrótt- mikla manns er erfitt að sætta sig við þá hugsun að hann sé dáinn. Hann lézt úr hjarta- slagi 17. ágúst síðastliðinn. Fernand Léger fæddist árið 1881 í Norm- andí á norðurströnd Frakklands. Hann hafði í upphafi ætlað sér að nema byggingalist en hvarf að því að stunda málaralist. Framan af var hann undir ríkum áhrifum frá Cézanne sem hann dáði mest allra málara. Um 1910 kynntist hann Braque og Picasso og átti með þeim upptök að þeirri stefnu myndlistar er nefnist kúbisminn. Sú stefna kviknaði sem einskonar andóf við impression- ismanum sem túlkaði gjarnan leifturskynjan hlutanna í ákveðnu ljósi. Kúbisminn skeytti á hinn bóginn lítt um ytra útlit hlutanna eins og þeir birtast auganu, heldur er þeim umturnað og hagað eftir byggingarkröfum myndflatarins. Á Salon des Independtants í París árið 1911 Léger: Kona setn heldur á blómum (1922) hélt Léger ásamt Picasso og Braque og nokkr- um öðrum fyrstu kúbistisku sýninguna. Þar voru einnig sýndar hinar fyrstu collages- myndir, eða klipp-myndir sem sumir kalla, í vestrænni myndlist en Japanir og Kínverjar höfðu þegar tíðkað það listform í þúsundir ára. Léger hefur skilið og túlkað flestum nú- tímamálurum betur sérkenni nútímans. Hann hefur og sannað að vélar vorra tíma eiga líka sína ljóðrænu eða lyrik. Honum er tamt að nota form véla svo sem tannhjól og málm- pípur og fleiri tákn vélamenningarinnar. Manneskjuna málar hann aldrei sem einstak- ling né aðalefni myndar, heldur lifir hún æv- inlega á myndfletinum sem hluti heildar: hóp- ur manna. Mjmdin Kafararnir (Les plongeurs) sýnir Ijóslega einkenni listar Léger og lífsskoðun hans. 1 henni birtist hópur manna, engin til- raun er gerð til þess að fullmóta hvern ein- stakling heldur myndar hópurinn heild með þróttmikilli hrynjandi: sýndur er fótur á ein- um, hönd á öðrum, höfuð hins þriðja o.s.frv.- Engum lætur betur en Léger að beita and- stæðum til að skapa dramatísk áhrif. Hann teflir ljósum litum gegn dökkum, breið strik leikast á við fínlegar og nettar línur og einn- 18

x

Birtingur

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Birtingur
https://timarit.is/publication/823

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.