Birtingur - 01.06.1962, Síða 55
ar 1947, sem tók alvarlega til umræðu vandamál
eftirstríðserfiðleika samyrkjubúskaparins, benti
mér á þetta erfiða efni, sem ég leitaði að.“ *)
„Ég las nær allt, sem Lénín og Stalín höfðu skrif-
að um vandamál bænda. ... Greinar Leníns um
tvær hliðar bændastéttarinnar, um hinn vinn-
andi bónda og eignabóndann, hlutgerðust (kon-
kretíseruðust), og voru staðfestar af frásögnum
samyrkjubænda, sem ég heyrði.“ (Bls. 101.)
Síðan ákvað rithöfundurinn fyrirfram, hvernig
samyrkjubú hún ætlaði að skrifa um. Kunningj-
ar hennar ráðlögðu henni að skrifa um gott sam-
yrkjubú, sem verður ágætt. Og þegar búið var
að ákvarða a priori, hvernig samyrkjubú hún
ætlaði að skrifa um, þá valdi hún til heimsóknar
samyrkjubú sem líkast því. Frú Níkolaéva kom í
fyrsta sinni á ævinni út í sveit er hún heimsótti
samyrkjubú í scptember 1947. Á næsta ári skrif-
aði hún svo samyrkjuskáldsögu sína.
Við förum því að skilja hvers vegna umræður
blossuðu upp um það eftir lát Stalíns, hvort plat-
ónismi eða empírismi ætti að vera hin rétta að-
ferð sovézkrar listar. Úrsikurður hefur fallið: em-
pírismi er hættulegur, varhugaverður. Afleiðing-
in er sú, að listamenn komast í hinn mesta
bobba: þeir verða dags daglega að glíma við þá
þverstæðu að skapa list við aðstæður, sem gera
öll tengsl við lífið og alla listsköpun ókleifa. (Ef
með orðinu ,,list“ er átt við tilraun til að finna
*) Nékotorié voprosi marksístsko-lénínskoj estétíki,
Moskva 1954, bls. 100.
árekstrum einstaklings og þjóðfélags endurlausn
í fögru formi.)
Heimur vöruframleiðslunnar er skapanda allra
verðmæta framandi. Listin verður þar tilraun til
betra lífs, leit að fegurð.
í heimi hinna þjóðnýttu verðmæta er öll hug-
myndasmíð starfsemi ríkisvaldsins, allir aðrir en
hinir opinberu hugmyndafræðingar endurvarpa
aðeins geislum Sólarinnar. Samt er fullyrt, að
endurlausnin hafi verið framkvæmd. Allri leit að
betra lífi, að fegurð ætti því samkvæmt ikenning-
unni að vera lokið. Listin ætti og að vera liðin
undir lok, eftir því, sem Hegel hugsaði sér enda-
lok hennar, hið sovézka ríki á þá að hafa fram-
kvæmt það, sem hið prússneska ríki gerði ekki.
En slíkt er blekking. Aðstæðurnar fyrir endalok-
um listarinnar eru alveg jafn fjarri nú og þær
voru í hinu prússneska ríki á dögum Hegels. Enn
hefur ekki runnið upp ástand hins algera frelsis,
sem gerir líf hvers einstaklings að því, sem það
getur orðið, sem gerir honum kleift að njóta sín,
veitir öllum hæfileikum og tilfinningum hans
útrás í verkum huga og handar. Enn er ætíð fyrir
hendi eitthvert „sollen", sem enn er ekki orðið
„sein“, og meðan svo er mun mannkynið dreyma
um meiri fegurð en ríkir á hverjum tíma.
8. List á 22. þingi
Tuttugasta og annað þing Kommúnistaflokks
Sovétríkjanna var haldið i október 1961. Á þing-
BIRTINGUR
53