Birtingur - 01.06.1962, Page 27

Birtingur - 01.06.1962, Page 27
um að hreinsa þessar pápisku og hneykslanlegu afguðamyndir úr kirkjum sínum. í umburðar- bréfi hans frá 1547 segir meðal annars: Sakir þess að ég formerki fyllilega, að sá blindleiki og hjá- trú fer ennú ekki svo mjög minnkandi sem vera skyldi, að fávíst fólk hér í stiktinu leiti sinnar vel- ferðar hjá svo auvirðilegum hlutum sem er, hjá einum og öðrum líkneskjum, þar fyrir áminni ég og viðvara kristið fólk upp á guðs vegna, að fyrir sakir sinnar sáluhjálpar og eilífrar velferðar afláti allir og forðist slíkan hégóma og afskaplega hjá- trú, að veita svoddan dýrkan og vegsemd nokk- urri skepnu, að heldur feysknum og fyrirfaran- legum líkneskjum.“ Og má ætla að biskupsboð hafi enn scm fyrr verið lögboð í þessum efnum. Norðanlands verður breytingin hægari, og er því miklu meira varðveitt af kaþólskum listaverkum að tiltölu úr Hólabiskupsdæmi en Skálholts, Til dæmis eru allir hinir stóru róðukrossar, sem við eigum úr kaþólskri tíð, frá Norðurlandi, en eng- inn hefur geymzt frá Suðurlandi. Hafa því senni- lega margir deilt sköpum með krossinum lielga I Kaldaðarnesi, sem Gizur biskup lét taka ofan og fyriríara. Með prentun bóka líður einnig hin forna list liandritaskreytinga undir lok. Raunar eru bækur skreyttar langt fram á 17. öld, en skreytingarnar eru vart annað en stælingar fornra lýsinga eða prentaðra bóka, Þegar þannig er komið, er ekki annað en almúgalistin, hannyrðir kvenna, tré- skurður og málmsmíð, sem heldur lífinu í íslenzk um listum. Margt af þessu eru merkilegir hlutir og raunar prófsteinninn á það, hvað listfengi ís- lendinga mátti sín, þrátt fyrir fátækt og eymd þessara myrkustu alda þjóðarsögunnar. Þessi almúgalist, sem ég nefni svo, skiptist greini- lega í tvö horn á 17. og 18. öld: Annars vegar eru það meiri og minni stælingar fornra rómanskra mynda og skrautgerða, og tíðast mjög venju- bundnar. Dæmi þess eru legíó, en ég nefni þó rekkjuklæði Þorbjargar Magnúsdóttur, konu Páls Vídalíns, sem geymt er í South-Kensington safn- inu í London. Það er með rómönskum myndum í hringreitum, og í áletruninni á klæðinu kemur einnig fram að hún hefur stuðzt við fornar fyrir- myndir, því þar segir m. a.: Innan bekkjar allan fans / eftir fornu ráði, en að tilsögn ektamanns / orðin kvendið skráði. Á hinn bóginn koma svo fram á þessu tímabili allmikil áhrif erlendrar endurreisnar- og barokk- listar, svo sem í verkum Guðmundar skurðmeist- ara í Bjarnastaðarhlíð og Hjalta Þorsteinssonar { Vatnsfirði, enda námu þeir báðir list sína er- lendis. Af hannyrðum er hið svonefnda Dyggðaklæði í Þjóðminjasafninu bezta dæmi þessara erlendu áhrifa, en það er talið vera eftir dætur séra Hjalta, og ef til vill teiknað af honum. Með 18. öldinni færist yfir myrkasti tíminn í ís- lenzkri listsögu. Hinar fornu hannyrða- og út- skurðargerðir festast æ meir í dauð venjumót, en þó kemur fyrir að slái neistum af hinum létta rókókóstíl álfunnar, einkum þó í silfursmíð. En þótt drungi sé yfir, er málaralistin þó ekki RIRTINGUR 25

x

Birtingur

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Birtingur
https://timarit.is/publication/823

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.