Birtingur - 01.06.1962, Page 33
Um svipað leyti segir hann í kvæðinu „Embætta-
þjónninn":
),Til hvers að rýna lengra
Reglugerð
sit og bið.
— Til einskis er fyrir okkur að hugsa.
Það gera foringjamir. “
Eftir því sem spennitreyjustefna Stalíns og arna
hans læsti krumlum sínum fastar um allt andlegt
líf í landinu varð æ minna svigrúm fyrir óstýri-
láta byltingarmenn sem Majakofskf. Árið 1930
tók hann þann kostinn að yfirgefa þetta líf. Áður
en hann skaut sig skrifaði hann bréf og kvað per-
sónuástæður ekki liggja að baki. Hann bað menn
fordæma sig ekki, hann gæti ekki annað.
Um þessar mundir var rómantík byltingarinnar
löngu horfin, örbirgðin og óttinn höfðu tekið
völdin. Samyrkjubúskap var komið á og 20—24
milljónir bænda urðu að skipta um bústað.
Fyrsta fimm ára áætlunin (1929—1932) var fram-
kvæmd með sömu hörku og stofnaði vísi að iðn-
aði í landinu. Ríkisvaldið tók að sér rekstur alls
atvinnulífs og menningar. Handhafi valdsins,
Josif Stalín, varð voldugri en allir keisarar Rúss-
lands saman lagðir. Hann var og vitrari en keis-
ararnir: Andstæðinga sína, gamla bolsivikka og
menntamenn, sendi hann aldrei f útlegð, í Sfber-
íu voru vopnin smíðuð gegn keisaradæminu. Josif
Stalin notaði öruggari aðferðir: Þá sem hann lét
ckki slátra, lokaði hann bak við gaddavír.
Á árunum fyrir 1930 risu upp samtök rithöfunda,
sem aðhylltust próletkúltstefnuna. Þau nefndust
RAPP, Samband rússneskra öreigarithöfunda, og
gerðust einráð á sviði bókmennta. Meðlimir sam-
bandsins fengust mest við að syngja lofsöngva um
iðnfyrirtæki fimmáraáætlunarinnar. Stefna þeirra
var sambland úr vestrænum expressionisma og
rússneskum byltingarhug. Slík stefna var þyrnir í
augum valdhafanna. Og enn var galli á gjöf
Njarðar: RAPP var óháð samtök, ekki ríkisfyrir-
tæki. „Rappsinnar reyndu að sundra sovézkum
bókmenntum innanfrá með því að draga rithöf-
unda í dilka eftir þvf hvort þeir voru „öreigar"
eða „ekkiöreigar" að uppruna, alveg án tillits til
hugmyndalegs innihalds verka þeirra." *)
Þann 23. apríl 1932 gaf Stalfn þvf út tilskipun
um að RAPP skyldi leyst upp. Þess í stað var
stofnað Samband sovétrithöfunda, sem var undir
stjórn flokiksins og undir eftirliti leynilögregl-
unnar. Samskonar fyrirkomulagi var komið á í
öðrum listgreinum. Listframleiðslan var þjóð-
nýtt og lögð undir skriffinnskuna. Stofnuð var
rfkisnefnd til að stjórna málefnum listarinnar og
hafði hún úrslitavald um allan rekstur listastofn-
ana (leikhúsa, listskóla, tónleika- og sýningasala,
kvikmyndavera og kvikmyndahúsa o. s. frv.) og
*) Ocerki marksistko-lénínskoj estetiki, M. 1956, bls.
368. Það er athyglisvert, að „öreigarithöfundurinn ‘
Leopold Averbach, sem var forseti RAPP og alvaldur
á sviði bókmennta um tíma, féll i valinn árið 1937 fyrir
kúlum leynilögreglunnar, úthrópaður sem „andbylting-
armaður“ og „trotskisti".
BIRTINGUR
31