Birtingur - 01.06.1968, Page 7

Birtingur - 01.06.1968, Page 7
Með' tölvísi sinni a la satane miðar þessi ritsími á viðkvæmustu bergmálsbletti líkama míns Engill mótaður úr óskum kærleikans deyr og rís upp aftur í bókstöfum þeim sem ég legg leið mína um — Hrópar þú örvingluð á þetta einasta nafn handan úr dökkvanum — Bíddu aðeins augnablik — og þú reikar á vit hafsins Höfuðskepnan sogast strax inn í svitaholur þlnar þú munt hníga með henni og rísa og finnast brátt aftur í sandinum og fljúga langþráður gestur til stjarnanna og eyðast í báli endurfundanna hljóðlega — hljóðlega —

x

Birtingur

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Birtingur
https://timarit.is/publication/823

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.