Birtingur - 01.06.1962, Síða 39

Birtingur - 01.06.1962, Síða 39
„Þessi rotna, sundurgrotnaða burgeisa-hugmynda- fræði, sem fól sig bak við orðin „nýsköpun", „byltingarsemi" hefur smogið inn í hið sovézka þjóðfélag úr auðvaldsheiminum. . . . Afhjúpun og útrýming þessara burgeisaáhrifa ... er eitt af mikilvægustu verkefnum hins sovézka þjóð- félags“ (Kalosín, 168). Með þessum dómi yfirvaldanna mátti segja, að dagar Meyerholds væru taldir. Hann var útskúf- aður úr því þjóðfélagi, sem hann hafði helgað alla starfskrafta sína, líf sitt og sál. Hann fékk þó svipaða meðferð og Sostakovits, hann var ekki handtekinn, en fékk að fara frjáls ferða sinna um skeið. En enginn þorði að hjálpa honum af ótta við að verða sjálfur fyrir fordæmingu. Hann var einn — hann hafði orðið fyrir reiði valdsins. En þá sýndi Staníslafskí, fyrrverandi kennari hans, af sér það fífldjarfa hugrekki að bjóða Meyer- hold að vera sér til aðstoðar við leikstjórn í litlu óperuleikhúsi, sem tilheyrði Listaleikhúsinu (en þar hafði Staníslafskí látið af störfum). Meyer- hold tók þessu boði Staníslafskís. Meyerhold átti nú um sömu kosti að velja og Sostakovits: Hann gat fallið á kné og beðið hinn Æðsta fyrirgefningar og lofað að þjóna honum. Hann gat einnig setið við sinn keip og gengið þannig í dauðann. Sostakovits valdi þann kostinn að skora yfirvöldin á hólm með 5. symfóníu sinni. Hann sigraði. Meyerhold valdi seinni kostinn. í júní 1939 var kölluð saman í Moskvu ráðstefna leikstjóra. Meyerhold fékk að taka þátt í henni. Hann tók til máls á öðrum degi ráðstefnunnar. Hann viðurkenndi, að hann hafi ef til vill látið eftir sér of mikla tilraunagirni, en ásökuninni um formalisma vísaði hann algerlega á bug: „Ég vildi að mínu leyti mega segja hreinskilnislega: ef það, sem í dag má sjá á sviði beztu leikhúsa í Moskvu, er afrek liins nýja sovétleikhúss, þá kýs ég heldur að vera úthrópaður sem formalisti. Mín skoðun er sú. að sýningar leikhúsanna séu nú vesælar og hræðilegar. Ég veit ekki hvort það er andformalimi eða raunsæi eða natúralismi eða einhver annar „ismi“, ég veit aðeins að það er andlaust og slæmt. Þetta vesæla og gelda, sem gerir kröfu til að vera nefnt „sósíalistísk raunsæisstefna" á ekkert skylt við list. . . . Var þetta markmið yðar? Ef svo er, þá hafið þið framið voðaverk. Þá hafið þið varp- að út barninu með baðvatninu. Þá hafið þið með viðleitni ykkar til þess að útrýma formalismanum útrýmt einnig listinni." *) Valdið lét ekki standa á sér að svara Meyerhold á því tungumáli, sem það kunni bezt. Næsta dag var Meyerhold handtekinn. Nokkru síðar var kona hans myrt í íbúð sinni með hnífstungu. Hvaðeina, sem minnti á Meyerhold var eyðilagt. í bókasöfnum voru blaðsíður skornar út úr bók- um, sem gátu hans, bækur um hann teknar úr umferð, nafn hans hulið algerri þögn. Svo leit út, sem hann hefði aldrei verið til. Árið 1958 kom út aukabindi af sovézku alfræði- *) fvitnaS eftir Juri Jelagin: Kunst und Kiinstler im Sovjetstaat. 1961, S. 117. BIRTINGUR 37

x

Birtingur

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Birtingur
https://timarit.is/publication/823

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.